Pressan - 06.02.1992, Blaðsíða 16
16
FIMMTUDAGUR PRESSAN 6. FEBRÚAR 1992
900 milljónirnar hjá Sameinuðum verktökum
GREIDA EKKI
4,5 MILLJÚNA
STIMPILGJÖLD
Innan tveggja mánaða eiga forsvarsmenn Sameinaðra að mœta til Borgarfógeta með jöfnunarbréfin og iáta
stimpla þau. Ef þeir þá á annað borð hafa fyrir því að gefa út slík bréf. Sem eru hvort sem er stimpilgjaldsfrjáls
- ólíkt því sem almenningur býr við þegar mætt er með kaupsamninga, skuldabréf og annað í þeim dúr.
Ekki einu sinni víst að Sameinaðir eyði pappír í „útgáfu“ bréfa
Sameinaðir verktakar losna við
að greiða 4,5 milljón króna stimpil-
gjöld af útgáfu jöfnunarbréfa upp á
900 milljónir króna, sem nýverið
var útdeilt til einstakra hluthafa í
fyrirtækinu. Samkvæmt lögum um
stimpilgjöld er útgáfa jöfnunarbréfa
stimpilskyld, en gjaldfrjáls ef stimpl-
unin fer fram innan tveggja mánaða
frá útgáfu bréfanna.
Á sama tíma og einstaklingar
þurfa að greiða 0,4 prósenta stimpil-
gjald af kaupsamningum eða afsali
við fasteignakaup og 1,5 prósenta
stimpilgjald af skuldabréfum hefur
stimpilgjald vegna hlutabréfa lækk-
að úr 2 prósentum í 0,5 prósent og
er ckki innheimt vegna útgáfu jöfn-
unarbréfa. Þegar um er að ræða
hækkun hlutafjár með jöfnun og
lækkun samdægurs með útgreiðslu
til hluthafa er sjaldnast haft fyrir því
að eyða pappír í að gefa út eiginieg
jöfnunarbréf.
Ríkisstjórnin hefur falið ríkislög-
manni að leita til dómstóla til að fá
hnekkt úrskurði ríkisskattanefndar
um skattleysi 900 milljónanna. Að
öðrum kosti er um skattfrjálsan
hagnað af einokun fyrir varnarliðið
að ræða. Sé miðað við þá stað-
greiðslu sem almenningur þarf að
búa við næmi skatturinn af þessu
um 360 milljónum króna. Á móti
kæmi þó eftir atvikum persónuaf-
sláttur.
PAPPÍR EKKI EYTT í AÐ
„GEFA ÚT“ BRÉFIN
Þar sem 900 milljónirnar fela í sér
undanfarandi útgáfu jöfnunarhluta-
bréfa hefði mátt ætla að leita þyrfti
til fógetaembættisins með slík bréf
til þinglýsingar og að greiða þyrfti
a.m.k. stimpilgjald fyrir þá gjörð.
Svo er ekki. 0,5 prósenta stimpil-
gjald vegna hlutabréfa nær ekki til
jöfnunarbréfa og stimpilgjald upp á
4,5 milljónir verður því ekki inn-
heimt.
Það ákvæði í lögum um stimpil-
gjöld sem kveður á um gjaldfrelsi
jöfnunarbréfa hljóðarsvo:.....jöfn-
unarbréf, sem gefin eru út í sam-
ræmi við ákvæði um tekjuskatt og
eignarskatt, skulu þó undanþegin
gjaldi fyrir stimplun, enda beri hvert
einstakt hlutabréf með sér að um
endurútgefið bréf eða jöfnunar-
hlutabréf sé að ræða. Þeir, sem
gjaldfrjálsrar stimplunar beiðast,
skulu sýna fram á að . . . viðkom-
andi útgáfa jöfnunarhlutabréfa hafi
ekki í för með sér raunverulega
verðmætaaukningu hlutafjár í við-
komandi félagi. Gjaldfrjáls stimplun
skal fara fram áður en tveir mánuðir
eru liðnir frá útgáfu hlutabréfa
þeirra sem um ræðir í þessari máls-
grein. Að öðrum kosti ber að inn-
heimta stimpilgjald af þeim . .."
