Morgunblaðið - 22.04.2004, Síða 8
FRÉTTIR
8 FIMMTUDAGUR 22. APRÍL 2004 MORGUNBLAÐIÐ
OPIÐ HÚS - Engihjalli 25
Þorbjörn Pálsson sölufulltrúi Sími 520 9555
898 1233 thorbjorn@remax.is RE/MAX
Heimilisfang: Engihjalli 25
Stærð: 97 fm
Stórglæsileg - vel viðhaldin og mikið
endurnýjuð 4ra herb. samtals 97 fm
íbúð á þriðju hæð. Tvennar svalir í góðu
húsi með frábæru útsýni og húsverði.
Sérgeymsla í kjallara. Þvottahús á hæð-
inni. Frystigeymsla. Stutt í alla þjónustu,
grunnskóla, leikskóla, gæsluvelli.
Tilboð óskast.
Þorbjörn sölufulltrúi tekur á móti gest-
um í dag, fimmtudag, á milli kl. 16 og
17. Bjalla 3A.
Netfang: kjoreign@kjoreign.is
Heimasíða: www.kjoreign.is
Sími 533 4040 • Fax 533 4041
Opið sumarhús
í dag, sumardaginn fyrsta frá 13-16
TRAUST OG ÖRUGG ÞJÓNUSTA
Ármúla 21 • Reykjavík
jöreign ehf
Dan V.S. Wiium hdl.,
lögg. fasteignasali
Erlendur Davíðsson,
lögg. fasteignasali
Hákon R. Jónsson,
sölumaður
Ólafur Guðmundsson
sölustjóri,
AÐ EYRUM 16 Í EILÍFSDAL
(BEYGT TIL HÆGRI ÁÐUR EN KOMIÐ ER AÐ HVALFJARÐARGÖNGUM)
Góður bústaður, staðsettur rétt utan
við höfuðborgina. Lóðin er 1,5 ha.
Kalt vatn er komið í bústaðinn.
Rafmagn við lóðamörk. Fallegt útsýni.
Verðtilboð óskast. Bústaðurinn
verður til sölu og sýnis í dag á milli
klukkan 13 og 16.
Herdís og Ágústa taka vel á móti
ykkur.
Og hvað eigum við að láta krógann heita núna, Bjössi minn?
Menningarhátíð á Reykhólum
Ákváðum að
bæta um betur
Menningarhátíð erhaldin á Reyk-hólum í dag og
kennir þar ýmissa grasa.
Morgunblaðið ræddi við
Einar Örn Thorlacius
sveitarstjóra í tilefni dags-
ins.
Hver er forsaga þessar-
ar menningarhátíðar?
„Undanfarin ár hefur
verið haldinn svokallaður
„Barmahlíðardagur“ á
Reykhólum sumardag-
inn fyrsta. Reykhóla-
hreppur rekur hjúkrunar-
og dvalarheimilið Barma-
hlíð á Reykhólum og á
Barmahlíðardeginum hafa
hreppsbúar getað komið í
heimsókn á heimilið,
keypt kaffiveitingar og
skoðað föndur og annað
sem íbúar Barmahlíðar hafa gert
yfir veturinn. Íbúar á Barmahlíð
eru samtals fimmtán, á aldrinum
48 ára til 91 árs, en vonandi fáum
við fljótlega heimild fyrir fleiri
hjúkrunar- og dvalarrýmum því
við höfum pláss fyrir mikið fleiri.“
Hvað varð til þess að umfang
hátíðarinnar jókst?
