Morgunblaðið - 04.06.2004, Qupperneq 37

Morgunblaðið - 04.06.2004, Qupperneq 37
MINNINGAR MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 4. JÚNÍ 2004 37 ✝ Sigurður Krist-inn Kristjánsson fæddist á Uppsölum í Svarfaðardal 2. mars 1913. Hann lést á Fjórðungssjúkrahús- inu á Akureyri 21. maí síðastliðinn. For- eldrar hans voru Kristján Loftur Jóns- son, bóndi á Uppsöl- um, f. í Brimnesi á Dalvík 8. okt. 1876, d. á Akureyri 27. okt. 1955 og kona hans Helga Solveig Guð- jónsdóttir, f. í Mið- koti í Svarfaðardal 23. sept. 1881, d. á Akureyri 14. sept. 1954. Börn þeirra eru: a) Jóhann Guðlaugur, f. 29. okt. 1900, d. 27. febr. 1991, b) Sigurlína Snjólaug, f. 9. okt. 1902, d. 14. júní 1967, c) Sveinn Sigurjón, f. 23. júlí 1905, d. 28. sept. 1974, d) Solveig, f. 27. sept. 1907, d. 1. mars 1998, e) Jóna Hallfríður, f. 10. ágúst 1910, f) Sigurður Kristinn, sem hér er minnst, g) Þorsteinn Valgarður, f. 9. nóv. 1915, h) Rósa, f. 24. des. 1917, d. 9. júlí 1922 og i) Guðlaug Baldvina, f. 24. mars 1920. Sigurður kvæntist 28. desember 1947, eftirlifandi eiginkonu sinni Sigurlaugu Ingunni Sveinsdóttur, f. á Blönduósi 18. jan. 1919. For- eldrar hennar voru Sveinn Benja- mínsson og kona hans Lilja Þuríður Lárusdóttir. Sigurður og Sigur- laug eignuðust sex börn en fyrir átti Sigurður son sem ólst upp hjá móður sinni, einnig átti Sigurlaug í Glerárþorpi 27. nóv. 1955, gift Sveini Friðrikssyni, f. 3. apríl 1953. Börn þeirra eru Sigurlaug Ingunn, f. 16. sept. 1973, Valgerður Elsa, f. 23. júlí 1978 og Harpa, f. 19. júlí 1982. 6) Heiða Rósa, f. á Akureyri 10. febr. 1959. Sonur Sigurðar fyrir hjónaband er Stefán, f. á Dalvík 17. febr. 1942, kvæntur Guðrúnu Helgu Ágústs- dóttur, f. 18. sept. 1944, börn þeirra eru Aldís Harpa, f. 8. okt. 1967, Ás- geir Örvar, f. 19. jan. 1976 og Oddný, f. 2. ágúst 1980. Sonur Sigurlaugar fyrir hjóna- band og fóstursonur Sigurðar er Sævar Reynir Ingimarsson, f. í Ási í Glerárþorpi 6. júní 1942 , d. 1. febr. 1973, kvæntur Guðmundínu Inga- dóttur, f. 15. jan. 1943, börn þeirra eru Ingimar Skúli, f. 13. sept. 1962 og Sigurlaug Kristín, f. 11. nóv. 1963. Sigurður ólst upp í foreldrahús- um í Svarfaðardal við öll venjuleg bústörf og byrjaði einnig snemma að stunda sjómennsku á Dalvík, ennfremur var hann um skeið við sjómennsku og bústörf í Ólafsfirði. Eftir að Sigurður og Sigurlaug kynntust hófu þau búskap í Gler- árþorpinu og bjuggu í Ási um nokkura ára bil en byggðu þá upp býlið Hraun og bjuggu þar um ára- tuga skeið. Í Hrauni stunduðu þau hefðbundinn búskap eins og þá tíðkaðist auk þess sem Sigurður sinnti vörslu sauðfjárvarna á Gler- árdal. Sigurður átti trillubát og stundaði sjósókn og skotveiðar meðfram búskapnum. Sigurður og Sigurlaug hafa hin síðustu ár dval- ið á Hlíð, dvalarheimili aldraðra á Akureyri. Útför Sigurðar verður gerð frá Glerárkirkju í dag og hefst athöfn- in klukkan 14. son sem ólst upp hjá þeim hjónum. Afkom- endurnir eru nú 60. Börn þeirra eru: 1) Jóna, f. í Ási í Glerár- þorpi 15. maí 1947, giftist Guðbirni Albert Tryggvasyni, f. 5. nóv. 1947, d. 4. apríl 1976, börn þeirra eru Ólöf Ragnheiður, f. 18. apríl 1967 og Kristján Al- bert, f. 9. maí 1970. Sambýlismaður Jónu er Benedikt Valtýsson, f. 20. júní 1946, dóttir þeirra er Karen Edda, f. 17. des. 1982. 2) Helga Sæunn, f. í Ási í Glerárþorpi 31. maí 1948. Dótt- ir hennar er Sigríður Ingunn Helga- dóttir, f. 7. febr. 1967. Eiginmaður Helgu Sæunnar er Sigvaldi Einars- son, f. 27. júní 1944. Börn þeirra eru Matthías Einar, f. 7. des. 1970, Þröst- ur Gunnar, f. 12. júní 1972 og Sævar Reynir, f. 20. jan. 1974. 