Pressan - 17.09.1992, Qupperneq 34
34
FIMMTUDAGUR PRESSAN 17. SEPTEMBER 1992
POPP
FIMMTUDAGUR
Fánar flagga sínu
^y^Jbesta á Púlsinum með
r<^^®Magnús Einarsson á
^^JHoddinum. Myndband
þeirráHierur í það minnsta hlotið
verðskuldaða athygli.
• Viðar Jónsson og Þórir Úlfars-
son ásamt dönskum fiðluleikara hafa
sinn fasta sess í Borgarvirkinu. Viðar
spilar á gítar og syngur og Þórir spilar
á stálgítar og raddar. Fyrir þá sem
vilja meiri rólegheit er komið á efri
hæðina í Borgarvirkinu róleqheitaat-
hvarf með básum (ekki þó fyrir belj-
ur) og bar.
• Fánar færa sig um set og verða
nú á Gauknum. Þeir munu enn og
aftur flagga sínu besta. Vonandi að
minnsta kosti.
LAUGARDAGUR
• Deitra Farr kyrjar blús á Púlsin-
um í síðasta sinn.
• Sálin hans Jóns míns leikur
þetta kvöld á Hótel íslandi fyrir knatt-
spyrnusnillinga og -vonbrigði sum-
arsins. Húsið verður hins vegar opn-
að á miðnætti fyrir þá sem vilja sjá
hvernig knattspyrnumenn skemmta
sér öðruvísi en með bolta á milli
lappanna.
• Deitra Farr, bandaríska blús-
söngkonan, syngur Chicagoblús á
Púlsinum. Frábært framlag til blús-
unnenda.
• Kuba Libra leikur létta rokk-
blöndu í Police-stíl á Fógetanum.
Þetta eru gamlir meðlimir Stuð-
kompanísins sem elska Sting og
fleira fólk.
• Tveir Logar loga enn glatt á
Rauða Ijóninu. Það eru þeir Hermann
Ingi og Guðlaugur frá Vestmannaeyj-
um sem kyrja gömul Eyjalög.
■J.MJilB.VWcMia.M
• Tussull leikur leðurrokk með kög-
urfvafi á Hressó. Þetta er hljómsveit
skipuð þeim Rokkfinni Karlssyni
söngvara, Jóhanni Ólafssyni gítarleik-
ara, Arnari Knútssyni trommara, Stef-
áni Stephensen bassaleikara og
Andra Sveinssyni rappara og söngv-
ara. Drengirnir eiga um þessar
mundir mikið spilað lag á útvarps-
stöðvunum.
• Exizt verður einnig á Hressó og
þess vegna hálfgerð hljómsveitar-
veisla því
• Kolrassa krókríðandi verður
þar einnig. Það eru konurnar sem
þegar eru farnar að bræða bresku
hjörtun, að minnsta kosti hjörtu
þeirra sem vinna á Melody Maker.
• Deitra Farr syngur blús á Púlsin-
um.
• Júpíters leika í fyrsta sinn á (s-
landi eftir að þeir héldu tónleika í Re-
ading á Englandi. Þar komu þeir
skemmtilega á óvart og fengu meðal
annars boð um að leika með fræg-
asta tónlistarmanni Nígeríu, Péla Kúti.
Á meðan Júplters-menn íhuga boðið
ætla þeir til dæmis að skemmta á
Hótel Borg.
• Karaoke á Tveimur vinum með
mesta laga- og textaúrvali sem um
geturá (slandi.
• Dúndrandi diskótek verður á
LA Café eins og venja er um helgar.
Þeir sem ekki nenna að standa í röð
ættu að mæta snemma, því röðin er
orðin geysimikil strax um miðnætti.
• Pops halda áfram að rifja upp
qamlar og villtar minningar á Hótel
fslandi. Kombakkið Pétur Kristjáns og
vinir hans spilar í síðasta sinn, enda
kombakk að verða úti.
• Tveir Logar enn á Rauða Ijóninu
með Eyjalög.
• Hermann Ingi kemur öllum i
stuð á Feita dvergnum. Það hlýtur að
vera gaman þar. Að minnsta kosti er
nafnið á staðnum nógu frumlegt.
• Viðar og Þórir ásamt danska
fiðluleikaranum ÍBorgarvirkinu. Mun-
ið eftir kúrekahöttunum.
• Sniglabandið, hið eina sanna,
leikuráTveimurvinum.
• Fánar enn og aftur á Gauknum.
• Tveir Logar eru einhver úthalds-
besta og stabílasta hljómsveit norð-
ursins, enda alltaf á sama Rauða Ijón-
inu.
