Morgunblaðið - 04.06.2004, Qupperneq 20
Höfuðborgin | Akureyri | Suðurnes | Austurland | Landið
Minnstaður
Höfuðborgarsvæðið Svavar Knútur Kristinsson, svavar@mbl.is, sími 569-1100.
Suðurnes Helgi Bjarnason, helgi@mbl.is, sími 569-1310 og 669-1310. Akureyri Skapti
Hallgrímsson, skapti@mbl.is, Margrét Þóra Þórsdóttir, maggath@mbl.is og Kristján
Kristjánson, krkr@mbl.is, sími 461-1600. Vesturland Ásdís Haraldsdóttir, asdish@mbl.is,
sími 898-5258. Austurland Steinunn Ásmundsdóttir, austurland@mbl.is, sími 669-1115.
Árborgarsvæðið og Landið Guðrún Aðalsteinsdóttir, frett@mbl.is, sími 569-1290.
Mínstund frett@mbl.is
Grafan bauð 44% af áætlun|Verk-
takafyrirtækið Grafan ehf. bauð lægst í út-
boði Landsvirkjunar á lagningu og teng-
ingu rafstrengja og ljósleiðara á þremur
virkjunarsvæðum; við Tungná, Þjórsá og
Mývatn, þar sem lagnir eru alls 22 kíló-
metrar að lengd.
Tilboð Gröfunnar, rúmar 19 milljónir
króna, var aðeins 44% af áætlun ráðgjafa
Landsvirkjunar upp á 43,2 milljónir króna.
Fjögur önnur tilboð bárust á bilinu 20-26
milljónir króna. Verkinu á að vera lokið í
október á þessu ári.
Þá hafa tilboð verið opnuð í smíði starfs-
mannahúss við Kröfluvirkjun. Lands-
virkjun fékk fjögur tilboð, hið lægsta uppá
tæpar 32 milljónir króna frá Birni Guð-
mundssyni. Kostnaðaráætlun nam 41,5
milljónum króna og hin tilboðin voru undir
þeirri áætlun.
Úr
bæjarlífinu
HÉÐAN OG ÞAÐAN
Norska húsið opnað |Norska húsið í
Stykkishólmi hefur sumarstarfsemina 2004
laugardaginn 5. júní kl. 14, með opnun 10
ára afmælissýn-
ingar Handverks
og hönnunar en
þar er sýnt hand-
verk 24 ein-
staklinga sem
þykja skara
framúr hver á
sínu sviði. Sýningin stendur til 4. júlí og er
opin daglega frá kl. 11 til 17. Ýmislegt fleira
er að sjá í Norska húsinu sem er timburhús
reist árið 1828. Húsið kom tilhöggvið frá
Noregi á sínum tíma.
Minnisvarði afhjúpaður |Á sjómannadag-
inn 6. júní, verður vígður minningarreitur
við kirkjugarðinn í Ólafsvík og afhjúpaður
minnisvarði eftir Sigurð Guðmundsson lista-
mann. Vígsluathöfnina annast Sigurður Sig-
urðarson vígslubiskup og Óskar Hafsteinn
Óskarsson sóknarprestur í Ólafsvík. Ávörp
flytja Baldvin Leifur Ívarsson, formaður
sóknarnefndar, og Sigurður Guðmundsson
sem einnig mun afhjúpa minnisvarðann.
Kirkjukór Ólafsvíkur leiðir söng.
Minnisvarðinn er uppreistur granítsteinn
og stendur sem sjálfstætt listaverk en er
jafnframt minnisvarði um horfið fólk.
Sóknarnefnd Ólafsvíkurkirkju ákvað að
hefja undirbúning að gerð minningarreits
við kirkjugarðinn í Ólafsvík í kjölfar sjó-
slyssins hörmulega 7. desember 2001 þegar
Svanborg SH fórst við Svörtuloft á Snæfells-
nesi og með henni þrír menn. Minning-
arsteinn með nöfnum þeirra verður einnig
afhjúpaður við vígsluathöfnina nú á sjó-
mannadaginn.
Gengið hefur veriðfrá verksamningivið Mælifell ehf.
um endurbætur á Hótel
Tanga á Vopnafirði í
samræmi við útboðsgögn
sem unnin eru af Teikni-
stofunni Óðinstorgi.
Heildarsamnings-
fjárhæðin er 24,5 millj-
ónir króna. Verktaki hef-
ur þegar hafist handa við
lagfæringarnar og er gert
ráð fyrir að 1. áfanga
verði lokið fyrir 25. júní
nk., sem felst í lagfær-
ingu á anddyri, móttöku
og setustofu á 1. hæð,
ásamt málun á 2. hæð og
snyrtingu á húsinu að ut-
an. Greint er frá þessum
framkvæmdum á heima-
síðu Vopnafjarðarhrepps.
Endurbætur
á Hótel Tanga
Þeir voru montnir bræðurnir á Brekku í Fljótsdal;Tryggvi Þór og Jónas Bragi Hallgrímssynir,þegar þeir fundu heiðargæsarhreiður innan
girðingar rétt fyrir ofan bæinn hjá sér og sýndu fund-
inn stoltir. Þrjú egg voru í hreiðrinu og nú bíða þeir
bræður spenntir eftir að ungar komi úr eggjunum.
Morgunblaðið/Sigurður Aðalsteinsson
Legið yfir eggjum
Svar til Rúnars Krist-jánssonar á Skaga-strönd var póstlagt
í gær eftir langa bið. Upp-
haflega sendi Rúnar und-
irrituðum ljóðabréf eftir
viðhorfsgrein, þar sem
hvatt var til bréfaskrifa
upp á gamla móðinn. Og
hér fylgir svarið:
Loksins færðu ljóðabréf
sem lengi var að berast.