3) Kristján Sveinn, f. í Ási í Glerárþorpi 27. júlí 1949, kvæntur Ingunni Pálsdóttur, f. 24. ágúst 1950, börn þeirra eru Stúlka, f. 13. maí 1973, d. 13. maí 1973, Grímur Sævar, f. 15. maí 1974, Fjóla, f. 2. maí 1975 og Sigurður Örn, f. 12. febr. 1983. 4) Sigrún Klara, f. í Hrauni í Glerárþorpi 4. sept. 1952. Dóttir hennar er Guðrún Ágústa Gústafsdóttir, f. 7. jan. 1970. Eiginmaður Sigrúnar Klöru er Ólaf- ur Helgi Helgason, f. 16. nóv. 1949, börn þeirra eru Sigurður Helgi, f. 10. des. 1971 og Stella Sigríður, f. 30. nóv. 1973. 5) Kolbrún, f. í Hrauni Föstudaginn 21. maí lagði afi af stað í ferð, hann var búinn að vera að ferðbúast síðustu daga. Hann tók sér tíma til að kveðja allt sitt fólk þ.e. lömbin sín eins og hann kallaði okkur afa- og langafabörnin sín. „Í gamla daga“ var hápunktur sumarsins að komast í Hraun til afa og ömmu stúss- ast í fjárhúsunum, fara í heyskap, leika í heyinu sem mátti alls ekki og gefa heimalningnum pela. Afi var mjög hrifinn af tvenns konar nammi, hann átti alltaf mola í molakrúsinni og hann var alltaf með tyggjó. Hann var örugglega eini maðurinn sem hafði þann sið að geyma tyggjóið á dyra- stafnum. Við erum búin að festast í tyggjóklessum bæði með fötin okkar og einhverjir með hárið, það hefur örugglega enginn sloppið án þess að festast allavega einu sinni í klessun- um. Ég held að aðeins einu sinni hafi afi orðið illur, það var þegar við Brói fórum á dráttarvélinni niður klöppina og enduðum í kartöflugarðinum hjá Guðmundi og Sigurlaugu, eins og sá gamli var brjálaður þá voru gömlu hjónin í Ási pollróleg yfir garðinum sínum sem þó var í rúst. Það urðu miklar breytingar hjá okkur öllum þegar afi og amma fluttu frá Hrauni, þau stóðu sig eins og hetjur í öllum þessum umskiptum sem mér er nær að halda að hafi verið okk- ur hinum erfiðari, síðustu árin hafa þau dvalið á dvalarheimilinu Hlíð. Það var pínu skrýtið að útskýra fyr- ir börnunum mínum hvað við erum búin að vera heppin að fá að hafa afa svona lengi hjá okkur og hvað hann er líka búinn að vera heppinn að fá að hitta þau og öll litlu langafabörnin sín. Elsku amma, við sendum þér okkar hjartans samúðarkveðjur, þú hefur alltaf verið kletturinn í hafinu, við elskum þig. Kveðja, þín Guðrún Ágústa (Gútta). Elsku afi, þá er komið að kveðju- stundinni okkar og þó að stundirnar okkar hafi ekki verið margar þá voru þær samt alltaf góðar og hlýjar og ég á eftir að sakna þess að sjá þig ekki liggja í sófanum þínum brosandi, vona bara að sófinn sem að þú færð núna verði álíka góður og sá sem þú varst alltaf í þegar að ég kom til að hitta „nafna“. Daginn sem þú fórst frá okkur var veðrið ótrúlega gott og þú valdir besta daginn til þess að fara eins og þú hafir vitað af honum, það var sól og sjórinn alveg spegilsléttur, ekta veður fyrir sjóara eins og þig til að fara út á opið haf og njóta þess að vera á þeim stað sem að þér leið best á alla daga. Staðurinn sem þú ert á núna í huga mínum er hafið eins og það var þegar að þú fórst og veðrið líka. Veðrið sýndi allar sínar fallegustu hliðar eins og þú gerðir alltaf og þannig mun ég ávallt muna eftir þér. Afi, ég elska þig af öllu mínu hjarta og það er svo mikið sem ég lít upp til þín og vona að ég verði eins og þú. Þegar ég var lítill varst þú hetjan mín sem varst alltaf til í að gera allt með mér og ég gæti ekki verið stoltari