Morgunblaðið - 04.06.2004, Síða 44

Morgunblaðið - 04.06.2004, Síða 44
MINNINGAR 44 FÖSTUDAGUR 4. JÚNÍ 2004 MORGUNBLAÐIÐ ✝ Þórunn Jónsdótt-ir fæddist á Keis- bakka í Skógar- strandarhreppi á Snæfellsnesi 8. des- ember 1918. Hún lést á Landspítala við Hringbraut fimmtu- daginn 27. maí síð- astliðinn. Foreldrar hennar voru Jón Loftsson, bóndi á Keisbakka, f. 27. júní 1876, d. 10. ágúst 1939, og kona hans Þórunn Magnúsdótt- ir ljósmóðir, f. 19. nóvember 1878, d. 24. desember 1960. Þórunn var yngst fimm systk- ina sem öll eru látin, en hin voru: Sigurlaug María, f. 10. júlí 1908, d. 5. maí 1990, Daníel, sem lést ungur, Guðrún, f. 20. október 1913, d. 21. f. 18. desember 1946. Börn þeirra eru Friðrik Þór, f. 7. janúar 1973, maki Helga Björk Vilhjálmsdóttir, f. 10. júní 1974, sonur þeirra Dagur Þór, f. 4. september 2003, Pétur, f. 26. maí 1977 og Garðar, f. 29. janúar 1982. 3) Dagný, prófessor við Háskóla Ís- lands, f. á Ísafirði 19. maí 1949, maki Kristján Jóhann Jónsson, f. 10. maí 1949. Synir þeirra eru Snorri Hergill, f. 19. desember 1974 og Árni, f. 28. desember 1983. Þórunn stundaði nám við Alþýðu- skólann að Laugarvatni 1935–1936, síðan við Kennaraskólann í Reykja- vík 1941–1943 og lauk kennaraprófi 1943. Hún vann á leikskóla Sumar- gjafar, Tjarnarborg 1941–1943. Þór- unn og Kristján bjuggu á Ísafirði 1943–1950 og fluttust þá til Akureyr- ar. Þórunn var virkur félagi í Odd- fellowstúkunni á Akureyri. Árið 1963 fluttu þau til Reykjavíkur og settust að á Tómasarhaga 47. Þórunn var kennari við Melaskólann í Reykjavík 1970–1986. Útför Þórunnar verður gerð frá Grensáskirkju í dag og hefst athöfn- in klukkan 11. mars 1992, og Gunnar, f. 29. janúar 1916, d. 26. nóvember 1969. Þórunn giftist 23. september 1943 Krist- jáni Jónssyni borgar- dómara, f. á Stað á Reykjanesi í Reyk- hólahreppi í Austur- Barðastrandarsýslu 22. ágúst 1914, d. í Reykjavík 12. apríl 1970. Eignuðust þau þrjú börn, þau eru: 1) Jón Atli hagfræðing- ur, f. í Reykjavík 14. ágúst 1943, maki María Þorgeirsdóttir, f. 15. desem- ber 1944. Börn þeirra eru Kristján, f. 17. nóvember 1971 og Kolbrún Vala, f. 7. mars 1974. 2) Snæbjörn verkfræðingur, f. á Ísafirði 1. mars 1945, maki Guðrún Garðarsdóttir, Þórunn Jónsdóttir var eftirminni- leg manneskja. Hún var greind kona, glæsileg og vel máli farin og viðhorf hennar til lífsins heillandi og vitur- legt. Ég var ungur þegar ég kom fyrst á heimili þeirra Kristjáns á Tómasar- haganum og átti síðan eftir að búa þar hjá þeim í mörg ár. Heimilishald þeirra var myndarlegt og rekið sam- kvæmt gróinni verkaskiptingu. Krist- ján var duglegur að afla tekna og hún var úrræðagóð og snjöll húsmóðir. Mér fannst ungum manninum að embætti Kristjáns fylgdi mikil virð- ing og það gerði það líka. Hins vegar sinnti Þórunn störfum sínum af sjálfs- virðingu og í hennar meðförum hall- aðist ekkert á í hlutverki húsmóður- innar og borgardómarans. Með þeim var jafnræði og það var vegna þess lykilatriðis í lífsviðhorfi Þórunnar Jónsdóttur að væri manneskjan trú sínum viðfangsefnum bæri henni virðing. Látleysi og heiðarleiki voru meðal þeirra dyggða sem hún mat mest. Sterkur þáttur í skilningi Þórunnar á mannlífinu lá í þekkingu hennar á bókmenntum, sögu og öðrum mann- vísindum. Hún þekkti sögur af örlög- um manna og vissi að: „líf okkar hratt fram hleypur, hafandi enga bið“ svo vísað sé til orða sálmaskáldsins. Það var nánast sama hvar brotið var upp á bókmenntalegri umræðu við Þórunni. Hún hafði alltaf eitthvað skynsamlegt og skemmtilegt fram að færa og kunni svo sannarlega margt fyrir sér í þeim fræðum. Það sem þú áorkar meðan þú lifir liggur eftir þig í mannlífinu. Móðir Þórunnar var ljósmóðir og ég held að frá henni