Morgunblaðið - 28.04.2004, Qupperneq 21
AKUREYRI
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 28. APRÍL 2004 21
Vilt þú styrkja eitt eða eiri íslensk börn til vikudvalar í sumarbúðir 2004?
Ef svarið er játandi þá leggur þú inn á reikning 101-26-66090 í Lands-
bankanum eða á reikning 0546-26-6609 í Íslandsbanka.
Eitt barn 27.000 kr. í Vindáshlíð, tvö börn 54.000 kr. í Vatnaskóg.
Bókhald verkefnisins verður gert opinbert í lokin.
Með sumarkveðju,
Fjölskylduhjáp Íslands
í þágu þeirra sem minna mega sín.
Íslendingar lítum okkur nær
S
kr
ým
ir
h
ö
n
n
u
n
2
0
0
4
Í skýrslu nefndar um eignarhald á fjölmiðlum er komist að þeirri niðurstöðu að
fjölmiðlamarkaður hér á landi hafi ýmis þau einkenni sem talin eru óeðlileg út
frá þeim alþjóðlegu viðmiðunum sem byggt er á í skýrslunni og lagt til að
brugðist verði við með lagasetningu.
Hvaða einkenni eru þetta?
Hvers vegna eru þau óeðlileg?
Hvaða alþjóðlegu viðmið er hér um að ræða?
Hvernig er hægt að bregðast við?
Þessum og fleiri spurningum um niðurstöðu nefndarinnar mun formaður
hennar, prófessor Davíð Þór Björgvinsson, leitast við að svara í framsögu um
málið, en að erindi hans loknu fara fram almennar umræður undir stjórn
varaformanns félagsins, Benedikts Bogasonar héraðsdómara.
Allir velkomnir meðan húsrúm leyfir, en tilkynna þarf þátttöku til skrifstofu
Lögfræðingafélags Íslands í síma 568 0887 fyrir kl. 15:00 miðvikudaginn
28. apríl. Einnig má tilkynna þátttöku í bréfsíma 568 7057 og á
tölvupóstfangið logfr@logfr.is. Verð kr. 2.500, greiðist við innganginn.
Lögfræðingafélag Íslands efnir til hádegisverðarfundar um:
Eignarhald á fjölmiðlum
í Sunnusal Hótels Sögu
fimmtudaginn 29. apríl kl. 12:00
HJÚKRUNARHEIMILI fyrir aldr-
aða hefur verið tekið í notkun á
Skjaldarvík í Hörgárbyggð, skammt
norðan Akureyrar. Þar er rými fyrir
15 manns. Húsnæðið er hið vistleg-
asta eftir gagngerar endurbætur
sem gerðar voru í vetur.
Heimilismenn eru þessa dagana
að koma sér fyrir í Skjaldarvík, en
húsnæðið er orðið hið vistlegasta eft-
ir gagngerar endurbætur sem unnið
var að í vetur.
Jakob Björnsson, formaður bæj-
arráðs og félagsmálaráðs, sagði við
opnun hjúkrunarheimilisins að mál-
efni öldrunarþjónustunnar hefðu
verið í brennidepli síðustu ár, enda
mikill skortur á hjúkrunarrýmum á
Akureyri. Hann sagði bæjarstjórn
hafa lagt sig fram um að bæta úr
brýnni þörf fyrir rými og fyrir um
tveimur árum hefði hún lýst sig
reiðubúna að leggja fram á móti rík-
inu helmingi meira fé en lög gera ráð
fyrir til að bæta úr. Nokkru fyrir
kosningar á liðnu ári var undirritað
samkomulag milli heilbrigðisráðu-
neytis og Akureyrarbæjar um við-
byggingu við Dvalarheimilið Hlíð
með 60 hjúkrunarrýmum. „Við
væntum þess að málið myndi ganga
hratt fyrir sig, en því miður hafa orð-
ið á því tafir,“ sagði Jakob. Hann
sagði að nú væri stefnt að því að opna
viðbygginguna í mars árið 2006.
Til að liðka fyrir mun Akureyrar-
bær annast daggjaldagreiðslur rík-
isins fram á mitt næsta ár. Fram
kom í máli Jakobs að 1. apríl síðast-
liðinn hefðu 44 einstaklingar verið á
biðlista eftir hjúkrunarrými. Sagði
Jakob stöðuna nú vera með þeim
hætti að ríflega 30 einstaklingar
væru nú í heimahúsum, í mismikilli
þörf fyrir að komast inn á hjúkrunar-
deild. „En opnun heimilisins hér í
Skjaldarvík bætir þó stöðuna veru-
lega frá því sem var,“ sagði hann.
