Morgunblaðið - 04.06.2004, Síða 21
HÖFUÐBORGARSVÆÐIÐ
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 4. JÚNÍ 2004 21
Þórunn Alexanders sérfræðingur Helena Rubinstein aðstoðar við val á vörum föstudag og laugardag.
Laugavegi 23
sími 511 4533
• Falleg snyrtitaska
• Tvöfaldur töskuspegill
• Stellars Gold varalitur
• Extravagant maskari
• Collagenist krem 15 ml
• Collagenist augnkrem
Verðgildi gjafarinnar er 7.300 kr.
* Ef keyptar eru Helena Rubinstein vörur fyrir 5.000 kr. eða meira
á meðan birgðir endast.
Gjöfin þín*
Reykjavík | Hátíð hafsins verður haldin nú á
laugardag og sunnudag, en hátíðin varð til við
sameiningu sjómannadags og hafnardags í
Reykjavík.
Gríðarlega fjölbreytt skemmtidagskrá verð-
ur og býðst íbúum höfuðborgarsvæðisins að
kynna sér hinar ýmsu hliðar helsta sérkennis
íslensku þjóðarinnar, nábúðarinnar við sjóinn.
Dagskrá hátíðarinnar er sem hér segir:
Laugardagur 5. júní
Kl. 11 Dorgveiðikeppni á flotbryggjunni í Suð-
urbugt. Verðlaunapeningar fyrir vinningshafa
og bíómiði í Laugarásbíó fyrir alla þátttak-
endur.
Kl. 12–17 Fjörbollar, Go-kart, Teygjuturn og
mörg fleiri skemmtileg leiktæki á Miðbakk-
anum.
Furðufiskar – sjáið alla furðufiskana sem lifa
í sjónum kringum Ísland.
Mondial Billes – stórskemmtilegt og spenn-
andi franskt glerkúluspil þar sem vinningshafa
er boðið til Frakklands að keppa um heims-
meistaratitilinn.
Tjaldið: Sjóminjasafn Reykjavíkur, Sjó-
mannaskóli Íslands, Sjómennt, sýning á upp-
byggingu hafnarinnar, harmonikkuleikur og
margt fleira.
Kl. 13–15 Flöskuskeyti – sendu kveðju út í
heim. Ilmur Stefánsdóttir myndlistarkona
stýrir Flöskuskeytalistsmiðju ásamt Alþjóða-
húsinu, flöskur og pappír á staðnum. Kl. 15 fer
Sæbjörgin í sérstaka flöskuskeytaferð þar sem
hægt verður að kasta flöskunum út í hafsauga.
Kl. 14–16 Sjómannalagakeppni Hátíðar hafs-
ins og Rásar 2. Sjómannslíf, sjómannslíf,
draumur hins djarfa manns – eða Hrognin eru
að koma? Sjómannalög af öllum gerðum. Meðal
þeirra sem fram koma eru Bubbi Morthens,
hljómsveitin Roðlaust og beinlaust og South
River.
Kl. 13–15.30 Svífðu á seglum þöndum. Sigl-
ingaklúbburinn Brokey, við Austurbugt 3, mun
bjóða í stuttar siglingar á skútum félagsins og
verður klúbbhúsið einnig opið almenningi. Þar
verður sýnd ný heimildarmynd eftir Ingvar Á.
Þórisson, Ævintýri á Atlantshafi, um þátttöku
íslenska siglingalandsliðsins á skútunni Bestu í
siglingakeppninni Skippers d’Islande árið
2003.
Kl. 13–16 Hafið bláa hafið. Frá flotbryggjunni
í Suðurbugt verður hægt að reyna sig bæði á
árabát og kajak undir styrkri handleiðslu
kennara frá Siglunesi.
Kl. 13, 14 og 15 Um sundin blá. Á Hátíð hafs-
ins gefst einstakt tækifæri til að virða fyrir sér
höfuðborgina frá hafi. Sæbjörgin býður þrisvar
sinnum upp á ókeypis siglingu um sundin blá.
