Morgunblaðið - 14.02.2004, Síða 56

Morgunblaðið - 14.02.2004, Síða 56
56 LAUGARDAGUR 14. FEBRÚAR 2004 MORGUNBLAÐIÐ Clifton - Kóbrukossinn Risaeðlugrín framhald ... HEY ÞÚ! SKILRÍKI!! © DARGAUD © DARGAUD MÉR ER AFLVEG SAMA HVAÐ ÖÐRU FÓLKI FINNST! ÞETTA KEMURBLÓÐINU AF STAÐ, HA! ... MERGJAÐ FRÆNDI! ÞAÐ ER GOTT AÐ SJÁ AÐ ÞÚ ERT Í GÓÐU FORMI! ÉG LEYFI MÉR AÐ KOMA ÞÉR Á JÖRÐINA, HEFUR ÞÚ LITIÐ Á KLUKKUNA? HAMINGJAN! EITTHVAÐ VANDAMÁL HARALDUR FRÆNDI? VERRA EN ÞAÐ! STÓR- SLYS STUBBUR, ÞJÓÐAR- HÖRMUNG! ... STUTTU SÍÐAR ... ÉG VAR HRÆDDUR UM ÞAÐ! ... STÓR- SLYSIÐ BÍÐUR OKKAR! ... HÆTTULEGRA EN KÓBRUKOSSINN! ERTU EKKI AÐEINS AÐ ÝKJA, HARALD- UR FRÆNDI? EN VARÐSTJÓRI ... MEÐ LEYFI ... AF HVERJU ERTU AÐ SPYRJA AF ÞVÍ? ÖÖÖ... TJA, ÉG VEIT Í RAUNINNI EKKI ... LÁTUM OKKUR SJÁ VERTU KYRR ÉG ÞARF AÐ SPYRJA STJÓRANN ... ÉG KEM AFTUR NÚ VEIT ÉG! HANN SAGÐI AÐ ÉG VÆRI ALGJÖR ASNI ÞVÍ ÞETTA STENDUR Í REGLUGERÐINNI EINS OG HANN HAFÐI BENT MÉR OFT Á HA... OG TIL HVERS ER ÞESSI REGLUGERÐ ÖÖ ... ANDARTAK ÉG KEM AFTUR STJÓRINN SAGÐI, REGLUGERÐIN ER TIL STAÐAR TIL AÐ HALDA LÖG OG REGLU, HANN SAGÐI LIKA AULINN ÞINN EF ÞÚ KEMUR AFTUR Á MEÐAN ÉG ER SOFANDI VERÐUR ÞÚ REKINN EN FLOTT!! STJÓRINN ER ÚRÍLLUR! ÚR ÞVÍ ÞETTA ER SVONA, SKAL ÉG HLÝÐA. HVAÐ VARSTU ANNARS AÐ BIÐJA MIG UM ÖÖ..JÁ ÉG ER ALVEG BÚIN AÐ GLEYMA ÞVÍ BRÉF TIL BLAÐSINS Kringlunni 1 103 Reykjavík  Sími 569 1100  Símbréf 569 1329  Netfang bref@mbl.is Allt efni sem birtist í Morgunblaðinu og Lesbók er varðveitt í upplýsinga- safni þess. Morgunblaðið áskilur sér rétt t i l að ráðstafa efninu þaðan, hvort sem er með endurbirtingu eða á annan hátt. Þeir sem afhenda blaðinu efni ti l birtingar teljast samþykkja þetta, ef ekki fylgir fyrirvari hér að lútandi. SIV Friðleifsdóttir umhverfisráð- herra er ákafur talsmaður þess að gert verði mat á umhverfisáhrifum þess að hækka stíflu um í Laxá í Suður-Þingeyjar- sýslu um 10–12 metra. Þannig reynir hún að réttlæta bráða- birgðaákvæði III með frumvarpi til laga sem hún hef- ur lagt fram á Al- þingi um breyt- ingar á lögum um verndun Mývatns og Laxár, bráðabirgðaákvæði sem opnar fyrir hækkun stíflunnar. Í viðtali við Morgunblaðið 10. febr- úar segir hún „Að mínu mati er eðli- legt að umhverfisáhrif af svona fram- kvæmd séu skoðuð, að það sé ekki útilokað fyrir fram að hægt sé að skoða umhverfisáhrif á þessu svæði.“ Eitt sinn var sami ráðherra mót- fallinn því að umhverfisáhrif Fljóts- dalsvirkjunar og Eyjabakkalóns yrðu metin. Þá snerist málið um nátt- úruvernd og lýðræðislegan rétt al- mennings. Nú snýst málið um að vernda vélar Landsvirkjunar. Rétt er að hafa hugfast að mat á umhverfisáhrifum er á forræði fram- kvæmdaraðila, í þessu tilviki Lands- virkjunar. Ráðamenn hafa ítrekað bent á að matsferlið sé til þess ætlað að sníða helstu agnúa af fram- kvæmdum, ekki til að koma í veg fyr- ir þær. Eftir úrskurð umhverfisráðherra um Kárahnjúkavirkjun er nær óhugsandi að Skipulagsstofnun hafni framkvæmd, því síður umhverfisráð- herra í kjölfar kæru. Fyrir Alþingi liggur lagafrumvarp um mat á um- hverfisáhrifum. Verði það að lögum er kæruheimildin sjálf fokin út í veð- ur og vind. Trúir Siv umhverfisráðherra eigin orðum? Trúir hún því að Landsvirkj- un ætli bara að „skoða“ umhverfis- áhrifin með aðstoð Skipulagsstofn- unar og síðan setjast niður og ræða hvort ráðast skuli í stífluhækkun? Vitaskuld