Morgunblaðið - 04.06.2004, Síða 54
ÍÞRÓTTIR
54 FÖSTUDAGUR 4. JÚNÍ 2004 MORGUNBLAÐIÐ
UPPSELT er á landsleik Englend-
inga og Íslendinga sem fram fer á
City of Manchester Stadium á
morgun. Um 48.000 miðar voru í
boði og seldust þeir allir. Það voru
ekki margir áhorfendur á fyrsta
leiknum í þriggja landa mótinu þar
sem Japanar og Íslendingar áttust
við. Og það var ekki uppselt á leik
Englands gegn Japan sl. þriðjudag.
Völlurinn er í eigu Manchester City
og var hann tekinn í notkun árið
2002 en hann var aðalkeppnisvöll-
urinn á Samveldisleikunum sem
fram fór sama ár í Manchester. Bú-
ið er að fjarlægja hlaupabrautina
sem var umhverfis völlinn á þeim
tíma og þykir völlurinn vera í hópi
þeirra glæsilegustu á Englandi.
Uppselt í
Manchester
HEIÐAR Davíð Bragason, kylfingur
úr GKj, féll úr keppni í 16 manna úr-
slitum á Opna breska áhuga-
mannamótinu í golfi sem haldið er á
St. Andrews-vellinum.
Heiðar Bragi lék í gærmorgun í 32
manna úrslitum í holukeppninni og
lagði þá Kevin McAlpine á síðustu
holu. Seinni partinn í gær mætti hann
síðan Eric Ramsay í 16 manna úrslit-
um. Heiðar tapaði fyrir Eric Ramsey
5:4, það er að segja Ramsey átti fimm
holur á Heiðar þegar fjórar voru eftir.
Alls voru 288 keppendur sem hófu
leik í höggleik á mótinu þar sem 36
holur voru leiknar. Eftir þær komust
80 efstu áfram í holukeppnina og verð-
ur það að teljast gott hjá Heiðari að ná
í 16 manna úrslit.
Heiðar féll
úr keppni
ÚRSLIT
KNATTSPYRNA
1. deild karla
Stjarnan - Þróttur ....................................2:2
Ingi Þór Arnarsson (52.), Guðjón Baldvins-
son (59.) - Hjálmar Þórarinsson (45.), Páll
Einarsson (88. vsp.).
Staðan:
Njarðvík 3 3 0 0 8:2 9
Valur 3 2 1 0 7:2 7
Þór 3 1 2 0 3:1 5
Þróttur R. 4 1 2 1 3:4 5
Völsungur 3 1 1 1 5:4 4
Stjarnan 4 1 1 2 7:8 4
HK 3 1 1 1 2:5 4
Haukar 3 1 0 2 5:5 3
Breiðablik 3 1 0 2 2:6 3
Fjölnir 3 0 0 3 3:8 0
3. deild D
Fjarðabyggð - Neisti D.............................6:0
Staðan:
Fjarðabyggð 3 2 0 1 12:3 6
Neisti D. 3 2 0 1 4:6 6
Huginn 1 1 0 0 3:1 3
Einherji 2 1 0 1 2:3 3
Leiknir F. 2 1 0 1 2:5 3
Sindri 1 0 0 1 0:2 0
Höttur 2 0 0 2 0:3 0
1. deild kvenna C
Höttur - Sindri...........................................0:6
Staðan:
Sindri 2 1 1 0 9:3 4
Fjarðabyggð 1 0 1 0 3:3 1
Höttur 1 0 0 1 0:6 0
Undankeppni HM 2006
Suður-Ameríka:
Brasilía - Argentína .................................3:1
Ronaldo 16., 67., 90., öll úr vítaspyrnum -
Sorin 79.
Vináttulandsleikur
Liechtenstein - Grikkland .......................0:2
Zivis Vryzas 24., Angelos Charisteas 89.
