Morgunblaðið - 14.02.2004, Page 61

Morgunblaðið - 14.02.2004, Page 61
ÍÞRÓTTIR MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 14. FEBRÚAR 2004 61 Stelpurnar okkar ! Meðal dagskrárliða: ● Staðan á Íslandi í dag● Dr. Sigríður Jónsdóttir, varaforseti ÍSÍ ● Íþróttaumhverfi stúlkna á Íslandi – Þættir sem hafa áhrif á íþróttaþátttöku: Heimilið – Hvatning fjölskyldunnar ● Anna Guðrún Steinsen Skólinn – Íþróttakennsla í grunnskólum og viðhorfamótun nemenda ●Tómas Jónsson Íþróttafélagið – Jafnir möguleikar til íþróttaiðkunnar? ● Petrún Bj. Jónsdóttir Fjölmiðlar – Fjölmiðlar og kvennaíþróttir ● Þuríður Helga Þorsteinsdóttir ● “Only sport for the tough guys?” Gender, youth, culture and snowboarding ● Dr. Mari Kristin Sisjord, dósent við Íþróttaháskólann í Osló ● Sjálfsmynd stúlkna og íþróttaiðkun ● Dóra Guðrún Guðmundsdóttir, verkefnisstjóri Geðræktar ● Are Physical Education classes for all girls and boys? ● Dr. Fiona Dowling, dósent við Íþróttaháskólann í Osló ● Umræðuhópar – Hvernig framtíð viljum við búa stelpunum okkar ? Ráðstefnugestir geta valið um þátttöku í eftirfarandi hópum: Heimili – Skóli – Íþróttafélagið – Fjölmiðlar – Afreksíþróttir – Sjálfsmyndin Ráðstefnustjórn ● Halldóra Vanda Sigurgeirsdóttir, aðjunkt í tómstundafræðum við KHÍ Sameiginleg ráðstefna KHÍ og ÍSÍ um Konur og íþróttir Grand Hótel Reykjavík, laugardaginn 21. febrúar 2004 frá kl. 9:00 til 17:00 Þátttökugjald er kr. 1.500,- innfalið er ráðstefnugjald, kaffi og hádegisverður. Hægt er að skrá sig á netfangið helga@isisport.is eða í síma 514 4000. Frekari upplýsingar og tímasett dagskrá er á www.isisport.is FÓLK  ALAN Curbishley, knattspyrnu- stjóri enska úrvalsdeildarliðsins Charlton sem Hermann Hreiðars- son leikur með, hefur framlengt samning sinn við félagið til sumars- ins 2007. Þar með lýkur vangavelt- um um framtíð Curbishley hjá fé- laginu en hann hefur verið orðaður við starf knattspyrnustjóra hjá Aston Villa, West Ham og nú síð- asta hjá Tottenham. Hann hefur verið stjórnvölinn hjá Charlton frá 1991 og hefur enginn knattspyrnu- stjóri í ensku úrvaldeildinni lengri starfsferil hjá sama félaginu að Sir Alex Fergsuon hjá Manchester United undanskildum.  MARTIN O’Neill, knattspyrnu- stjóri skoska liðsins Celtic, var ekki ánægður með að lið hans skyldi þurfa að leika á gervigrasi í 4:1 sigri liðsins gegn Dunfermline í skosku úrvalsdeildinni á miðviku- dag. Celtic er með 11 stiga forskot á Rangers sem er í öðru sæti en O’Neill segir að völlurinn sé ekki boðlegur og stefni heilsu leik- manna í hættu.  „VÖLLURINN var eins og ís- klumpur og Stevie Crawford var heppinn að hálsbrjóta sig ekki er hann rann á ísnum við enda vall- arins. Það liggur fyrir að fleiri lið munu setja upp slíka velli og ég stend harður á því að slíkt mun skaða ímynd skosku deildarinnar enn frekar,“ segir O’Neill.  PORSTMOUTH verður án Pat- rick Berger, Steve Stone og Teddy Sheringham þegar það sækir Liverpool heim í 5. umferð ensku bikarkeppninnar á Anfield í dag. Berger og Stone meiddur í leik við Chelsea á miðvikudags- kvöldið.  FORRÁÐAMENN NBA-liðsins New Jersey Nets virðast hafa hitt naglann á höfuðið er þeir létu By- ron Scott, þjálfara liðsins, taka poka sinn á dögunum og réðu í hans stað fyrrum aðstoðarþjálfara liðsins Lawrence Frank sem er að- eins 33 ára gamall.  UNDIR stjórn Frank hafa Nets unnið níu leiki í röð, og hefur hann enn ekki upplifað að tapa sem þjálfari. Hann hefur nú þegar jafn- að met þeirra þjálfara sem hafa átt góðu gengi að fagna í upphafi síns ferils sem þjálfarar. Kurt Rambis vann níu fyrstu leiki sína sem þjálf- ari Los Angeles Lakers tímabilið 1998–99, og slíkt hið sama gerði Buddy Jeannette sem þjálfaði Baltimore Bullets, 1947–48. JÓHANNES Harðarson, knatt- spyrnumaður frá Akranesi, er kominn til norska 1. deildarliðsins Start og verður þar til reynslu næstu daga. Jóhannes hefur verið í röðum hollenska úrvalsdeildarliðs- ins Groningen í hálft þriðja ár en fengið fá tækifæri hjá félaginu. Samkvæmt norska blaðinu Fædrelandsvennen hafa for- ráðamenn Start mikinn áhuga á að fá Jóhannes í sínar raðir. „Það leynir sér ekki að hann hefur leikið knattspyrnu í háum gæðaflokki. Hann er mjög góður með boltann, flinkur og jafnframt vinnusamur,“ sagði Erik