Pressan - 17.09.1992, Síða 15
FIMMTUDAGUR PRESSAN 17. SEPTEMBER 1992
15
Afleiðingar ótryggrar lánafyrirgreiðslu hafa berlega komið í ljós á undanförnum
árum. Beinar og óbeinar afskriftir útlána hafa fimm- til sexfaldast að raungildi
á fimm árum og bíða þó ýmis forstíðarslys handan hornsins.
440% aukn-
ing afskriffta
á fimm árum
’87 ’88 ’89 ’90 '91
Þegar horít er íramhjá aí-
skriítum vegna ríkis-
ábyrgðasjóðs og ríkissjóðs 5
kemur í ljós rúmlega limm-i
földun afskrifta banka og 5
tiltekinna lánasjóða á að- 2
eins fimm árum.
bankinn hafi afskrifað 5,1 milljón
króna sérhvern virkan dag á þess-
um tveimur árum.
Um síðustu áramót voru á af-
skriftarreikningi bankans sem
nemur 3,25 prósentum af útlán-
um bankans. Afskriftir síðustu
fimm ára samsvara hins vegar 5,3
prósentum af útlánum bankans.
íslandsbanki, þar áður Iðnað-
arbanki, Verslunarbanki, Alþýðu-
banki og Útvegsbanki, hefur af-
skrifað á tímabilinu 3.738 milljón-
ir króna eða litlu minna en Lands-
bankinn. Þó skal þess getið að 700
milljónir af þessu voru afskrifaðar
hjá gamla Útvegsbankanum, áður
en honum var breytt í hlutafélag.
Það breytir ekki hinu að íslands-
banki í núverandi mynd afskrifaði
nær 1.500 milljónir tvö síðustu ár-
in. Um síðustu áramót voru á af-
skriftarreikningi bankans sem
nemur 4,19 prósentum af útlán-
um bankans. Afskriftir síðustu
fimm ára samsvara hins vegar 8,7
prósentum af útlánum bankans,
en 7,1 prósenti ef áðurnefnd af-
skrift gamla Útvegsbankans er
undanskilin.
Búnaðarbankinn afskrifaði á
tímabilinu 1.085 milljónir króna
og gerði það nokkuð jafnt yfir ár-
in, mest þó 370 milljónir á síðasta
ári. Afskriftarreikningurinn sam-
svarar 2 prósentum af útlánum
bankans en afskriftir síðustu
fimm ára 3,14 prósentum.
Sparisjóðirnir afskrifuðu til
samans 1.330 milljónir á tímabil-
inu, sem svarar tíl 5 prósenta af
útlánum þeirra um síðustu ára-
mót.
SEX MILLJARÐAR GLATAÐ-
IR HJÁ BYGGÐASTOFNUN
Allsheijar afskriftahreingeming
átti sér stað hjá Byggðasjóði, At-
vinnutryggingadeild og Fllutafjár-
sjóði á síðasta ári, f kjölfar sér-
stakrar úttektar Rikisendurskoð-
unar. Á síðustu fimm ámm hafa
þessir aðilar afskrifað samtals
5.880 milljónir króna. Þar af guf-
uðu upp „aðeins“ 808 milljónir
fyrstu þrjú árin, en 1.105 milljónir
1990 og 3.965 milljónir á síðasta
ári, þegar menn fóru að horfast
fyrir alvöru í augu við árangur
byggðastefnunnar. Afskriftimar á
síðasta ári skiptust svo til jafnt á
milli Byggðasjóðs og Atvinnu-
tryggingarsjóðs og var sá síðar-
taldi þó ekki gamall í hettunni.
Samkvæmt sérstakri úttekt
Ríkisendurskoðunar tapar
Ryggðasjóður einkum á lánum
vegna fiskeldisfyrirtækja eða 800
til 900 milljónum króna. Reiknar
Ríkisendurskoðun með því að
Byggðasjóður verði kominn í
veruleg vandræði árið 1994 og í
þrot árið 1997. Mestur hluti nærri
10 milljarða króna útlána At-
vinnutryggingarsjóðs rann til
sjávarútvegsfyrirtækja og er þegar
búið að afskrifa um 2 milljarða.
Fyrirséð er að ríkissjóður þurfi að
leggja Atvinnutryggingarsjóði til
um 1.300 milljónir á árunum 1992
til 1994 til að sjóðurinn geti lifað
af. Er þá reyndar miðað við að
skuldarar standi í skilum, sem
telst í besta falli hæpið.
