Pressan - 06.02.1992, Page 20

Pressan - 06.02.1992, Page 20
20 FIMMTUDAGUR PRESSAN 6. FEBRÚAR 1992 THOR Ó. Thors og Sykurmolarnir eiga eitt sameiginlegt þessa dagana. Nefnilega að hafa rekið mál fyrir ríkisskatta- nefnd. Munurinn var hins vegar sá að Thor og félag- ar í Sameinuðum verktök- um fengu sitt mál flutt vel og greiðlega sem þeir síðan unnu glæsilega. Þrautin var þyngri hjá Molunum, enda vitað mál að þeir eru ofsa- lega ríkir. En sá sem gegnir mest spennandi starfi í dag er án efa ÓLAFUR Jónsson, upplýsingafulltrúi Reykjavíkur, en hans hlut- verk verður að fylgjast með 100.000. Reykvíkingn- um sem kemur væntanlega í leitirnar nú í febrúar. Ólaf- ur þarf þvi trúlega að dvelj- ast á fæðingardeildinni næstu daga. Starf Ólafs er að sjálfsögðu mun skemmtilegra en starf HELGA Guömundssonar og ann- arra aðstandenda Þjóðvilj- ans, sem þurftu að fylgja blaði sínu til grafar um síð- ustu helgi. Helgi fékk að skrifa forsíðuna en á bak- síðu blaðsins var lesendum gefin von um endurreisn blaðsins, því þar var viðtal við Finn Guömundsson sem ætlar að verða ritstjóri blaðsins þegar hann verður stór. — Óg það er augljóst að það hefur verið gaman á Þjóðviljanum. Margir segja frá því í grafskrift blaðsins og þá ekki síst gamlir og nýir ritstjórar. Þjóðviljinn var nefnilega alltaf að skipta um ritstjóra og ekkert blað hefur haft fleiri síðustu 10—15 árin. Þar má nefna SILJU Aðalsteinsdóltur sem segir að erfitt hafi verið að skrifa leiðara. (Hún hefði kannski átt að nota eitthvað af leið- urunum hans Suavars sem Össur stakk undan — von- andi þó ekki þrotabúinu.) Arni Bergmann skrifar ein- hvers konar ferðaúttekt en Ólafur Ragnar Grímsson segist vona að sólin rísi á ný. Áberandi er að það hef- ur alveg gleymst að tala við Össur, Mörö Árnason, Einar Karl Haraldsson og Ólaf H. Torfason. Ráðherrar herða sultarólina Lækkunin nemur 4 þúsundum á mánuði Helmingur dagpeninga ráðherra er enn dulin launauppbót Skattmeðferð er óbreytt Ráðherrann Þingmaður- Hæstaréttar- Ráðuneytis- Aðstoðar- Sendiherr- Forseta- Ríkisendur- Ríkissátta- Biskupinn inn dómarinn stjórinn maður ann ritarinn skoðandinn semjarinn ráðherrans Fjármálaráðuneytið hefur gefið út nýja reglugerð um greiðslu dagpeninga vegna ferðalaga ríkisstarfsmanna erlendis. Helsta breytingin frá eldri reglum er að dag- peningar ráðherra og æðstu embættismanna eru lækkað- ir til samræmis við það sem gerist hjá öðrum ríkisstarfs- mönnum. Enn er þó sá mun- ur á að helmingur dagpen- inga ráðherra er hrein launa- uppbót. Samkvæmt eldri reglunum fengu ráðherrar og æðstu embættismenn 20 prósent hærri dagpeninga en aðrir, enda „engir venjulegir kontó- ristar" svo vitnað sé í Guð- rúnu Helgadóttur þáverandi forseta Sameinaðs þings. Nýju reglurnar gera ráð fyrir að þessi uppbót falli niður og sama dagpeningaupphæð gildi fyrir alla ríkisstarfs- menn. RÍKIÐ BORGAR HÓTELIÐ Dagpeningar eru reiknaðir þannig að helmingur hefur verið ætlaður til að greiða hótelkostnað, en hinn helm- ingurinn til greiðslu fæðis og annarra útgjalda ytra. í reynd eru ekki greiddir skattar af venjulegum dagpeningum, þar sem frádrátturinn, sem ríkisskattstjóri ákveður vegna dagpeninga, hefur ver- ið miðaður við dagpeninga- upphæð ríkisstarfsmanna. Ríkið hefur hins vegar allt- af greitt hótelkostnað beint fyrir ráðherra og æðstu emb- ættismenn og það breytist ekki með nýju reglunum. Sá helmingur dagpeninga, sem ætlaður er til greiðslu hótel- kostnaðar, rennur því beint í vasa þeirra sem launaupp- bót. Sama máli gegndi um 20 prósenta álagið sem þeir fengu samkvæmt eldri regl- unum. Ríkisskattstjóri úr- skurðaði fyrir nokkrum árum að þessa upphæð skyldi skattleggja eins og hver önn- ur hlunnindi. Dagpeningar vegna dvalar í flestum löndum eru 13.500 krónur, 14.500 