Morgunblaðið - 30.03.2004, Page 14
SKORTUR á súrefni á mikil-
vægum hafsvæðum getur stefnt
fiskveiðum í voða og er eitt
brýnasta viðfangsefnið í um-
hverfisvernd um þessar mundir,
að sögn talsmanna umhverf-
isáætlunar Sameinuðu þjóðanna,
UNEP. Á ráðstefnu rúmlega
155 ríkja, sem nú er hafin í Suð-
ur-Kóreu, kom fram í gær að
ástæðan fyrir súrefnisskortinum
væri ekki síst ofnotkun á köfn-
unarefnisáburði í landbúnaði
margra auðugra þjóða.
Áburðurinn berst úr jarðveg-
inum í hafið og veldur þar of-
vexti örsmárra þörunga sem
eyða súrefninu þegar þeir deyja
og leysast upp á hafsbotninum.
Köfnunarefnið illa
nýtt í landbúnaði
Umrædd svæði eru um 150 og
afar mismunandi að stærð, sum
aðeins fáeinir ferkílómetrar er
önnur litlu minni en Ísland. Sum
virðast ávallt vera til staðar,
önnur koma og hverfa. Þau eru
einkum í Norðursjónum, í
Eystrasaltinu, Svartahafinu,
Adríahafinu austan við Ítalíu,
við Taíland og á Gulahafi í Aust-
ur-Asíu, einnig í Mexíkóflóa og
Chesapeake-flóa á austurströnd
Bandaríkjanna. Köfnunarefni
sem plönturnar nýta ekki berst
í hafið frá bændabýlum með ám
og grunnvatni. Að sögn
fréttavefjar BBC nýtist aðeins
hluti af köfnunarefninu, meiri-
hlutinn af því fer í sjóinn. Þess
ber einnig að geta að mikill
skortur er á köfnunarefnis-
áburði í mörgum fátækum lönd-
um.
„Mannkynið stundar nú
geysilega, hnattræna tilrauna-
starfsemi vegna þess að áburður
er illa nýttur og oft ofnotaður,
skolp er sent óhreinsað í sjóinn
og útblástur frá farartækjum og
verksmiðjum vex stöðugt,“ sagði
í yfirlýsingu frá Þjóðverjanum
Klaus Töpfer, yfirmanni UNEP.
„Verði ekki þegar gripið til rót-
tækra aðgerða gegn orsökum
vandans er líklegt að hann vaxi
hratt.“
Einkum hættulegt
fiskveiðum
Þróunin er einkum hættuleg
fiskveiðum vegna þess að hún
hefur áhrif á strandsvæði þar
sem mikið er um klakstöðvar og
uppeldisslóðir mikilvægra fisk-
tegunda. Talsmenn UNEP
hvetja til þess að þjóðir heims
vinni saman að því draga úr los-
un köfnunarefnis í sjóinn, að
nokkru með því að minnka notk-
unina en einnig með því að
gróðursetja meira af trjám og
grasi við ár sem taka við ónýtt-
um áburði.
Á ráðstefnunni verður einnig
fengist við mál eins og vaxandi
vanda vegna uppblásturs og
eyðimerkurmyndunar er valda
sandstormum, einnig skort á
nothæfu drykkjarvatni víða í fá-
tækum löndum.
Áburður
ógnar 150
hafsvæðum
Fiskur þrífst ekki vegna súrefn-
isskorts í kjölfar þörungavaxtar
Jeju í Suður-Kóreu. AP, AFP.
ERLENT
14 ÞRIÐJUDAGUR 30. MARS 2004 MORGUNBLAÐIÐ
ALLAR krár, veitingahús og opinberar bygg-
ingar á Írlandi voru reyklaus í gær í fyrsta skipti
en umdeilt reykingabann tók gildi á miðnætti í
fyrri nótt. Írar eru fyrstir Evrópuþjóða til að setja
slíkt reykingabann en því er spáð, að margir aðrir
muni fylgja í kjölfarið.
Á myndinni sést barþjónn á Kehoes-bar í Dyfl-
inni stafla saman öskubökkum en þeir eru nú með
öllu óþarfir á írskum krám. Kráareigendur á Ír-
landi hafa haft af því áhyggjur, að reykingabann-
ið kynni að hafa áhrif á hagnað en þeir hyggjast
þó láta á það reyna og ætla ekki að fara með málið
fyrir dómstóla, eins og þeir höfðu áður hótað að
gera.
Næstum sjö þúsund manns deyja ár hvert á Ír-
land af völdum sjúkdóma er tengjast reykingum
en einn af hverjum fjórum íbúum landsins reykir.