Kl. 13 leikur hljómsveitin Roðlaust og bein-
laust fyrir gesti en kl. 15 verður sérstök flösku-
skeytaferð. Kaffisala um borð. Björgunarbátur
Slysavarnafélagsins Landsbjargar verður
einnig á staðnum.
Kl. 13.10, 14.10 og 15.10 Tvíliðakeppni á
Secret seglskútum. Æsispennandi tvíliða-
keppni milli karla og kvenna á hraðskreiðum
skútum í innri höfninni. Þrjár umferðir.
Kl. 13.30–16 Fótbolti og reiptog í Laug-
ardalnum. Skipsáhafnir keppa. Hoppkastali á
staðnum. Verðlaun afhent á Sjómannahófinu á
Broadway.
Fyrir yngstu gestina.
Kl. 16 Eyjahringurinn – elsta siglingakeppni
kjölbáta á Íslandi. Siglt er frá Reykjavíkurhöfn
í kringum Engey og Viðey. Verðlaunaafhend-
ing verður að keppni lokinni kl. 20 í félagsheim-
ili Brokeyjar við Austurbugt 3. Allir velkomnir.
Kl. 20 Sjómannahóf á Broadway. Hin sí-
vinsæla Brimkló leikur fyrir dansi, fram á nótt.
Sunnudagur 6. júní
Kl. 10 Athöfn við Minningaröldur sjó-
mannadagsins við Fossvogskapellu í Fossvogs-
kirkjugarði. Sr. Jakob Ágúst Hjálmarsson fer
með ritningarorð og bæn.
Kl. 11 Sjómannaguðsþjónusta í Dómkirkjunni.
Karl Sigurbjörnsson biskup Íslands predikar
og minnist drukknaðra sjómanna. Sr. Jakob
Ágúst Hjálmarsson þjónar fyrir altari. Meðan
á guðsþjónustu stendur verður lagður blóm-
sveigur á leiði óþekkta sjómannsins.
Kl. 12–17 Fjörbollar, Go-kart, Teygjustökk og
mörg fleiri skemmtileg leiktæki á Miðbakk-
anum.
Furðufiskar – sjáið alla furðufiskana sem lifa
í sjónum kringum Ísland.
Mondial Billes – keppt til úrslita í hinu stór-
skemmtilega og spennandi franska glerkúlu-
spili, en heppnum vinningshafa er boðið til
Frakklands að keppa um heimsmeistaratit-
ilinn.
Tjaldið býður upp á sýningu á uppbyggingu
hafnarinnar, kynningu á Sjómannaskóla Ís-
lands, ilmandi vöfflur og margt fleira.
Kl. 13, 14 og 15 Um sundin blá. Á Hátíð hafs-
ins gefst einstakt tækifæri til að virða fyrir sér
höfuðborgina frá hafi. Sæbjörgin býður þrisvar
sinnum upp á ókeypis siglingu um sundin blá.
Kaffisala um borð. Björgunarbátur Slysa-
varnafélagsins Landsbjargar verður einnig á
staðnum.
Kl. 13.30 Lúðrasveit Reykjavíkur leikur á
Miðbakka Reykjavíkurhafnar.
Kl. 14 Hátíðahöld sjómannadagsins á Mið-
bakka.
Setning hátíðarinnar
Guðmundur Hallvarðsson, formaður Sjó-
mannadagsráðs.
Ávörp
Árni M. Mathiesen, sjávarútvegsráðherra,
Rafn Haraldsson, útgerðarmaður í Reykjavík,
Árni Þór Sigurðsson, formaður Hafnarstjórnar
Reykjavíkurhafnar, Jónas Garðarsson, for-
maður Sjómannafélags Reykjavíkur.
Sjómenn heiðraðir
Kynnir: Ásgeir Guðnason, ritari
Sjómannadagsráðs.
Kl. 15 Ómar og Lína! Enginn kann að
skemmta landsmönnum eins og Ómar Ragn-
arsson en hann mun koma öllum í besta skap á
sjómannadaginn og fær meira að segja Línu
Langsokk í heimsókn, enda er hún af sjó-
mannsættum komin því pabbi hennar er sjó-
ræningi, eins og margir muna.