Ég afsakanir engar hef
það átti fyrr að gerast.
Aldrei lagast ástandið
hjá okkur blaðamönnum;
varla nokkurn fæ ég frið
fyrir dagsins önnum.
Þér ég miklar þakkir kann
að þessu skyldir nenna
því bréfaskrifum enn ég ann
með örk og fjaðrapenna.
Ég vonast eftir svari senn
sem um viðbrögð krefur
og fyrr mun bréf þér berast en
blekið þornað hefur.
Til Rúnars
pebl@mbl.is
Neskaupstaður | Í gær kom
Solla stirða í heimsókn til
barnanna í leikskólanum Sól-
völlum í Neskaupstað og vakti
hún mikla kátínu meðal
barnanna sem sungu hástöfum
með Sollu og tóku þátt í
teygjuæfingum og öðrum
hreyfileikjum af mikilli inn-
lifun. Solla fór líka í heimsókn í
leikskólana á Eskifirði og
Seyðisfirði en það voru fyr-
irtækin Eskja og Síldarvinnsl-
an sem stóðu fyrir komu Sollu
á svæðið.
Morgunblaðið/Kristín Ágústsdóttir
Börnin á Sólvöllum fylgdust vel með því sem Solla stirða hafði að segja og gerðu sömu æfingar og hún.
Solla stirða á Sólvöllum
Samsprikl
SVEITARSTJÓRN Bláskógabyggðar hef-
ur staðfest stöðvun þriggja framkvæmda í
sveitarfélaginu. Um er að ræða óleyfilega
efnistöku í fjöruborði Þingvallavatns, en
hún var stöðvuð 10. maí. Þá stöðvaði skipu-
lagsfulltrúi framkvæmdir við vatnsbakka
Þingvallavatns 17. maí við sumarbústað í
landi Heiðarbæjar, en þar hefðu verið
gerðir tveir hafnargarðar. Sveitarstjórn
gerði eiganda að afmá jarðrask á eigin
kostnað. Ennfremur var staðfest ákvörðun
um að stöðva framkvæmdir við bátaskýli í
landi Kárastaða. Eiganda var gert að fjar-
lægja bygginguna.
Verða að
fjarlægja
hafnargarða
Vestmannaeyjar | Úrskurðarnefnd um
heilbrigðismál hefur kveðið upp úrskurð
um gjaldtöku Vestmannaeyjabæjar á
sorpeyðingargjöldum á fyrirtæki. Málið,
sem nær aftur til ársins 2000, var kært af
Þórarni Sigurðssyni eiganda Geisla. Úr-
skurðarnefndin féllst á röksemd Þórarins
um að raunveruleg magnmæling verði að
liggja fyrir til grundvallar gjaldtöku fyrir
sorp.
Bæjarráð fjallaði um málið og var þeim
Frosta Gíslasyni og Viktori Pálssyni falið
að leggja fram tillögu um framtíðarskipan
við álagningu sorpgjalda.
Jón G. Valgeirsson, lögmaður, sem sótti
málið fyrir Félag kaupsýslumanna í Vest-
mannaeyjum, segir að úrskurðurinn þýði
að álagning sorpeyðingagjalds eins og ver-
ið hefur í Eyjum standist ekki. „Rökin eru
þau að þegar er verið að rukka eitthvað
eftir magni, þá er lögmálið það að menn
viti hvaða magn menn eru að borga fyrir.
Þetta er svipað og ef þú ert að kaupa kjöt
úti í búð, þá ertu rukkaður eftir kílóverði.“
Skynsamlegt að ná samkomulagi
Jón segir að málið hafi langan aðdrag-
anda og reynt hafi verið að ná samkomu-
lagi áður en málinu var skotið til úrskurð-
arnefndarinnar. Næstu skref segir Jón
vera að leysa þennan fortíðarvanda og
huga til framtíðar. „Það hefjast viðræður
við bæjaryfirvöld um það hvernig best sé
að leysa þessi mál í heild sinni.“
Aðspurður hvort eigendur fyrirtækja í
bænum eigi kröfu á bæjarsjóð vegna of-
greiðslu á sorpeyðingargjöldum segir
hann það spurningu sem eftir er að svara.
„Það er nú viturra manna ráð að ná sam-
komulagi um hlutina. Þetta snýst um að
leysa málið í sameiningu en auðvitað veit
ég ekki hvort einstakir aðilar muni sækja
stíft á bæjaryfirvöld.“
Ólögleg sorp-
eyðingargjöld
♦♦♦
Egilsstaðir|Það eru ekki aðeins
grunn- og framhaldsskólar sem út-
skrifað hafa nemendur sína með
pompt og prakt þetta vorið, heldur
eru leikskólarnir einnig að útskrifa
nemendur og skipta börnum inn á
eldri deildir. Á leikskólanum Tjarn-
arlandi á Egilsstöðum var sumrinu
tekið opnum örmum með mikilli hátíð
í lystigarði bæjarins, Lómatjarn-
argarðinum, þar sem allar leikskóla-
deildirnar lögðu sinn skerf til ljúfrar
og frambærilegrar dagskrár. Var
ekki laust við að foreldrar brynntu of-
urlítið músum af einskærri gleði yfir
að sjá afkvæmi sín bregða á leik, söng
og dans á sviðinu í garðinum. Að lok-
inni dagskrá og pylsuáti hljóp svo
ungviðið skríkjandi inn í sumarið þar
sem ævintýrin bíða við hvert fótmál.
Morgunblaðið/Steinunn Ásmundsdóttir
Ungviðið leikur listir sínar