Pressan - 06.02.1992, Síða 26
26
FIMMTUDAGUR PRESSAN 6. FEBRÚAR 1992
Listamenn hafa löngum
farið aðrar leiðir en aðrir
menn. Það á við um húsnæð-
ismál eins og svo margt ann-
að. Margur listamaðurinn, og
þá sér í lagi listmálarar og
myndhöggvarar, hefur búið
sér heimili sem venjulegu
fólki finnst skrítið og nýstár-
legt. Margir af frægustu lista-
mönnum okkar Islendinga
bjuggu sér heimili í vinnuhús-
næði sínu. T.d. bjó Ásmundur
í kúlu og Jón Engilberts bjó í
kassalaga húsnæði með gler-
þaki. Þetta er svo sem ekkert
óvenjulegt fyrir listamenn.
Hins vegar hefur það verið í
tísku síðustu ár, sérstaklega
vestan hafs, að venjulegir
menn, flestir þó vel í álnum,
hafi hreiðrað um sig í stórum
híbýlum, þar sem gríðarlega
hátt er til lofts og vítt til
veggja. Þetta er oft gamalt
verksmiðju- eða iðnaðarhús-
næði. Ég nefni sem dæmi
ódauðlega Skotann í „High-
lander" og hjónakornin í
„The Ghost“. Hægt er að nota
svona húsnæði á mjög frjáls-
legan hátt. Sumir aka þar um
á reiðhjólum eða jafnvel mót-
orhjólum, aðrir stunda þar
sitt daglega skokk eða koma
sér upp körfuboltavelli.
Hér norður í dumbshafi
vilja menn líka vera menn
með mönnum og fylgja tísk-
unni. PRESSAN hefur haft
fregnir af þó nokkrum Reyk-
víkingum sem búa í svoköll-
uðu iðnaðarhúsnæði. Aðal-
lega er þetta fólk úr veitinga-
bransanum og viðskipta-
heiminum. Sverrir Rafnsson
og Sigurður Kaldal, fyrrum
skemmtanastjórar á Tungl-
inu, leigja risahúsnæði á
Grettisgötu, sem áður var
kvikmyndastúdíó Frostfilm
hf. Þeir félagar leigðu hús-
næðið í október á síðasta ári
og kunna vel við sig. Helsti
kosturinn við þetta að sögn
Sigurðar er rýmið. „Það nýt-
ist vel tii körfuboltaiðkunar."
Þeir kvarta þó yfir kulda
svona yfir háveturinn.
„Bubbi Morthens og félagar
hafa æfingaaðstöðu í kjallar-
anum og æfa sig oftast á
morgnana með djöfulsins iát-
um. Þetta hefur stundum
truflað svefnfriðinn."
Á Grettisgötunni hafa oft
verið haldin fjöimenn partí
um niðdimmar nætur. Sverrir
segir að þeir hafi dregið úr
þessu upp á síðkastið þar sem
biðraðir voru farnar að
myndast fyrir utan heimili
þeirra eftir þrjú á nóttunni.
„Við ætlum ekki að búa hér
til langframa. Þetta er ekki
hentugt fyrir rólegt fjöl-
skyldulíf."
Hjónin Snævar Ivarsson,
eigandi Snævarsvídeós, og
Gunnhildur Þórarinsdóttir
gluggaskreytingadama hafa
búið í stóru iðnaðarhúsnæði í
Kópavogi síðastliðin 10 ár og
una sér vel. „í dag (mánudag)
er stór dagur á heimilinu, því
dóttir okkar á tveggja ára af-
mæli,“ segir Snævar. „Það
segir okkur líka það að nú
þurfum við annaðhvort að
gera breytingar á iðnaðar-
húsnæðinu eða fara að hugsa
okkur til hreyfings, því það er
hvergi hægt að vera með
barn úti við hérna. Þetta var
hugsað sem bráðabirgðahús-
næði í upphafi, en hefur verið
heimili okkar undanfarin 10
ár. Að sjálfsögðu hefur það
Sverrir og Sigurður: Við ætlum ekki að búa hér til langframa. Þetta húsnæði er ekki hentugt fyrir rólegt fjölskyldulíf.
Sævar:
Maður er
voðalega
stoltur af
fallegu
heimili.
tekið miklum brejdingum og
er núna svona nokkurs konar
„pent-house".
íbúðin er til sölu núna. Á
meðan maður var á þessum
partíaldri var þetta náttúr-
lega „ídealt pleis“. Það var oft
mikið um veislur og mikil
stemmning. Núna hefur þetta
breyst og við erum farin að
taka lífið alvarlegar.