hafi Þórunn að hluta til haft þann grundvallarskilning sinn að manneskjan væri það langmikilvæg- asta í heimi mannanna. Þetta kom skýrt og fallega fram þegar Kristján dó, langt fyrir aldur fram, og Þórunn stóð frammi fyrir því að taka aftur upp störf sem barnakennari eftir langa fjarveru frá bæði námi og starfi á því sviði. Henni þótti vænt um nem- endur sína í Melaskólanum og hún lagði mikla rækt við þá. Eitt af því sem einkenndi Þórunni alla tíð var að hún var mikill víkingur til vinnu. Hún átti í vinnubrögðum sínum þrautseigju þeirrar íslensku bændastéttar sem hefur lifað í þessu landi öld fram af öld og aldrei guggn- að á því að gera það sem þarf að gera. Að þessu leyti var Þórunn dæmi- gerð fyrir margt úrvalsfólk frá tutt- ugustu öld. Hún fæddist 1918 og þroskaðist og mótaðist í samfélagi sem var bjartsýnt og framfarasinnað. Þjóðin varð sjálfstæð og uppbygging- in var framundan. Hins vegar er eng- in ástæða til þess að stinga því undir stól að Þórunn Jónsdóttir hefði vissu- lega getað notið sín betur en hún gerði á sínum bestu árum. Margar hæfileikakonur fyrri ára gátu ekki látið til sín taka eins og rétt og eðlilegt hefði verið vegna almennra viðhorfa til kvenna og hæfileikar þeirra nýtt- ust ekki sem skyldi í þágu þjóðarinn- ar. Þórunn var ein þeirra sem horfð- ust í augu við þetta en svaraði viðhorfi samfélagsins með því að halda sjálfs- virðingu sinni og slá aldrei af kröf- unum til þeirra verka sem hún vann. Hún var vissulega kröfuhörð til sinna samverkamanna en gerði þó alltaf mestar kröfur til sjálfrar sín. Hún studdi ótrauð við bakið á börnum sín- um meðan hún hafði þrek og heilsu til og þau hafa öll náð langt. Góður ár- angur þeirra stafar ekki síst af þeirri virðingu sem þau hafa ætíð borið fyrir viðfangsefnum sínum og störfum. Þar hafa þau framar öðru notið móður sinnar og viðhorfs hennar til lífsins og þeirra verkefna sem það ætlar manni. Ég veit að ég tala fyrir hönd barna, tengdabarna og barnabarna þegar ég segi að lokum að við minnumst Þór- unnar ekki einungis með sorg vegna fráfalls hennar heldur einnig með hlýju og blíðu fyrir þær mörgu og góðu stundir sem við áttum með henni í lifanda lífi. Sumar manneskjur eru þannig gerðar að þegar þær hverfa af sjónarsviðinu hverfa þær samt ekki. Þær hafa gert þá sem eftir stóðu að betri manneskjum og lifa áfram í þeim og verkum þeirra. Þann- ig var Þórunn Jónsdóttir. Kristján Jóhann Jónsson. Í fyrra Korintubréfinu stendur þetta um kærleikann og það á við um Þórunni. Kærleikurinn er langlyndur, hann er góðviljaður. Kærleikurinn öfundar ekki. Kærleikurinn er ekki raupsamur, hreykir sér ekki upp. Hann gleðst ekki yfir óréttvísinni, en sam- gleðst sannleikanum. Við leiðarlok langar mig að minnast ástkærrar tengdamóður minnar Þór- unnar Jónsdóttur. Hennar aðals- merki voru fyrst og fremst trú- mennska, trygglyndi og góð nærvera. Hún sáði fræjum friðar og góð- mennsku, ekki óvildar og sundrung- ar. Hún fann ætíð það góða í fólki og ræktaði það og gaf því trú á sjálft sig og aðra. Hún unni allri fegurð og kveikti neista hennar í sálina. Hún umbar þrautir og veikindi af æðru- leysi og var mér hin sterka fyrirmynd sem ég verð henni ætíð þakklát fyrir. Af henni lærði ég það sem raun- verulega skiptir máli í lífinu. Hún gaf mér góðan mann og börnin mín líkjast henni. Hún kenndi mér að meta fagrar listir, ekki síst listina að lifa. Hún sáði fræjum öryggis og friðar í sálir manna, enda vita allir sem hana þekktu hvern mann hún hafði að geyma. Þar sem öllum öðrum trjám of lágt þótti að gróa, undir skuggaholtum hám, hneppt við sortaflóa. Sprastu háa, gilda grön, grænust allra skóga. Þér hefur víst á vetrum þrátt verið kalt á fótum: svell við stálhart, sterkt