Morgunblaðið - 30.03.2004, Side 13
ÚR VERINU
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 30. MARS 2004 13
SÉRFRÆÐINGAR mæla með sameiningu
nýsjálensku sjávarútvegsfyrirtækjanna San-
ford og Sealord, enda myndi sameinað fyr-
irtækja spjara sig vel í hörðum heimi fisk-
iðnaðarins.
Í nýjasta tölublaði nýsjálenska viðskipta-
blaðsins The National Business Review er
fjallað um fyrirhugaða sameiningu og meðal
annars leitað álits Péturs Einarssonar, sér-
fræðings hjá Íslandsbanka. Hann segir í
blaðinu að fiskiðnaðinn í heiminum vanti
sárlega sterkan leiðtoga. Ef Nýsjálendingar
geti tekið það að sér væri það af hinu góða.
Tekjur sameinaðs fyrirtækis yrðu um 1
milljarður nýsjálenskra dollara eða sem
svarar nú um 47 milljörðum íslenskra króna.
Pétur bendir á að sala sjávarafurða nemi ár-
lega um 100 milljörðum bandaríkjadala og
því yrði sameinað fyrirtæki tiltölulega smár
keppinautur á alþjóðlegum markaði. Það
yrði þannig aðeins litlu stærra en stærsta
sjávarútvegsfyrirtæki Bandaríkjanna, Am-
erican Seafoods, sem velti á síðasta ári tæp-
um 29 milljörðum króna. Jafnframt bendir
Pétur á að heildar-hokinhalakvóti Nýsjá-
lendinga sé um 200 þúsund tonn eða aðeins
2,8% af árlegum hvítfiskafla í heiminum.
Pétur segir að sjávarafurðir eigi í dag í
hörðum slag við aðrar próteinríkar afurðir
um hylli neytenda. Fiskur sé þannig í dag
orðinn dýrari en til dæmis kjúklingur en þar
séu framleiðendur mun færri. Þá færist eldi
á hvítfiski í vöxt. Pétur segir að sameiningar
séu því nauðsynlegar fiskiðnaðinum, ætli
fyrirtækin að halda markaðshlutdeild sinni.
Breyta þyrfti lögum og reglum
Dregið hefur úr hagnaði beggja fyrirtækj-
anna að undanförnu, meðal annars vegna
sterkrar stöðu nýsjálenska dollarans og
lækkandi fiskverði. Sealord er nokkru
stærra fyrirtæki en Sanford, a.m.k. á papp-
írnum en eignir Sealord eru metnar á rúma
29 milljarða króna en skuldir félagsins eru
um 8 milljarðar króna. Eignir Sanford eru
hinsvegar um 25 milljarða króna en fyr-
irtækið skuldar aftur á móti ekki neitt. Talið
er að samlegð fyrirtækjanna sé veruleg,
einkum með hagræðingu í fiskveiðiflota og
framleiðslueiningum. Þá myndi markaðs-
staða fyrirtækjanna styrkjast verulega með
sameiningunni.
Ljóst er að gera þarf verulegar breyt-
ingar á lögum og reglugerðum til að af sam-
runanum geti orðið. Samkvæmt lögum sem
sett voru um stjórn fiskveiða í Nýja-Sjálandi
árið 1996 er einum aðila heimilt að eiga að
hámarki þriðjung aflaheimilda einstakra
tegunda. Verði af samruna Sanford og Sea-
lord myndi sameinað fyrirtæki ráða yfir
meira en þriðjungi kvóta í 10 af þeim 14
fiskitegundum sem bundnar eru kvóta í
Nýja-Sjálandi. Búist er við að fyrirtækin tvö
geri kröfu um að þessum reglum verði
breytt og beiti fyrir sig þjóðahagslegum
rökum.
Hvetja til
risasamruna
KYNNT hefur verið í ríkisstjórn
frumvarp til breytinga á lögum um
umgengni um nytjastofna sjávar.
Breytingarnar fela í sér heimild til
sjávarútvegsráðuneytisins að leyfa
frystiskipum að landa afla sínum
erlendis, svo fremi sem eftirlit á
löndunarstað sé í lagi. Þetta á fyrst
og fremst við skip sem veiða og
frysta síld um borð á fjarlægum
miðum eins og við Noreg, svo þau
geti landað þar sem stytzt er í land
í stað þess að þurfa að siglan langa
leið til löndunar á Íslandi. Jafn-
framt heimilar frumvarpið ráðu-
neytinu að leyfa það að undirmáls-
karfi ísfiskskipa verði flokkaður frá
við löndun, en ekki þurfi að gera
það úti á sjó.
Geta land-
að erlendis
FISKISTOFA svipti eitt skip
veiðileyfi í tvígang í febrúarmán-
uði vegna brota á lögum um um-
gengni við nytjastofna sjávar.
Guðrún HF var svipt leyfi til veiða
í atvinnuskyni þann 13. febrúar
vegna veiða umfram aflaheimildir
en fékk leyfið að nýju 16. febrúar
þegar aflamarksstaða skipsins
hafði verið lagfærð. Þann 27. febr-
úar var Guðrún HF svipt leyfi til
veiða í atvinnuskyni í þrjár vikur
þar sem afli var ekki færður til
vigtunar á hafnarvog við löndun.
Sviptingin gilti frá 5. mars til og
með 25. mars 2004. Fleiri skip
voru ekki svipt veiðileyfi í febr-
úarmánuði.
Svipt tvisvar í
sama mánuði
♦♦♦
Vi› hvetjum fyrirtæki til a› leggja landssöfnuninni li›
me› flví a› kaupa Fjöregg eftir listafólki› Koggu og
Magnús Kjartansson. Fjöreggin eru glæsilegir listgripir
og eru engin tvö egg nákvæmlega eins.
Stærra Fjöreggi› fæst gegn 40.000 króna framlagi en
minna eggi› fyrir 20.000 krónur. Einnig seljum vi›
fyrirtækjum sérmerkta penna fyrir 1.000 krónur
stykki›.
Vinsamlegast haf›u samband vi› Lionsklúbbinn
á flínu heimasvæ›i og legg›u okkur li›.