Morgunblaðið - 30.03.2004, Qupperneq 18
HÖFUÐBORGARSVÆÐIÐ
18 ÞRIÐJUDAGUR 30. MARS 2004 MORGUNBLAÐIÐ
AKUREYRI
RÚMLEGA 3.000 manns sáu söng-
leikinn Grease á tveimur sýningum í
Íþróttahöllinni á Akureyri sl. sunnu-
dag. Unga fólkið var þar í miklum
meirihluta og komu sýningargestir
víða af Norður- og Austurlandi.
Uppsetning sýningarinnar á Ak-
ureyri var samstarfsverkefni knatt-
spyrnudeildar Þórs og 3 Sagas Ent-
ertainment. Að sögn Unnsteins
Jónssonar, formanns knatt-
spyrnudeildar Þórs, voru bæði sýn-
ingargestir, sem og leikarar og aðrir
aðstandendur sýningarinnar mjög
ánægðir með hvernig til tókst.
Fyrir sýningarnar var byggt 310
fermetra svið í Höllinni og notað til
verksins 800 vörubretti og 260 fiski-
kör. Sviðsmyndin, ljósa- og hljóð-
búnaður komu hins vegar að sunnan,
þar sem verkið hefur verið sýnt fyrir
fullu húsi í Borgarleikhúsinu í vetur.
Unnsteinn sagði að mikill fjöldi
sjálfboðaliða hefði komið að upp-
setningunni, sem og að taka sviðið
niður aftur og ganga frá. Sú vinna
hófst strax að lokinni seinni sýningu
á sunnudagskvöld og var verkinu
lokið um kl. 4 í gærmorgun. „Við
nutum stuðnings fjölmargra ein-
staklinga og fyrirtækja og öðru vísi
hefði þetta ekki verið framkvæm-
anlegt,“ sagði Unnsteinn, sem vildi
nota tækifærið og þakka öllum sem
lögðu hönd á plóginn.
Eftir seinni sýninguna var að-
standendum boðið í grillveislu í
Hamri, félagsheimil Þórs og tóku
gestirnir hraustlega til matar síns
eftir vel heppnaðar sýningar.
Morgunblaðið/Skapti Hallgrímsson
Aðstandendum sýningarinnar var boðið í grillveislu í Hamri að lokinni
seinni sýningu á sunnudag og tóku þeir hraustlega til matar síns.
Rúmlega 3.000
manns sáu Grease
Sekt fyrir að landa framhjá
vigt | Karlmaður á fimmtugsaldri
hefur verið dæmdur til að greiða
800 þúsund krónur í sekt til rík-
issjóðs fyrir að hafa í júní 2002
landað 7.500 kg af þorski fram hjá
vigt á Árskógssandi og fyrir brot á
lögum um lögskráningu sjómanna
með því að hafa ekki lögskráð tvo
menn úr skiprúmi og síðan konu í
skiprúm.
Þá var maður á þrítugsaldri
dæmdur til að greiða 100.000
króna sekt fyrir að hafa verið með-
sekur með því að aka þorskaflan-
um beint í kæligeymslur fiskverk-
unarfyrirtækis. Dómurinn var
kveðinn upp í Héraðsdómi Norður-
lands eystra.
Fram kemur í dómnum að
mennirnir tveir, sem eru feðgar,
hafi játað brot sín. Ennfremur að
sá eldri hafi hlotið dóm 1998 fyrir
brot á sömu lögum, þ.e. lögum um
umgengni um nytjastofna sjávar.
„Brot hans nú er stórfellt og fram-
ið af ásetningi,“ segir í dómnum.
Þá kemur fram að greiði hann ekki
800.000 króna sektina að liðnum
fjórum vikum frá birtingu dómsins
þurfi hann að afplána tveggja mán-
aða fangelsisdóm.
Í dómnum kemur einnig fram að
sonur mannsins hafi alltoft sætt
refsingum á undanförnum árum,
m.a. fyrir brot á almennum hegn-
ingarlögum og umferðarlögum.
Greiði hann ekki 100.000 króna
sektina á tilskildum tíma þarf hann
að sitja hálfan mánuð í fangelsi.
Nürnbergréttarhöldin| Lisa
Kierans flytur fyrirlestur á Lög-
fræðitorgi í dag kl. 16.30 í Þingvall-
astræti 23, stofu 14.
Hann nefnist: Nürn-
bergréttarhöldin og
alþjóðalög. Í er-
indinu fjallar um
sögulegt og rétt-
arlegt mikilvægi réttarhaldanna og
bera Nürnbergdómstólinn saman
við Alþjóðaglæpadómstólinn í Haag.
Hún mun einnig ræða um þá gagn-
rýni sem Nürnbergréttarhöldin hafa
orðið fyrir og leita svara við þeirri
spurningu hvort réttarhöldin hafi
tryggt réttláta málsmeðferð í hefð-
bundnum skilningi.
Lisa Kierans hefur starfað við
sendiráð Bandaríkjanna í Reykjavík
frá árinu 2002 sem ræðismaður og
pólitískur ráðunautur.
