Morgunblaðið - 14.02.2004, Blaðsíða 31
FERÐALÖG
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 14. FEBRÚAR 2004 31
Ódýrari bílaleigubílar
fyrir Íslendinga.
Bílar frá dkr. 1.975,- pr. viku.
Innifalið í verði; ótakmarkaður akstur,
allar tryggingar.
(Afgr. gjöld á flugvöllum).
Aðrir litlir og stórir bílar 6-7 manna,
minibus og rútur.
Sumarhús og íbúðir.
Norðurlönd og Mið - Evrópa.
Hótel. Heimagisting. Bændagisting.
www.fylkir.is sími 456-3745
Bílaleigubílar
Sumarhús
DANMÖRKU
Alltaf ód‡rast á netinuÍSLE
N
SK
A
A
U
G
LÝ
SI
N
G
A
ST
O
FA
N
/S
IA
.I
S
IC
E
22
35
0
10
/2
00
3
Nýr Netsmellur
Ódýrastir til Evrópu
Verð frá 14.490 kr.
gisting í Kaupmannahöfn frá DKK 90,-
www.gisting.dk
sími: 0045 32552044
Ég þekkti fólk sem hafði fariðtil Slóveníu fyrir áratugumþegar Júgóslavía var enn
við lýði,“ segir Margrét Eiríksdóttir
sem ásamt manni sínum Einari Má
Árnasyni fór til Slóveníu með
Heimsferðum í fyrrasumar. „Þegar
ég sá að boðið var upp á 12 daga
ferð þangað þá kannaðist ég við
ákveðna áfangastaði sem ég féll fyr-
ir að skoða. Í Slóveníu má finna flest
sem ferðamenn sækjast eftir, þar
eru baðstrendur, fallegar borgir og
bæir, grösugar sveitir og tignarleg
fjöll.“
Sumarhöll Títós
„Flogið var til Veróna. Við ókum
þaðan eftir næturgistingu sem leið
lá upp í fjalllendi Slóveníu, sem er
hluti af Júlíönsku Ölpunum, þar til
við komum til Bled, en það er óskap-
lega fallegur gamall bær,“ segir
Margrét. „Bærinn mátti sín meira
hér áður fyrr á tímum Júgóslavíu
sem sumardvalarstaður þeirra sem
efnameiri voru. Þar stendur til
dæmis sumarhöll Títós. Þetta er al-
ger paradís, lítill fallegur bær við
stöðuvatn í skógivöxnu umhverfi og
umkringdur tignarlegum fjöllum.
Slóvenía öll ber þess merki að hafa
verið kommúnískt ríki. Þar má enn
sjá byggingar í þessum sér-
kennilega slóvenska stíl sem er ekki
fallegur en einnig tengsl við aust-
urríska eða tírólska byggingarlist
sem er einkennandi í sveitunum.
Þetta á einnig við um umhverfið og
náttúruna.“
„Við nutum staðarins, skoðuðum
kastalann, eyjuna í vatninu, fallegar
kirkjur og mannlífið,“ segir Mar-
grét. „Reyndar fórum við til Bohimj
sem er að mestu ósnortið svæði og
má einna helst líkja við Mývatn.
Landflótta skógarbirnir
Staðurinn er eftirsóttur af íbúun-
um og er mikil skíðaparadís á vet-
urna. Þarna er nokkuð af mann-
virkjum tengt skíðaíþróttinni. Þegar
við vorum þarna virtust íbúarnir
fyrst og fremst njóta þess að vera
við vatnið. Okkur var sagt að í skóg-
inum í kring væru villtir birnir en
við sáum þá ekki. “
Frá Bled var farið í skoðuarferð
til Lubljana, höfuðborgar Slóveníu,
og segir Margrét að borgin beri
merki fallegrar byggingarlistar.
„Slóvenía slapp að mestu við átök.
Lýsti hún fyrst ríkja yfir sjálfstæði
og má segja að varla hafi komið til
átaka og fáir fallið,“ segir Margrét.