að hafa átt þig fyrir afa minn og ég mun bera nafn okkar af miklu stolti því að í hvert skipti sem ég skrifa það niður þá hugsa ég til þín og brosi. Allar minningar um þig geymi ég vel því þær eru svo hlýjar og góðar. Þig sólin ávallt skín á, hetjan er far- in mér frá, siglir hafinu á. Minning- arnar um þig ég á. Sigurður Örn Kristjánsson (Nafni). SIGURÐUR KRIST- INN KRISTJÁNSSON ✝ Guðrún JónaJónsdóttir fædd- ist í Mýrarkoti í Lax- árdal í Austur-Húna- vatnssýslu 16. október 1919. Hún andaðist á Hrafnistu í Reykjavík 28. maí síðastliðinn. For- eldrar hennar voru Jón Kristvinsson og Guðný Anna Jóns- dóttir. Guðrún var fimmta í röð af átta systkinum sem kom- ust á legg. Systkini hennar á lífi eru Soffía, Jens Jóhannes og Róar. Látin eru Sigríður, Helga, Jón og Hólmfríður, d. 25. maí 2004. Eiginmaður Guðrúnar var Árni Björgvin Jósepsson, d. í Reykjavík 1996. Fyrsta barn þeirra hjóna, drengur, andaðist í fæðingu í mars 1947. Önnur börn þeirra eru: 1) Björn Sævar, maki frá fyrra hjónabandi Hildur Rúna Hauksdóttir (þau skildu), sonur þeirra er Arnar. Dóttir Hildar er Björk, sambýlismaður Matthew, börn hennar eru Sindri og Ísadóra. Seinni kona Sævars er Þóra Sverrisdóttir, dóttir þeirra er Telma Björk. Börn Þóru eru Guðrún, sambýlismaður Lár- us og dóttir þeirra Sunneva Embla, Rúnar, sambýlis- kona Anna og Guð- jón. 2) Anna Bára, maki Jónas Þór, börn þeirra Katrín Sif, sonur hennar er Björgvin Ari og Elsa María. 3) Árni Viðar, maki Auður Odd- geirsdóttir, börn þeirra Pétur, Anna og Arnrún. Sonur Árna Björgvins er Að- albjörn Snorri, maki Jóhanna Sverrisdóttir, sonur þeirra er Einar Finnur. Börn Jóhönnu eru Jón Ísfjörð, Bjargþór Ingi og Ljósbjörg Ósk. Útför Guðrúnar verður gerð frá Grensáskirkju í dag og hefst athöfnin klukkan 13.30. Guðrún Jónsdóttir tengdamóðir mín er látin á 85. aldursári. Hún var rétt tveggja ára gömul þegar hún flutti úr Laxárdalnum að Vatnsleysu í Viðvíkursveit í Skagafirði. Þar ólst hún upp ásamt sjö systkinum sínum. Guðrún átti fremur erfiða æsku vegna þess að hún þjáðist af liðagigt og þurfti að liggja langtímum saman í rúminu, stundum heilu veturna. Skólaganga hennar var af þessum sökum ekki mikil en Guðrún nýtti þó tímann vel og las mikið. Að því kom að hún yfirgaf föðurhús en fór þó ekki langt því um haustið 1943 hóf hún nám við Húsmæðraskólann á Blöndu- ósi. Námið þar sóttist henni vel eins og prófskírteini dagsett 15. maí 1944 sýnir en meðaleinkunn Guðrúnar var um 9.00. Dvölin á Blönduósi reyndist henni alla tíð gott veganesti því þar komu smekkvísi hennar og listrænir hæfileikar strax í ljós og bar heimili hennar þess ætíð vott. Ung kona flutti Guðrún til Akur- eyrar og þar kynntist hún verðandi eiginmanni sínum, Árna Björgvini Jósepssyni. Þau gengu í hjónaband 16. október 1947. Fjögur börn eign- aðist Guðrún, það fyrsta, drengur, lést í fæðingu en árið 1948 kom Björn Sævar í heiminn, þá Anna Bára og loks Árni Viðar. Manni sínum og börnum bjó hún ætíð fallegt og hlýlegt heimili. Það var hennar vettvangur í lífinu eftir að hún gekk í hjónaband og reyndist hún vera framúrskarandi húsmóðir. Hún var af þeirri kynslóð sem kunni að gera vel úr litlu hvort sem hún framreiddi ljúffengan málsverð eða saumaði flík. Stolt fylgdist hún með börnum sínum vaxa úr grasi og reyndist þeim ætíð góður vinur. Hún lét sig vandamál þeirra varða, hlýddi þolinmóð á flóknar lífskoðanir ung- lingsins, sem var að taka sitt fyrsta stóra skref út í lífið og þótt ekki