Samkvæmt heimildum PRESS-
UNNAR er orðalagið „útgáfa jöfn-
unarbréfa" í raun rangnefni í þeim
tilvikum þar sem hækkunin er
greidd samdægurs út. Það stafar af
því að sjaldnast er haft fyrir því að
„gefa út“ bréf af einu eða öðru tagi,
enda upphæð hlutafjár oftast ná-
kvæmlega hin sama eftir gjörning-
inn.
FÁTT UM SVÖR í KERFINU
Þegar PRESSAN leitaði upplýs-
inga um þetta atriði hjá fjármála-
ráðuneytinu og borgarfógeta var
heldur fátt um svör. „Hvort jöfnun-
arbréf séu í raun gefin út? Sannleik-
urinn er sá að við vitum það ekki og
ég þori ekki að segja hvort skylda sé
að setja jöfnunina á raunverulegan
pappír. Er það pappírsútgáfan sem
skiptir máli eða notkunin? Ég hrein-
lega veit það ekki," sagði Magnús
Pétursson ráðuneytisstjóri fjármála-
ráðuneytisins.
„Ég verð að viðurkenna að ég er
ekki vel að mér í þessu. Það er til-
tölulega lítið um þessi jöfnunarbréf
og þau eru oftast með áritun löggilts
endurskoðanda og þá er þeim rennt
í gegn á núlli. Það er langbest að
hafa samband við fjármálaráðu-
neytið," sagði Sigurdur Sueinsson
borgarfógeti.
Magnús Pétursson sagði að miðað
við óbreytta stöðu þyrfti ekki að
greiða stimpilgjald af 900 milljónun-
um, berist þau til stimplunar á til-
skildum tíma: „Vandamálið er hins
vegar fólgið í ágreiningnum um
hversu heimildin á að vera há, en
sem kunnugt er greinir ríkisskatt-
stjóra og ríkisskattanefnd á um
þetta mál. Niðurstaðan í væntan-
legu dómsmáli kann hins vegar að,
hafa áhrif á þetta og gefa tilefni til
að taka stimplunina upp að nýju."
Fridrik Þór Guðmundsson
BH hitablásararnir eru hljóðlátir,
fyrirferðalitlir, kraftmiklir og umfram
allt hlýlegir í viðmóti.
Hér er íslensk framleiðsla með áratuga reynslu.
Bjóðum ráðgjöf við uppsetningu, ásamt
fullkominni viðhaldsþjónustu.
Vandaður festibúnaður fylgir öllum
hitablásurumfrá okkur.
Traustur hitagjaB
BLIKKSMIÐJAN
SMIÐSHÖFÐA 9
112 REYKJAVÍK
SlMI: 91-685699
Nýr SUZUKI
aldrei spraekari.
Ný og glæsileg innrétting, nýtt
mælaborð, betri hljóðeinangrun
auk fjölda annarra breytinga. Allir
SUZUKI SWIFT með 1,3 og 1,6 L
vélum eru búnir vökvastýri.
SUZUKI SWIFT tveggja manna
sportbill með blæju. Þessi bíll
á eftir að fá hjörtu margra
til að slá örar.
Allir SUZUKI bllar eru búnir vélum
með beinni bensíninnsprautun og
fullkomnum mengunarvarnarbúnaði.
Komiö og reynsluakið gæðabílunum frá SUZUKI.
SUZUKI SWIFT kostar frá 726.000 kr. staðgreitt.
Opið virka daga frá kl. 9-18
og iaugardaga frá kl. 13-16.
$ SUZUKI
--iW
SUZUKIBÍLAR HF
SKEIFUNNI 17 .SlMI 685100
SUZUKI
SWIFT
ÁRGERÐ1992
„Ég held
ég gangí heím“
Eftir einn -ei aki neinn
IUMFERÐAFt
RÁÐ