• Viðar og Þórir skemmta líkt og
fyrri daginn í Borgarvirkinu. Skemmti-
lega .crummy' staður það.
• Bogomil Font og Milljónamær-
ingarnir taka létta sveiflu á Gauknum.
Eins og endranær eru þeir hrifnastir
af .beibs' og vonast eftir sem flest-
um slíkum á Gaukinn.
• Tveir Logar á Rauða Ijóninu. Fer
þetta ekki að verða svolítið þreyt-
andi?
• Viðar og Þórir i Borgarvirkinu.
Það er það sama með þá og Logana:
Þeir eru óslökkvandi.
■anji'ij.M'ii
• Dan Cassidy er fjarri því að vera
skyldur fyrrum hjartaknúsaranum
David Cassidy, enda spilar maðurinn
djass ásmat þremur íslenskum félög-
um sínum næstu þriðjudagskvöld á
Berlín. Aðrir meðlimir eru bassaleikar-
inn og píanistinn úr Bogomil Font og
fiðluleikari sem enginn veit nánari
deili á.
BARIR
Það var svo sem auð-
vitað að drykkjumaður
PRESSUNNAR væri vart
farinn að stunda einka-
klúbbinn Gúliver þegar mör-
gæsirnar mæta og eru með
uppsteyt. Til allrar óhamingju
missti drykkjumaðurinn af því
að vera viðstaddur böstið, en
kvöldið áður sá hann hins vegar
nokkra óeinkennisklædda lag-
anna verði þarna inni löngu eft-
ir lokun skemmtistaða, en þeir
hljóta að hafa verið á frívakt,
því að þeir voru engan veginn
allsgáðir og voru sífellt að
panta glös á barnum. Sem þeir
fengu þó ekki, því þeir voru
ekki klúbbfélagar. Það gengur
svona að vera bara á gestalista.
(Tja, nema þá að hér hafi löggan
enn einu sinni verið að beita ný-
stárlegum aðferðum í öflun
sönnunargagna...) En inni á
Gúliverv ar sumsé fjölmargt
góðra gesta, en þó sá ég Halla
Thorst hvergi. Staðurinn er allur
málaður með flamingo-bleikri
málningu og innréttingin í stíl
við það. Það er reyndar mikill
galli á staðnum, að það er ekki
hægt að komast að barnum án
þess að ganga í gegnum líkams-
ræktarsal, sem er náttúrulega
eins og að þurfa að ganga í
gegnum Hressingarhælið í
Hveragerði í hvert sinn, sem
mann langaði í hamborgara.
Barsalurinn er býsna mikill um
sig og með flygil í einu horninu
og risavaxinn sjónvarpsskjá f
öðru. Drykkjumaður gerir ráð
fyrir að á góðum degi (góðri
nóttu) sé unnt að njóta bæði
Rachmaninoff og Guns 'n' Roses
í einu. Hið fyrsta, sem gerðist
eftir að barrýnir gekk inn, var
það að honum var boðinn
drykkur á barnum. Slíkar við-
tökur mættu vínveitingahús
bæjarins gjarnan apa eftir. Og
talandi um ókeypis áfengi...
Blúsbarinn hefur verið opnaður
aftur eftir nokkra hríð. Hann er
rekinn með svipuðu sniði og
var, það er að segja blúsinn
hafður í öndvegi. En annað
kvöld og laugardagskvöld ætlar
vertinn að gefa gestum Egils
Gull og græna skóga milli
klukkan tíu og ellefu. Góða
helgi og skál!
Vala Matt
í Litróf
Haustið er tími breytinga og vet-
urinn færir landsmönnum nýjungar
í sjónvarpsdagskránni. Lista- og
menningarþátturinn Litróf er þar
engin undantekning, en umsjónar-
maður hans, Arthúr Björgvin Bolla-
son, fær liðsauka í vetur og er þar
ekki ómerkari manneskja en Val-
gerður Matthíasdóttir á ferð. „Þetta
er áframhald af þættinum eins og
hann hefur verið en breytist aðeins
með tilliti til þeirra persóna sem við Vala Matt gengur til liðs við Art-
hann vinna," segir Valgerður, sem húr Björgvin Bollason í vetur og
hefur lengst af verið kennd við Stöð segist hlakka verulega til að
2. Hún telur hins vegar að þar hafi takast á við verkefnið.
listum og menningu ekki verið sinnt
sem skyldi, hlakkar því til að söðla algerlega um og vinna þar sem stefh-
an er önnur.
