Pressan - 30.01.1992, Page 8

Pressan - 30.01.1992, Page 8
8 FIMMTUDAGUR PRESSAN 30. JANÚAR 1992 Vantar kraftmikil sölubörn í hin ýmsu hverfi Reykjavíkur og nágrennis. GÓÐ SÖLULAUN Upplýsingar í síma 62-13-13 PRESSAN ■■■■■■■■■■■■■ "Við umfjöllun PRESSUNNAR um Sameinaða verktaka í dag er því að bæta að haft var samband við Thor Ó. Thors, framkvæmdastjóra SV og stjórnarfor- mann íslenskra að- alverktaka, en Thor neitaði að svara spurningum blaðs- ins. ,,Ég vík mér ekki undan spurningum, en ég nenni ekki að tala við blöð sem skrifa eins og þið gerið. Ég segi þetta í fullri vinsemd en ítreka að ég nenni hvorki að tala við ykkur né Stöð 2. Það er fyrir neðan virðingu rnína," sagði Thor ... Hugsaðu þér ferðafrelsið. Og möguleikana. Þú getur ekið vítt og breitt um Skandinavíu eða suður til Evrópu án þess að eyða stórfé í að leigja bíl. Með Norrænu getur fjöl- skyldan farið á ódýran og þægilegan hátt með sinn eigin bíl þangað sem hana langar. Þegar þú ferð á þínum eigin með Norrænu slærðu tværflug- ur íeinu höggi. Þannig má eðaEvr- ópu. Þú ræður ferðatímanum og getur farið hvert á land sem er. Frá Bergen liggja leiðir til allra átta í Skandinavíu. Há- fjallafegurð Noregs og undirlendi Svíþjóðar er skammt undan að ógleymd- _x horrona ^ um borg- w f “ o' um sameina ferð um ísland á leiðinni til Seyðisfjarðar og utanlandsferð til Norðurlanda eins og Ósló og Stokkhólmi. Frá Svíþjóð er hægur vandi að komast með ferju yfir til Finn- lands og skoða þúsund vatna landið eða hina fögru höfuðborg, Helsinki. Frá Hanstholm í Danmörku liggja leiðir um Jótland til Kaupmannahafnar, ef vill og áfram um Skandinavíu, eða suður til Þýskalands og blasir Evrópa þá við í öllu sínu veldi. Við látum þig um ferðaáætiunina en flytjum hins vegar fjölskylduna og bílinn yfir hafið á þægilegan en óvenju skemmtilegan hátt. NORRÆNA SMYRIL-LINE ÍSLAND LAUGAVEGUR 3 101 REYKJAVÍK SlMI 91-62 63 62 C»»|, AUSTFAR HF. NORRÆNA FERÐASKRIFSTOFAN FJARÐARGÖTU 710 SEYÐISFIRÐI SIMI 97-211 11 A EICíIN E TÍL E VRÓ Ljamningaviðræður eru hafnar milli Helga Jóhannssonar, for- stjóra Samvinnuferða/Landsýnar, og Andra Más Ing- ólfssonar um að Andri Már gangi til liðs við Samvinnu- ferðir/Landsýn. Eft- ir því sem næst verð- ur komist er ætlunin að Andri Már verði markaðsstjóri ef samningar takast. Ekki er vitað hvað verður um Helga Pétursson, sem gegnir því starfi núna... ✓ I Ólafsvík eru blikur á lofti í at- vinnulífinu, eins og kunnugt er af fréttum. Hópur heimamanna hefur lýst áhuga sínum á að kaupa Hrað- frystihús Ólafsvíkur, sem hefur ver- ið lokað í nokkra mánuði í kjölfar gjaldþrots. Fyrir hópnum fer Her- bert Hjelm, en hann er fyrrum bæj- arfulltrúi Alþýðubandalagsins og á og rekur Grillskálann í Ólafsvík. Ekki er vitað hvort Herbert og félög- um tekst að kaupa frystihúsið .. . E íms og kunnugt er er mikil valdabarátta meðal valdhafa á Stöð 2. Því veldur meðal annars að ekki er vitað hvar Jó- hann Óli Guð- mundsson hjá Securitas stendur nú, en hann skipaði sér lengi í flokk með þeim Jóni Ólafs- syni og Jóhanni J. Ólafssyni og félögum þeirra í Fjór- menningum sf. I átökunum sem urðu út af hugsanlegri þátttöku Stöðvar 2 í nýju dagblaði urðu full- komin vinslit þeirra í milli, en Jó- hann Óli vildi aldrei heyra minnst á blaðaútgáfu . . . o g þá er saga Skipaútgerðar ríkisins öll, eins og PRESSAN spáði í frétt sl. september. Upplýst er að kaupverð eigna fyrirtækisins sé 400 milljónir. í árslok 1990 voru skip, tæki, fasteignir og aðrir fastafjár- munir þess metnir á 680 milljónir og viðskiptakröfur, bankainnstæður, birgðir og fleira á 98 milljónir til við- bótar. Sama árið höfðu reyndar skuldir við fjármálaráðuneyti og rík- isábyrgðasjóð upp á 550 milljónir króna verið afskrifaðar . . . Skútuvogi 10a - Sími 686700

x

Pressan

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Pressan
https://timarit.is/publication/298

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.