væri hún endilega sömu skoðunar þá virti hún sjónarmið hans. Glöð kættist hún með honum yfir unnum sigrum og hvatti hann til afreka þegar henni þótti rétt stefna vera tekin. Og þegar verr gekk var hún ætíð til staðar til að hlusta og gefa góð ráð. Sítt hár og skegg sonanna eða stutt pils dóttur- innar voru bara tímanna tákn. Hjartalag þeirra þekkti hún og það eina skipti hana máli. Unglingurinn fullorðnast og maka- leit bar árangur. Hún tók fagnandi á móti tengdabörnum sínum, lagði sig fram við að kynnast þeim og öll nut- um við samverustunda á heimili hennar. Og ekki minnkaði gleðin þeg- ar barnabörnin fæddust. Ljósheimar 16, þar sem Guðrún og Árni bjuggu hin síðustu ár varð eins konar miðstöð stórfjölskyldunnar því varla leit maður þar við án þess að ekki væru þar gestir eða aðrir fjöl- skyldumeðlimir. Árni átti soninn Snorra sem ásamt konu og börnum áttu oft erindi til Reykjavíkur og áttu þau ætíð öruggt húsaskjól í Ljós- heimum 16. Árni féll frá vorið 1996 en Guðrún hélt áfram heimili í Ljósheimum. Þó vissi hún að sá dagur kæmi að best yrði fyrir hana að fara annað og að því kom að hún flutti á Hrafnistu. Þess- um breytingum á högum sínum tók hún jafnan æðrulaust. Á Hrafnistu naut hún sín vel. Henni þótti alla tíð afskaplega gaman að spila og þarna vantaði hana ekki spilafélaga. Sömuleiðis gafst henni kærkomuð tækifæri til listsköpunar en börn hennar öll njóta nú ávaxt- anna því á heimilum þeirra eru listi- lega málaðir dúkar eftir Guðrúnu. Ég votta aðstandendum hennar öllum mína dýpstu samúð. Jónas Þór. GUÐRÚN JÓNA JÓNSDÓTTIR Faðir okkar, JÓN E. GUÐMUNDSSON myndmenntakennari og brúðuleikhúsmaður, lést á Landspítalanum í Fossvogi föstudaginn 28. maí 2004. Útför hans fer fram frá Fossvogkirkju mánu- daginn 7. júní kl. 13.30. Fyrir hönd aðstandenda, Eyjólfur G. Jónsson, Sigurlaug Jónsdóttir, Marta Jónsdóttir. Eiginmaður minn, faðir, fóstri, tengdafaðir og afi, HALLDÓR GUÐMUNDSSON fyrrv. framkvæmdastjóri, Njarðvík, lést á Sjúkrahúsi Keflavíkur þriðjudaginn 1. júní. Steinunn Gunnarsdóttir, Oddný Halldórsdóttir, Valdimar Birgisson, Dórothea Herdís Jóhannsdóttir, Snæbjörn Reynisson, barnabörn og aðrir vandamenn. MORGUNBLAÐIÐ birtir afmælis- og minningargreinar endurgjalds- laust alla daga vikunnar. Greinunum má skila í tölvupósti (netfangið er minning@mbl.is - svar er sent sjálfvirkt um leið og grein hefur borist) eða á disklingi og þarf útprentun þá að fylgja. Nauðsynlegt er að til- greina símanúmer höfundar og/eða sendanda (vinnusíma og heima- síma). Tekið er á móti afmælis- og minningargreinum á 1. hæð í húsi Morgunblaðsins, Kringlunni 1 í Reykjavík, og á skrifstofu Morgun- blaðsins Kaupvangsstræti 1 á Akureyri. Ekki er tekið við handskrif- uðum greinum. Minningargreinum þarf að fylgja formáli með upplýsingum um hvar og hvenær sá sem fjallað er um er fæddur, hvar og hvenær dáinn, um foreldra hans, systkini, maka og börn og loks hvaðan útförin verður gerð og klukkan hvað. Ef birta á minningargrein á útfarardegi verður hún að berast fyrir hádegi tveimur virkum dögum fyrr. Ef útför er á sunnudegi, mánudegi eða þriðjudegi þurfa greinarnar að berast fyrir hádegi á föstudegi. Berist greinar hins vegar ekki innan hins tiltekna skilafrests er ekki unnt að lofa ákveðnum birtingardegi. Þar sem pláss er takmark- að getur þurft að fresta birtingu greina, enda þótt þær berist á réttum tíma. Birting afmælis- og minningargreina
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.