Morgunblaðið - 04.06.2004, Qupperneq 40

Morgunblaðið - 04.06.2004, Qupperneq 40
MINNINGAR 40 FÖSTUDAGUR 4. JÚNÍ 2004 MORGUNBLAÐIÐ ✝ ÞorgerðurHjálmarsdóttir fæddist í Dölum í Vestmannaeyjum 14. janúar 1921. Hún lést á Landspítala – háskólasjúkrahúsi í Fossvogi 28. maí síð- astliðinn. Foreldrar hennar voru Guð- björg Einara Helga- dóttir, f. á Gili í Fljótum í Skagafirði 16. okt. 1898, d. 23. júní 1958 og Hjálm- ar Jónsson, vélstjóri frá Dölum, f. í Ból- stað í Mýrdal í V-Skaftafellssýslu 5. júní 1899, d. 25. júlí 1968. Al- systkini Þorgerðar eru Jón Gunn- steinn, f. 1922, Kristín Helga Hjálmarsdóttir f. 1925, d. 1995, Lára Bragadóttir, f. 1951. Börn þeirra eru Eva Rós, f. 1975, Kristín Sif, f. 1983, Bjarni Freyr, f. 1987, Birta Rán, f. 1992 og Bragi Þór Gíslason, f. 1969. 2) Guðjón, f. 1949, sambýliskona Margaretha Ander- son. Dóttir hans og Sigríðar Jóns- dóttur, f. 1951 er Gerður Björk, f. 1969. 3) Halldór, f. 1953, maki Jens- ína Kristín Jensdóttir, f. 1955. Börn þeirra eru Guðný, f. 1975, Bjarni, f. 1978, Eydís, f. 1990 og Bjarki, f. 1997. 4) Hjálmar, f. 1958, maki Þór- ey Þóranna Þórarinsdóttir, f. 1961. Synir þeirra eru Þórarinn, f. 1983, Þráinn, f. 1987 og Þröstur, f. 1996. Barnabarnabörn Þorgerðar eru sjö. Þorgerður ólst upp á heimili for- eldra sinna í Vestmannaeyjum en flutti til Reykjavíkur árið 1937. Auk heimilisstarfa vann hún við ræsting- ar og síðar við afgreiðslu í Versl- uninni Kjalfell. Einnig var Borgar- spítalinn hennar vinnustaður árum saman, allt til starfslokaaldurs. Útför Þorgerðar fer fram frá Bú- staðakirkju í dag og hefst athöfnin klukkan 15. Svava, f. 1929, d. 1988, Sveinbjörn, f. 1931, Jakobína Bjarn- fríður, f. 1932 og sam- feðra er Markús, f. 1918. Þorgerður giftist 16. júlí 1945 Bjarna Benedikt Óskarssyni silfursmið, f. 3. mars 1920, d. 4. júní 1990. Foreldrar hans voru Halldóra Benedikts- dóttir, f. 19. júlí 1895, d. 3. júní 1942 og Björgvin Óskar Bene- diktsson, f. 28. júlí 1894, d. 3. júlí 1979. Þorgerður og Bjarni bjuggu all- an sinn búskap í Reykjavík. Þau eignuðust fjóra syni, sem eru: 1) Björgvin Óskar, f. 1945, maki Inga Óskar, Halldór, Hjalli nei Guðjón, átti mamma oft til að segja þegar hún vildi leggja ríka áherslu á orð sín við einhvern okkar. Fylgdi þá all- oft nöfn hinna bræðranna með þótt hún ætti orðastað við einn okkar. Hún var ekki há í loftinu, hún mamma, en annað við hana var stórt. Jafngeðja en með stórt skap. Hún flíkaði ekki tilfinningum sínum en var sá klettur í fjölskyldunni sem mörgum þótti gott að binda sitt fley eða leita vars við. Því hjartahlýju hafði hún næga og þáðu margir nær- veru hennar og umburðarlyndi. Já, hún var stór lítill klettur í tilveru margra í fjölskyldunni. Klettur sem oft braut á í kólgusjó lífsins en var óbifanlegur og lét aldrei á sjá. Oft var þröngt á Bústaðaveginum þegar okkar ættingjar í Vestmanna- eyjum komu „suður“. En það var samt alltaf nóg pláss. Að sjálfsögðu gengum við úr rúmi án þess að fjargviðrast eða kvarta. Auðvitað lærðum við ýmislegt af mömmu. Umhyggja fyrir afa Óskari lýsir geðslagi hennar bezt, en hann var heimilisfastur hjá okkur í yfir 30 ár. Aldrei heyrðum við hana segja styggðaryrði við eða um Óskar afa þótt þau ættu ekki endilega skap saman. Pabbi saup nú margar sjúkdóms- fjörurnar og allt lenti þetta á mömmu. En hún bugaðist aldrei, var keik og hnarreist, sama hvað á bját- aði. Hún var sterk og stolt og jákvæð kona, hún