„Matarmenningin er fjölbreytt og
úr öllum áttum og það er mjög
ódýrt að fara út að borða. Við borð-
uðum oft á hótelunum sem við gist-
um á og það virtist vera nóg til af
öllum mat. Það vakti líka athygli
okkar að allar rúturnar voru nýjar
en ekki gamlar og þreyttar. Það var
verulega vel að ferðinni staðið.“
Frá Bled var haldið til Portoroz
en það er gamall þekktur strand-
bær. Ströndin þykir afar sérstök,
malar- og klettaströnd en aðeins
nokkrir kílómetrar á lengd og sjór-
inn er tandurhreinn. Í nágrenni
Portoroz eru þekktir fallegir staðir,
sem Margrét segir að gaman sé að
skoða, eins og t.d. Piran en þar er
gamalt virki í skemmtilegum
smábæ.
Gleymt listaverk
Á heimleiðinni var gist í Mantua á
Ítalíu, sem er skammt frá Verona, í
eina nótt. „Þetta er borg sem vert er
að kynnast nánar, hún er yndisleg,“
segir Margrét. „Lítil en í raun eitt
samfellt listaverk með fallegum
byggingum og umhverfið er sér-
stakt. Bærinn er nánast umkringd-
ur vatni og er það eini staðurinn ut-
an Kína þar sem lótusblóm vaxa og
blómstra. Ég hafði hvorki heyrt af
þessari borg né séð myndir en ég á
örugglega eftir að koma þangað aft-
ur.“
EFTIRMINNILEG FERÐ | Margrét Eiríksdóttir skoðaði ýmsa áhugaverða staði í Slóveníu
Frá baðströnd til tignarlegra fjalla
Í Portoroz var gist á Hótel Ri-
veria, sem Margrét mælir með.
Slóðin er www.hotele-morje.si.
Upplýsingar um Bled er að finna
á www.bled.si
Upplýsingar um Mantova er að
finnna á www.aptmantova.it
Ferðalangar: Ása Valdimarsdóttir fararstjóri og hjónin Margrét Eiríks-
dóttir og Einar Már Árnason í fjöllum Slóveníu.
Sólarströnd: Piran er strandbær og þar er gamalt virki.
Bergljót Leifsdóttir Mensualisér um útleigu sumarhúsafyrir fasteignasöluna G.E.G.
Immobiliare í Flórens. „Við erum
með svefnherbergi með morg-
unverði, íbúðir og einbýlishús til
leigu í nágrenni Greve in Chianti og
í Flórens. Á fyrri staðnum eru allar
íbúðir og einbýlishús með sundlaug
en eitt hús í Flórens er með sund-
laug. Mörg húsin eru með loftkæl-
ingu og við bjóðum herbergi, íbúðir
og hús í öllum verðflokkum.“
Bergljót segir að Greve in Chianti
sé í rúmlega 30 km fjarlægð frá
járnbrautarstöðinni í Flórens en
þaðan eru rútuferðir til Greve sem
taka klukkustund. Hún segir að
Greve sé miðja vegu á milli Flórens
og Siena ef farið er Vínveginn svo-
kallaða.
Í Greve in Chianti er hægt að
leigja reiðhjól og gefur Bergljót
upplýsingar um styttri og lengri
hjólreiðatúra. Einn af fallegustu
golfvöllunum er um það bil 8 km fyr-
ir sunnan Flórens og 12 km frá
Greve in Chianti. „Mikilvægt er að
vera með skírteini síns golfklúbbs á
Íslandi til að fá aðgang að golfvell-
inum Ugolino,“ segir hún.
Einnig leigir fasteignasalan
G.E.G. Immobiliare út íbúðir í Sor-
rento á Suður-Ítalíu. Bergljót hefur
verið leiðsögumaður fyrir þýsku- og
enskumælandi ferðamenn í Flórens,
Siena og San Gimignano og hún seg-
ist hlakka til að veita Íslendingum
leiðsögn ef þeir sækjast eftir henni.
Gisting: Leigð eru út svefnherbergi með morgunverði, íbúðir og einbýlis-
hús í nágrenni Greve in Chianti og í Flórens.
Leigir út sumarhús
ÍTALÍA
Nánarir upplýsingar fást á
netfanginu begga@inwind.it.
Einnig er hægt að hafa sam-
band við Bergljótu í síma: 0039
348 8716986. Faxnúmerið er:
0039 055 8544863.