Kl. 15 Ráarslagur. Hin sívinsæla keppni þar
sem kappar takast á og reyna að koma and-
stæðingi sínum í sjóinn.
Kl. 15 Kappróður í innri höfninni. Frækin lið
takast á. Bæði karla- og kvennalið, íslensk og
færeysk.
Handavinna, basar og kaffisala á Hrafnistu-
heimilunum í Reykjavík og Hafnarfirði. Ný og
glæsileg hjúkrunarálma við Hrafnistu í
Reykjavík til sýnis frá kl. 14–17.
Sýningar á Hátíð hafsins
Sýningin Íslandsljós verður opnuð laugardag-
inn 5. júní kl. 13 í sýningarsal Íslenskrar graf-
íkur, Hafnarhúsinu og í Borgarbókasafni,
Grófarhúsi. Á sýningunni eru ljósmyndir af
hafi, ströndum og lífi íslenskra sjómanna eftir
Árna Sæberg, Guðbjart Ásgeirsson, Guðmund
Ingólfsson og Ragnar Axelsson. Myndirnar
koma frá alþjóðlegu ljósmyndasýningunni Le
Mer eða Hafið sem haldin var í Vannes í
Frakklandi á síðasta ári.
Sýningin er einnig í sal Borgarbókasafns,
Grófarhúsi og stendur til 4. júlí.
Sýning Siglingastofnunar Íslands, „Í örugga
höfn“, verður opnuð í fjölnotarými Listasafns
Reykjavíkur – Hafnarhúsi laugardaginn 5. júní
kl. 14. Sýningin veitir innsýn í viðfangsefni
Siglingastofnunar og forvera hennar, Vita- og
hafnamálastofnunarinnar og Siglinga-
málastofnunar.
Af þessu tilefni verður stóreflis bauju komið
fyrir á Miðbakkanum í Reykjavíkurhöfn og í
fjölnotasalnum verður hægt að kynna sér vita,
baujur, hafnargerð, stöðugleika skipa, skipa-
skrá og fjöldamargt annað sem lýtur að örygg-
ismálum sjófarenda sem eru meðal helstu
verkefna Siglingastofnunar. Sýningin stendur
aðeins á Hátíð hafsins.
Sýningin Minningar frá Íslandi: á slóð minj-
anna verður opnuð laugardaginn 5. júní kl. 15 í
sal Alliance Francaise, Tryggvagötu 8. Sýn-
ingin vegsamar minningu tveggja þjóða, ann-
ars vegar franskra sjómanna frá Bretagne,
Gravelines eða Dunkerques sem reru til þorsk-
veiða við Íslandsstrendur, og hins vegar Ís-
lendinganna sem voru gestgjafar þeirra í hart-
nær heila öld, frá 1852 til 1936. Sýningin
stendur til 4. júlí.
Dagskrá Hátíðar hafsins um helgina
Sjómannaskólinn hefur löngum verið samein-
ingartákn íslenskra sjómanna.
FLUGFÉLAGIÐ Geirfugl á Reykja-
víkurflugvelli bauð til sín hópi leik-
skólabarna úr hverfinu í heimsókn
á dögunum. Þar mætti hópur 3 til 5
ára krakka, sem eru á leikskól-
anum Skerjagarði í Skerjafirði.
Að sögn Matthíasar Arngríms-
sonar, sem hefur umsjón með heim-
sóknum leikskólabarnanna, höfðu
þau gaman af. Geirfugl hefur boðið
leikskólabörnum í heimsókn um
nokkurn tíma. „Ég sýni þeim eina
flugvél sem við erum með, og leyfi
þeim að taka í stýrið, prófa talstöð-
ina og þess háttar. Bæði strákunum
og stelpunum finnst þetta afskap-
lega spennandi,“ sagði Matthías í
samtali við Morgunblaðið.
Morgunblaðið/ÞorkellÞessir ungu flugmenn undu sér vel hjá Geirfugli.
Flugmenn
framtíðarinnar