mamma. Þótt hún væri mjög félagslynd í eðli sínu var það ekki við það komandi að fara á elli- heimili eða þjónustuíbúð eins og við bræðurnir ítrekað stungum upp á. Sjálfstæði sitt varði hún af festu. Út- rætt mál. Enda flytur þú klettinn ekki svo auðveldlega. Það var stundum asi á henni mömmu, hvort það var óþolinmæði eða sjálfstæði hennar um að kenna þá átti hún til að koma hlutunum í verk sjálf í stað þess að bíða eftir að- stoð frá öðrum. Viku fyrir andlátið fór hún í rannsókn á Borgarspítal- ann (eins og hún kallaði hann alltaf) og fór auðvitað gangandi, hvað ann- að. Þegar heim var komið fékk hún að vita að hún þyrfti að leggjast inn. Alger óþarfi að bíða eftir Hjalla til að skutla sér aftur á Borgó. Hún setti nokkra hluti í tösku og hélt fót- gangandi út á Borgarspítala. Þaðan átti hún ekki afturkvæmt. Synir. Elsku tengdamamma og amma. Ekki datt okkur í hug þegar þú varst lögð inn á spítala fyrir viku að þú færir ekki heim í Álandið aftur, þú sem alltaf varst hress, og mikið erum við glöð að þú þjáðist ekkert þínar síðustu stundir hér. Aldrei er maður undir það búinn þegar ástvin- ur manns fer, alveg sama þótt hann sé 83 ára, en nú ertu komin til hans afa og það ertu nú örugglega ánægð með, elsku amma. Mikið verður nú skrýtið að fara ekki oftar í Álandið til þín, þú sem alltaf varst svo ánægð að fá okkur í spjall, gistingu, eða vera tekin í bíl- túr eða búðarrölt. Mikið var amma ánægð þegar Bjarni bjó hjá henni í rúmt ár meðan hann kláraði námið, hafði þá nóg að hugsa um og spjalla við, og það líkaði henni nú. Alltaf var amma dugleg að ferðast með okkur, bæði innanlands og utan, og einnig var hún dugleg að koma í heimsókn til okkar út í Eyjar þar sem hún naut þess að vera hér og dvaldi hún þá oftast í dágóðan tíma og heim- sótti þá fjölskyldu og vini. Mikið verður nú skrýtið að hafa þig ekki hjá okkur á fleiri jólahátíðum en þú hefur verið oft hjá okkur eftir að afi dó. Sárt finnst okkur að þú fáir ekki að sjá litla krílið sem Guðný á von á nú í júní og komir ekki í brúðkaupið mitt sem þú varst búin að spyrja svo oft um hvenær yrði. Við eigum oft eftir að hugsa til þín á þessum stundum. Elsku amma, við eigum eftir að sakna þín mikið en þó verður skrýtið að halda upp á merka áfanga án þín, þú sem varst alltaf svo dugleg að mæta í allt svoleiðis. Guð geymi þig. Þín tengdadóttir og barnabörn í Eyjum Jensína Kristín, Guðný, Bjarni, Eydís og Bjarki. Elsku Gerða mín. Ég og strákarnir hans Hjalla þíns viljum þakka þér allar samveru- stundirnar, sem við höfum átt sam- an í gegnum árin. Í hraða lífsins fannst manni þessar stundir svo sjálfsagðar, en þegar nú er komið að leiðarlokum svo snöggt, þá munum við geyma þessar stundir í hjarta okkar, eins og hann Þröstur minn orðar það gjarnan, og ylja okkur við góðar minningar. Nú ertu, Gerða mín, komin til hans Bjarna þíns eftir fjórtán ára aðskilnað. Megir þú hvíla í friði. Þín tengdadóttir Þórey, Þórarinn, Þráinn og Þröstur. Elsku amma. Ég kveð þig með söknuði en geymi hjá mér minningu um ynd- islega ömmu. Það var alltaf svo gott að koma til þín, bæði á Bústaðaveg- inn og í Álandið. Þú hafðir svo góða nærveru og sýndir mér endalausa þolinmæði. Ég man þá tíð er ég fór á handahlaupum um húsið sem krakki og talaði alltof hratt. Seinna sagðir þú mér að oft skildir þú ekki orð af því sem ég sagði, æðubunugangur- inn var svo mikill. Mikið höfum við rætt núna í seinni tíð en áttum eftir