Pressan - 06.02.1992, Blaðsíða 14
14
FIMMTUDAGUR PRESSAN 6. FEBRÚAR 1992
aldrei átt börn
Segja tvær ungar konur sem eru smitaðar af alnæmisveirunni. Þær taka þátt í starfi HIV-
jákvæðra og segja hér frá því hvernig er að lifa lífinu í sambýli við þennan vágest. Þær
smituðust hvor með sínum hætti - önnur vegna heróínneyslu og hin vegna sambands
við mann úr áhættuhópnum.
..Mér líður bara mjög vel í
dag. Það er auðvitað það
langur tími síðan ég vissi af
sjúkdómnum að ég hef náð
að laga mig að honum. En
ekki þar fyrir, inn á milli eru
auðvitað mjög erfiðir tímar,
þetta er oft mikið álag. Ég hef
ekki orðið veik og það hefur
flest verið í lagi hjá mér,“
sagði ung kona á þrítugsaldri
sem nú glímir við það að að-
laga líf sitt því að vera í hópi
HlV-jákvæðra.
Blaðamaður PRESSUNN-
AR mælti sér mót við tvær
ungar konur sem teljast í
þessum hópi og eru reyndar
einu konurnar sem sækja
reglulega fundi hjá HlV-já-
kvæða hópnum.
Þær treystu sér ekki til að
koma fram undir nafni af
ýmsum ástæðum. Sú sem hér
að framan er vitnað í verður
þvi kölluð Sigga, en hún
greindist með sjúkdóminn
1987. ,.Ég á sjálfsagt eftir að
koma fram undir nafni fyrr
en síðar, en enn sem komið er
vil ég geta farið í bíó án þess
að vekja einhverja sérstaka
eftirtekt," sagði Sigga, en
stefnumótið var einmitt
heima hjá henni, í lítilli íbúð í
miðborginni. Þar býr hún
ásamt unnusta og ketti og
reykelsisilmurinn var allsráð-
andi.
„Astæðan fyrir því að ég vil
ekki koma fram undir nafni
er sú að foreldrar mínir eru
nokkuð þekktir og við erum
ekki alveg tilbúin að koma
fram á sviðið," sagði hin stúlk-
an, sem við skulum kalla
Astu. Stúlkurnar hafa ekki
þekkst lengi — kynntust
vegna þess að þær eru í með-
höndlun hjá sama lækninum
og hafa síðan haldið sam-
bandi í gegnum fundi hjá
HlV-jákvæðum.
SMITAÐIST AF
HERÓÍNSPRAUTU
En þó að Asta hafi smitast
þegar 1984 er ekki nema ný-
lega sem það kom í ljós: „Það
var ekki fyrr en í mars síðast-
liðnum sem ég komst að því
að ég væri með sjúkdóminn.
Ég hafði reyndar tveimur,
þremur vikum áður farið í
prufu og fengið neikvæða
niðurstöðu úr henni, en ég
„Þú getur bara birt þessa mynd af mér tveggja ára. Þarna er
ég búttuð og falleg og vissi ekki hvað beið mín,“ sagði
Sigga og brosti þegar hún rétti blaðamanni þessa
æskumynd af sér.
Einar Þór Jónsson: Fólk allstaðar að úr þjóðfélaginu hefur smitast pressumuynd/spessi.
Einar Þór Jónsson
Skammast mín ekkert
fyrir sjúkdóminn
„Tíminn hefur unnið
með mér í þessu. Mér finnst
að ef eitthvað á að vinnast
í okkar málum, þá þurfi að
losna við allt leynimakkið í
kring um þennan sjúk-
dóm,“ sagði Éinar Þór Jóns-
son sem er smitaður af al-
næmiveirunni. Þarna er
Einar Þór að svara spurn-
ingum um það af hverju
hann hafi ákveðið að koma
fram sem smitaður einstak-
lingur og leyft áróðursher-
ferð landlæknisembættis-
ins að snúast að nokkru
leyti um sig. Einar smitaðist
fyrir nokkrum árum og
segist nú vera tilbúinn að
fjalla um sjúkdóminn á
hreinskilinn hátt.
„Til að hægt sé að losna
við hræðsluna verður að
vera unnt að ræða um þetta
á opinskáan hátt. Fólk
verður að vita að þetta sé
til. Sumir sem ég hef
kynnst og hafa smitast og
jafnvel dáið hafa þurft að
ganga í gegnum það að
hafa aldrei getað rætt við
fólk um veikindi sín. Það er
mín skoðun að það eigi að
opna umræðuna og ég
skammast mín ekkert
meira fyrir að hafa þennan
sjúkdóm heldur en ef ég
hefði fengið einhvern ann-
an sjúkdóm eins og krabba-
mein. Auðvitað er þetta
viðkvæmt mál af því að
þetta er smitsjúkdómur og
er undir kynsjúkdómalög-
unum hér. Það er hins veg-
ar allskonar fólk, allstaðar
að úr þjóðfélaginu sem hef-
ur smitast og almenningur
verður að fara að átta sig á
því,“ sagði Einar.