Málstofa um heilbrigðisþjón-
ustu| Heilbrigðisþjónusta á kross-
götum er yfirskrift málstofu sem heil-
brigðisdeild Háskólans á Akureyri og
Heilbrigðisvísindastofnun háskólans
efna til í dag, þriðjudaginn 30. mars.
Frummælendur verða: Anna Elís-
abet Ólafsdóttir, forstjóri Lýð-
heilsustöðvar, Elín Ebba Ásmunds-
dóttir, lektor við heilbrigðisdeild HA,
Geir Gunnlaugsson, formaður Félags
um lýðheilsu, Hermann Óskarsson,
dósent við heilbrigðisdeild HA, Jó-
hann Ágúst Sigurðsson, prófessor við
læknadeild HÍ, og Vilborg Ingólfs-
dóttir yfirhjúkrunarfræðingur.
Málstofan fer fram í stofu L201 á
Sólborg og hefst kl. 13.15.
Nýsköpun | Frumkvöðlasetur
Norðurlands í samstarfi við Fram-
farafélag Dalvíkurbyggðar efnir til
fundar um atvinnumál og nýsköpun í
kvöld kl. 20.30 á Kaffihúsinu Sogni á
Dalvík.
Ottó Biering Ottósson, for-
stöðumaður og aðjúnkt við Háskól-
ann á Akureyri, kynnir starfsemi
setursins og hvernig það geti stutt
við atvinnuuppbyggingu og nýsköp-
un í Dalvíkurbyggð og þá fjallar
Þórður Kristleifsson ferða- og at-
vinnumálafulltrúi um stöðu atvinnu-
mála í sveitarfélaginu.
ÍBÚÐ í húsi við Skólastíg á Ak-
ureyri stórskemmdist í eldsvoða sl.
föstudag en ekki urðu slys á fólki.
Samkvæmt upplýsingum frá rann-
sóknardeild lögreglunnar á Ak-
ureyri bendir allt til þess að kvikn-
að hafi í sjónvarpi í svefnherbergi
hússins. Íbúðin sem kviknaði í er á
miðhæð hússins og er nánast allt
ónýtt í henni eftir brunann. Á efri
hæð var nýr eigandi að mála íbúð
sína en var ekki fluttur inn. Í íbúð í
kjallara urðu óverulegar skemmdir
vegna vatns frá slökkvistarfinu.
Kviknaði í sjónvarpi
Ægisíða | Mörgum borgarbúum brá
eilítið í brún á sunnudag þegar vet-
ur konungur mætti á svæðið með
látum, en eflaust voru margir farn-
ir að horfa löngunaraugum til sum-
arsins sem greinilega bíður enn
handan við hornið. Þessi hjólreiða-
kappi lét þó éljaganginn ekki
stoppa sig í heilbrigðri útivist, en
göslaðist áfram gegnum veðrið. Nú
vonast margir eftir því að þetta
snemmbúna páskahret taki brátt
enda svo hægt verði að halda upp á
sumardaginn fyrsta með glans þeg-
ar hann kemur.
Morgunblaðið/Jim Smart
Hjólað í éljaganginum
Loftgæðamælingar | Styrkur
köfnunarefnisoxíða (NOx) og kol-
sýrlings (CO) í andrúmslofti í
Reykjavík fer stundum yfir viðmið-
unarmörk á álagstímum í umferð-
inni, á morgnana og síðdegis. Þetta
kemur fram í nýútkominni árs-
skýrslu Umhverfisstofnunar fyrir
árið 2003. Viðmiðunarmörk efnanna
eru um 75 míkrógrömm á rúm-
metra, en á toppunum á morgnana
og síðdegis getur magnið farið yfir
níutíu míkrógrömm á rúmmetra á
mælingarstað við Grensásveg. Á vef
Umhverfisstofnunar, www.ust.is,
segir að vegna legu Reykjavíkur við
hafið og hve vindasamt er í borginni,
sé meðalstyrkur köfnunarefnidíox-
íðs sjaldan meiri en 20 míkrógrömm
á rúmmetra á veturna. Þegar logn er
á veturna getur þó myndast mjög
greinilegt slör af menguðu lofti yfir
borginni, og þá fer magn köfn-
unaerfnisdíoxíðs á sólarhring stund-
um yfir viðmiðunarmörkin.
Seltjarnarnes | Seltjarnarnesbær
hefur gert samning við Hugsmiðj-
una um hönnun og smíði nýs vefjar
fyrir bæinn. Undanfarið hefur verið
unnið að þarfagreiningu og stefnu-
mörkun um vefmál innan Seltjarn-
arnesbæjar og er samningurinn
gerður á grundvelli þess. Með
þessu er bærinn að leggja grunn að
næstu skrefum í innleiðingu raf-
rænnar stjórnsýslu.