Jakob sagði að unnið yrði að því að
endurskoða framtíðarskipan öldrun-
armála á Akureyri, en ljóst væri að
mikil fjölgun yrði á næstu árum í
elsta aldurshópnum. Akureyrarbær
er með samning um leigu á Kjarna-
lundi við Kjarnaskóg til haustsins
2008, en þar er einnig rekið dvalar-
heimili fyrir aldraða. Gert er ráð fyr-
ir að húsnæðið í Skjaldarvík verði í
notkun í tvö ár, eða þar til bygging
hefur risið við Hlíð.
Kostnaður við endurbætur á
Skjaldarvík nemur um 30–35 millj-
ónum króna og þá var keyptur bún-
aður, húsgögn og fleira fyrir um 12
til 15 milljónir króna. Hann mun að
sögn Jakobs nýtast áfram.
Morgunblaðið/Kristján
Aldraðir í Skjaldarvík á ný. Karl Guðmundsson, sviðsstjóri félagssviðs Akureyrarbæjar, og Helga A. Erlings-
dóttir, sveitarstjóri í Hörgárbyggð, skoða breytingarnar sem framkvæmdar hafa verið á húsnæðinu í Skjaldarvík.
Hjúkrunarheimili í
notkun í Skjaldarvík
SEX umsækjendur þreyttu inn-
göngupróf í Slökkvilið Akureyrar í
vikunni en innan tveggja vikna verð-
ur ráðið í tvær stöður slökkviliðs-
manna. Í þessum hópi er Sylvía
Húnfjörð og er hún fyrsta konan
sem uppfyllir kröfur til að þreyta
inngönguprófið. Verði hún svo ráðin
verður hún fyrsta konan sem ráðin
er í Slökkvilið Akureyrar. Að sögn
Ingimars Eydals aðstoðarslökkvi-
liðsstjóra er inngönguprófið nokkuð
fjölbreytt, bóklegt og verklegt, auk
þess sem umsækjendur gangast
undir þrek- og styrktarpróf. Um-
sækjendur þurfa m.a. að hafa meira-
próf og iðnmenntun, stúdentspróf
eða sambærilega menntun enda
fylgir frekari skólaganga ráðningu í
slökkviliðið. Erling Þór Júlínusson
slökkviliðsstjóri sagði að það tæki
fjögur ár að mennta slökkviliðs- og
sjúkraflutningamann. Ráðið er í
stöður slökkviliðsmanna til reynslu í
sex mánuði og eftir þann tíma er
metið hvort viðkomandi fái fastráðn-
ingu.
Fyrsta konan
í slökkviliðið?
Morgunblaðið/Kristján
Þrír umsækjendur um starf
slökkviliðsmanns hjá Slökkviliði
Akureyrar í þrek- og styrktarprófi
hjá Átaki, Sylvía Húnfjörð, Sig-
urbjörn Gunnarsson og Gauti Grét-
arsson, í fullum herklæðum á
hlaupabrettum.
BÚSÆLD ehf., félag kjötframleið-
enda í Eyjafirði, Þingeyjarsýslum og
á Austurlandi, hefur gert samning
um kaup á 147 m.kr. hlut í Norð-
lenska eða 36,75% hlutafjár. Heild-
arhlutafé Norðlenska verður 400
milljónir króna og gerir áætlun ráð
fyrir hallalausum rekstri á þessu ári.
Búsæld mun tilnefna tvo af fimm
stjórnarmönnum í Norðlenska á að-
alfundi félagsins 29. apríl nk.
Búsæld ehf. var stofnuð í desem-
ber 2003 og er markmið félagsins að
eignast ráðandi hlut í Norðlenska
matborðinu. Að Búsæld standa kjöt-
framleiðendur í Eyjafirði, Þingeyj-
arsýslum og á Austurlandi. Gert er
ráð fyrir að þeir leggi til hliðar hluta
af andvirði innleggs síns hjá Norð-
lenska og eignist þannig hver um sig
hlut í Búsæld ehf.
Norðlenska matborðið rekur slát-
urhús og kjötvinnslu fyrir sauðfé á
Húsavík og sláturhús og kjötvinnslu
fyrir stórgripi á Akureyri. Á báðum
stöðum er aðstaða í hæsta gæða-
flokki hvað varðar nýtingu, afköst,
hreinlæti og rekjanleika. Einnig rek-
ur félagið kjötvinnslu í Reykjavík.