ef dvalið er í New York eða Tókýó, en 16.500 fyrir dvöl í Svíþjóð og Noregi. Til að reikna út hversu mikið ráðherrar þurfa að herða sultarólina vegna breyttra reglna má setja upp eftirfarandi dæmi: Vegna dagsdvalar í Lund- únum fékk ráðherra sam- kvæmt gömlu reglunum 16.200 krónur, þ.e.a.s. venju- lega dagpeninga að viðbættri 20 prósenta ábót. Af því áttu 6.750 að fara í fæði og annan kostnað og voru því skatt- frjáls. Þegar tekjuskattur hafði verið lagður á afgang- inn stóðu eftir um 5.670 krón- ur á dag sem viðkomandi fékk í launauppbót fyrir að vera staddur á vegum ríkisins í Lundúnum. Heildarupp- hæðin, 12.420, var ráðstöfun- arfé fyrir fæði og nauðsynj- um í einn dag. Ef ráðherra hafði ritara með í för fékk hún 6.750 krónur til ráðstöf- unar fyrir sömu nauðsynjum — næstum helmingi lægri upphæð. Með nýjum reglum fá ráð- herrar sömu dagpeninga og aðrir, 13.500 krónur, og eins og fyrr er helmingurinn skattlagður sem tekjur af því að ríkið greiðir hótelkostnað beint. Eftir þá skattlagningu fær ráðherra í vasann 4.050 krónur í launauppbót. Ráð- stöfunarfé er því í heild 10.800. Þetta er lækkun upp á 1.620 krónur á dag. Enn hefur ritarinn 6.750 til ráð- stöfunar. Ef gert er ráð fyrir að víð- förull ráðherra sé áttatíu daga á ári í ferðalögum á veg- um ríkisins fær hann því um 864 þúsund í dagpeninga í stað um 993 þúsunda áður. Það er ,,kjaraskerðing“ um 129 þúáönd krónur eða tæp ellefu þúsund á mánuði. Sá ráðherra sem aðeins ferðast í þrjátíu daga á ári — sem lík- lega er nærri meðaltali — fær rúmlega 324 þúsund í stað um 372 þúsunda áður. Þetta er skerðing upp á um fjögur þúsund á mánuði. Það er fjórðungurinn af skattalækk- uninni sem ráðherrar urðu sér úti um með breyttri reglu- gerð um notkun ráðherrabíla sem PRESSAN greindi frá í desember. Það er hefð, en engar sér- stakar röksemdir, sem liggur að baki því að ráðherrar og æðstu embættismenn greiða ekki fyrir hótelgistingu af dagpeningum eins og aðrir ríkisstarfsmenn þurfa að gera. Launauppbótin, sem við þetta myndast, er skatt- lögð og er það helst notað til réttlætingar þegar þetta fyr-_ irkomulag er gagnrýnt. I reynd er um að ræða inn- byggða launahækkun, sem er því meiri sem meira er ferðast. Þannig er launa- hækkun utanríkisráðherra að öðru jöfnu mest, en aðrir bera minna úr býtum. Ef til vill mætti reyna að réttlæta þessar útilegubætur á svipaðan hátt og sjómanna- afsláttur er rökstuddur, með vísan til langra fjarvista frá heimili og fjölskyldu. Þó er rétt að minna á að makar ráð- herra og æðstu embættis- manna fá hálfa dagpeninga frá ríkinu, kjósi þeir að slást í förina. Helmingur þess fjár er skattskyldur og hefur alltaf verið. Ef maki fylgdi víðförla ráð- herranum í áttatíu daga á ári höfðu þau samtals ríflega eina og hálfa milljón til ráð- stöfunar samkvæmt eldri reglunum, en um 1,3 milljón- ir eftir skerðinguna sem Frið- rik Sophusson kynnti á dög- unum. Þrjátíu daga ráðherr- ann hafði ásamt maka um 560 þúsund til ráðstöfunar á ári, en verður nú að sætta sig við um 490 þúsund. Karl Th. Birgisson Farareyrir Merkilegra og Ómerkilegra Tii_ ElNS Dags í New York-Borg 7.250 KRÓNUR .FYRIR |7.250 KRÓNUR GISTINGU" ERU SKATTSKYLD í FÆÐISKOSTNAÐ HLUNNINDI, ÞAR SEM RlKIÐ B0RGAR HÓTELREIKNINGINN BEINT. EFTIRERU 4.350 KR. hÓAHmfbarboröa ríflega fyrir , 1 móti nia P * pVT-;»- óbreyttan na 1 sömu upphæð. Fynr our y endar^fi00t6nuSagífæðiog >7 .250 KRÓNUR FYRIR GISTINGU RÍKIÐ B0RGAR HÓTELREIKN- INGINN BEINTOG GETUR HANN VERIÐ B0TNLAUS EINS 0G ÁLANDSEYJAREIKNINGURINN SÝNDI. IÁFLAGT Snobbálag 1.740 KR. (EFTIR SKATT) 17.250 KRÓNUR í FÆÐISKOSTNAÐ

x

Pressan

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Pressan
https://timarit.is/publication/298

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.