Pressan - 06.02.1992, Síða 4

Pressan - 06.02.1992, Síða 4
4 FIMMTUDAGUR PRESSAN 6. FEBRÚAR 1992 Á L I T ÞORGEIR ÞORGEIRSSON Áaðselja RÚV einkaaðilum? rithöfundur var fyrir átta árum kærður af Lögreglufélaginu fyrir skrif um ofbeldi innan lögreglunnar. Tilefni greinaskrifa Þorgeirs var Skaptamálið. Málið var kært til ríkissaksóknara sem efndi til opinberrar rannsóknar. Greinagerð var síðan send rannsóknarlögreglunni til athugunar og síðar til sakadóms. Þorgeir var dæmdur samkvæmt 108. grein hegningarlaganna tii að greiða sekt. Hann áfrýjaði málinu til Hæstaréttar sem staðfesti sakadómsúrskurðinn. Þann 22. janúar flutti Þorgeir mál sitt fyrir Mannréttindadómstól Evrópuráðsins. MARKÚS ÖRN ANTONSSON, BORGARSTJÓRI OG FYRRUM ÚTVARPSSTJÓRI rr „Ég hef verið og er enn þeirrar skoðunar, eins I og ítrekað hefur komið fram, að ég tel að þetta ^„J samspil sem er á milli einkastöðva annars veg- ar og Ríkisútvarpsins hins vegar sé ákjósanlegt fyrirkomulag og engin ástæða til að breyta því. í ljósi þeirra sérstöku að- stæðna sem ríkja í okkar fámenna þjóðfélagi er það best tryggt með þessum hætti að landsmenn allir sitji nokkurn veg- inn við sama borð hvað fjölmiðlaþjónustu varðar, með því að ríkisútvarp alþjóðar annist hana og geri það líkt og nú tíðkast." 4»r ÞORBJÖRN BRODDASON, DÓSENT í FÉLAGSFRÆÐI OG FORMAÐUR ÚTVARPSRÉTTARNEFNDAR. „Að skipta þessu í þrjár sjálfstæðar einingar í getur haft vissa kosti, en á hinn bóginn sýnist ____ ____I mér þetta vera það aðgreint, sérstaklega milli sjónvarps og útvarps, að í sjálfu sér myndi það ekki breyta miklu. I heild ég hef ekki neina heilaga sannfæringu, hvorki af né á, en ég heid ekki að þetta verði til stórkostlegra bóta. Það er ekkert fáránlegt við það að ríkið eigi slíkan miðil ef hann er rekin með sómasamlegum hætti. Eg held að besti kosturinn sé að reyna að gera út verulega góða einkafjöl- miðla, en ég held að þessar stöðvar bæti hvor aðra upp. BOGI ÁGÚSTSSON, FRÉTTA- STJÓRI SJÓNVARPSSINS „Höfuðgagnrýni mín á það sem Kjartan er að segja er að mér finnst hann vilja breyta breyt- inganna vegna, ekki vegna þess að hann sjái fyrir sér að hlutirnir verði betri, hagkvæmari eða ódýrari. Fyrir mér er það langt í frá nokkurt sálarhjálpar- atriði að ríkið eigi þessa stofnun, ég vil aðeins tryggja að áfram verði gegnt því hlutverki sem hún gegnir nú. Eg er að stórum hluta hliðhollur einkavæðingu, en nú þegar mönnum þykir mikið liggja við að verja íslenska menningu tel ég mikið íhugunarefni hvort eigi að stíga þetta skref til fulls.“ rr BALDVIN JÓNSSON, EIGANDI AÐALST ÖÐVARIN N AR 4.4. „Ég er auðvitað innilega sammála honum, en þetta ætti að koma til framkvæmda í þrepum. Fyrsta þrepið er að losa ríkið við rekstur Rásar tvö, það er enginn rökrétt forsenda fyrir því að ríkið standi í honum lengur. Næsta skref yrði að taka Sjónvarp- ið nákvæmlega sömu tökum og bjóða út reksturinn. Á loka- punktinum yrði svo gömlu gufunni breytt, en hún gæti til skamms tíma þróast sem nokkurs konar kjölfesta ljósvaka- miðla og viðmiðun. Þetta myndi gerast á svona sex ára tíma- bili. Samkeppnisaðstaða Ríkisútvarpsins