Meðal þekktra vörumerkja félagsins
eru Goði, Gourmet, Naggar, Húsa-
víkurhangikjöt og Bautabúrið. Á
árinu 2003 varð tap af rekstri Norð-
lenska að fjárhæð 193 milljónir
króna. Rekstur Norðlenska gekk illa
á fyrri hluta síðasta árs en mun bet-
ur á seinni hlutanum og varð þá
hagnaður fyrir afskriftir að fjárhæð
94 milljónir króna. Rekstraráætlun
Norðlenska árið 2004 gerir ráð fyrir
áframhaldandi erfiðleikum á kjöt-
markaði en að félagið verði engu að
síður rekið án halla. Innanhússupp-
gjör fyrstu þriggja mánaða er í sam-
ræmi við þá áætlun.
Kaupfélag Eyfirðinga keypti öll
hlutabréf í Norðlenska matborðinu
haustið 2003 fyrir 250 milljónir
króna. Markmiðið var að vinna að
endurfjármögnun félagsins og
tryggja að starfsemi þess á Akureyri
og Húsavík yrði áfram mikil, vegna
atvinnusjónarmiða og vegna hags-
muna bænda af að eiga kost á við-
skiptum við öflugt fyrirtæki í slátrun
og kjötvinnslu í sínum landshluta.
Akureyrarbær, Húsavíkurbær og
Eignarhaldsfélagið Samvinnutrygg-
ingar hafa á undanförnum mánuðum
keypt hlutabréf í Norðlenska fyrir
samtals 83 milljónir króna. KEA hef-
ur nú selt hluta af sínum bréfum en á
eftir 170 m.kr. hlut eða 42,5%.
Jón Benediktsson á Auðnum í
Laxárdal, formaður stjórnar Bú-
sældar, segir í frétt að hann fagni því
að samningar hafi tekist um kaup
Búsældar á stórum hlut í Norð-
lenska. Reksturinn hafi farið batn-
andi og fjárhagur þess styrktur.
Hann segir mikilvægt fyrir bænd-
ur að þróttmikið og framsækið fyr-
irtæki starfi í landshlutanum.
Á næstu dögum verða haldnir
fundir í Eyjafirði, S-Þingeyjarsýslu
og á Héraði þar sem þessi viðskipti
verða kynnt bændum og einnig
hvernig þeir hyggist fjármagna þau.
Félag bænda kaupir 37% í Norðlenska
þrjú efstu sætin í hverjum flokki.
Allir þátttakendur fá viðurkenning-
arpening, pizzu og Frissa fríska og
Sportver gefur glæsileg útdráttar-
verðlaun. Í skólakeppninni hlýtur sá
skóli sem er með hæst hlutfall kepp-
enda bæði farandbikar og eign-
arbikar að launum.
1. maí-hlaup | Ungmennafélag Ak-
ureyrar, Greifinn, Sportver, Verka-
lýðsfélögin á Akureyri og Frissi
fríski, efna til götuhlaups 1. maí.
Rásmark er við Glerártorg og enda-
mark við Greifann. Ræst verður kl.
13.00 en keppendur þurfa að vera
mættir hálftíma fyrr. Hlaupaleiðir
eru þrjár, 2 km, 4 km og 10 km.
Skráning fer fram í Sportveri og er
þátttökugjald 500 krónur fyrir
grunnskólanemendur en 1.000 krón-
ur fyrir aðra. Einnig verður hægt að
skrá sig á Glerártorgi að morgni 1.
maí frá kl. 10.00-11.30. Í 2 km hlaup-
inu verður keppt í fjórum aldurs-
flokkum stúlkna og drengja en í 4
km og 10 km hlaupinu verður keppt
í flokkum karla og kvenna 39 ára og
yngri og 40 ára eldri. Verðlaunaaf-
hending fer fram strax og hlaupi
lýkur en veitt verða verðlaun fyrir
Bikarmeistari| Björn Ívar Karls-
son sigraði á Bikarmeistaramóti
Skákfélags Akureyrar, en því er ný-
lega lokið. Eftir að hver stórlaxinn af
öðrum hafði fallið úr leik var það
Björn Ívar sem stóð uppi sem sig-
urvegari. Þar sem hann er ekki í fé-
laginu var það hins vegar Sigurður
Eiríksson, sem hafnaði í öðru sæti,
sem hreppti bikarmeistaratitilinn í
fyrsta sinn. Þriðji varð svo hinn ungi
og efnilegi Ágúst Bragi Björnsson.