Pressan - 30.01.1992, Qupperneq 33
____FIMMTUDAGUR PRESSAN 30. JANÚAR 1992
ERLENDAR FRÉTTI
33
Itegt
erumk
tungu
at hræra
Það þýðir lítið fyrir Bush
Bandaríkjaforseta að útskýra stefnu sína
fyrir kjósendum. Það skilur nefnilega
enginn hvað hann er að segja.
Þegar Ronald Reagan var
Bandaríkjaforseti var því
haldið fram að hann gæti
ekki talað um stjórnarstefnu
sína án þess að hafa fyrir
framan sig lítil spjöld með
ákveðnum lykilorðum. Þetta
var rétt, enda varð gamli
maðurinn ítrekað uppvís að
því að segja meiri vitleysu en
eðlilegt gat talist.
George Bush á við ekki
ósvipaðan vanda að etja.
Hann segir að vísu sjaldan
klára vitleysu, en þegar hann
er ekki sérstaklega undirbú-
inn er málfarið svo sundur-
slitið og ruglingslegt að eng-
inn veit nákvæmlega hvað
hann er að fara. í kosninga-
baráttunni fyrir væntanlegt
prófkjör í New Hamsphire
neyðist forsetinn oftar en ella
til að spjalla blaðalaust um
hugmyndir sínar og niður-
staðan er einkar skrautleg
flóra merkingarlauss málæð-
is. Og skilji nú hver sem betur
getur:
Um efnahagsástandiö:
„Ekki horfa á þann hluta
glassins sem er bara hálffull-
ur.“
Um forsetafrúnœ „Það eru
Kínversk meybörn borin út í milljónatali
Milljónir kínverskra mey-
barna voru bornar út á síð-
asta áratug vegna þess boðs
kínverska kommúnista-
flokksins, að hver fjölskylda
mætti aðeins eignast eitt
barn. Að sögn Chen Muhua,
sem er formaður Kvenna-
sambands Kína, grípa kín-
verskir foreldrar til þess ráðs
að drepa meybörn í þeirri
von að þeim fæðist seinna
sonur og fullyrðir hún að
fórnarlömbin skipti milljón-
um.
Chen sagði að yrði ekkert
aðhafst myndu 50 milljónir
ungra ókvæntra karla fylla
hinn ört stækkandi pipar-
sveinaher landsins áður en
öldin væri á enda runnin. Nú
þegar er 20 milljónum færra
af konum í Kina en eðlilegt
má teljast.
Utburður, sem var tíður í
Kína á síðustu öld og fram á
þessa, lagðist að mestu af eft-
ir sigur kommúnista í borg-
arastyrjöldinni 1949, en eftir
ákvörðun flokksins um eins
barns fjölskyldur varð hans
vart að nýju.
Snemma á síðasta áratug
var farið að kveða svo rammt
að útburði, að Zhao Ziyang,
þáverandi forsætisráðherra
Kína, kom fram opinberlega
og skoraði á fólk að láta af
honum. Þegar útlendingar
fóru að sýna máli þessu
áhuga var hætt að ræða opin-
berlega um barnamorðin og
blaðamenn vægast sagt lattir
til að kynna sér þau.
Fram til 1981 voru mann-
talstölur frá Kína svipaðar og
annars staðar í heiminum (ef
fjöldinn er undanskilinn).
Samkvæmt manntalinu frá
1990 brá hins vegar svo við,
að 111,3 drengirlifðu framyfir
fyrsta árið á móti hverjum
100 telpum. Og tölur frá 1987
og 1989 bentu til svipaðs
hlutfalls. Manntalsfræðingar
spurðu áður en varði hinnar
hryllilegu spurningar: „Hvað
verður um 600.000 meybörn
á hverju ári?"
Sorgarsaga þessi hófst árið
1979 þegar kommúnista-
flokkurinn samþykkti álykt-
un um fjölskyldumál, en í
henni var kveðið á um að
hver fjölskylda mætti aðeins
eiga eitt barn. Engin ákvörð-
un flokksins hefur mætt jafn-
mikilli andspyrnu og er svo
óvinsæl að flokkurinn hefur
ekki enn lagt í að leiða hana
í lög. Ástæðan er sú að alþýð-
an — sérstaklega sveitafólk —
óttaðist um afdrif ætta sinna
og framhaldslíf, því karlar
einir mega tigna forfeður
sína. Þar fyrir utan eru það
aðeins synirnir, sem fram-
fleyta öldruðum foreldrum
sínum, því giftar dætur hafa
einungis skyldur við hina
nýju fjölskyldu sína.
allir að spyrja hvar Barbara
er, við söknum hennar mjög,
mjög mikið. Ég sagði henni
að ég þyrfti ekki á henni að
halda, ég ætlaði ekki að kasta
upp hér. Hversu margir hérna
hafa fengið flensu? Eg þarf að
slá mér lán því það er dýrt að
láta hreinsa jakkaföt í Japan
og forsætisráðherrann var í
fínum, dýrum fötum.“
Um atvinnuleysisbœtur:
„Ef froskur hefði vængi, þá
myndi hann ekki skella aftur-
endanum í jörðina."
Um efnahagsstefnu sína:
„Ég held að ég verði að
standa mig betur í að skýra út
hver stefnan er og ég held að
ég geti gert betur. En ég held
að það sé svo mikið málæði í
gangi að ég verð að finna út
hvernig ég útskýri betur að
við styðjum það sem ég hef
sagt að muni hjálpa."