3,9 milljónir manna búa á Írlandi.
AP
Öskubakkarnir fjarlægðir
ALEKSANDER Kwasn-
iewski, forseti Póllands,
tilefndi í gær Marek
Belka sem væntanlegan
arftaka Leszeks Millers,
sem tilkynnt hefur að
hann muni rísa upp úr
forsætisráðherrastólnum
2. maí næstkomandi, dag-
inn eftir inngöngu Pól-
lands í Evrópusamband-
ið. Belka er fyrrverandi fjármálaráðherra og
nú æðsti fulltrúi Póllands í Írak.
Miller, sem hefur tapað mestöllum stuðn-
ingi meðal almennings m.a. vegna hneyksl-
ismála stjórnarliða, tilkynnti væntanlega af-
sögn sína í vikulokin eftir að 24 þingmenn
gengu úr flokki hans, Lýðræðislega vinstri-
bandalaginu (SLD), en sá flokkur er beinn
arftaki gamla pólska kommúnistaflokksins
og skilgreinir sig nú sem jafnaðarmanna-
flokk. „Liðhlauparnir“ tilkynntu á föstudag
að þeir hygðust mynda nýjan þingflokk
vinstrimanna.
Minnihlutastjórn Millers hefur ekki átt sjö
dagana sæla að undanförnu og í nýrri skoð-
anakönnun, sem niðurstöður voru birtar úr á
föstudag, féll fylgið við hana meðal almennra
kjósenda neðar en nokkru sinni fyrr.
Það verður vandasamt verk að mynda
starfhæfa stjórn og með tilliti til þess setti
Kwasniewski forseti þann fyrirvara á tilefn-
ingu Belkas, að viðræður myndu halda áfram
í dag við þá flokka sem ættu menn á þingi um
það hverjum skyldi falin stjórnarmyndunin.
Tekur
Belka við?
Stjórnarskipti eru
framundan í Póllandi
Varsjá. AFP.
Marek Belka
LEIÐTOGAR Kongress-flokksins á
Indlandi, sem um áratuga skeið fór
með völdin í landinu, vonast til þess
að bæta megi hag flokksins á ný í
þingkosningum sem fara fram í
næsta mánuði en flokkurinn hefur
ekki setið við stjórnvölinn á Indlandi
síðan 1996. Meðal annars byggja
þeir vonir sínar á næstu kynslóð
Gandhi-ættarinnar, sem leikið hefur
stórt hlutverk í stjórnmálum Ind-
lands frá því að landið fékk sjálf-
stæði frá Bretum 1947, en í framboði
að þessu sinni er Rahul nokkur
Gandhi, sonur Rajivs Gandhi og
barnabarn Indiru Gandhi.
Rahul Gandhi er þrjátíu og
þriggja ára gamall og þykir mynd-
arlegur, hann hefur erft útlit föður
síns, Rajivs, sem myrtur var 1991.
Rahul hóf í gær kosningabaráttu
sína í Amethi-kjördæmi í Uttar Pra-
desh-héraði, því sama og faðir hans
þjónaði á þingi, og var honum einkar
vel tekið við komuna þangað.
„Vertu velkominn, næsti
forsætisráðherra okkar“
Þykja móttökurnar til marks um
að Gandhi-ættin nýtur mikilla vin-
sælda á Indlandi, eða í það minnsta í
þessum hluta Indlands. Hópur
stuðningsmanna hrópaði í sífellu
„lengi lifi Rahul Gandhi“ þegar hinn
33 ára gamli fjármálaráðgjafi birtist
mannfjöldanum. Hundruð manna á
mótorhjólum óku samhliða bifreið
Gandhis og á veggspjöldum mátti
lesa: „Vertu velkominn, næsti for-
sætisráðherra okkar.“
„Það er afar gaman að vera hing-
að kominn,“ sagði Rahul sjálfur en
hann þykir ein helsta vonarstjarna
Kongress-flokksins, sem nú er í
stjórnarandstöðu og er talinn eiga
erfitt verk fyrir höndum eigi að tak-
ast að fella ríkisstjórn Atal Beharis
Vajpayees, leiðtoga Bharatiya Jan-
ata-flokksins.
Saga Gandhi-ættarinnar er hálf-
gerð sorgarsaga að ýmsu leyti, af-
skaplega glæst að öðru leyti. Jawah-
arlal Nehru, langafi Rahuls Gandhi,
var fyrsti forsætisráðherra Indlands
eftir að landið fékk sjálfstæði frá
Bretum og gegndi hann embættinu í
sautján ár, frá 1947–1964. Indira
Gandhi, dóttir Nehrus, var síðan for-
sætisráðherra 1966–1977 og aftur
frá 1980–1984. Indira Gandhi var
hins vegar ráðin af dögum af að-
skilnaðarsinnuðum síkhum 1984.
