Morgunblaðið - 14.02.2004, Síða 72
MORGUNBLAÐIÐ, KRINGLUNNI 1, 103 REYKJAVÍK, SÍMI 569 1100, SÍMBRÉF 569 1181, PÓSTHÓLF 3040,
ÁSKRIFT-AFGREIÐSLA 569 1122, NETFANG: RITSTJ@MBL.IS, AKUREYRI: KAUPVANGSSTRÆTI 1 LAUGARDAGUR 14. FEBRÚAR 2004 VERÐ Í LAUSASÖLU 190 KR. MEÐ VSK.
Smáauglýsingar á
Nýtt kortatímabil
Útsölulok um helgina
Opið 10-18 í dag!
ÍS
LE
N
SK
A
A
U
G
LÝ
SI
N
G
A
ST
O
FA
N
/S
IA
.I
S
K
RI
2
32
30
0
1/
20
04
KB BANKI skilaði í fyrra rúmlega
7,5 milljarða króna hagnaði, sem er
mesti hagnaður sem íslenskt fyrir-
tæki hefur náð á einu ári og 40%
meiri hagnaður en Búnaðarbanki og
Kaupþing náðu samanlagt árið 2002.
Á aðalfundi KB banka hinn 27.
mars næstkomandi mun stjórn
bankans leggja til 1,3 milljarða
króna arðgreiðslu til hluthafa, eða
sem nemur 18% af hagnaði.
Samanlagður hagnaður viðskipta-
bankanna þriggja, Íslandsbanka,
KB banka og Landsbanka, nam í
fyrra 16,3 milljörðum króna, sem er
51% eða 5,5 milljörðum króna meiri
hagnaður en árið 2002.
Hagnaðaraukning KB banka
skýrist að miklu leyti af mikilli
aukningu gengishagnaðar af hluta-
bréfaeign bankans, en hagnaður af
hlutabréfaeigninni jókst milli ára úr
1,9 milljörðum króna í 4,6 milljarða
króna. Þjónustutekjur jukust um
rúma 4 milljarða króna og námu
11,1 milljarði króna, sem skýrist að
miklu leyti af stórum verkefnum í
fyrirtækjaráðgjöf og auknum um-
svifum í miðlun, meðal annars í Sví-
þjóð. Afkoma bankans batnaði eftir
því sem leið á árið og var síðasti árs-
fjórðungurinn sá besti með rúmlega
2,4 milljarða króna hagnað. Ástæða
þessarar þróunar eftir því sem leið á
árið er meðal annars sú að afkoma
Kaupthing Bank Sverige, sem áður
hét JP Nordiska, snerist úr tapi í
hagnað.
Sé litið á árið í heild skilaði starf-
semi bankans á Íslandi 76% hagn-
aðarins, en á fjórða fjórðungi ársins
var hlutfall Íslands í hagnaðinum
innan við helmingur, eða 49%.
Framlag í afskriftareikning út-
lána jókst um 40% milli ára og nam
3,9 milljörðum króna. Forstjóri
bankans, Hreiðar Már Sigurðsson,
sagði á kynningarfundi vegna upp-
gjörsins að framlagið væri of hátt og
mikilvægt væri að það lækkaði.
Framlag á afskriftareikning lækk-
aði milli fjórðunga og var tæpum
200 milljónum króna hærra á þriðja
fjórðungi ársins en þeim fjórða, en á
fyrstu tveimur fjórðungum ársins
var það mun lægra.
Milljón milljónir í
stýringu og vörslu
Fjármunir í vörslu bankans og
eignir í stýringu hans námu sam-
anlagt rúmlega eitt þúsund milljörð-
um króna um áramót, sem er 38%
aukning frá því ári áður.
Markaðsviðskipti bankans skiluðu
mestri framlegð fyrir sameiginlegan
kostnað, eða 5,5 milljörðum króna.
Það afkomusvið sem skilaði næst-
mestri framlegð var fyrirtækjaráð-
gjöfin, með 4,5 milljarða króna, og
því næst var fjárstýringin, með 2,7
milljarða króna. Viðskiptabanka-
starfsemin skilaði 2,2 milljarða
króna framlegð fyrir sameiginlegan
kostnað.
Gengi hlutabréfa KB banka
hækkaði um 3,5% í viðskiptum gær-
dagsins og markaðsverð hans er nú
119 milljarðar króna.
Mesti hagnaður
Íslandssögunnar
KB banki skilar
7,5 milljarða
króna hagnaði
Hagnaður/16
UM 700 nemar í 5. og 6. bekk grunn-
skólanna í Grafarvogi kynntu sér
ýmsar íþróttir á Fjölnisdeginum í
gær hjá Ungmennafélaginu Fjölni.
Tilgangur dagsins var að bjóða nem-
endunum að kynna sér íþróttir sem
tómstundastarf. Guðlaugur Þór
Þórðarson, formaður Fjölnis, tjáði
Morgunblaðinu að hugmyndin væri
að börnin kynntust þeim sem sinntu
æskulýðs- og tómstundamálum,
kirkjunni, skólanum og íþróttafélag-
inu, en kynningin fór fram í Egils-
höll og íþróttahúsinu við Dalhús.