Maður er voðalega stoltur
af fallegu heimili. Við höfum
verið áhugasöm bæði um að
vera með nýtískuhúsgögn.
Dunna, konan mín, er í
gluggaskreytingum og hún
hefur leikið sér með liti, gard-
ínur og annað.
Það er dálítið gaman að því
þegar maður býður gestum
heim. Andstæðurnar eru ansi
miklar. Það er til dæmis bíla-
verkstæði hérna á hæðinni
fyrir neðan. Þess vegna er oft
erfitt að halda ganginum
snyrtilegum. Hann angar oft
af olíu eins og gefur að skilja.
Fólk sem kemur hingað í
fyrsta skipti á því oft ekki von
á góðu. Flestum bregður við
þegar þeir koma upp til okk-
ar og finnst allt voða smart.
Helsti kosturinn við svona
geim er að hægt er að útfæra
hann á marga vegu. Mögu-
leikarnir eru óteljandi."
Húsgögn á 500 þúsund eða tneira
Húsgögn fyrir
þá ríku eða þá
dellugjörnu. Og
svo auðvitað
fyrir þá sedm
hafa nýlega
fengið greitt úr
Sameinuðum
verktökum.
Mikið er talað um kreppu
og svartnætti hér á landi
þessa dagana. Sultarólin er
hert á öllum vígstöðvum í
þjóðfélaginu. Sjúklingar
verða að vera almennilegir
sjúklingar til að fá pláss á
sjúkrahúsunum og náms-
mönnum, öldruðu fólki og
bækluðu er gefið langt nef af
stjórnvöldum. Enginn þykir
maður með mönnum nema
hann hafi farið að minnsta
kosti einu sinni á hausinn.
Þrátt fyrir volæðið er ennþá
til fólk sem getur keypt sér
ávaxtaskál fyrir hálfa milljón
íslenskra króna. Hljóðið er þó
misjafnt í húsgagnaverslun-
areigendum.
Eigandi verslunarinnar í
gegnum glerið segir að fólk
hafi í dag ekki lengur pen-
inga til að kaupa sér þessi
dýru húsgögn. Hún verslar
mikið með listræn húsgögn,
svona sambland af skúlptúr
og húsgögnum. „Tíðarand-
inn er þannig að menn eru að
Verslunin í gegnum glerið
býður upp á þennan sérkenni-
lega fataskap á súlum frá jap-
anska hönnuðinum Shirok-
uramata. Sá lést á síðasta ári.
Shirokuramata var heims-
frægur hönnuður og hélt
margar sýningar. Hann inn-
réttaði meðal annars verslanir
hins þekkta japanska fata-
hönnuðar Yohijs Yamamoto.
Skúffurnar i skápnum eru
margar, eins og sjá má, en
engar þeirra nákvæmlega
eins. Verðið er hálf milljón og
hann er enn óseldur.
slá af krotunum eftir uppa-
tímabilið. Núna reyna menn
heldur að hressa upp á and-
legheitin. Markaðurinn er
einfaldlega of lítill hér á landi
til að hægt sé að selja eitt-
hvað af svona dýrum stykkj-
um. Fólksfæðin gerir það líka
Casa Mirale býður einnig upp
á þetta leðursófasett. Það er
hannað af ítalska fyrirtækinu
Alivar. Þetta er ný lína og sett-
ið kostar Irtlar 700 þúsund
krónur. Að sögn Karólínu Port-
er hjá Casa Mirale er enginn
hörgull á kaupendum að sófa-
settum í þessum verðflokki.
í Casa Mirale fannst þessi
ávaxtaskál úr silfri hönnuð af
Ettore Sottsass, sem er með-
limur í Memphis-hópnum
svokallaða. Verð þessarar
ávaxtaskálar er hálf milljón.
Það væri svo sem ekki í frá-
sögur færandi ef ekki væri fyr-
ir þá staðreynd að hún var seld
nýlega. Marmaraávextir henta
skálinni best.
að verkum að húsgagnaúrval
er afar fábrotið hérlendis."
Þeir hjá Desform kvarta
ekki yfir verkefnaskorti. Fyr-
irtækið býður upp á allt sem
viðkemur húsgögnum og
innanhússhönnun. Vörurnar
hjá Desform spanna alla
verðflokka. Hægt er að finna
rúm á 60 þúsund krónur og
eldhúsinnréttingar sem
skaga upp í tvær milljónir.
Verslunin Casa Mirale hef-
ur á boðstólum húsgögn í
verðflokki sem hentar einna
helst þeim sem fengu arð-
greiðslur frá Sameinuðum
verktökum á dögunum.
Starfsmenn þar segja síst
minni sölu í dýrum húsgögn-
um nú en áður.