Morgunblaðið - 30.03.2004, Blaðsíða 33
MINNINGAR
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 30. MARS 2004 33
varst alls staðar svo mikils metinn
og maður fylltist miklu stolti að
eiga þig sem afa. Þú vissir alltaf allt
og það var alveg sama hvað við
spurðum þig um, þú hafðir svör við
öllu.
Elsku afi, við þökkum þér fyrir
allt, þú verður alltaf hjá okkur í
huga og hjarta.
Sólveig, Berglind og Gerður.
Elsku Grímur, okkur langar að
kveðja þig með örfáum erindum úr
kvæði Davíðs Stefánssonar um
fuglana. Þú sagðir mér eitt sinn að
þú hefðir mætur á þessu ljóði.
Snert hörpu mína, himinborna dís,
svo hlusti englar guðs í Paradís.
Við götu mína fann ég fjalarstúf
og festi á hann streng og rauðan skúf.
Og eins og barnið rís frá svefnsins sæng,
eins sigrar lífið fuglsins mjúka væng.
Er tungan kennir töfra söng og máls,
þá teygir hann sinn hvíta svanaháls.
Nú fljúga mínir fuglar, góða dís.
Nú fagna englar guðs í Paradís.
Vertu sæll.
Guðrún, Egill, Elín
Helga og Svava.
Grímur Jónsson starfaði í áratugi
sem héraðslæknir og heimilislækn-
ir, bæði í dreifðari byggðum lands-
ins og í þéttbýli. Lengstan hluta
starfsævi sinnar sinnti hann þó íbú-
um Hafnarfjarðar, Garðabæjar og
Bessastaðahrepps. Við áttum því
láni að fagna að vinna með kollega
okkar Grími Jónssyni við Heilsu-
gæsluna í Hafnarfirði í lok síðusu
aldar. Grímur var hlédrægur maður
og hafði sig ekki mikið í frammi, en
það fór aldrei á milli mála að hann
var mikill fagmaður á sínu sviði og
fremstur meðal jafningja í heim-
ilislækningum. Það var okkur koll-
egunum mikils virði að læra grund-
vallaratriði heimilislækninga af
Grími, sem einkenndust af ósér-
hlífni hans, samviskusemi, góðri
klínískri dómgreind og mikilli um-
hyggju fyrir skjólstæðingum sínum.
Grímur var afar farsæll læknir og
ótrúlega afkastamikill. Hann hafði
mikla starfsorku og innilega gleði af
því að aðstoða þann stóra hóp sem
til hans leitaði. Þeir kollegar, sem
tóku við skjólstæðingum Gríms eftir
að hann hætti störfum fengu oft að
heyra saknaðartón þeirra.
Heimilislæknar á Heilsugæslu-
stöðinni Sólvangi í Hafnarfirði og á
landinu öllu sjá á eftir ágætum koll-
ega sem jók hróður stéttarinnar um
langt árabil. Við færum eiginkonu,
börnum og fjölskyldu hans innilegar
samúðarkveðjur.
Emil L. Sigurðsson,
Jóhann Ág. Sigurðsson.
Grímur Jónsson útskrifaðist úr
læknadeild Háskóla Íslands árið
1947. Hann sérhæfði sig í upphafi í
lungnasjúkdómum innanlands og
erlendis. Árið 1956 söðlaði hann um
og fór að starfa sem héraðslæknir
úti á landi þar sem hann starfaði
næstu tíu árin. Árið 1967 er hann
ráðinn sem héraðslæknir í Hafn-
arfjarðarhéraði og starfaði þar allt
til starfsloka árið 1987. Auk ýmissa
embættisstarfa var starfið fyrst og
fremst fólgið í því að vera heim-
ilislæknir fólksins á svæðinu. Á
þessum langa og giftusamlega
starfsferli Gríms urðu miklar breyt-
ingar í fyrirkomu heilsugæslunnar.
Heimilislæknar störfuðu í upphafi
mest sem einyrkjar á stofu úti í bæ.
Árið 1974 tóku í gildi ný lög um
heilbrigðisþjónustu, þar sem ákveð-
in var markviss uppbygging heilsu-
gæslustöðva og aukin samvinna
lækna, hjúkrunarfræðinga og ann-
ars heilbrigðisstarfsfólks. Nokkur
dráttur varð á að Hafnarfjörður
tæki upp hið nýja fyrirkomulag, en
árið 1975 var komið á samvinnu
heimilislækna og annarra heilbrigð-
isstétta á svæðinu, í ,,Heilsugæzlu
Hafnarfjarðar“ sem var til húsa í
Strandgötu 8–10. Þarna var um að
ræða vísi að heilsugæslustöð, skv.
anda laganna. Samtímis var unnið
að byggingu nýrrar heilsugæslu-
stöðvar við Sólvang, sem vígð var
árið 1987. Grímur Jónsson tók
drjúgan þátt í þessari uppbyggingu
heilbrigðisþjónustunnar og bygg-
ingu nýrrar heilsugæslustöðvar,
enda þótt hann yrði ekki þeirrar
ánægju aðnjótandi að hefja störf á
nýja staðnum. Gríms Jónssonar
verður þó einkum minnst sem
,,gamla góða heimilislæknisins“ sem
lagði sig allan fram, dag og nótt, við
að sinna sínu fólki. Þar naut Grímur
dyggilegs stuðnings Gerdu konu
sinnar. Starfsfólk heilsugæslunnar
minnist með hlýhug sameiginlegra
stunda með Grími og á heimili
þeirra hjóna. Sveitungar og starfs-
fólk heilsugæslunnar hafa nú misst
góðan dreng. Starfsfólk færir
Gerdu, börnum og fjölskyldum
þeirra innilegar samúðarkveðjur.
