Pressan - 30.01.1992, Síða 21

Pressan - 30.01.1992, Síða 21
FIMMTUDAGUR PRESSAN 30. JANÚAR 1992 21 Lítið hefur þokast í kjarasamningaviðræðum Flest bendir til harðra átaka í samningamálunum Tæplega tvö ár eru síðan skrifað var undir þjóðarsátt- arsamninga, en þeir urðu lausir í september i fyrra. Lít- ið hefur þokast í átt að nýjum samningum og forystumenn verkalýðsfélaganna verða æ meira varir við kröfu um að hefja verkföll til að freista þess að knýja á um bætt kjör. Hvergi er þó eins langt í land með að samningar takist og hjá opinberum starfs- mönnum. Þar kemur margt til. Sérstaklega er nefndur flatur niðurskurður, sem þýð- ir fátt annað en að kjör opin- berra starfsmanna munu versna. Ríkið hefur og gefið út að ekki verði samið um hækkanir og reyndar er fuli- yrt þar á bæ að kaupmáttur- inn muni rýrna á þessu ári. Þetta allt gerir að mikil óvissa er um að samningar verði gerðir án átaka á vinnu- markaði. RÆÐST Á NÆSTU VIKUM ..Það er erfitt að segja til um hvernig þetta mun æxl- ast," sagði Asmundur Stefáns- son, forseti Alþýðusambands íslands, þegar hann var spurður hverju hann spáði um gang samningaviðræðna á næstu vikum. ,,Þó svo að menn verði í samfloti verður alltaf eitt- hvað um sérviðræður. Þar get ég nefnt verslunarmenn, Verkamannasambandið og fleiri. Ég verð ekki hissa ef þetta verða erfiðir samningar og ég þori ekki að spá um hvort til verkfalla muni koma. Það er óvissa og svart- sýnispár hafa haft áhrif á fólk," sagði Ásmundur. Síðasta allsherjarverkfall Alþýðusambandsins var á ár- inu 1982, en það verkfall stóð aðeins í fáeina daga. Ás- mundur segir að það þurfi að fara allt aftur til áranna 1976 Björn Grétar Sveinsson: „Ekki i verkfall nema í ýtrustu neyö." Þjóðarsáttarsamningarnir eru að verða tveggja ára. Það þótti samið til langs tíma þegar þeir voru gerðir. Fátt bendir til að nýir samningar takist og vaxandi órói er meðal launþega og kröfur um verkföll verða æ meira áberandi. í skoðanakönnun, sem Skáís gerði fyrir PRESS- UNA, kemur fram að helmingur er tilbúinn til að fara í verkfall til að knýja á um bætt kjör Ásmundur Stefánsson: „Þetta veröa erfiðir samningar." og 1977 í leit að allsherjar- verkföllum. ,,Við höfum fundið fyrir auknum þrýstingi þar sem samningar hafa verið það lengi lausir. Þegar þjóðarsátt- arsamningarnir voru gerðir þóttu þeir vera til langs tíma, eða nærri tveggja ára. Nú eru liðin tvö ár frá því þeir voru undirritaðir. Það er aukinn þrýstingur á okkur þess vegna," sagði Björn Grétar Sveinssón, formaður Verka- mannasambandsins. ,,Við förum ekki í verkfall nema í ýtrustu neyð. Ef mat okkar verður það að við telj- um öll sund lokuð, þá förum við í verkfall, fyrr ekki," sagði Björn Grétar. „Reynslan hefur sýnt að menn bæta ekki kjörin með' verkföllum," sagði Þórarinn Guömundur Þ. Jónsson: „Býst viö átökum, ef ekki verður veruleg breyting." „ Ögmundur Jónasson: „Þetta fer harönandi." Vidar Þórarinsson, fram- kvæmdastjóri Vinnuveit- endasambandsins. ÓÞOLANDI AÐ HAFA EKKI GILDA SAMNINGA ,,Það sem hefur haldið aft- ur af okkur er þessi litla verð- bólga. Kaupmáttarrýrnunin er hæg, en rýrnun samt. Það getur ekki gengið að hér sé samningslaust. Ef ekki verð- ur veruleg hreyfing, segjum í febrúar, má búast við átök- um,“ sagði Gudmundur Þ. Jónsson, formaður Iðju, fé- lags verksmiðjufólks í Reykjavík. Guðmundur sagði að að- gerðir ríkisstjórnarinnar þyngdu málin enn frekar. Undir það tók Ögmundur Ágúst Einarsson: „Gengiö verður frá samningum án átaka." föll bæta ekki kjörin." Jónasson, formaður Banda- lags starfsmanna ríkis og bæja. ,,Ef fer sem horfir verður krafa um verkföll sett fram áður en langt um líður," sagði Ögmundur. Hann sagði einn- ig að launamisrétti væri stað- reynd og það gerði fólk ákveðnara en áður í að gefa ekki eftir. KALT MILLI AÐILA Eins og áður sagði virðist sem minnstar líkur séu á að samningar takist fljótlega milli ríkisins og opinberra starfsmanna. „Þetta fer harðnandi. Þessi mikli niðurskurður og