Pressan - 30.01.1992, Síða 35

Pressan - 30.01.1992, Síða 35
FIMMTUDAGUR PRESSAN 30. JANÚAR 1992 35 Smekkleysi PRESSUNNAR Sveinn Rúnar Hauksson læknir skrifar gegn Richard Nixon og Pressunni. ,,Höfnum harðstjórninni í Hanoi" eftir Richard Nixon. Grein í Press- unni 16. janúar sl. Ég leit aftur á þetta vikugamla blað sem ég var að fletta. Þetta hlýtur að vera grínsíða, Gula pressan eða þvíumlíkt. Nei, blaðsíðan var merkt ERLENDAR FRÉTTIR. Getur verið að hér sé kominn fram alnafni? Sú tilgáta var fljót að detta uppfyrir, því að í grein- arlok stóð skýrt: „Höfundur er fyrr- verandi Bandaríkjaforseti". Sá eini sanni og alræmdi Richard Milhouse Nixon er farinn að skrifa erlendar fréttir fyrir Pressuna. Lesendur hljóta að spyrja: Hvað fær Nixon í laun? Ekki er það öfugt. Það er hreint ótrúlegt að einn helsti fjöldamorðingi Víetnam- stríðsins og sá Bandaríkjaforseti sem hrökklaðist úr embætti vegna afbrota sinna skuli nú dreginn fram til að fjalla um stjórnarfarið í Hanoi. Athugasemdalaust af hálfu rit- stjórnar gerist Nixon siðferðispost- uli á síðum Pressunnar: „Okkur ber siðferðisleg skylda til þess að taka ekki með silkihönskum á Hanoi- stjórninni." Hér talar forsetinn sem fyrirskipaði jólaloftárásirnar á Hanoi 1972. Það er sennilega til harla lítils að efna til blaðadeilu við Richard Mil- house á síðum Pressunnar. Áróðurs- pistill hans er gegnsýrður af því hatri sem ýmsir ráðamenn í Banda- ríkjunum hafa stjórnast af í málefn- um Suðaustur-Asíu, allt frá því að Bandaríkjaher varð að lúta í lægra haldi fyrir þjóðfrelsisherjum Víet- nama. I stað þess að taka í þá sátta- hönd sem Víetnamar hafa hvað eftir annað rétt fram á liðnum árum hafa bandarísk stjórnvöld kosið að láta ófriðlega, m.a. með viðskiptastríði, sem gert hefur Víetnömum mjög erfitt fyrir við að endurreisa land sitt og bæta efnahaginn. í stað þess að leggja sitt af mörkum „til að lækna sár stríðsins", eins og Henry Kissing- er, utanríkisráðherra Nixons, skrif- aði undir í Parísarsamkomulaginu um frið 27. janúar 1973, hafa Bandaríkin gjörsamlega svikið lof- orð sín um fjárhagsaðstoð við end- urreisn Víetnam að stríðinu loknu. Ekki einn einasti Bandaríkjadalur hefur skilað sér í stríðsskaðabætur. Hins vegar hefur ótöldum dölum verið varið til að spilla fyrir friði í Indókína. Samkvæmt reglunni um að „óvinir óvina minna eru vinir mínir" hefur jafnvel Rauðu kmerun- um undir forystu Pol Pot verið rétt hjálparhönd. Nixon gerir að umtalsefni „báta- fólkið" og að Víetnam sé eitt af fimm fátækustu ríkjum heims en um leið með fimmta stærsta her í heimi. Ákaflega vafasamt er að bera saman stærð og styrk herja þróun- arríkja við hátæknivædda vestræna heri sem ráða yfir kjarnorkuvopn- um. Að her Víetnama hafi á sínum tíma verið sá fimmti fjölmennasti í heimi kann að vera rétt, enda óx hann smám saman í baráttu við öfl- ugasta árásarher í heimi, sem beitti allri fullkomnustu drápstækni sem völ var á. Bandaríkjaforseti beitti þegar flest var yfir 600.000 her- mönnum í Víetnam. Stríðið beindist ekki einungis gegn fólkinu, heldur landinu sjálfu og náttúru þess. Eitur- efnahernaður var stundaður úr lofti og skógunum eytt. Aukin tíðni fóst- urláta, vanskapnaður og krabba- meina er það sem Víetnamar mega enn búa við af þessum völdum um ókomna tíð. . 