Pressan - 06.02.1992, Qupperneq 10
10
FIMMTUDAGUR PRESSAN 6.FEBRÚAR 1992
M E N N
TEIKNING: INGÓLFUR MARGBRSSON
Guðmundur Árni Stefánsson
bæjarstjóri
Ungur maður á
uppleið upp á líf
og dauða
Það virðist vera að sannast
á Guðmundi Árna Stefáns-
syni að ungum mönnum á
uppleið getur verið banvænt
að staldra of lengi við. Þrjú,
fjögur eða í hæsta lagi fimm
ár eru hámarkstími á hverj-
„Hann hefur um
tvo kosti að
velja; að reyna
að sigra í
formannskosn-
ingum eða
bœjarstjórnar-
kosningum.
Hann mun velja
fyrri kostinn “
um stað. Ef þeir komast ekki
áfram eftir þann tíma er hætt
við að þeir verði afhjúpaðir.
Að fyrirheitin sem fylgdu
þeim séu bara fyrirheit.
Öruggasta leiðin fyrir unga
menn sem þrá metorð er að
byrja af krafti í nýju starfi.
Tala hátt og mikið um breyt-
ingar. Velta við fáeinum stein-
um. Breyta í smáu. Og drífa
sig burt áður en reynsla
kemst á breytingarnar. Láta
aðra sitja í súpunni. (Sú súpa
er oft sæt fyrir annan mann á
uppleið sem getur tekið til
hendinni, velt við steinum,
breytt og lagað og haft sig síð-
an á brott.)
Nú þegar raunveruleg upp-
skera af fyrstu árum Guð-
mundar Arna sem bæjar-
stjóra í Hafnarfirði er að birt-
ast er enn ljósara að hann
þarf nauðsynlega að komast
á þing sem fyrst. Hækkandi
skattar og fá gleðitíðindi
tryggja honum ekki meiri-
hluta t bæjarstjórnarkosning-
unum 1994. Og sá sem tapar
meirihlutanurn í Firðinum
verður markaður ósigrinum
það sem eftir er. Þá skiptir
engu þótt sá hinn sami hafi
upphaflega unnið hann.
Þess vegna þarf Guðmund-
ur Árni að komast á þing án
þingkosninga. Og að því
vinnur hann.
Ein aðferðin er að fella Jón
Baldvin sem formann flokks-
ins. Ekki er þolandi að for-
maður flokksins sé utan
þings og því yrði einhver
þriggja þingmanna Reykja-
ness að víkja til að Guðmund-
ur Árni kæmist inn. En það er
hæpið að oft á tíðum almenn
óánægja með Jón Baldvin
innan Alþýðuflokksins nægi
til að Guðmundur felli hann.
Þótt Jón skipti sér nánast
ekkert af flokknum þarf
meira en lítið að ganga á til
að flokksmenn felli formann
sem hefur haldið flokknum í
stjórn síðan 1987 og mun
sjálfsagt halda því áfram
næstu árin.
Önnur aðferð er að grafa
undan Jóni Sigurðssyni á
Reykjanesi. Hengja hann fyr-
ir álversleysið og koma því
þannig fyrir að honum verði
ekki stætt á að fara aftur í
framboð og flýi í Seðlabank-
ann. Þriðja aðferðin er að
vonast eftir því að Karl Stein-
ar gefist upp á fjárveitinga-
nefnd og öðrum önnum í
þinginu og víki. Þessar tvær
síðasttöldu aðferðir eru frek-
ar draumar en raunhæfir
kostir.
Engin af þessum leiðum er
greið fyrir Guðmund, en þar
sem sú fyrsttalda, formanns-
slagurinn, er sú eina þar sem
hann getur beitt sér að ein-
hverju marki er líklegast að
hann velji hana. Guðmundur
hefur um tvo kosti að velja;
að reyna að sigra í formanns-
kosningum eða bæjarstjórn-
arkosningum. Hann mun
velja fyrri kostinn.
ÁS
Bruni Klúbbsins
VHIBROGB HALLGRIMS
ÝTTU liDIR HANDTÖKU
Hallgrímur Marinósson kaupmaður hefur áfrýjað gæsluvarðhaldsúrskurðinum til Hæstaréttar. Mál hans verður líklega tekið
fyrir í dag.
í dag verður að öllum lík-
indum tekin fyrir í Hæstarétti
áfrýjun Hallgríms Marinós-
sonar kaupmanns vegna
gæsluvarðhaldsúrskurðar yf-
ir honum. Hallgrímur er eig-
andi Klúbbsins við Borgartún
32 sem brann aðfaranótt
mánudags. Mikið tjón varð
við brunann og er nánast allt
innbú hússins ónýtt. Fljótlega
vöknuðu grunsemdir um
íkveikju og var Hallgrímur
hnepptur í gæsluvarðhald
vegna þess.