RÍKIÐ: HREINGERNING
EFTIR MARGRA ÁRA
ÓREIÐU
Nýlega var gefinn út ríkisreikn-
ingur vegna ársins 1990 og þá
hafði að tillögu Ríkisendurskoð-
unar farið fram stórfelld hrein-
gerning á glötuðum gömlum og
nýjum lánafyrirgreiðslum Ríkis-
ábyrgðarsjóðs, Endurlána ríkis-
sjóðs og löngum lánum ríkissjóðs.
Þó var ekki gengið að sinni eins
langt og Ríkisendurskoðun lagði
til, en óhætt má telja að það verði
gert í náinni framtíð. Ríkisendur-
skoðun lagði til að beint og óbeint
yrðu nær 4.800 milljónir króna af-
skrifaðar, að mestu beint og end-
anlega.
Stærstu póstarnir sem hér um
ræðir eru 657 milljónir vegna
Skipaútgerðar ríkisins, 560 millj-
ónir vegna sérstaks raðsmíða-
verkefnis skipa, 425 milljónir
vegna Sjóefnavinnslunnar, 392
miíljónir vegna hagræðingardeild-
ar Fiskveiðasjóðs, 322 milljónir
Guðni Ágústsson þingmaður, formaður stjórna Búnaðarbank-
ans og Stofnlánadeildar landbúnaðarins (leysti Stefán Val-
geirsson af hólmi). Deildin afskrifaði 1,2 milljarða á tímabilinu,
mest vegna glataðra lána til loðdýrabænda, sem þó voru veitt
á hagstæðum kjörum. Útistandandi lán deildarinnar um síð-
ustu áramót voru 7,5 milljarðar. Búnaðarbankinn sjálfur af-
skrifaði 1,1 milljarð á sama tíma. Forstjóri Stofnlánadeildar er
Leifur Kr. Jóhannesson.
Bragi Hannesson, forstjóri Iðnlánasjóðs. Sjóðurinn afskrifaði
rúman milijarð á tímabilinu. Útistandandi lán um síðustu ára-
mót voru 10,8 milljarðar. Núverandi stjórnarformaður er Geir
A. Gunnlaugsson, sem nýverið leysti sem slíkur af hólmi Jón
Magnússon lögfræðing.
vegna Arnarflugs, 320 milljónir
vegna ábyrgðardeildar fiskeldis-
lána, 200 milljónir vegna Álafoss
og Hildu og 185 milljónir vegna
Þormóðs ramma.
Þá má nefna 120 milljónir
vegna Hitaveitu Rangæinga, 105
milljónir vegna Gullskipsins, 92
milljónir vegna Sigló, 60 milljónir
vegna Stálvíkur og 53 milljónir
vegna Þörungavinnslunnar. Loks
má nefna að vegna íslenska
gagnagrunnsins hf., Samkomu-
húss Vestmannaeyja hf., Nesco
hf„ Veitingamannsins hf. og
Skemmtigarðsins hf. (tívólíið í
Hveragerði) teljast glataðar sam-
tals 65 milljónir króna.
FRAMKVÆMD ASJ ÓÐUR
LAGÐUR AF EFTIR MIKLAR
HREMMIN G AR
Framkvæmdasjóður var form-
lega lagður niður í upphafi þessa
árs, effir miklar hremmingar, og
hann settur niður í skúffu hjá
Lánasýslu ríkisins. Lánveitingar til
ullariðnaðar (Álafoss) og fiskeldis
Iéku sjóðinn grátt og á fimm ára
tímabili afskrifaði hann samtals
3.224 milljónir. Þar af voru 2.044
milljónir afskrifaðar 1991, á síð-
asta ári sjóðsins, í kjölfar svartrar
skýrslu Ríkisendurskoðunar. Þá
var staðan þannig að á afskriftar-
reikningi voru sem nemur 3,7
prósentum af útistandandi lán-
um, en afskriftir á árunum fimm
svara til 15,7 prósenta af útistand-
andi lánum um síðustu áramót.
Fyrir utan að afskrifa lán hefur
Framkvæmdasjóður þurft að
leysa til sín mikið af fasteignum.
Má þar nefna verksmiðjuhús, aðr-
ar fasteignir og lóðir Álafoss (bók-
fært verðgildi 413 milljónir), fast-
eignir Naustsins við Vesturgötu
(100 milljónir), eignir ísþórs í
Þorlákshöfn (150 milljónir) og
eignir íslandslax í Grindavík (96
milljónir).