Lengi hafði verið gert ráð fyrir að
eldri sonur Indiru, Sanjay, tæki við
af henni sem leiðtogi Kongress-
flokksins en hann lést í flugslysi árið
1980. Hún fékk þá yngri son sinn,
Rajiv, til að fara í framboð og náði
hann kjöri til þings fyrir Amethi
1981. Rajiv Gandhi varð síðan for-
sætisráðherra við dauða móður sinn-
ar og gegndi þeirri stöðu til 1989.
Rajiv Gandhi hlaut sömu hörmu-
legu örlögin og Indira, hann beið
bana í sjálfsmorðsárás í Madras árið
1991 og er talið að tamílar frá Sri
Lanka hafi staðið fyrir ódæðinu.
Mikil öryggisgæsla var um Rahul
Gandhi þegar hann kom til Amethi í
gær. Hann hefur ekki áður sóst eftir
sæti á þingi Indlands. „Ég hef fylgst
með mörgum kynslóðum Nehru- og
Gandhi-ættarinnar,“ sagði aldraður
íbúi Amethi, Ram Praful. „Núna
kom ég til að fylgjast með Rahul og
ég er afar vongóður. Við munum
ekki láta þær fórnir, sem forfeður
hans hafa fært, verða til einskis.“
Fréttaskýrendur segja að flokk-
urinn reyni að skapa þá ímynd að
Rahul sé holdgervingur föður síns,
Rajivs, á meðan systir Rahuls,
Priyanka, sé pólitískur arftaki
ömmu sinnar, Indiru Gandhi.
Sonia Gandhi, ekkja Rajivs og
móðir þeirra Rahuls og Priyanka,
hefur setið á þingi fyrir Amethi frá
1999 en hún verður nú í framboði í
öðru kjördæmi. Fréttaskýrendur
segja að athyglisvert verði að sjá
hvort Gandhi-ættin njóti sömu vin-
sælda og áður, ekki er þó talið lík-
legt að Kongress-flokkurinn nái sér
almennilega á strik að þessu sinni.
Kemst Gandhi-ættin
aftur í forystuhlutverk?
Sonur Rajivs
Gandhis og barna-
barn Indiru býður
sig fram til þings
Amethi. AFP.
AP
Rahul Gandhi er 33 ára gamall og þykir um margt minna á föður sinn, Rajiv,
sem var myrtur 1991. Rahul var vel tekið þegar hann kom til Amethi í gær.
ARIEL Sharon, forsætisráðherra
Ísraels, segist geta gegnt embætti
áfram enda þótt ríkissaksóknari
landsins hafi á sunnudag mælt með
því við dómsmálaráðherrann, Men-
achem Mazuz, að mál verði höfðað
gegn forsætisráðherranum fyrir
meinta spillingu.
Þingmenn úr stjórnarandstöðu
vinstrimanna sögðust efast um að
ráðherrann gæti setið áfram en
nokkrar vikur munu líða áður en
málaferlin hefjast ef Mazuz ákveður
að leggja fram ákæru. En Sharon
sagðist geta „gegnt öllum störfum
sem hlutverkið krefst“ og flokks-
menn hans voru sömu skoðunar. „Ég
efast alls ekki um að Sharon mun
halda áfram að vera forsætisráð-
herra,“ sagði Ehud Olmert, aðstoð-
arforsætisráðherra í gær og minnti á
að Sharon hefði unnið tvennar síð-
ustu þingkosningar. Enn er óljóst
hvort samstarfsflokkar Sharons eru
sama sinnis. Yosef Paritzky, ráð-
herra innviða ríkisins, sagði á sunnu-
dag að Sharon ætti að segja af sér ef
hann yrði ákærður.
Spillingarmálið snýst um ásakanir
þess efnis að Sharon og sonur hans,
Gilad Sharon, hafi þegið mútur af
kaupsýslumanni og notað féð til að
fjármagna baráttu vegna leiðtoga-
kjörs í Likud, hægriflokki Sharons,
fyrir nokkrum árum. Hæstiréttur
Ísraels skipaði í gær Gilad Sharon að
leggja fram öll gögn sem tengdust
rannsókn á máli forsætisráðherrans.
Sharon
segist
ekki víkja
Jerúsalem. AFP.