Samkvæmt heimildum
PRESSUNNAR voru það
meðal annars fyrstu viðbrögð
Hallgríms við tíðindunum
sem vöktu athygli rannsókn-
arlögreglunnar. Sömuleiðis
varð framkoma hans á staðn-
um, á meðan slökkviliðið
barðist við eldinn, til að ala á
grunsemdum. Þá bendir
framburður vitna til þess að
hann hafi farið frá húsinu rétt
áður en eldurinn braust út.
Hallgrímur keypti rekstur
hússins, sem þá hét Sport-
klúbburinn, af Óskari Krist-
jánssyni í haust, en Óskar
hafði þá rekið staðinn með
hléum frá upphafi. í húsinu
var rekin knattborðsstofa og
skemmtistaður undir nafninu
Spilaklúbburinn.
Fyrir um það bil ári eignað-
ist Ragnar Guömundsson
húsið og hafði hann bæði
skyldutryggingu húseigenda
og sérstaka húseigendatrygg-
ingu. Hallgrímur mun hins
vegar hafa tryggt alla lausa-
fjármuni nýlega hjá VÍS. Það
hefur enn orðið til að ýta und-
ir grunsemdir. Eftir því sem
komist verður næst er fyrir-
huguð nýbygging við hliðina
og verður húsið því gert upp
samhliða því. Hefur Reykja-
víkurborg meðal annars
skoðað húsið með tilliti til
þess að reka þar æskulýðs-
starfsemi.
Flugfélagið Federal Express ræðir við samgönguráðuneytið
OLÍS rukkaði ólöglegt bensín
gjald fyrir flugmálastjórn
Umboðsaðili bandaríska
flugfélagsins Federal Express
hefur snúið sér til samgöngu-
ráðuneytisins og telur að olíu-
félagið OLIS hafi á árunum
1989 og 1990 rukkað sérstakt
gjald vegna kaupa á eldsneyti
á Keflavíkurflugvelli og að
gjaldið hafi brotið í bága við
lög og milliríkjasamninga.
Gjaldið var rukkað fyrir
hönd Flugmálastjórnar og er
hluti af sértekjum stofnunar-
innar. Enn er óljóst um
hversu háar upphæðir er að
ræða, líklega þó nokkrar
milljónir króna. Fáist ekki
lausn á málinu er talið öruggt
að hinir bandarísku aðilar
leiti til dómstóla.
Federal Express yfirtók á
árinu 1989 félagið Flying Ti-
gers og lentu þessi félög sam-
anlagt nær 200 sinnum hér á
landi. Samkvæmt heimildum
PRESSUNNAR var í hvert
skipti keypt eldsneyti, á bil-
inu 10 þúsund til 30 þúsund
lítrar. Verslað var við tvö olíu-
félög, Skeljung og OLÍS. Síðar
kom í ljós að OLIS hafði fyrir
hönd Flugmálastjórnar lagt
sérstakt gjald á þessi við-
skipti, 65 aura á hvern lítra
vegna nálægt 50 áfyllinga.
Líklegt er talið að það hafi
verið gert fyrir misskilning
vegna skorts á fyrirmælum.
Gjaldtáka þessi er talin
brjóta óyggjandi í bága við
milliríkjasamning íslands og
Bandaríkjanna frá 1967 og
enn fremur sérstök lög frá
1987. Milliríkjasamningurinn
kveður í þessu sambandi á
um áætlunarflug, en sam-
kvæmt heimildum PRESS-
UNNAR er túlkunaratriði
hvort ferðir Flying Tigers og
Federal Express flokkist und-
ir áætlunarflug. Þá er álita-
mál hvort gjaldfrelsið eigi
hvort tveggja við þegar vél-
arnar komu frá Bandaríkjun-
um ellegar frá Evrópu. Mál-
efni fleiri flugfélaga blandast
inn í þetta.
Umboðsaðili Federal Ex-
press á íslandi er Flugfax.
Guömundur Þormóösson hjá
Flugfaxi vildi ekki staðfesta
þessar upplýsingar í samtali
við PRESSUNA og vísaði á
Hjalta Steinþórsson lögfræð-
ing, sem á í viðræðunum við
samgönguráðuneytið. „Þetta
mál er á viðræðustigi og ég
vil ekkert segja um það á
þessu stigi. Ég get þó staðfest
að rætt er um þessa gjald-
töku, en vil ekkert segja til
um fjárhæðir í því sambandi,"
sagði Hjalti.