er svo fullkomlega óheiðarleg og ósanngjörn." Á fundi meö starfsmönnum Ríkisútvarpsins fyrir nokkru kom Kjartan Gunnarsson, framkvaemdastjóri Sjálfstæöisflokksins, meö þá tillögu aö leggja RÚV niður og selja sem þrjú sjálfstæð hlutafélög (Rás 1, Rás 2 og Sjónvarpiö). Til stuðnings máli sínu benti Kjartan á aö til væru margir aðilar í þjóöfélaginu sem tekiö gætu þessa þjónustu aö sér með töluvert minni tilkostnaöi. Sannleikurinn er refsiverður ef hann er ekki sagður svo kurteisislega að hann skilst ekki Ertþú í málaferlum við lög- regluna? „Ég hef aldrei verið í nein- um málaferlum við lögregl- una. Mér er fjarskalega hlýtt til lögreglunnar. Það er aftur á móti mjög þröngur hópur innan lögreglunnar sem hef- ur stundað atferli sem mér hefur þótt athugunarvert. Ég hefði viljað láta athuga það annars staðar en hjá lögregl- unni sjálfri." Hvernig fór þetta mál af stað? „Að forminu til var það lög- maður Lögreglufélagsins sem sendi kæruna. Þegar málið fór í gang reyndist þó ekki hægt að framvísa nein- um samþykktum úr félaginu eða stjórn félagsins sem væru á bak við hana. Þessi kæra hékk alltaf svolítið í lausu lofti og fékkst aldrei almenni- lega staðfest." Nafngreindir þú lögreglu- menn í greininni? „Nei, ég nefndi engar per- sónur sérstaklega, gat þess mjög vendilega að það væri lítill minnihluti lögreglunnar sem greinin ætti við. Ég skal viðurkenna að greinin var stórorð og mér var þungt í skapi. Ég var búinn að athuga þessi mál í áraraðir. í höfuðat- riðum var greinin beiðni til þáverandi dómsmálaráð- herra, Jóns Helgasonar, um að hann setti upp nefnd valin- kunnra heiðursmanna sem myndu tala við fórnardýr lög- reglunnar og rannsaka nánar. Ég vildi fá fram hlutlausa og óhlutdræga rannsókn á þess- um málum, sem var svo aldr- ei gert. Þess í stað lenti ég sjálfur í rannsókn." Petta mál snýst um ritfrelsi. Er ritfrelsi á fslandi? „Það er alveg ótrúlega lítið ritfrelsi hér. A meðan 108. grein hegningarlaga er óbreytt og í gildi lít ég svo á BÆTIFLÁKAR Broddi Broddason frétta- maður: „Ég gef ekkert fyrir skoðanir Stefáns Jóns á mötuneytum. Hann má éta silt grœnmeti fyrir mér og láta ntig ifriði með mína ýstt ogflot, sem ég borga offjár fyrir í mötuneyti ríkisúitvarps- ins. “ MÁ BRODDI ÉTA? „Ég nýti mér ekki þessar kjarabætur og kæri mig ekki um að Broddi Broddason éti á sig gat í mötuneyt- inu dag eftir dag og haldi mér niðri í launurn." Nokkurn veginn rétt haft eftir Stet- áni Jóni Hafstein er hann ræddi hlunnindi opinberra starfsmanna í Þjóðarsálinni. vinstri stefnan. Dauði Þjóðvilj- ans er merki þess hve vinstri stefna á íslandi hefur verið ósjálfstæð og ánægð með sig og sína menn. Þar hefur ekki ríkt gagn- rýnin vinátta heldur vin- átta samþykkisins." Guðbergur Bergsson, Þjv. 31. jan. SJÁLFSMORÐ ÞJÓÐVILJANS ,íg held að Þjóðviljinn hafi framið sjálfsmorð rétt eins og Guðmundur Heiðarsson fyrrum blaðamaður á Þjóð- viljanum: „ Vinstri stefnan er ekki gjaldþrota. Langt því frá. Halda menn að allir séu orðttir Itœgri kratar í dag?