Sagði hann börnin hafa verið hvött
til þess að kynna sér greinar sem
þau hefðu ekki lagt stund á til þessa.
Kynntar voru boltaíþróttir, glíma,
fimleikar, djassballett, skák og tenn-
is, svo nokkuð sé nefnt. Morgunblaðið/Eggert
Boltafimi
á Fjölnis-
deginum
GAGNRÝNENDUR dagblað-
anna The New York Times,
The Village Voice og The New
York Post eru hæstánægðir
með kvikmyndina Mávahlátur
eftir Ágúst Guðmundsson.
Myndin var frumsýnd í New
York í gær og framundan eru
sýningar á myndinni víða um
Bandaríkin.
Ágúst var viðstaddur frum-
sýninguna í gær og er að von-
um ánægður með viðbrögð
gagnrýnenda og vonar að þau
eigi eftir að glæða áhugann á
myndinni.
Gagnrýnandi The New York
Times líkir myndinni við
dönsku myndina Ítalska fyrir
byrjendur og norsku myndina
Elling en báðar gengu mjög
vel í Bandaríkjunum. Í um-
sögninni er Mávahlátur sögð
„fáguð, léttleikandi og
skemmtileg“ með hæfilegri
„dimmu og dulúð“.
Gagnrýnandi The Village
Voice líkir myndinni við
„vandað breskt drama“ en
kollegi hans hjá The New
York Post segir hana
„skrítna“ en „ánægjulega“ líkt
og myndir Friðriks Þórs Frið-
rikssonar.
Margrét Vilhjálmsdóttir, Ugla
Egilsdóttir og Edda Björg Eyj-
ólfsdóttir leika í Mávahlátri.
Skrítin og
ánægjuleg
Mávahlátur
lofuð vestra
Fiskur/65
ALÞJÓÐADÝRAVERNDUNARSJÓÐURINN
(International Fund for Animal Welfare) hefur
sótt um leyfi til íslenzkra stjórnvalda að senda
nýtt rannsóknaskip sitt, Song of the Whale, á Ís-
landsmið næsta sumar. Markmiðið er að þróa
áfram aðferðir til að rannsaka lífshætti hvala án
þess að veiða þá, einkum hljóðsjárrannsóknir.
„Skip, sem við höfum átt í sextán ár, hefur verið
í fararbroddi í hljóðsjárrannsóknum á hvölum. Við
höfum m.a. þróað baujur og hugbúnað til að vara
skip við hvölum, telja hvali og átta okkur á dreif-
ingu þeirra á hafsvæðum. Niðurstöður rannsókn-
anna hafa verið birtar í vísindagreinum í al-
þjóðlega viðurkenndum tímaritum,“ segir
Christopher H. Tuite, næstæðsti yfirmaður
IFAW, í samtali við Morgunblaðið.
Hann segir að rannsóknatillaga og beiðni um
leyfi til rannsókna hafi verið send utanríkisráðu-
neytinu í lok janúar, en enn hafi ekki borizt svar
frá íslenzkum stjórnvöldum. Song of the Whale er
enn í smíðum, en verður formlega hleypt af stokk-
unum í London í maí.
Fram kemur í rannsóknatillögunni að íslenzk-
um vísindamönnum og stúdentum verði boðin
þátttaka í verkefninu og aðferðir IFAW kynntar
íslenzkum vísindamönnum og almenningi.
Spyr um niðurstöður fyrri rannsókna
Tuite segist þeirrar skoðunar að ekki sé nauð-
synlegt að veiða hvali til að átta sig á lífsháttum
þeirra og mataræði; aðrar aðferðir gefi jafngóða
raun án þess að drepa þurfi dýrin. Hann bendir á
að hundruð hvala hafi verið veidd við Ísland í vís-
indaskyni á árunum 1986–1989, án þess að merkar
vísindaniðurstöður hafi orðið til úr vísindaveið-
unum. „Ef niðurstöðurnar eru til hlýt ég að spyrja
hvar þær niðurstöður hafi verið birtar. Við höfum
ekki séð þær í alþjóðlega viðurkenndum vís-
indaritum þar sem óháðir vísindamenn fara yfir
þær áður en þær eru teknar til birtingar,“ segir
Tuite.
Alþjóðadýraverndunarsjóðurinn vill senda hvalarannsóknaskip á Íslandsmið
Vilja rannsaka hvali án þess að veiða þá
Seglskipið, sem IFAW hyggst nota til hvalarann-
sókna við Ísland næsta sumar.
ÍSLENSKUM knatt-
spyrnumönnum í Nor-
egi hefur fækkað mikið
í vetur. Aðeins fjórir
eru eftir í herbúðum úr-
valsdeildarliðanna en
þeir hafa verið allt að
fjórtán þar í senn á síð-
ustu árum. Þetta helst í
hendur við umtalsverða
fækkun erlendra leik-
manna í Noregi. Ástæð-
urnar eru taldar marg-
ar en ein sú helsta er að
fjárhagur félaganna hefur farið versnandi, ekki síst vegna þess að þeim
hefur ekki tekist að selja leikmenn til Englands að neinu marki./61
Aðeins fjórir íslenskir
leikmenn eftir í Noregi
Helgi Sigurðsson fagnar sigurmarki sínu í
norsku bikarkeppninni fyrir nokkrum árum.