111 meðferð á víetnömsku flótta- fólki hefur runnið íslendingum til rifja og við höfum borið gæfu til að bjóða nokkrum þeirra að setjast að hér á landi. Flóttafólk frá Víetnam hefur mátt líða fyrir að það er af við- komandi yfirvöldum í Hong Kong og víðar ekki talið vera pólitískir flóttamenn, þvert ofan í það sem Nixon lætur liggja að í grein sinni. Fólkið er talið hafa verið að flýja fá- tækt. Málflutningur Nixons er enn kaldhæðnislegri í ljósi þess að bandarísk yfirvöld skuli neita að taka á móti þessu fólki, og láti það hírast við ömurlegar aðstæður í flóttamannabúðum árum saman. Bandaríkjastjórn ber sérstaka ábyrgð á þessum flóttamanna- vanda. í útvarpssendingum Voice of America var fólk hvatt með hræðsluáróðri til að flýja kommún- istana. Fólkið sem flúði í bátum á haf út átti von á því að vera bjargað í bandarísk skip. í staðinn biðu þeirra sjóræningjar og dauðinn. í ljós kom að það var meiri áhugi á því af hálfu Bandaríkjanna að láta fjalla um hörmungar fólksins í fjöl- miðlum en að binda enda á þær. Flóttamannavandinn er þó ekki síst af völdum stríðsins sjálfs, eyði- leggingar og fátæktar sem við- skiptabann Bandaríkjastjórnar hef- Tríóið Gylfaginning Árni Scheving, Gylfi Gunnars og Þorsteinn Steinsson skemmta með þorralögum. Hilmar Sverrisson leikur fyrir dansi fram á nótt. Boroapantanir í síma 17759. ur viðhaldið. Bandarísk stjórnvöld hafa einnig þrýst á önnur ríki og al- þjóðastofnanir til að einangra Víet- nam. Jafnvel þróunarhjálp hefur verið illa séð. Þá hefur samspil Pek- ing-stjórnarinnar og Washington, sem Nixon og Kissinger áttu heiður- inn af, haft sitt að segja. Það leiddi til stríðsástands milli Kína og Víet- nam og stór hluti flóttafólksins fram- an af var einmitt af kínverskum upp- runa. í þessu tali um fólksflótta frá Víetnam má minna á, að á meðan Pol Pot var við völd í Kambódíu þá var sá fjöldi sem flúði til Víetnams mun meiri en sá sem flúði þaðan. Hér var um að ræða Kambódíu- menn sem flúðu undan ógnarstjórn Rauðu kmeranna. Það er sannast sagna harla undar- legt að standa sig að því að vera far- inn að eiga orðastað við Nixon á síð- um íslensks vikublaðs um Víetnam- stríðið og áframhald þess. Enda ætti að vera óhætt að tilnefna ritstjóra Pressunnar þegar árleg verðlaun Smekkleysu koma næst til álita. Hér skal látið staðar numið enda þótt að- eins hafi verið drepið á örfá atriði. Grein Nixons hefur sennilega ekki verið skrifuð eingöngu fyrir Press- una. Hún er vafalítið skrifuð fyrir bandaríska lesendur til að leggja lóð á vogarskál áframhaldandi ófriðar gagnvart Víetnam. Gæfusamlega á þessi fyrrverandi Bandaríkjaforseti ekki svo mjög upp á pallborðið hjá bandarískum stjórnmálamönnum. Vonir standa til að nú sé loks að tak- ast að koma vitinu fyrir bandarísk stjórnvöld, þannig að á komist eðli- legt stjórnmálasamband við Víet- nam. Það er þó fyrst og fremst utan- ríkisstefnu Víetnama og fleiri ríkja Suðaustur-Asíu að þakka, að nú horfir þrátt fyrir allt heldur friðvæn- legar í þessum heimshluta en oft áð- ur. ........ Fyrirtœki, starfsmanna- hópar... árshátíðarhópar! Árshátíðar- tilboð Flugleiða slter allt út. Þetta er einstakt tækifæri til að halda árshátíð í erlendri stórborg. Þrautþjálfað starfsfólk okkar er ykkar trygging fyrir ógleymanlegri ferð. Baltimore/ 20-50 manns* 50 og fleiri* 19.900 kr. 18.900 kr. 21.900 kr. 19.900 kr. 19.900 kr. 18.900 kr. 19.900 kr. 18.900 kr. 19.900 kr. 18.900 kr. 17.900 kr. 15.900 kr. 21.900 kr. 19.900 kr. 31.900 kr. 30.900 kr. 31.900 kr. 30.900 kr. Árshátíðartilboð Flugleiða gildir frá 3. janúar til 4. apríl 1992. Leitið tilboða á sölu- Ferðist í á Lækjartorgi, hjá umboðs- . .. skrifstofum Flugleiða í glœstlegum farkostum Kringlunni, Hótel Esju og |g- Flugleiða par sem öryggi og góð þjónusta eru í mönnum okkar um allt land fyrirrúmi. , . ,Qn.nn/ . eoa í sima 690300 (svarao alla 7 daga vikunnar). FLUGLEIDIR 'Lágmarksdvöl/sunnudagsregla. Hámarksdvöl 4 dagar/3 nætur. Verð á manninn m.v. staðgr. og gengi 14.11.1991: flugvallarskattur og forfallagjald(alls 2.350 kr.) ekki innifálið. Framangreind verð eru háð samþykki yfirvalda.

x

Pressan

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Pressan
https://timarit.is/publication/298

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.