“ SPILABORGIR „Stundum er verið að spara með því að setja engar jáma- bindingar í veggi. þær em ekki einu sinni settar á teikn- ingamar. Hér em heilu fbúð- arblokkimar byggðar án jámabindinga f veggjum." Guðbrandur Steinþórsson rektor Tækniskólans f Mbl. 31. jan. Hákon Ólafsson forstjóri Rannsóknastofnunar bygg- ingariðnaðar: „Það eru Iwnnuðir sent ákvarða hvað á að vera ntikið af járni. Það er hœgt að lianna hiís áit járna, það er á útveggi. Annars get ég ekkert sagt iiin þetta. Það getur ýmislegt far- ið niiður i bransanum. “ STÓRHNEYKSLI Á SÍMANUM ..Fyrirtækið getur ekki búist við því að það muni komast upp með að lækka þau að raungildi með því einu að hækka þau ekki. Hér þarf lækkun að koma tii. Um allan heini hefur verið okrað á símtölum milli landa á undanförnum ámm. I sumurn löndunt er lit- ið á þetta sem meiriháttar hneykslismál." Vikverji Mbl. um verð á símtölum til útlanda, 4. feb. Guðmundur Björnsson hjá Pósti og sínia: „Ég held að það þttifi aðfara að lœkka símgjöld til átlanda. Það kostar ekki eins mikið og áð- ur að lœkka þau. Ég lilýt að lita svo á að þegar þá fœrð heimild til að hækka þjónusUi iiiii tvö prósent að jafnaði. og ákveður siðan að hækka ekki liluta af þeirri þjónustu. þá sértu í rauninni að lækka gjöldin. Er það ekki það sem við eriim að gera?" UTANGÁTTA PRÓFESSORAR „Nemendur hljóta að gera þá kröfu að störf prófessora séu metin með ákveðnu millibili. þannig að tryggt sé að gæði Háskólans séu í há- marki á hverjum tíma. Sú sjálfsagða regla gildir. að nemendum er gert að víkja standi þeir sig ekki í námi. Sama regla hlýtur að gilda um störf kennara.“ Nemi í HÍ, um æviráðningu Há- skólakennara, Mbl. 31. jan. Halldór Jónsson aðstoðar- maður Háskólarektors: ..Keiiiiiinim í HÍ er geftn ein- kiinii af nemendum í lok hverrar annar. Lausráðnir kennarar sem itrekað standa sig illa eru yfirleitt ekki end- urráðnir. Hins vegar eru æviráðnir kennarar mjög etf- iðir. Hitt er að kennurwn sem standa sig sérstaklega illa er boðið upp á leiðbein- ingar og þess eru mörg dæmi að þeir hafi bætt sig. “ PRESSUMYNO/SPESSI að hér sé ekki ritfrelsi. Það er af þeirri einföldu ástæðu að í lok þessarar 108. greinar númer 19 frá 1940 segir: „Að- dróttun, þó sönnuð sé, varðar sektum". Þarna er sjálfur sannleikurinn gerður refsi- verður ef ákveðin stétt manna á i hlut, það er að segja opinberir starfsmenn. Sannleikurinn er refsiverður ef hann er ekki sagður svo kurteisislega að hann skilst ekki. Þetta eru höft á umfjöllum á mikilvægum málum, því stétt opinberra starfsmanna fer með öll þau mál sem okk- ur skipta mestu. Ég hef haft góðan tíma til að velta þessu fyrir mér síðustu átta árin og ég held að meðan þessi höft eru í gildi og framkvæmd af Hæstarétti, þá getum við ekki talað um fullt málfrelsi. Þessi lagagrein er miðalda- leifar sem við eigum ekki að dröslast með lengur. Ég hef haldið því fram að þetta brjóti beinlínis í bága við skilgreiningu hugtaksins málfrelsi, sem er rétturinn til að segja sannleikann eftir bestu vitund og í réttmætum tilgangi."

x

Pressan

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Pressan
https://timarit.is/publication/298

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.