og blátt stappa votum rótum, berja frost úr fagurlims fingri og liðamótum. Samt þú vóxt og varðst svo há, viðir laufi klæddir – sem þó vóru ofan á undir hleðslum fæddir – teygja sig þinn topp að sjá, teinar veðurmæddir. (Stephan G. Stephansson.) Víst er sorgin sár og missirinn mik- ill, en þú munt ætíð lifa meðal okkar og veita okkur traust og trú á lífið. María Þorgeirsdóttir. Við sjáum að dýrð á djúpið slær, þó degi sé tekið að halla. Það er eins og festingin færist nær, og faðmi jörðina alla. Svo djúp er þögnin við þína sæng, að þar heyrast englar tala, og einn þeirra blakar bleikum væng, svo brjóst þitt fái svala. Nú strýkur hann barm þinn blítt og hljótt, svo blaktir síðasti loginn. En svo kemur dagur og sumarnótt, og svanur á bláan voginn. (Davíð Stefánsson frá Fagraskógi.) Hvíldu í friði Guðs, elsku amma mín. Ég geymi þig í hjarta mér þangað til við hittumst á ný, þín Kolbrún Vala. Mig langar til að minnast í örfáum orðum elskulegrar tengdamóður minnar, Þórunnar Jónsdóttur. Liðin eru þrjátíu og átta ár síðan leiðir okk- ar lágu saman og minnist ég með hlý- hug og söknuði allra samverustunda okkar á þessum tíma en ekki var hægt að hugsa sér betri tengdamóð- ur. Þórunn var alltaf reiðubúin að rétta hjálparhönd þegar til hennar var leit- að og voru barnabörnin æði oft í pöss- un á Tómasarhaganum eða hún flutti heim til okkar og gætti bús og barna. Enda hafði hún yndi af því að um- gangast unga fólkið í fjölskyldunni. Það sem mér fannst einkenna Þór- unni var hversu hjálpsöm hún var og hvernig hún lét hagsmuni annarra ganga fyrir sínum eigin. Þórunn hafði mikið yndi af lestri góðra bóka og var vel að sér um ljóð og bókmenntir. Þessi fallega kona frá Keisbakka á Skógarströnd bar með sér innri feg- urð og fágun sem lét öllum sem voru samvistum við hana líða vel. Ég þakka af heilum hug allt sem þú varst okkur og bið góðan guð að geyma þig, elsku tengdamamma. Guðrún Garðarsdóttir (Dúa). Þegar við bræður settumst niður og minntumst Þórunnar ömmu okkar kom ýmislegt fram. Það fyrsta sem við mundum báðir eftir var að það var alltaf nóg til heima hjá ömmu – nóg af vöfflum, rabbabarasultu, tíma til að leika eða spá í spil. Amma hafði alltaf tíma til að spjalla og las iðulega upp- hátt úr allskyns barnabókum fyrir unga sveina sem áttu það til að skríða uppí. Það var ekki fyrr en við urðum eldri að við áttuðum okkur á því hversu óbilandi dugnað og gáfur þarf til þess að halda sínu eigin heimili og heimili annarra snyrtilegu, ala upp börnin sín og barnabörnin og vera samt vel lesin fyrrverandi grunn- skólakennari sem gat haldið uppi samræðum um hvað sem er. Listinn yfir það sem hún kenndi okkur bræðrum verður ekki tíundaður hér sökum lengdar, en hann nær yfir allt frá faðirvorinu að því hvernig átti að ganga frá jakkafötum, með viðkomu í einföldum og tvöföldum bindishnút. Viljastyrkur og metnaður ömmu fylgdi foreldrum okkar, og Þórunn Jónsdóttir, kvenskörungur og amma af gamla skólanum, mun lifa í gildum og viðmiðum okkar bræðra eins lengi og við lifum. Snorri Hergill og Árni. Þegar ég minnist Þórunnar ömmu kemur margt upp í hugann. Hún var góð kona, mikill fróðleiksbrunnur, víðlesin og hafði upplifað tímana tvenna. Fróðleiknum miðlaði amma meðal annars með ferðum á Þjóð- minjasafnið þegar ég var lítill og vakti þannig áhuga minn á íslenskri menn- ingu. Við ráðgerðum að fara á Þjóð- minjasafnið að loknum endurbótum í haust en af því verður því miður ekki. Þórunn amma vakti líka áhuga minn á bókum og íslensku máli með því að lesa fyrir mig. Seinna meir fékk ég stundum lánaðar bækur hjá henni. Það kom sér einnig vel að geta leitað til ömmu þegar ég skrifaði ritgerðir í íslensku. Ég man vel eftir því