Jónmundur Guðmarsson bæj-
arstjóri segir stærstu breytinguna
felast í því að uppbygging vefjarins
sé endurskoðuð frá grunni. Segir
hann áhersluna á vefnum breytast
þannig að hann verði þjónustumið-
aðri en áður, en hingað til hefur
hann fyrst og fremst þjónað hlut-
verki upplýsingaveitu bæjarins.
„Bærinn hefur markvisst verið
að stíga skref í átt að rafrænni
stjórnsýslu undanfarin ár. Við vor-
um meðal fyrstu bæjarfélaga í inn-
leiðingu Navision-bókhaldskerfis
fyrir nokkrum árum og erum núna
að ljúka við að taka GoPro skjala-
stjórnunarkerfið í notkun. Þetta
kerfi mun tengjast skjalastjórn-
uninni strax og væntanlega bók-
haldskerfinu á síðari stigum,“ segir
Jónmundur.
Með uppsetningu vefjarins segir
Jónmundur verið að auðvelda að-
gengi að opinberri þjónustu á þann
hátt að notandinn þurfi ekki að vita
fyrirfram hvaða stofnun bæjarins
veitir þá þjónustu sem hann þarf á
að halda. Þetta segir hann í sam-
ræmi við stefnu ríkisstjórnarinnar
um upplýsingasamfélagið en hún
gerir ráð fyrir að opinberar upplýs-
ingar verði aðgengilegar almenn-
ingi og fyrirtækjum með sem
minnstum tilkostnaði. Hann bendir
einnig á lagningu ljósleiðara í öll
hús í bæjarfélaginu í þessu sam-
hengi.
Grunnur lagður að
rafrænni stjórnsýslu
Ljósmynd/Óskar J. Sandholt
Þorsteinn Yngvi Guðmundsson hjá Eplica og Jónmundur Guðmarsson bæj-
arstjóri fagna samningnum um endurbætur og endurnýjun vefjarins.
Borgarafundur | Opinn borg-
arafundur um færslu Hringbrautar
verður haldinn í Tjarnarsal Ráðhúss-
ins í dag klukkan 17:00.
Framsögu munu hafa fulltrúar
Reykjavíkurborgar, fulltrúar Land-
spítala háskólasjúkrahúss og fulltrúi
kjósenda. Þá verða að loknum fram-
sögum og kaffihléi pallborðs-
umræður þar sem fyrir svörum sitja
fulltrúar Reykjavíkurborgar, fulltrú-
ar LSH og fulltrúar átakshóps.
Undir fundarmenn verður síðan
borin ályktun þar sem skorað verður
á stjórnvöld að efna til kosninga
varðandi útfærslu nýrrar Hring-
brautar.
Hafnarfjörður| Menningar- og
ferðamálanefnd Hafnarfjarðarbæjar
afhenti á dögunum styrki til menn-
ingarstarfsemi og lista. 36 umsóknir
bárust og voru að þessu sinni veittir
16 styrkir, en upphæð þeirra nam
1.700.000 krónum. Fyrr á árinu hefur
nefndin greitt út fasta styrki til 8
kóra, Lúðrasveitar Hafnarfjarðar,
Sveinssafns, og Kammersveitar
Hafnarfjarðar að upphæð 4.300.000
krónur.
Auk styrkveitinga og skemmti-
atriða hlaut Egill Friðleifsson sér-
staka viðurkenningu fyrir áratuga öt-
ult starf í menningar og listalífi
Hafnarfjarðar. Egill hefur verið kór-
stjóri Kórs Öldutúnsskóla frá stofnun
eða frá 1965 og undir hans leiðsögn
hefur kórinn borið hróður Hafn-
arfjarðar víða um lönd og álfur. Þá
hefur Egill verið virkur í menningar-
lífi bæjarins almennt og skipulagt
marga fjölsótta viðburði.
Styrkir og
viðurkenning
ÞÓRÓLFUR Árnason borgarstjóri
segir erindi Björgólfs Thors Björg-
ólfssonar um að viðræður verði
teknar upp um framtíð hússins að
Fríkirkjuvegi 11 vera til skoðunar
en að húsið sé ekki í söluferli að svo
komnu. Borgarstjóri átti stuttan
fund með Björgólfi Thor í gær þar
sem hann skýrði honum frá því að
húsið væri ekki til sölu í bili.
„Þetta er hús er á sögufrægum
stað og í almenningsgarði og ekki
auðvelt um vik að afmarka lóð og
hús frá almenningsgarðinum.
Hann [Björgólfur] kom til mín í
gær til að fylgja eftir þessu bréfi og
við erum á því að við ætlum aðeins
að skoða þetta því að í sjálfu sér er
húsið ekki í söluferli eins og er.“
Borgarstjóri segir skiptar skoð-
anir meðal fólks þegar falleg og
góð hús á besta stað í bænum skipti
um eigendur. Með bréfi Björgólfs
hafi borgaryfirvöld í raun fengið
formlegt erindi um áhuga hans á að
halda minningu langafa síns á lofti í
tengslum við húsið án þess þó að
fastar hugmyndir um með hvaða
hætti það yrði gert séu komnar
fram.
Fríkirkjuvegur 11
ekki enn í söluferli