Morgunblaðið - 30.03.2004, Síða 1
Hinn eini
sanni tónn
Hér finnst loks hinn eini sanni
tónn eftir áralanga leit | Listir 24
Flöskupokar, kaffikönnuhettur,
púðar og tréhús | Daglegt líf
Í skólanum,
í skólanum …
130 ár síðan barnakennsla hófst
formlega á Ísafirði | Landið
STOFNAÐ 1913 89. TBL. 92. ÁRG. ÞRIÐJUDAGUR 30. MARS 2004 PRENTSMIÐJA ÁRVAKURS HF. mbl.is
Lífsleikni í
hávegum
BANDARÍSKA sendiráðið í Úsbekistan
varaði í gær við því að íslamskir öfgamenn
kynnu að fremja fleiri hryðjuverk í landinu
eftir að nítján manns létu lífið og 25 særðust
í nokkrum sprengju- og skotárásum í höf-
uðborginni Tashkent og borginni Bukhara.
Eru þetta mannskæðustu árásir sem
gerðar hafa verið í Úsbekistan í fimm ár.
Stjórnvöld í landinu höfðu skorið upp herör
gegn íslömskum uppreisnarmönnum.
Bandaríska sendiráðið hvatti alla banda-
ríska borgara í Úsbekistan til að sýna
„fyllstu aðgát“ og sagði að lögreglan hefði
handtekið nokkra menn vegna árásanna en
óttaðist að „aðrir öfgamenn“ kynnu að leika
lausum hala og búa sig undir fleiri hryðju-
verk.
Íslam Karímov, forseti Úsbekistans,
sagði að sprengjuárásirnar hefðu verið
gerðar til að „vekja ótta meðal þjóðarinn-
ar“. Stjórn hans hóf samstarf við Banda-
ríkjaher eftir hryðjuverkin 11. september
2001 og heimilaði honum að nota herstöð í
Úsbekistan til að ráðast inn í Afganistan.
Óttast fleiri
hryðjuverk
Mannskæðar sprengju-
árásir í Úsbekistan
Tashkent. AFP.
MÁNAÐARLEGAR greiðslur til foreldris úr
fæðingarorlofssjóði verða að hámarki 480 þús-
und krónur verði frumvarp, sem Árni Magn-
ússon félagsmálaráðherra hyggst leggja fram á
Alþingi, að lögum. Reiknað er með því að spara
sjóðnum um 150 milljónir á ári með því að setja
á hámarksgreiðslur miðað við núgildandi fyr-
irkomulag á greiðslum úr honum.
Samkvæmt öllum þeim breytingum sem
lagðar eru til í frumvarpinu batnar afkoma
Fæðingarorlofssjóðs um 1,3 milljarða en á móti
er reiknað með að útgjöld ríkisins aukist um
400 milljónir.
Frumvarpið hefur verið kynnt og samþykkt í
ríkisstjórn samkvæmt upplýsingum Morgun-
blaðsins. Þingflokkur Framsóknarflokksins
hefur samþykkt það en þingflokkur Sjálfstæð-
isflokksins er enn með frumvarpið til skoðunar.
Í frumvarpinu eru lagðar til breytingar á
lögum um tryggingagjald í því skyni að tryggja
betur fjármögnun Fæðingarorlofssjóðs. Breyt-
ingarnar fela m.a. í sér að allur sá tekjustofn,
sem hingað til hefur verið markaður Vinnueft-
irlitinu, mun renna til sjóðsins. Eru það sam-
tals um 400 milljónir á ársgrundvelli og á móti
mun ríkissjóður greiða samtals um 400 millj-
ónir til Vinnueftirlits ríksins og Trygginga-
stofnunar.
Þá er í frumvarpinu lagt til að greiðslu Fæð-
ingarorlofssjóðs til starfsmanns í fæðingaror-
lofi skuli miða við tvö tekjuár á undan fæðing-
arári barnsins eða þess árs þegar barn kemur
inn á heimili við ættleiðingu eða varanlegt fóst-
ur. Samkvæmt núgildandi lögum er miðað við
laun foreldra á tólf mánaða tímabili.
Í athugasemdum segir að borið hafi á því að
foreldrar kappkosti að sýna fram á sem hæst
laun á tólf mánaða viðmiðunartímabilinu til að
fá sem hæstar greiðslur úr sjóðnum og því sé
þessi breyting gerð.