Þá hefur Framkvæmdasjóður
þurft að leysa til sín eignir aðila
eins og Fjallalax í Grímsnesi, Sjó-
eldis í Höfnum, fslenska fiskeldis-
félagsins á Lækjum og í Eiðisvík,
Smára í Þorlákshöfn, Eldisstöðv-
arinnar Króka og Búfisks í Land-
mannahreppi, Laxalóns í Reykja-
vík, Fiskalóns í ölfusi og Fjörfisks
í Þorlákshöfn. Um síðustu áramót
var bókfært virði innleystra eigna
Framkvæmdasjóðs liðlega 1 millj-
arður króna.
MILLJARÐUR TAPAÐIST
ÞRÁTT FYRIR BESTU FÁAN-
LEGKJÖR
Ef Búnaðarbankinn kemur vel
út í samanburði við aðra banka er
það vegna þess að Stofnlánadeild
landbúnaðarins er með sérstakan
fjárhag. Stofnlánadeildin hefur
lánað talsverða fjármuni til land-
búnaðar en þó ekki síst til loð-
dýrabænda, lán sem hafa verið
með bestu fáanlegu kjörum — 2
prósenta vextir á verðtryggðum
lánum. Það hefur þó ekki komið í
veg fyrir 1.195 milljóna króna af-
skriftir á síðustu fimm árum,
mestmegnis ffá 1989.
Þetta eru talsverðir peningar
miðað við umfang og lánakjör
deildarinnar. Útistandandi lán
deildarinnar voru um síðustu ára-
mót um 7,5 milljarðar króna, þeg-
ar búið var að draga ffá 820 millj-
óna króna innstæðu á afskriftar-
reikningi. Reikningurinn svaraði
því til um 11 prósenta af útistand-
andi lánum, en afskriftir síðustu
fimm ára svara til 15,8 prósenta af
útistandandi lánum. Það er svipað
hlutfall og hjá hinum grátt leikna
Framkvæmdasjóði.
Og eins og Framkvæmdasjóður
hefur deildin þurft að leysa til sín
eignir, einkum frá loðdýrabænd-
um, eignir sem nýtast vart til ann-
arra hluta. f árslok 1991 hafði
deildin leyst til sín tíu eignir sem
veðsettar höfðu verið vegna 215
milljóna króna lána. Deildin áætl-
aði söluverð þessara eigna 145
milljónir og afskrifaði því 70 millj-
ónir þeirra vegna.
28 MILLJARÐA RUKKUNAR-
BRÉF TIL ALMENNINGS
Afþeim aðilum sem PRESSAN
skoðaði eru eftir Fiskveiðasjóður,
Iðnlánasjóður og Iðnþróunarsjóð-
ur. Þessir þrír sjóðir afskrifuðu
samtals 2.570 milljónir á tímabil-
inu, en geta þó vart talist
„óheppnustu“ aðilarnir í úttekt-
inni. Þó má ekki gera lítið úr hinu
glataða fé. Fiskveiðasjóður hefur
afskrifað alls rúman milljarð, en
það samsvarar fimm prósentum
af útistandandi lánum sjóðsins
um síðustu áramót. Iðnlánasjóður
hefur og afskrifað rúman milljarð,
sem samsvarar 9,5 prósentum af
útistandandi lánum, og Iðnþró-
unarsjóður var með 515 milljóna
króna afskriftir, sem samsvarar
9,7 prósentum af útistandandi
lánum.
Það skal að lokum ítrekað að
upptalningin að ofan er á engan
hátt tæmandi. Ýmsa fjárfestingar-
lánasjóði vantar
inn ímyndina, svo 28.063.000.000 krónur
sem Verslunar-
lánasjóð, Lánasjóð
sveitarfélaga, Ferðamálasjóð, að
ekki sé talað um Byggingarsjóði
ríkisins og verkamanna. Það
breytir ekki hinu að ofangreindir
aðilar hafa á örfáum árum afskrif-
að 28 milljarða og standa flestir
hverjir höÚum fæti í kjölfar stór-
kostlegs fjárfestingar- og fram-
kvæmdafyllerís. Með einum eða
öðrum hætti lendir fórnarkostn-
aðurinn á almenningi, í gegnum
skatta, versnandi lánakjör eða á
annan hátt.___________________
Friðrik Þór Guðmundssor
15,4 milljónir afskrif-
aðar á hverjum deai
12.000 milljón krónur-------------
10.000 -j
PRESSAN/AM____________________________________________________________________________________________
* í tilfelli Ríkisábyrgðasjóðs og ríkissjóðs er miðað við tillögur Ríkisendurskoðunar um beinar og óbeinat
afskriffir vegna uppsafnaðs vanda. Var að mestu farið eftir þessum tillögum í stórfelldri hreingcrningu vegna
ríkisreiknings 1990. Allar tölur hér að ofan hafa verið framreiknaðar til núvirðis samkvæmt lánskjaravísitölu.