Pressan - 06.02.1992, Page 45

Pressan - 06.02.1992, Page 45
FIMMTUDAGUR PKtSSAN 6. FEBRÚAR 1992 45 LÍFIÐ EFTIR VINNU ÚARPAR5YNCUR ÓÞELLÓ OC SE6IR BLESS Garðar Cortes er að kveðja íslensku óperuna, a.m.k. um sinn. Að öðrum ólöstuðum hefur hann verið prímus mótor í óperunni þau sléttu tfu ár sem hún hefur starfað, en nú hyggur hann á landvinninga og verður óperustjóri í Gautaborg. Það verður ekki annað sagt en að Garðar kveðji með stæl; óperan frumsýnir á sunnudag Óþelló, sem kannski er mesta stórvirki Verdis, og þar syngur Garðar titilrulluna, márann Óþelló. Það er allsendis óumdeilt að þetta hlutverk er eitt hið alerfiðasta sem hefur verið skrifað fyrir tenór, og varð frægt þegar sjálfur Pavarotti féllst loks á að glíma í fyrsta sinn við Óþelló fyrir stuttu. VANTARBARA NOKKUR KÍLÓ Það er enginn hörgull á til- finningu á þessari mynd af henni Margréti Kristínu Sig- urðardóttur djasssöngkonu. Margrét er langmenntuð í tónlist og hefur síðustu árin dvalið í langdvölum í Noregi og á Ítalíu þar sem hún lagði stund á söngnám og kom fram í djassklúbbum. Nú er hún komin heim og heldur ís- landsdebútt sitt í Púlsinum á sunnudagskvöldið ásamt djasshljómsveit. Þar syngur hún mestanpart þekkta djass- standarda, eins og það heitir, og af mikilli innlifun þótt hún viðurkenni að sig vanti bæði lit og nokkur kíló til að líkjast fyllilega helstu djasssöngkon- um sögunnar. ... fær Össur Skarp- héðinssott. Hann var einn fárra Þjóð- viljaritstjóra sem fengu ekkt að skrifa í endurminninga- blaðið en samt snerist meira en helmingur grein- anna um hann. Það var eins og hann hefði dáið en ekki Þjóðviljinn. Þetta er afrek. Vmisi juí ... að Vilhjálmur Svan veit- ingamaður var dæmdur til að sitja 9 mánuði inni ef hann greiðir ekki 11 milljóna króna sekt innan fjögurra vikna. Ef hann greiðir ekki mun hann því hafa um 1.222.222 krón- ur á mánuði fyrir fangels- isvistina. Það eru hærri laun en hátekjumenn á borð Thor Ó. Thors og Halldór H. Jónsson hafa haft á undanförnum ár- um. Ásdís fór aidrei á sjóinn. BORGARSTELPA GERIR SJÓMANNAMYND „Þetta er saga af sjávar- plássafólki, saga um „hitt ís- landið" sem við í borginni þekkjum mörg hver ekki nema af afspurn," segir Ásdís Thoroddsen, en Ingaló, kvik- mynd sem hún hvort tveggja skrifar og leikstýrir, verður frumsýnd í Reykjavík og á ísafirði á laugardaginn. En af hverju er hún, stelpa úr borginni, að fjalla um fólk í sjávarplássum? „Kannski af því ég komst aldrei á sjó þótt mig langaði. Ég var reyndar í fiski, en margir vinir mínir voru eilíf- lega á sjónum. Þegar ég var 13 til 16 ára hlustaði ég stöð- ugt á sjóarasögur. Ætli þær séu ekki að hluta til uppistað- an í þessari kvikmynd." Myndin fjallar um Inguló, 17 ára stelpu úr sjávarplássi á Ströndum. Hún lendir í úti- stöðum við foreldra sína, fer að heiman og gerist kokkur á Matthildi ÍS 167, 100 tonna bát. Ásdís segir að myndin sé hvorki gamanleikur né harm- ieikur, heldur spanni hún breitt svið: „Þetta er mynd um það hvernig fólk er hvað við annað, hvernig það talar saman, um það hvernig Is- lendingar haga sér og hreyfa sig.“ ... að ef 5.400.000.000 króna uppsöfnuðum gróða Sameinaðra verk- taka (eigið fé fýrirtækisins og útgreiðslur undanfar- inna ára) væri skipt í 10 króna mynt mundi hann vega 4.320 tonn. Burðar- geta Esjunnar gömlu, nú Búrfells, er 1.100 tonn. Gróðinn mundi því fylla Esjuna gömlu 4 sinnum og kæmust þá hvorki vatn né olía um borð. gamla vaxmyndasafninu sem ork- aöi svo sterkt á barnssálir upp úr miðri öldinni. Þarna eru baeöi skúrk- ar og skörungar, Hitler er á sínum staö og Churchill lika, og svo íslend- ingar sem voru hvaö nafnkunnastir á árunum eftir stríö; Ríkisstjórnin 1944, Jónas frá Hriflu, Daviö frá Fagraskógi, Anna Borg o.fl. Svo er