Pressan - 06.02.1992, Blaðsíða 28
28
IBRUAR 1992
FIMMTUDAGUR PRESSAN 6. FE
H E I M I L I
HIÐ EILÍFA
TANNKREMS-
TÚPU-VANDAMÁL
Móðir eiginkonu minnar
býr hjá okkur. Hún er
ágætiskona, en hefur þó
einn ljótan ávana sem ég
þoli ekki. Hún kreistir
nefnilega tannkremstúp-
una fremst þannig að
tannkremið þjappast
saman aftast. Þetta veld-
ur því að tannkremið nýt-
ist ekki sem skyldi.
Fáðu eiginkonu þína til að
meðhöndla tannkremstúp-
una með sama hætti og
tengdamamma, í hennar
augsýn. Kvartaðu svo við
konuna á áberandi og
ákveðinn máta. Þannig ætti
sú gamla að fá skilaboðin.
ÓDÝRAR GJAFIR SEM
MAÐUR ÞARF EKKIAÐ
SKAMMAST SÍN
FYRIR
Hvers konar fermingar-
gjafir eru vinsælar á tím-
um samdráttar?
Símaskrána er hægt að fá
ódýrt eða jafnvel ókeypis.
Þessi sniðuga gjöf hefur ver-
ið sérlega vel metin af
bændum jafnt sem borgar-
búum.
HLJÓÐ ÚR NÆSTA
HERBERGI
Ég er rólegur námsmað-
ur og fer lítið út að
skemmta mér. Ég leigi
herbergi við hliðina á
skemmtanasjúkum ná-
unga. Hann á kærustu
sem „sefur“ hjá honum á
hverri nóttu. Lætin sem
því fylgja eru óbærileg
og valda því að ég er and-
vaka heilu næturnar. Ég
hef ekki kjark í mér til
að kvarta við hann. Hvað
skal gera?
Sé húsnæði ykkar í þétt-
skipuðu íbúðarhverfi er ekki
ólíklegt að nágrannarnir
verði einnig fyrir truflun af
völdum samfarahljóðanna.
Því er ekki úr vegi að fá raf-
virkja á staðinn sem getur
komið því þannig við að
hægt sé að hringja dyra-
bjöllunni leynilega úr her-
bergi þínu. Þegar lætin hefj-
ast á nóttunni hringirðu
dyrabjöllunni af miklum
krafti. Næsta dag geturðu
sagt meðleigjanda þínum að
nágrannarnir hafi komið í
heimsókn um nóttina og
kvartað yfir hávaða. Þeir
hafi verið reiðir og ótta-
slegnir. Leggðu til við her-
bergisfélagann að hann
svari næst þegar hringt
verður á dyrabjölfunni.
Baðherbergið er helgasti staður heimilisins.
Þar gefst heimilisfólki helst tækifæri til að vera í friði og til
að komast í nánari snertingu við sjálft sig. Hver er klósettkúltúr íslendinga?
Hann hefur lítt verið kannaður. Sumir dást að sjálfum sér í speglinum svo tímum skiptir, aðrir glugga
í bók á meðan þeir hafa hinar hefðbundnu hægðir eða þegar menn halla sér aftur í baðinu. Enn aðrir
snyrta sig hátt og lágt, stundum tímunum saman. En hvað menn gera í raun á baðherberginu verður
aldrei að fullu upplýst. í því felst leyndardómur þess og sjarmi. Baðherbergið er einskonar Mekka
nútímamannsins, stundarfriður frá amstri hversdagsleikans.
Bjarni Breiðfjörð:
Drauma baðher-
bergið stórt og
helst með stórum
svölum líka.
Guðbergur Bergsson:
Hætti að lesa Nietzsche á klósettinu
eftir að hægðirnar bötnuðu.
Guðbergi Bergssyni rithöf-
undi finnst baðherbergið þó
vera leiðinlegur staður. Að
auki hefur hann afar góðar
hægðir. Það styttir óneitan-
lega viðdvöl hans á klósett-
inir. Hins vegar eyðir hann
talsverðum tíma fyrir framan
spegilinn, því hann nuddar
tannholdið með fingurgóm-
unum.
„Það er til þess að koma lífi
í tannholdið sem ég þarf á að
halda," segir Guðbergur.
Kollega hans, Thor Vil-
hjálmsson, hváði þegar
minnst var á baðherbergi og
vildi ekkert segja um hversu
miklum tíma hann eyddi þar.
Það er tii marks um hversu
viðkvæmt þetta einkamál er.