„Já, í fyrra ákváðum við að
bæta um betur og héldum menn-
ingardagskrá „Bókin, flautan og
harpan“ þar sem tveir rithöfund-
ar lásu úr verkum sínum og tveir
tónlistarmenn komu fram. Þetta
var vel sótt þannig að við
ákváðum að endurtaka leikinn í
ár.“
Hver er dagskráin að þessu
sinni?“
„Í ár bjóðum við upp á þrjá
listamenn, þannig að hreppsbúar
og aðrir gestir geta svalað þörf
sinni fyrir ritlist, myndlist og tón-
list! Þórunn Valdimarsdóttir, rit-
höfundur og sagnfræðingur, ætl-
ar að lesa fyrir okkur úr bók sem
hún er með í smíðum um Matth-
ías Jochumsson en hann fæddist
einmitt hér í sveitinni á 19. öld.
Guðmundur Björgvinsson mynd-
listarmaður verður með
myndlistarsýningu og síðast en
ekki síst verður söngkonan fræga
frá Færeyjum, Eivör Pálsdóttir,
hjá okkur og syngur nokkur lög.
Myndlistarsýningin verður
opnuð formlega kl. 13 á efri hæð
Barmahlíðar, en Eivör og Þórunn
verða í Reykhólakirkju og þær
byrja kl. 14.
Heilbrigðis- og tryggingamála-
ráðherra, Jón Kristjánsson, verð-
ur heiðursgestur hjá okkur. Að
auki verður ORG-ættfræðiþjón-
usta með kynningu áættfræði og
gerð ábúendatala. Enn fremur
ætla Rauða kross-deild Búðar-
dals og Reykhóla og Lionsklúbb-
ur Búðardals, Reykhóladeild, að
afhenda heilsugæslunni á Reyk-
hólum svokallað hjartastuðtæki.“
Er auðvelt að fá listafólk til að
koma til Reykhóla?“
„Já, hafa verður í huga að eng-
inn þéttbýlisstaður á Vestfjörð-
um, nema kannski Borðeyri, ligg-
ur jafn nálægt höfuðborgar-
svæðinu og við. Enda
þótt Reykhólahreppur
tilheyri óneitanlega
Vestfjarðakjálkanum,
þá eru bara 230 km frá
Reykjavík til Reykhóla
og 95% leiðarinnar er á
bundnu slitlagi. Það er einungis
13 km vegstubbur í Dalasýslu
sem heitir Svínadalur sem á vant-
ar bundið slitlag. Ég vona að
Sturla samgönguráðherra lesi
þetta viðtal og kippi þessu fljót-
lega í lag! Það tekur því einungis
tæpa þrjá tíma að aka til okkar og
ég held að listafólki vaxi það ekki
í augum. Það má því kannski nota
tækifærið og hvetja höfuðborgar-
búa og aðra landsmenn að nota
tækifærið og skella sér hingað
vestur.“
Hverjir sækja svona menning-
arviðburð, þar sem um fremur lít-
inn byggðarkjarna er að ræða?
„Enda þótt Reykhólahreppur
sé gríðarstór, 1.150 ferkílómetar
að stærð, og óteljandi eyjar á
Breiðafirði tilheyri honum, þ.á m.
Flatey og Skáleyjar, þá eru íbú-
arnir fáir eða kringum 300. Ég
vænti þess að hreppsbúar fjöl-
menni á þennan menningarvið-
burð og vonandi nágrannar okkar
í Dölunum líka.“
Gera ferðamenn sér sérstaka
ferð til ykkar?
„Ég veit ekki um það, en ég
veit að listamennirnir ætla að
nota tækifærið og dvelja hér í
nokkra daga og skoða þessa
fögru náttúru sem hér er. Sumir
segja að Reykhólasveit sé falleg-
asta sveit á Íslandi! Reyndar
stendur myndlistarsýningin fram
á sunnudag og hún verður bæði á
efri hæð Barmahlíðar og einnig í
íþróttasal Reykhólaskóla.“
Þið ætlið væntanlega að hafa
hátíðina árlega?