þegar ég var eitt sinn í heimsókn hjá ömmu, ellefu ára. Þá sátum við og spjölluðum inni í stofu á Tómasarhaganum og amma sagði að það væri hægt að tala við mig eins og fullorðinn. Þá var ég mjög stoltur. Síðustu árin hjá ömmu einkennd- ust af versnandi Alzheimer-sjúkdómi. Stundum töluðum við saman um versnandi minni og fyrir ekki svo löngu líkti hún minnisleysinu við að fara út í búð en eiga svo engan pening. Hún lýsti því hve verðmætt minnið er og spurði hver maður væri án minn- inganna. Amma dó á Landspítalanum í síð- astliðinni viku eftir stutt veikindi. Ég er þakklátur fyrir að hafa kynnst konu eins og henni. Ég mun ávallt minnast hennar. Pétur Snæbjörnsson. Mig langar að minnast í örfáum orðum móðursystur minnar Þórunn- ar sem lést 27. maí síðastliðinn. Þór- unn var fædd og alin upp á Keisbakka á Skógarströnd, yngst 5 systkina. Í þá daga var ekki svo sjálfsagt að fólk færi í meira nám en barnaskóla en hún virðist hafa verið áhugasöm um að afla sér menntunar. Hún fór ung í Héraðsskólann á Laugarvatni og síð- an í Kennaraskóla Íslands og lauk þaðan kennaraprófi. Fyrstu minningar mínar um Þór- unni frænku mína eru frá því að ég var lítil stelpa í sveitinni á Ósi, hún var mikil uppáhaldsfrænka, svo góð og falleg og ekki lítið varið í hversu viljug hún var að segja okkur systkinunum sögur, þær kunni hún margar enda víðlesin og vel gefin kona og hafði skemmtilega frásagnargáfu. Seinna þegar hún var komin með mann og börn kom svo öll fjölskyldan í sumarheimsóknir í sveitina og voru þau miklir aufúsugestir enda gott samband milli þeirra systra og fjöl- skyldna þótt langt væri á milli heim- ilanna. Börn Þórunnar voru í sumardvöl á Ósi og ég aftur á móti bjó á þeirra heimili á Akureyri alla veturna sem ég var þar í skóla, það var ekki verið að telja það eftir að taka ungling inn á heimilið hjá 5 manna fjölskyldu í 3ja herbergja íbúð. Það þætti ekki öllum mögulegt í dag. Seinna þegar mín börn fóru að heiman í skóla fengu þau að búa meira og minna á hennar heimili svo við eigum henni mikið að þakka fjöl- skyldan. Heimili þeirra hjóna Þór- unnar og Kristjáns var smekklegt og hlýlegt, þar ríkti gestrisni og alltaf var þangað gott að koma. Það var henni mikið áfall þegar Kristján féll frá langt um aldur fram, en það var ekki henni líkt að leggja ár- ar í bát. Hún nýtti sitt kennarapróf og fór að kenna í Melaskóla og starfaði þar í mörg ár og hélt heimili með börnum sínum með sömu reisn og áður. Ég vil að leiðarlokum þakka Þór- unni frænku minni fyrir öll gæði og elskulegheit sem hún ávallt sýndi mér og fjölskyldu minni. Blessuð sé minning hennar. Börnum hennar, tengdabörnum og barnabörnum sendi ég innilegar sam- úðarkveðjur. María Guðmundsdóttir. ÞÓRUNN JÓNSDÓTTIR  Fleiri minningargreinar um Þór- unni Jónsdóttur bíða birtingar og munu birtast í blaðinu næstu daga. Þökkum hlýhug og samúð við andlát og útför móður minnar, tengdamóður, ömmu og lang- ömmu, KATRÍNAR MARÍNAR VALDIMARSDÓTTUR frá Bolungarvík. Dagbjartur Þorbergsson, Álfdís Jakobsdóttir, ömmubörn og langömmubörn. Systir okkar, JÓHANNA EDDA SUMARLIÐADÓTTIR, lést á Landspítalanum Fossvogi sunnudaginn 23. maí sl. Útförin hefur farið fram í kyrrþey. Óli Rafn Sumarliðason, Hrafnhildur Sumarliðadóttir, Þóra Sumarliðadóttir. Ástkær móðir okkar, tengdamóðir, amma og langamma, SVAFA HILDUR HALLDÓRSDÓTTIR, Sörlaskjóli 7, lést á hjúkrunarheimilinu Eir fimmtudaginn 27. maí. Dóra Sigurlaug Juliussen, Karl Marinósson, Anna Karin Juliussen, Guðmundur Kristjánsson, Eiríkur Ingibergsson, Susanne Götz, Ragnar Ingibergsson, Sigríður Ólafsdóttir, Hjálmar Karlsson, Egill Karlsson, Jóhannes, Kristján, Símon, Geri, Vilji.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.