Starfsfólk Heilsugæslunnar
Sólvangi, Hafnarfirði.
Ástkær eiginmaður minn, faðir okkar, tengda-
faðir og afi,
BJARNI EINARSSON
fyrrverandi bæjarstjóri á Akureyri og
aðstoðarforstjóri Byggðastofnunar,
Brekkugerði 30,
Reykjavík,
lést miðvikudaginn 24. mars.
Hann verður jarðsunginn frá Fossvogskirkju miðvikudaginn 31. mars
kl. 13.30.
Gíslína Guðrún Friðbjörnsdóttir,
Anna Margrét Bjarnadóttir, Gísli Rúnar Jónsson,
Einar Björn Bjarnason,
Guðrún Þóra Bjarnadóttir, Gunnlaugur Jón Rósarsson
og barnabörn.
Elskuleg móðir okkar og tengdamóðir,
SIGRÚN ÁSKELSDÓTTIR
frá Bassastöðum,
síðast til heimilis á
dvalarheimilinu Höfða,
Akranesi,
andaðist á Sjúkrahúsi Akraness laugardaginn
27. mars sl.
Útför hennar fer fram frá Akraneskirkju þriðju-
daginn 6. apríl kl. 14.00.
Halldór Karlsson,
Svavar Karlsson, Unnur Jónsdóttir,
Guðmundur Karlsson, Guðrún Halldórsdóttir,
Kristmundur Karlsson, Inga Sigurðardóttir,
Erla Karlsdóttir,
Gylfi Karlsson, Guðfinna Magnúsdóttir,
Sigríður Karlsdóttir, Leifur Þorvaldsson
og fjölskyldur.
Bróðir okkar, mágur og frændi,
ÓLAFUR PÁLSSON,
frá Ytri-Björgum,
Mýrarbraut 7,
Blönduósi,
lést á heimili sínu föstudaginn 26. mars.
Sigurður Pálsson, Alda Friðgeirsdóttir,
Sigríður Pálsdóttir, Óli J. Björnsson,
börn og barnabörn
Elskulegur sonur minn, bróðir, mágur og
frændi,
REYNIR MAGNÚSSON
prentari,
lést á heimili sínu aðfaranótt miðvikudagsins
17. mars sl.
Útförin hefur þegar farið fram í kyrrþey að ósk
hins látna.
Okkar innilegustu þakkir til allra þeirra, er sýndu okkur samúð og vinarhug.
Guð blessi ykkur öll.
Guðríður Jónsdóttir,
Bogi Magnússon, Sigrún Pétursdóttir,
Hrólfur Guðmundsson,
Guðríður Stella Bogadóttir,
Magnús Bogason.
Elskuleg móðir okkar, tengdamóðir, amma
og langamma,
GUÐRÍÐUR JÓHANNA JÓHANNSDÓTTIR,
Hraunbergi,
Hafnarfirði,
andaðist á Hrafnistu Hafnarfirði föstudaginn
26. mars.
Sveinn Rúnar Björnsson, Dýrleif Pétursdóttir,
Jóhann Reynir Björnsson, Ása Haraldsdóttir,
Guðrún Erna Björnsdóttir, Björn Guðmundsson,
barnabörn og barnabarnabörn.
Elskuleg móðir okkar, tengdamóðir og
amma,
HELGA STEFÁNSDÓTTIR,
Þykkvabæ III,
Landbroti,
lést á hjúkrunarheimilinu Klausturhólum laug-
ardaginn 27. mars.
Jarðarförin fer fram frá Prestsbakkakirkju á
Síðu laugardaginn 3. apríl kl. 14.00.
Blóm og kransar eru afþakkaðir, en þeir, sem vilja minnast hinnar látnu,
láti Velunnarasjóð Klausturhóla njóta þess.
Hilmar Jónsson, Skúli Jónsson,
Stefán Jónsson, Ragnar Jónsson,
Elín Jónsdóttir, Ásta Jónsdóttir
og fjölskyldur.
ÚTFARARSTOFA
KIRKJUGARÐANNA
Vesturhlíð 2 • Fossvogi • Sími 551 1266 • www.utfor.is
REYNSLA • UMHYGGJA • TRAUST
Önnumst alla þætti útfararinnar
Þegar andlát ber að höndum
Arnór L. Pálsson
framkvæmdastjóri
Ísleifur Jónsson
útfararstjóri
Frímann Andrésson
útfararþjónusta
Svafar Magnússon
útfararþjónusta
Hugrún Jónsdóttir
útfararþjónusta
Guðmundur Baldvinsson
útfararþjónusta
Halldór Ólafsson
útfararþjónusta
Ellert Ingason
útfararþjónusta
Minningarkort
Krabbameinsfélagsins
540 1990
krabb.is/minning
Kársnesbraut 98 • Kópavogi
564 4566 • www.solsteinar.is
Minningarkort
Hjartaverndar
535 1825
Gíró- og greiðslukortaþjónusta