„Ég er alveg viss um það. Við
erum líka að vinna í fleiri menn-
ingarmálum. Meðal annars stend-
ur til að reisa minnismerki um
Jón Thoroddsen skáld en hann
fæddist einmitt á Reykhólum árið
1818. Finnur Arnar myndlistar-
maður hefur hannað minnisvarð-
ann og ég held að hann eigi eftir
að vekja talsverða at-
hygli. Lionshreyfingin
er mjög öflug hér og
Lionsmenn hafa beitt
sér mjög í þessu máli.
Annars er mikill hugur
í okkur Austur-Barð-
strendingum um þessar mundir. Í
sumar verður reist íþróttahús á
Reykhólum og ungt fólk er einnig
að ráðgera byggingu íbúðarhúsa.
Góð tíð gleður bændur, þótt vorið
hafi verið svolítið kalt, og Þör-
ungaverksmiðjan hefur ekki und-
an að framleiða þang- og þara-
mjöl. Við lítum því björtum
augum til framtíðarinnar.“
Einar Örn Thorlacius
Einar Örn Thorlacius er fædd-
ur árið 1958 í Reykjavík. Stúdent
frá MH 1977 og lauk lagaprófi
frá HÍ 1983. Hefur setið í stjórn
Neytendasamtakanna.
Hóf störf hjá G.J. Fossberg véla-
verslun, nú Fossberg ehf., að
loknu námi og var fram-
kvæmdastjóri þess fyrirtækis frá
1989 til 2002. Tók 1. október
2002 við starfi sveitarstjóra í
Reykhólahreppi, Austur-
Barðastrandarsýslu. Á þrjú
börn, Sigríði, Bjart og Magnús,
6–16 ára.
… og 95%
leiðarinnar
eru á bundnu
slitlagi
GANGA til styrktar AMS (Atvinna
með stuðningi) og handverkstæðinu
Ásgarði verður í júlí í sumar. Gengið
verður frá Reykjavík til Akureyrar
eða 430 kílómetra leið á sjö dögum
og er ráðgert að hafa ýmsar uppá-
komur á leiðinni á meðan á göngunni
stendur. Tilgangurinn er að afla fjár
til styrktar rekstri þessara aðila.
Fyrir göngunni standa göngu-
garparnir Guðmundur Jörundsson,
Pálmi Rafn Hreiðarsson og Þor-
steinn Kristjánsson. Pálmi segir þá
félaga hafa æft mjög stíft frá því í
byrjun ársins enda þurfi þeir að
ganga 60 kílómetra á dag. „Þetta
verður ansi stíft og það getur verið
að við munum hafa fyrstu tvo dagana
stífari. Við stillum okkar á að ganga
fimm kílómetra á klukkustund þann-
ig að við þurfum að ganga í tólf tíma
á dag. Við tökum tíu mínútna pásur á
tveggja tíma fresti og svo borðum
við á þriggja tíma fresti þannig að
við verðum að frá morgni til kvölds.
En það er líka gott að geta lagt eitt-
hvað jákvætt af mörkum og styrkt
gott málefni,“ segir Pálmi.
Ganga
til styrktar
Ásgarði
♦♦♦
EINAR Sindrason, háls-, nef- og
eyrnalæknir, hefur óskað eftir því að
láta af störfum sem yfirlæknir á
Heyrnar- og tal-
meinastöð Ís-
lands. Einar
hyggst snúa sér
alfarið að rekstri
læknastofu sinn-
ar, að því er fram
kemur í fréttatil-
kynningu frá
Heyrnar- og tal-
meinastöðinni.
Einar hefur
starfað hjá HTÍ frá upphafi, fyrst
sem læknir á heyrnardeild Heilsu-
verndarstöðvar Reykjavíkur og síð-
an á Heyrnar- og talmeinastöð Ís-
lands þar sem hann hefur verið
yfirlæknir frá árinu 1980. Í frétta-
tilkynningunni er Einari þakkað gott
starf og honum óskað góðs gengis í
framtíðinni.
Einar Sindrason
lætur af störfum
Einar Sindrason