Solér, hinn kunni umboðsmaður og aðal- eigandi Start, við blaðið. Jóhannes er 27 ára miðjumaður og lék með Skagamönnum þar til hann fór til Hollands í ársbyrjun 2001. Þar spilaði hann fyrst í hálft ár með Maastricht í 1. deild en hefur síðan verið í herbúðum Groningen. Hluta af síðasta tíma- bili lék hann með Veendam í 1. deild. Jóhannes hjá Start ÞRIÐJA og síðasta umferðin í Ís- landsmótinu í glímu, Lepp- inmótaröðinni, fer fram í íþrótta- húsi Hagaskóla á morgun kl. 13. Keppt verður í sjö flokkum og Ís- landsmeistarar krýndir. Ólafur Oddur Sigurðsson, HSK, hefur flest stig í opnum flokki karla fyrir loka- mótið, eða 12. Þá koma þeir Pétur Eyþórsson, UV og Stefán Geirsson, HSK, eru með 8 stig. Svana Hrönn Jóhannsdóttir, GFD, er með 11 stig í opnum flokki kvenna – á góða möguleika á að verða tvöfaldur meistari, þar sem hún er einnig með flest stig í +65 kg flokki. Sól- veig Rós Jóhannsdóttir, GFD, er með 9 stig og Inga Gerða Péturs- dóttir, HSÞ, 8,5 stig. Sjö meist- arar krýndir Frá árinu 1999 hafa á bilinu 8–14íslenskir leikmenn komið við sögu hjá norskum úrvalsdeildarlið- um, og flestir voru þeir árið 2002. Þessi þróun virðist vera í beinu samhengi af því að í ár verða 46 er- lendir leikmenn á samningi hjá norskum úrvalsdeildarliðum en í fyrra voru þeir alls 64. Það eru því færri erlendir leikmenn í norsku deildinni en áður. Framkvæmda- stjóri Molde, Espen Silseth, segir við Aftenposten að það séu margar ástæður á bak við brotthvarf erlendra leikmanna frá Noregi. „Margir þeirra voru með lausa samninga og vildu ekki taka þeim til- boðum sem þeir voru með frá sínum félögum. Launakröfur norskra leik- manna eru ekki eins miklar og áður og þess vegna eru þeir vinsælli en áður. Við hjá Molde höfum einnig rekið okkur á að það er erfitt að „selja“ liðið ef það er skipað að mestu erlendum leikmönnum. Við ætlum því að leggja meiri rækt við að nota okkar leikmenn og skapa okkur betri ímynd,“ segir Silseth. Tom Helge Rønning hjá Odd/ Grenland segir að leikmenn frá Austur-Evrópu séu mun ódýrari en þeir sem komi frá t.d. Svíþjóð en að sama skapi sé mun meiri áhætta tek- in með slíkum leikmönnum. Þeir nái sér ekki á strik og þeim gengur illa að aðlagast aðstæðum. Alls hafa átta leikmenn sem voru samningsbundnir norskum liðum horfið á braut frá því í fyrra og þeir eru: Indriði Sigurðsson, Lilleström, Helgi Sigurðsson, Lyn, Jóhann B. Guðmundsson, Lyn, Bjarni Þor- steinsson, Sverrir Garðarsson og Andri Sigþórsson, allir Molde, Tryggvi Guðmundsson, Stabæk, og Árni Gautur Arason, Rosenborg. Forsvarsmenn norskra liða segja ennfremur að fjárhagur liðanna hafi ekki verið upp á það besta undanfar- in misseri og sala á leikmönnum til landa á borð við England hafi gefið lítið af sér. Ensk lið hafi leitað á önn- ur mið þar sem norsku liðin hafi verðlagt sína leikmenn of hátt, og engar tekjur hafi verið af leikmanna- sölum eins og flest lið hafi gert ráð fyrir. Morgunblaðið/Árni Torfason Landsliðsmaðurinn Indriði Sigurðsson í harðri baráttu við Miroslav Klose. Indriði leikur nú í Belgíu, eftir að hafa leikið í Noregi. Fjárhirslur Norð- manna að tæmast Á UNDANFÖRNUM árum hafa fjölmargir íslenskir knattspyrnumenn leikið í efstu deild í Noregi og látið mikið að sér kveða en í ár bregð- ur svo við að aðeins fjórir íslenskir leikmenn verða í eldlínunni í norsku úrvalsdeildinni. Þeir eru Ólafur Örn Bjarnason hjá Brann, Gylfi Einarsson og Davíð Þór Viðarsson hjá Lyn og Hannes Þ. Sig- urðsson hjá Viking. Aðeins fjórir íslenskir knattspyrnumenn verða í eldlínunni í norsku úrvalsdeildinni NORSKA meistaraliðið í knattspyrnu, Rosen- borg, hefur skilað gríðarlegum hagnaði und- anfarin ár, en á síðastliðnu ári var liðið ekki í riðlakeppni Meistaradeildar Evrópu í fyrsta sinn á sl. sjö árum. Samt sem áður skilaði félagið hagnaði upp á um 150 milljónir króna og er eig- ið fé félagsins nú um 1,2 milljarðar króna, sam- kvæmt frétt norska staðarblaðsins Addresseav- isen. Á síðasta keppnistímabili mættu 15.800 áhorf- endur á leiki liðsins að meðaltali og vonast for- svarsmenn liðsins til þess að á næsta keppn- istímabili sem hefst í apríl verði yfir 20.000 að meðaltali á leikjum liðsins. Gríðarlegur hagnaður hjá Rosenborg

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.