Ekki greiddar meira en
480 þúsundir á mánuði
Félagsmálaráðherra leggur til breytingar á lögum um fæðingarorlof
480 þúsund á mánuði/10
SJÖ ríki í Mið- og Austur-Evrópu,
þeirra á meðal þrjú fyrrverandi
sovétlýðveldi, gengu formlega í Atl-
antshafsbandalagið í gærkvöldi
þegar forsætisráðherrar ríkjanna
afhentu aðildarskjöl í Washington
þar sem stofnsáttmáli bandalagsins
er varðveittur. George W. Bush
Bandaríkjaforseti bauð ríkin vel-
komin í bandalagið, en rússnesk
stjórnvöld létu í ljósi áhyggjur af
stækkun þess, einkum af inngöngu
Eystrasaltsríkjanna Eistlands,
Lettlands og Litháens og eftirlits-
flugi herþotna NATO yfir landa-
mærin að Rússlandi.
Auk sovétlýðveldanna fyrrver-
andi við Eystrasalt fengu Búlgaría,
Rúmenía, Slóvakía og Slóvenía að-
ild að NATO við athöfn í bandaríska
fjármálaráðuneytinu. Er þetta
mesta fjölgun aðildarríkja banda-
lagsins frá því að það var stofnað
1949 og alls eiga nú 26 ríki aðild að
NATO. Ennfremur er þetta í fyrsta
skipti sem fyrrverandi sovétlýð-
veldi fá aðild að bandalaginu.
Stendur ógn af stækkuninni
„Velkomin í mesta og farsælasta
bandalag í sögunni,“ sagði Colin
Powell, utanríkisráðherra Banda-
ríkjanna, við athöfnina. Hann lýsti
stækkun NATO sem „sögulegu
skrefi“ í þá átt að færa út „frelsis-
og öryggissvæði Evrópu frá
Eystrasalti til Svartahafs“.
George W. Bush ávarpaði síðar í
gærkvöldi forsætisráðherra nýju
NATO-ríkjanna sjö og sagði að að-
ild þeirra efldi bandalagið. Hann
bætti við að ríkin sjö hefðu verið
„fangar heimsveldis“ þegar NATO
var stofnað. „Þau urðu að þola
mikla harðstjórn. Þau börðust fyrir
sjálfstæði. Þau áunnu sér frelsið
með hugrekki og þrautseigju og
ganga nú til liðs við okkur sem full-
gildir aðilar að þessu mikla banda-
lagi.“
Talsmaður rússneska utanríkis-
ráðuneytisins sagði í yfirlýsingu
fyrir athöfnina að enginn vafi léki á
því að stækkun NATO skaðaði póli-
tíska og hernaðarlega hagsmuni
Rússlands. „Við teljum að okkur
stafi ógn af stækkuninni og að hún
krefjist viðbragða af okkur hálfu í
hermálum. Brugðist verður við
henni,“ hafði rússneska fréttastof-
an Interfax eftir aðstoðarutanríkis-
ráðherra Rússlands, Vladímír
Tsjízhov.
Rússnesk stjórnvöld hafa eink-
um áhyggjur af þeim möguleika að
NATO-hersveitir hafi bækistöðvar
við landamærin að Rússlandi.
Jaap de Hoop Scheffer, fram-
kvæmdastjóri NATO, sagði að fjór-
ar orrustuþotur bandalagsins
kynnu að hefja eftirlitsflug yfir
Eystrasaltsríkin þegar í stað. Rúss-
ar óttast að bandalagið notfæri sér
eftirlitsflugið til að njósna um rúss-
neska herinn.
Bush býður sjö ríki
velkomin í NATO
Reuters
Forsætisráðherrar sjö nýrra NATO-ríkja og framkvæmdastjóri bandalagsins hlýða á George W. Bush Banda-
ríkjaforseta er hann flutti ávarp við Hvíta húsið í gærkvöldi í tilefni af stækkun Atlantshafsbandalagsins.
Mesta stækkun
í 55 ára sögu
bandalagsins
Washington. AFP, AP.
ÞJÓÐVERJI var handtekinn í gær eftir að
hann reyndi að kaupa bjór og sígarettur á
bensínstöð með stolnu kreditkorti sem
reyndist vera í eigu manns sem afgreiddi
hann, að sögn lögreglunnar í Berlín.
„Þegar ég leit á kreditkortið sá ég nafn-
ið mitt,“ hafði Berlínarblaðið B.Z. eftir af-
greiðslumanninum. Hann læsti þjófinn
inni í herbergi og hringdi í lögregluna.
Hann kvaðst hafa pantað kreditkort ný-
lega en ekki fengið það í pósti.
Seinheppinn þjófur
♦♦♦
TYRKIR efndu til mótmæla nálægt bæn-
um Bürgenstock í svissnesku Ölpunum í
gær þegar Kofi Annan, framkvæmdastjóri
Sameinuðu þjóðanna, lagði fram nýja
áætlun um sameiningu Kýpur í samninga-
viðræðum sem fram fara í bænum.
Reuters
Kýpuráætlun
mótmælt
♦♦♦