ekki. Markmið umhverfis- ráðherra og Landsvirkjunar með umræddu bráðabirgðaákvæði III er að liðka fyrir hækkun stíflu í Laxá, að gera það erfiðara fyrir heimamenn að standa gegn framkvæmd eftir að Skipulagsstofnun hefur fallist á framkvæmdina. Fyrst verndaráætlun Framganga umhverfisráðherra er óskiljanleg í ljósi þess að Laxár- og Mývatnssvæðið er verndað sam- kvæmt Ramsar-samningnum um verndun votlendis. Samkvæmt þeim samningi hefur Ísland skuldbundið sig til að gera verndaráætlun fyrir svæðið og það gegnir furðu að um- hverfisráðherra skuli tönnlast á nauðsyn umhverfismats á vegum Landsvirkjunar áður en nokkur verndaráætlun hefur verið gerð fyrir svæðið á vegum umhverfisráðuneyt- isins. Slík verndaráætlun á að hafa for- gang en ekki gerð matsskýrslu Landsvirkjunar því matskýrsla er fyrsta skref til að ráðast í fram- kvæmd. Umhverfisráðherra væri mestur sómi að að draga bráðabirga- ákvæði III til baka og hefja gerð verndaráætlunar í samræmi við al- þjóðlegar skuldbindingar Íslands. ÁRNI FINNSSON, Náttúruverndarsamtökum Íslands. Verndaráætlun eða umhverfismat? Frá Árna Finnssyni hjá Nátt- úruverndarsamtökunum Árni Finnsson ÞAU sem upplifðu tíma kalda- stríðsins, kjarnorkukapphlaupið og ógnina, sem alltaf var viðvarandi, kalla ekki allt ömmu sína. Þetta voru erfiðir tímar og miklar breytingar, sem áttu sér stað. Fólk skiptist í flokka, stefnur og skoðanaskipti voru á mjög hvössum nótum og póli- tíkin var harðvítug. Stundum vissum við ekki okkar rjúkandi ráð. Upp úr því komu svo kvenfrelsishreyfingar, sem létu öllum illum látum.Við karlarnir vor- um best geymdir úti í horni. Þær lof- uðu að leggjast í skurðgröfugröft og að meðhöndla logsuðutæki væri hið minnsta mál. Svona gekk þetta ár eftir ár. Mikið lifandi skelfing var þetta þreytandi. Síðan hefur margt breyst og vonandi til batnaðar. En alltaf er þessi togstreita til staðar. Núna birt- ist hún í nýrri og áður óþekktri mynd. Alþjóðahyggja, auðsöfnun, óbrúandi bil fátækra og snauðra. Og unga fólkið upplifir þetta á annan hátt. Áhrifin er jú alls staðar. Þau dembast yfir gegnum miðlana, ekki síst hið alþjóðavædda internet. Eng- inn sá fyrir hversu sterkur sá miðill gat orðið. Þetta er ekkert nýtt fyrir okkur, sem eldri erum. Prentmiðl- arnir voru jafnsterkir í gamla daga og menn gátu verið hengdir upp á þráð af einskærri togstreitu svo ár- um skipti. En svo gat maður huggað sig við orð Halldórs Laxness, þegar hann ræddi um línuna, sem lá þvert í gegnum Evrópu, járntjaldið. Það voru landamæri austurs og vesturs. Frá Norðuríshafi um Þýskaland um Mæri og til Miðjarðarhafs. Og ann- ars staðar í heiminum voru líka eins konar tjöld. Kommúnismi og kapítal- ismi, það voru pólarnir í þá daga. En Laxness sagði eitthvað á þá leið að þetta strik (línan) lægi ekki eftir löndunum, heldur fyrst og fremst um mann sjálfan. Við Íslend- ingar erum lukkunnar pamfílar, örugglega ríkasta þjóð veraldar per capita, og erum þar afleiðandi orðin áhrifabitbein stóru þjóðanna og jafn- vel stóru blokkanna, því að þær eru enn til staðar, bara í breyttri mynd. Þess vegna verðum við að fara að öllu með gát og vona að þeim kjörnu fulltrúum okkar farnist vel í að rata í rétta átt í þeim efnum. SIGURÐUR INGÓLFSSON, Háaleitisbraut 26, Reykjavík. Ógnarafl Frá Sigurði Ingólfssyni

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.