hvern- ig er ráðist á velferðarkerfið hefur auðvitað áhrif. Ef þeir hefðu sýnt áhuga á að koma á móts við okkur með ein- hverjum hætti væri andinn annar í þessu," sagði Ög- mundur Jónasson, formaður Bandalags starfsmanna ríkis og bæja. Ögmundur sagðist ekki eiga von á neinum stökk- breytingum að nýjum kjara- samningi, að minnsta kosti ekki á næstu dögum. Undir þetta tekur að nokkru Ágúst Einarsson, for- maður samninganefndar rík- isins. Hann segir það verða að koma í ljós á allra næstu vikum hvort aðilar nái sam- an, að öðrum kosti sé hætta á að samningar frestist fram eftir ári. ,,Ég hef þá trú að það verði gengið frá samningum án átaka. Það verður engin hækkun sótt og það verður smávægileg kaupmáttarrýrn- un á þessu ári. Við viljum semja til tveggja ára og stefna að því að kaupmátturinn rýrni ekki á árinu 1993. Með þessu komumst við best í gegnum það atvinnuleysi sem er. Það þarf að halda verðbólgunni í tveimur til tveimur og hálfu prósenti. Það eru æ fleiri sem gera sér grein fyrir því að það er ekk- ert svigrúm til hækkunar," sagði Ágúst Einarsson. VILL FÓLK FARA í VERKFALL? Skáís gerði skoðanakönn- un fyrir PRESSUNA. Þar var spurt svona: „Ert þú persónu- lega tilbúinn að fara í verkfall til að knýja á um bætt kjör?“ Af sex hundruð þátttak- endum var enginn sem ekki var tilbúinn að svara, og að- eins 24, eða 4,2 prósent, voru óákveðnir. Nei, sögðu 277, eða 48,3 prósent, og já sögðu 272, eða 47,5 prósent. Ef aðeins eru teknir þeir sem tóku afstöðu segjast 50,5 prósent ekki vera tilbúin að fara í verkfall, en 49,5 pró- sent eru þess albúin að fara í verkfall til að knýja á um bætt kjör. Á súluritinu hér fyrir neðan eru niðurstöður úr skoðana- könnuninni skýrðar enn frek- ar. Ert þú Tilbúin(n) AÐ FARA í VERKFALL TIL AÐ KNÝJA Á UM BÆTT KJÖR? „Það er erfitt að lesa úr þessu, þar sem þetta skiptist það jafnt," sagði Ágúst Ein- arsson, formaður samninga- nefndar ríkisins. „Ég hef á til- finningunni að fólk hafi gert sér grein fyrir að ekki verði sótt nein hækkun. Það verð- ur smávægileg kaupmáttar- rýrnun á þessu ári og ég tel að gengið verði frá nýjum samningum án nokkurra átaka." „Mér sýnist þetta endur- spegla óánægjuna og óörygg- ið gagnvart stjórnvöldum. Eins sýnist mér af þessu að ef á reynir sé vilji til átaka," sagði Ásmundur Stefánsson, forseti Alþýðusambands ís- lands. „Þetta er svipað því sem mér hefur sýnst á fundum sem ég hef átt með fólki,“ sagði Björn Grétar Sveinsson, formaður Verkamannasam- bandsins. Hann sagðist telja að kæmist ekki frekari skrið- ur á samningaviðræður mundi fjölga í þeim hópi sem er tilbúinn í átök. „Innan samtaka okkar hef- ur ekki verið tekin ákvörðun um verkfallsaðgerðir. Um- ræðan um verkföll hefur óneitanlega farið vaxandi," sagði Ögmundur Jónasson, formaður BSRB. Verkfallsað- gerðir eru neyðarúrræði og mjög alvarlegur hlutur og geta haft alvarlegar afleiðing- ar fyrir þá sem taka þátt í þeim og fyrir þjóðfélagið í heild. Menn grípa ekki til verkfallsaðgerða fyrr en þeir sjá enga aðra leið sér og fjöl- skyldum sínum til varnar." „Þetta eru meiri undirtekt- ir en ég hefði haldið. Dregið hefur úr þolinmæði fólks og það á eftir að draga enn frek- ar úr henni, fari ekki að koma veruleg hreyfing á þessi mál,“ sagði Guðmundur Þ. Jónsson, formaður Iðju. Hann sagðist telja vaxandi líkur á kröfum um verkföll og niðurstaða skoðanakönnunarinnar sýndi að vilji væri til verk- falls. „Það kemur mér á óvart að tæplega helmingur segist vera tilbúinn að fara í verk- fall. Ég held að þetta sé ekki raunin. í spurningunni er gengið út frá því að það sé hægt að bæta kjörin með verkfalli. Þetta er auðvitað rugl. Reynslan hefur sýnt að kjörin verða ekki bætt með verkföllum," sagði Þórarinn Vidar Þórarinsson, fram- kvæmdastjóri Vinnuveit- endasambandsins. Sigurjón Magnús Egilsson

x

Pressan

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Pressan
https://timarit.is/publication/298

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.