„Mér líst mjög vel á og okkur Arthúri kemur vel saman. Við erum ólík
að mörgu leyti en lflc að því marki að við höfum bæði verið umdeild og
fólk hefur haft á okkur skiptar skoðanir. Ég er líka spennt að vinna með
færum aðilum úr leikmyndadeildinni, grafíkinni og svo skriftunni, að
ógleymdum Hákoni Má Oddssyni sem sér um dagskrárgerðina.“ Val-
gerður er því aftur komin í það starf sem henni líkar hvað best og segir
fátt eins yndislegt og að þeysast út um allan bæ og miðla því sem er að
gerast í menningarlífinu.
EITTSLATURA
HVERT
MANNSBARN
Nú má búast við því að meg-
inþorri þingmanna landsins
verði upptekinn við sláturgerð á
næstunni ef taka á mið af þing-
mannakönnnuninni sem birtist
í síðustu PRESSU þar sem fram
kom að nánast allur þingheimur
borðar slátur og tekur það fram-
yfir öndvegismatinn hveitilengj-
ur.
Nú þegar í hönd fara kreppu-
tímar má því búast við að há-
markssala verði á slátri. Áætíað
er að yfir tvö hundruð þúsund
slátur seljist til sláturgerðar í ár,
sem þýðir að hvert mannsbarn á
íslandi þarf að láta ofan í sig að
minnsta kosti eitt slátur. Eitt
slátur þýðir tíu til tólf keppir og
einn sviðinn kindahaus, eða
Tíu til tólf slíkir keppir eru etn-
ir af hverjum fslendingi á
hverju ári.
tveir kjammar, auk innmatarins.
í flestum tilfellum eru það
húsmæður heimilisins sem
leggja það á sig að sauma vam-
birnar og blanda slátrið og eru
það ýmist konurnar í fjölskyld-
unni eða saumaklúbburinn sem
taka sig saman. En þetta eru oft
ágætistímar. Að minnsta kosti
selst sérríið aldrei betur en ein-
mitt á þessum árstíma!
„Okkur finnst stundum að við
séum hálfgerð vin í eyðimörkinni,
miðað við það sem er að gerast í
tónlist hér í bænum,“ segir Gunn-
þór Sigurðsson, bassaleikari rokk-
sveitarinnar Vin-K sem leikur á
Hressó í kvöld (þeir sem eru vel
lesnir í Bob Moran vita að Bob og
einkavinur hans og félagi Bil Ball-
entine dvöldu löngum stundum í
Vin-K og þaðan er nafn sveitar-
innar komið).
Ásamt Gunnþóri eru þeir
Mikki Pollock og Gunnar Er-
lingsson í hljómsveitinni. Þetta
eru allt drengir sem rokkáhuga-
menn ættu að kannast við. Byrj-
uðu strax á pönktímabilinu og
hafa verið viðloðandi ýmsar
þekktar sveitir allar götur síðan, til
að mynda Q4U, Utangarðsmenn,
Frakkana, Baðverðina, The Most,
Das Kapital, Wonderfuls og fleiri
og fleiri.
„Við erum í þeirri þægilegu að-
stöðu að vera undir áhrifum frá
sjálfum okkur,“ segir Gunnþór og
vísar til tímans sem þeir hafa verið
í rokkinu svo og sveitanna sem
þeir hafa spilað með.
Vin-K er púra rokksveit og
leikur frumsamið efni og gamla
klassíska standarda.l bígerð er
hjá þeim félögum að fara í hljóð-
ver og því ekki loku fyrir það skot-
ið að sveitin sendi eitthvað frá sér
áður en langt um líður, rokkunn-
endum til gleði og yndisauka.
Hressó í kvöld með Bob Moran-
mönnunum.
Tóbakskaupmaðurinn í
Bankastrætinu, Sölvi Óskars-
son, pantar inn eðaltóbak.
Hann er sjálfur með í
Sölvi Óskarsson er sjálfsagt eini tóbaks-
kaupmaðurinn á landinu og segist standa
undir nafni. Hann rekur tóbaksbúðina
Björk í Bankastræti og hefur gert undanfar-
in átta ár. Það er búðin sem áður bar nafn-
ið Bristol og hefur verið starfandi frá því
seint á þriðja áratugnum.
Eitt meginverkefni Sölva hefur verið að
panta inn eðaltóbak fýrir pípu- og vindla-
reykingafólk og fyrir þá sem vilja taka í nef-
ið. Nokkuð er um það á haustin að neftób-
akið komist í tísku meðal ungs fólks. Er
það sérstaklega tengt því að skólarnir eru
að hefjast og kvefið að gera vart við sig og
þá er gott að fríska upp á nefgöngin með
smávegis af mentoltóbaki.