að ræða miklu meira og hittast oft í Álandinu og sitja í eldhúsinu, fara í búðina, en því miður hefur það verið tekið frá okk- ur í einni hendingu með skyndilegu fráfalli þínu. Þú varst mér alltaf svo blíð og góð og barst þig alltaf vel. Í gegnum þig gafst mér tækifæri á að fylgjast með föðurfólkinu mínu, sem hefur verið mér afar dýrmætt. Með orðum spámannsins kveð ég þig, elsku amma, með kærri þökk fyrir allt og allt og minningin um þig mun fylgja mér um ókomna tíð. Þegar þú ert sorgmæddur, skoðaðu þá aft- ur huga þinn, og þú munt sjá, að þú græt- ur vegna þess, sem var gleði þín. Þín Gerður Björk. Nú legg ég augun aftur, ó, Guð, þinn náðarkraftur mín veri vörn í nótt. Æ, virst mig að þér taka, mér yfir láttu vaka þinn engil, svo ég sofi rótt. (Sveinbjörn Egilsson.) Elsku langamma. Takk fyrir allar góðu stundirnar sem við áttum með þér. Sofðu rótt. Þínir langömmustrákar í Eyjum, Arnar Smári og Egill Aron. Elsku amma, en það kallaði ég þig alltaf þótt þú væri langamma mín, nú ert þú komin til langafa og Sáms. Þeim kynntist ég aldrei en við töl- uðum um þá og við skoðuðum mynd- ir af þeim. Alltaf þegar ég kom í heimsókn til þín með mömmu varst þú mér svo góð, við sátum í eldhús- inu og töluðum saman og ég fékk ís. Þannig man ég þig, yndislega ömmu sem alltaf tók vel á móti mér með bros á vör. Erla Rut. ÞORGERÐUR HJÁLMARSDÓTTIR Lokað Lokað í dag vegna jarðarfarar SIGURÐAR FRÍMANNS ÞORVALDSSONAR. Malbikunarstöðin Höfði, Sævarhöfða 6-10. Móðir okkar, tengdamóðir, amma og lang- amma, RÓSA HALLDÓRA HANSDÓTTIR, Hrafnistu í Reykjavík, lést miðvikudaginn 2. júní. Börn og tengdabörn. Ástkær eiginmaður minn, faðir okkar, tengda- faðir, afi og langafi, ÞÓRIR GUÐMUNDSSON, Kleppsvegi 62, Reykjavík, lést á Clinica Salus sjúkrahúsinu, Benalmad- ena á Spáni að morgni mánudagsins 31. maí. Jarðarförin verður auglýst síðar. Arnfríður Snorradóttir, Methúsalem Þórisson, Oddný Þórisdóttir, Ragnar Karlsson, Snorri Þórisson, Erla Friðriksdóttir, Soffía J. Þórisdóttir, Baldur Dagbjartsson, Ragna B. Þórisdóttir, Gylfi G. Kristinsson, barnabörn og barnabarnabörn. Móðir okkar, FJÓLA HARALDSDÓTTIR, lést á hjúkrunarheimilinu Sóltúni miðvikudaginn 2. júní. Steinunn Guðmundsdóttir, Óttar Guðmundsson. Ástkær eiginkona mín og móðir, SIGRÍÐUR KRISTÍN HALLDÓRSDÓTTIR, til heimilis í Ásgarði 119, lést á Landspítalanum miðvikudaginn 2. júní. Útför verður auglýst síðar. Björn Davíð Kristjánsson, Davíð Freyr Björnsson. ÍDA INGÓLFSDÓTTIR fyrrv. forstöðukona á barnaheimilinu Steinahlíð, lést á Droplaugarstöðum aðfaranótt fimmtudagsins 3. júní. Útförin verður auglýst síðar. Aðstandendur. Minn ástkæri eiginmaður og besti vinur, INGIMUNDUR ÓLAFSSON, Frostafold 49, Reykjavík, andaðist á Landspítalanum Hringbraut mið- vikudaginn 2. júní. Erna Eden Marinósdóttir. Ástkær eiginmaður minn, sonur, faðir okkar, tengdafaðir og afi, MARINÓ JÓNSSON, Höfðahlíð 1, Akureyri, lést á Fjórðungssjúkrahúsinu á Akureyri þriðjudaginn 18. maí sl. Útförin hefur farið fram frá Höfðakapellu í kyrrþey að ósk hins látna. Þökkum auðsýndan hlýhug. Hrönn Hámundardóttir, Guðríður Jóna Waage, Jón Hámundur Marinósson, Nanna Guðrún Marinósdóttir, Haukur Nikulásson, Edda Lydía Marinósdóttir, Jóhann Ingason, Eydís Ásta Marinósdóttir, Vala Dögg Marinósdóttir, Guðmundur Otti Einarsson, Marinó Marinósson, Ágústa Björk Árnadóttir og aðrir aðstandendur.
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.