náttúrlega mynd af Óskari Halldórs- syni síldarkóngi sem gaf safnið til minningar um son sinn látinn. Ókeypis fyrir börn unglinga og elli- lífeyrisþega, skitnar 200 krónur fyrir fulloröna. • Af líkama og sál. Dálítið skrítin uppákoma og á skjön viö þá hug- CLINTON HEYLIN DYLAN: BEHIND THE SHADES Huldumaöurinn Dylan hefur dvalið í skugga eigin heimsfrægðar í 30 ár og taldi sig með- al annars þurfa að dul- búa sig áður en hann hjólaði um Reykjavík. Margar ævisögur hafa verið ritaðar um kapp- ann og þessi er örugg- lega með þeim betri. í ævisöguflokknum fær hún 8 af 10. BIOIN SVIKRÁÐ Deceived BÍÓBORGINNI Þokkalega vel skipulagður hryllingur. Undirhakan á Goldie Hawn fer þó yfir strikið í þeirri deild. En það hryllilegasta er að það er ekkert skemmtilegt í myndinni. Ekki ein setning. ★★ BAKSLAG Ricochet REGNBOGINN John Lithgow er dásamlega ógeðfelldinn mannhundur og um leið og hann missir undirtökin og Washington kemst á skrið er gamanið búið. Það er ein- mitt vegna þessa sem svona margt fólk er illa innrætt. Það er svo miklu skemmtilegra. ★★ mynd aö Islendingar séu ekki nátt- úraðir fyrir heimspeki. Fyrir hálfum mánuöi hófu nokkrir háskólamenn röð alþýðlegra erinda um tengsl lík- ama og sálar. Fyrstu erindin voru í Odda, en aðsóknin reyndist svo mikil aö nú hefur veriö ákveöiö aö flytja þá yfir í Háskólabíó. Á laugar- daginn kl. 14 fjallar dr. Sigurður J. Grétarsson um heimsmynd sálar- fræðinnar. SJÓNVARP • Söngvakeppni Sjónvarpsins. Hér rúllar hún aftur Eurovisi- on-hringekjan og öllum finnst lögin hálfömurleg og flytjendurnir lélegri en í fyrra. Samt horfum viö á og tuð- um með bros á vör. Sjónvarpið fös. kl. 21.05. • Morse lögreglufulltrúi. Þaö var þjóðarsorg í Bretlandi þegar John Thaw ákvað fyrir skemmstu aö hætta að leika þennan skapstygga, seinheppna og sjónumhrygga lög- reglumann. Hér rannsaka Morse og Lewis, aðstoðarmaöurinn þolin- móði, morð á drykkfelldum mynd- listarmanni. Sjónvarpið lau. kl. 21.30. • Vetrarólympíuleikarnir. Þaö er náttúrlega yfirdrifiö nóg af íþróttum i sjónvarpinu, en meöan Ólympiu- leikar standa yfir hlýtur maður að af- saka það. Sjálfum sér líkir hafa Frakkar lagt ærinn metnað í leikana og það er þokkalega forvitnilegt aö sjá hvernig þeim tekst til með setn- ingarhátiðina. Sjónvarpið lau. kl. 15.50. • Stjúpa min er geimvera. Húmor- inn er aulalegur en við og við má þó brosa út í annað, kannski skella upp úr ef maður er i góðu skapi. Dan Aykroyd er ekkert ofboðslega fynd- inn, en Kim Basinger þykir sexí. Stöð 2 fös. kl. 21.25 LÍKA í BÍÓ BÍÓBORGIN: Svikráð** Löggan á háu hælunum* Billy Bathgate** I Dulargervi** BÍÓHÖLLIN: Kroppa- skipti** Thelma & Louise*** ■ Svikahrappurinn** Dutch** Timasprengjan* HÁSKÓLABÍÓ: Has- ar i Harlem** Brellubrögð 2* Mál Henrys** Addams-fjölskyldan** Af fingrum fram** Tvöfalt Iff Ver- óniku*** The Commitments**** LAUGARÁSBÍÓ: Hróp* Glæpageng- ið** Barton Fink*** REGNBOGINN: Bakslag** Morðdeildin* Náin kynnio Fuglastríðiö*** Homo Fa- ber**** SAGABÍÓ: Peningar ann- arra** Flugásar** STJÖRNUBÍÓ: Bilun í beinni útsendingu*** Tor- tímandinn 2**** Börn náttúrunn- ar***. Vinsazlustu myndböndin 1. Naked Gun 2V> 2. Kiss Before Dying 3. Mermaids 4. Hrói höttur 5. Murder 101 6. State of Grace 7. Silence of the Lambs 8. Out for Justice 9. The Pope Must Die 10. LA Story frIar heimsendingar allan SÓLARHRINGINN 7 DAQA VIKUNNAR PÖNTUNARSlMI: 679333 PIZZAHÚSIÐ Grensásvegl 10 - þjónar þér allan aólarhringlnn FRlAR hbmsendingar allan SÓLARHRINGINN 7 DAGA VIKUNNAR PÓHTUNARSlMI: 679333 PIZZAHÚSIÐ Grensásvsgl 10 - þjónar þér allan aólartirlnginn

x

Pressan

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Pressan
https://timarit.is/publication/298

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.