Um konur íhernum: „Hluti
af þessum góða árangri er að
við höfum sjálfboðaliðaher
og hluta af öllu — herinn. Og
hluti af ástæðunni er að fólk
vill ráða meiru um það sem
það vill gera. Svo að móðir —
ég vil eiga þátt í þessu. Ég
virði það og skil það.“
„Eg vil setjast
í helgan stein
þegar ég verð
fimmtugur
spila krikket á
sumrin, gamal-
mennafótbolta
á veturna og
syngja í kór.“
Neil Kinnock, fæddur 28. mars
1942, (viötali árið 1980.
Þá gafst hann upp og
fór heim
Japanskur maður hafði veriö
dauður i fimm tíma í lest án þess
að neinn tæki eftir þvf.
Svo verður allt draslið
Finnlandiserað
Rússar styðja EB-aðild Finna.
Við vissum að kókið
væri hressandi, en ríf-
lega 71 þúsund stykki
á mann? Komm’onn
Sjö þungvopnaðir menn stálu
500.000 smokkum (Kólumbíu.
Smám saman verður
þá nóg að éta handa
öllum
Gamalt fólk styttir sér aldur i
Moskvu vegna matarverðs.
Þetta er allt í lagi, elsk-
an, það má alltaf notast
við eldhúsborðið
Kínversk stjómvöld létu innsigla
svefnherbergi hjóna sem neituðu
að borga sekt vegna of margra
barneigna.
ÚTLENT SJÓNARHORN
Taugastríðið gegn stjórninni í Bagdað
EFTIR WILLIAM SAFIRE
Eftir vísbendingu frá heim-
ildármanni í njósnaheimin-
um og stutta skírskotun í
dálki eftir Jim Hoagland
skrifaði ég fyrir tveimur vik-
um að aftur væri farið að
hvetja til uppreisnar gegn
Saddam Hussein og að í þetta
sinn myndi bandaríski flug-
herinn styðja við bakið á upp-
reisnarmönnum.
Nú berast nákvæmari frétt-
ir frá Patrick Tyler hjá New
York Times, sem hefur skýrt
frá tvennu: að fyrir tveimur
mánuðum hafi „fulltrúa-
nefnd" Bush forseta beðið
Pentagon um hernaðaráætl-
un til aðstoðar uppreisnar-
mönnum; og að forsetinn hafi
um leið skrifað Fahd Sádi-Ar-
abíukóngi og boðið fram
þessa umbeðnu þjónustu
gegn því að bandaríski her-
inn fengi frambúðaraðstöðu í
eyðimörkinni.
Þegar Colin Powell herr-
áðsforingi svaraði „Þetta er
ekki mitt borð; Bob Gates for-
stjóri CIA þjónar hér“ var
undirbúningurinn fenginn í
hendur öryggisráðgjafanum
Brent Scowcroft sem eitt sinn
embættismaður, sem vel
þekkir til mála, vill deila
leyndarmálum sínum með
forvitnum blaðamanni og
vingjarnlegur spæjari hefur
„Ef Bandaríkin eru að undirbúa
heilmikla leyniaðgerð til að koma
Saddam Hussein frá, hvernig stendur
á því að við fréttum það allt saman
í biöðunum?"
klæddist einkennisbúningi
flughersins.
Glöggur lesandi hlýtur að
spyrja sjálfan sig: Ef Banda-
ríkin eru að undirbúa heil-
mikla leyniaðgerð til að
koma Saddam Hussein frá,
hvernig stendur á því að við
fréttum það allt saman í blöð-
unum?
Það er augljóst að einhver
fengið það verkefni að kjafta
í tilkippilega dálkahöfunda.
Er ekki ólykt af þessu? Er
ekki verið að nota okkur?
Svarið er jú við báðum
spurningum. Þetta tal um
væntanlegar leyniaðgerðir,
sem bandarískir embættis-
menn afneita án þess að
roðna, er hluti af taugastríði.
Bush forseti og Fahd konung-
ur eru að reyna að setja
skrekk í Saddam og hvetja
um leið klíkuna í kringum
hann til að steypa honum af
stóli.
Þversögnin er að þetta
taugastríð gegn harðstjóra,
sem bandamenn hefðu átt að
drepa á sínum tíma, getur
orðið að alvöruuppreisn. Og í
þetta sinn getur Bush ekki
leyft slátraranum í Bagdað að
berja uppreisnina niður.
En hvað um Kúrdana, peð-
in sem verður fórnað í þessari
skák?
Leiðtogar þeirra hafa hætt
samningaviðræðum við
Saddam og eru tilbúnir að
eiga samstarf við Moham-
med Baqir Hakim, sem á
harðstjóranum grátt að
gjalda. Þeir vilja hins vegar
ekki sjá Hassan Naqid, fyrr-
um böðul íraksforseta, sem
Sýrlendingar og Sádi-Arabar
vilja nú koma til valda.
Áður en Kúrdarnir hætta
lífi sínu aftur að tilstuðlan
Bandaríkjanna vilja þeir að
Sameinuðu þjóðirnar sendi
lið til að fylgjast með kosn-
ingum í hinu gamla Kúrdist-
an, sem nær alveg niður að
35. breiddargráðu og yfir ol-
íulindirnar í Kirkuk.
Þeir sækjast eftir sjálf-
stjórn, ekki sjálfstæði eins og
Tyrkir óttast. í Kirkuk mætti
setja upp bráðabirgðastjórn
Kúrda, Súnna og Shíta í þeim
tilgangi að laða að liðhlaupa
frá Bagdað þar til stjórnin
fellur.
Þetta er að líkindum meira
frelsi en baktjaldamakkar-
arnir í Ryad og Damaskus
sætta sig við.
En Kúrdarnir vilja ekki
deyja til þess eins að skipt sé
um glæpamenn á æðstu stöð-
um í Bagdað. Bandaríkin
verða að virða sjálfsákvörð-
unarrétt Kúrda ef þetta tauga-
stríð á að verða að frelsis-
striði.