Sölvi segist einnig selja og senda mikið
af píputóbaki til sjómanna sem vilja sér-
tóbak við útstím og annað við heimstím.
Við útstímið fá þeir kolsvart tyrkneskt
píputóbak til að halda sér vakandi á lífsins
ólgusjó, en við heimstímið fá þeir sérstakt
drottningarhunangsblandað píputóbak
sem gerir þá afskaplega góða við konurnar
sínar þegar heim kemur: „Pípureykingar
eru í raun og veru skástu reykingarnar.
Þeir sem reykja pípu losna við bréfið sem
er á vindlum og sígarettum, og að auki
fylgja pípureykingum ákveðin rólegheit.
Fyrir pípureykingamönnum er það helg
stund að setjast niður og kveikja sér í pípu
og totta um stund. Sígarettureykingar eru
hins vegar nútímareykingar, í raun og veru
svar reykingamannsins við hraða nútím-
ans, enda vitum við að allt að því hálf sígar-
ettan brennur upp hjá þeim.
Þess má geta að í versluninni fást einnig
Don Thomas-vindlar úr karabíska hafinu,
en þeir eru taldir vera samir að gæðum og
hinir eftirsóttu Kúbuvindlar en þriðjungi
ódýrari.
Kj ördæmapopparar
meðal þingmanna
í óformlegri könnun sem PRESSAN gerði fyrir
skömmu, þar sem athugaðar voru „neysluvenjur"
þingmannaliðsins, kom í ljós að meðal þeirra leynd-
ust svokallaðir kjördæmapopparar — og það fleiri
en einn, fleiri en tveir og fleiri en þrír. Kjördæma-
poppari er þingmaður sem hlustar á tónlist flytjenda
úr eigin kjördæmi.
Guðni Ágústsson (F) er þingmaður Suðurlands-
kjördæmis og heldur því að sjálfsögðu upp á Mána
frá Selfossi. Stefán Guðmundsson (F), þingmaður
Norðurlandskjördæmis vestra, er fæddur og uppal-
inn á Sauðárkróki og það er uppáhaldspopparinn
hans líka, sem er að sjálfsögðu Geirmundur Valtýs-
son. Egill Jónsson (S), þingmaður Austurlandskjör-
dæmis, heldur líka tryggð við heimaslóðir sínar og
velur sér Skaftfellinginn Örvar Kristjáns sem sinn
uppáhaldstónlistargæðing. Guðmundur Hallvarðs-
son (S) situr þing fyrir hönd Reykjavíkurkjördæmis
og finnur sér uppáhald í HLH-flokknum og hlustar
helst á Riddara götunnar. Kristinn H. Gunnarsson
(G) er alveg á grensunni og telst ef til vill ekki hrein-
ræktaður kjördæmapoppari. Hann hlustar helst á
Bubba Morthens, sem á að vísu ekki rætur að rekja
til Vestfjarðakjördæmis þingmannsins en starfaði
mikið og söng fyrir vestan á uppreisnarárum sínum.
Ef til vill er smekkur Kristins þaðan kominn.
Svo eru það óvenjukjördæmahollir þingmenn
sem ná því að vera tvöfaldir fyrir það eitt að eiga sér
tvo uppáhaldsflytiendur úr kjördæmi sínu. Einn
þeirra er Árni R. Arnason (S), Reykjaneskjördæmi,
sem finnst allar plöturnar með Trúbroti góðar, en
allir vita hvaðan sú hljómsveit var. Árni lætur ekki
þar við sitja heldur dáir lflca Deep Jimi and the Zep
Creams, sem ætla að meika það í Bandaríkjunum en
eru bomir og barnfæddir suður með sjó. Finnur Ing-
ólfsson (F), þingmaður Reykjavíkurkjördæmis,
hlustar á lög af Veggfóðri en jafnframt er Chicas með
Gildrunni uppáhaldslagið hans. Hann heldur því
upp á hreint Reykjavíkurpopp og er jafnframt eini
þingmaðurinn sem ratar inn á vinsældalista útvarps-
stöðvanna. Allaballarnir Margrét Frímannsdóttir
(G), Suðurlandi, og Guðrún Helgadóttir (G), Reykja-
vík, eiga báðar uppáhaldslag og uppáhaldsplötu sem
rekja má til kjördæmanna. Eru Vestmanneyingarnir
Oddgeir Kristjánsson, Arnþór Helgason og Gísli
Helgason ljúfastir í huga Margrétar en Guðrún held-
ur upp á Reykvíkingana Megas og Sverri Stormsker.