„Heyrðu góði, það er fullt
af fólki sem hefur gaman af
að segja frá því, en ekki ég.“
Sveinn Andri Sveinsson
borgarfulltrúi segist stundum
geta legið tímunum saman í
baðkerinu. Hins vegar sé
hann ekki lengi á baðher-
berginu að öllu jöfnu: „Það
fer þó allt eftir eðli og um-
fangi þeirra athafna sem
maður stendur í."
Ingibjörg Sólrún Gísladóttir
þingkona eyðir sem minnst-
um tíma á baðherberginu.
Hún segist einfaldlega ekki
hafa tima til þess fyrir þing-
störfum.
Sömu sögu segir Hanna Frí-
mannsdóttir hjá Karonsam-
tökunum. Eftir að hún gekk í
hjónaband hefur hún haft
minni tíma en áður fyrir
sjálfa sig á baðherberginu.
HVERNIG VER FÓLK
TÍMA SÍNUM?
Menn verja tíma sínum
misjafnlega á baðherbergj-
um, að hinum vanalegu er-
indagjörðum frátöldum.
Sumir nota tímann á baðher-
berginu til lestrar og hafa
sumir hverjir komið sér upp
bókasafni. Hér áður fyrr las
Guðbergur Bergsson alltaf Ni-
etzsche á klósettinu. Kom til
dæmis þar fyrir á snæri bók-
inni „Svo mælti Saraþústrá'.
Síðan þá eru hægðirnar orðn-
ar svo góðar að um leið og
Guðbergur opnar Nietzsche
Hanna Frímannsdóttir: Eftir
að hún gekk í hjónaband
hefur hún haft minni tíma en
áður fyrir sjálfa sig á baðher-
berginu.
Thor Vil-
hjálmsson:
Það er
meira að
segja til
listastefna
sem gengur
út á að ota
að fólki sem
fæstu fólki
kemur við.
Guffi: Ég syng í burtstann fyrir framan spegilinn.
er allt yfirstaðið. Hann kemst
í besta falli yfir tvær eða þrjár
setningar.
Sveinn Andri les líka tölu-
vert. Hann segir fátt eins gott
og að glugga í Moggann á
klósettinu eldsnemma á
morgnana. Guffi, veitinga-
maður á Jónatani Living-
stone, segist oft taka lagið
þegar hann er búinn í baði.
Þá stillir hann sér fyrir fram-
an spegilinn og syngur tvo
eða þrjá smelli í hárburstann
sinn.
Thor Vilhjálmsson trúir
mjög á friðhelgi baðherberg-
isins og segir það vera sitt
einkamál hvað hann aðhafist
þar. „Þetta eru hlutir sem
maður á ekki að opinbera,
hins vegar er til fólk sem hef-
ur gaman af því að flíka slíku
sem mest það má. Það heldur
því meira að segja mjög ein-
dregið að öðru fólki. Það var
jafnvel til listastefna, sem
kallaðist „excrementalismi",
sem er einskonar úrgangs-
stefna, og gekk út á að ota því
að fólki sem fæstu fólki kem-
ur við."
DRAUMABAÐHERBERGIÐ
Flestir eiga sér drauma-
heimili; draumaeldhús,
draumastofu og að sjálfsögðu
draumabaðherbergi. Þó
leggja margir lslendingar
minni áherslu á baðherberg-
ið en aðra hluta heimilisins,
að sögn innanhússarkitekts
sem rætt var við. Hann var á
því að það skorti frumleika
við hönnun baðherbergja hér
á landi. Fólk væri of rígbund-
ið við hinar hefðbundnu bað-
herbergisinnréttingar. Þó
mátti heyra margar skemmti-
legar hugmyndir hjá viðmæl-
endum PRESSUNNAR.
Flestir lögðu mikla áherslu
á baðið sjálft. Sveinn Andri er
að innrétta íbúðina sína.
Draumur hans er að fá niður-
grafið bað að hætti Rómverja
en segir það þó verða að bíða
betri tíma.
Bjarni Breiðfjörð barþjónn
vill hafa baðherbergið stórt
og helst með stórum svölum
líka. Hanna Frímannsdóttir
vill hafa stóra laug í horni
baðherbergisins og stórt gólf
með rómantískum flísum.
Aðrir eru hógværari eins
og rithöfundarnir Guðbergur
og Thor. Guðbergur vill hafa
baðherbergið lítið og frum-
stætt. Thor hefur engar sér-
stakar hugmyndir um
draumabaðherbergi nema
hvað hann vill ekki hafa
skjaldarmerki á klósettset-
unni. „Baðhertíergið á að
vera eðlilegt og látlaust og til
þess eins að svala þörfum
náttúrunnar."
Glúmur Batdvinsson
Sveinn Andri Sveinsson: Þaö er fátt eins gott og að
glugga í Moggann eldsnemma á morgnanna.