KNATTSPYRNA
1. deild karla
Akureyrarvöllur: Þór - Breiðablik............20
Hlíðarendi: Valur - Njarðvík.....................20
Kópavogsvöllur: HK - Haukar..................20
2. deild karla
Varmárvöllur: Afturelding - Víkingur Ó. 20
Helgafellsvöllur: KFS - Leiknir R. ..........20
ÍR-völlur: ÍR - Leiftur/Dalvík ..................20
3. deild karla
Tungubakkavöllur: Deiglan - Afríka ........20
Gróttuvöllur: Grótta - Skallagrímur.........20
Þróttarvöllur: Númi - Freyr .....................20
Sandgerðisvöllur: Reynir S. - ÍH..............20
Hofsósvöllur: Neisti H. - Magni................20
Siglufjarðarvöllur: GKS - Hvöt.................20
Árskógsvöllur: Reynir Á - Snörtur...........20
Sindravellir: Sindri - Huginn ....................20
Vilhjálmsvöllur: Höttur - Einherji ...........20
1. deild kvenna A
Keflavíkurvöllur: Keflavík - Haukar ........20
Þorlákshafnarvöllur: Ægir - UMF Bess..20
Í KVÖLD
FÓLK
ÍSLENSKA landsliðið æfði í gær á
einu af þremur æfingasvæðum ensku
bikarmeistaranna úr Manchester
United. Alls eru 19 leikmenn í ís-
lenska hópnum og tóku þeir allir þátt
á æfingunni sem stóð yfir í tvær
klukkustundir.
LOGI Ólafsson, þjálfari íslenska
liðsins, sá um að stjórna æfingunni og
að venju komst hann skemmtilega að
orði þegar hann lýsti æfingum dags-
ins: „Háar hnélyftur og síðan setjum
við hælana í sitjandann,“ glumdi yfir
æfingasvæðið er íslenska liðið hitaði
upp undir stjórn Loga. Ásgeir Sig-
urvinsson stóð álengdar og fylgdist
með frá hliðarlínunni og lagði á ráðin
með Loga þegar það átti við.
VEÐRIÐ í Manchester er ágætt
þessa dagana og veðurspáin segir að
skýjað verði í borginni næstu daga
með smá skúrum af og til. Lofthitinn
er um 20 stig yfir daginn og verður
svipaður hiti næstu daga.
SJÓNVARPSMENN frá Sky
fréttastofunni mættu á æfingu liðsins
auk ljósmyndara frá enskum fjölmiðl-
um. Eftir æfinguna voru tekin viðtöl
við Eið Smára Guðjohnsen, Her-
mann Hreiðarsson og Árna Gaut
Arason og voru þau viðtöl sýnd á
sjónvarpsstöðinni í gær. Mikið er
fjallað um enska landsliðið í fjölmiðl-
um á Englandi enda er stutt í að liðið
haldi á Evrópumeistaramótið í
Portúgal.
LEIKURINN gegn Íslandi verður
sá síðasti hjá liðinu fyrir EM og bíða
enskir fjölmiðlar í ofvæni eftir því að
enska liðið nái sér á strik gegn Íslend-
ingum á laugardag.
KRISTLEIFUR Brandsson,
sjúkraþjálfari íslenska liðsins, var lík-
lega sá maður sem hljóp mest á æf-
ingu íslenska liðsins. Lítið var að gera
hjá Kristleifi utan vallar þar sem allir
leikmenn liðsins eru heilir. Kristleif-
ur skokkaði um æfingasvæðið á með-
an æfingin stóð yfir og sló hvergi af á
sprettinum.
KR-ingarnir Kristján Sigurðsson
og Kristján Finnbogason komu til
Manchester á miðvikudag eftir að
hafa leikið með KR gegn ÍBV í Eyjum
sl. þriðjudag.
NAFNARNIR flugu til London á
miðvikudag og flugu frá London til
Manchester í kjölfarið.
ARGENTÍNUMAÐURINN Juan
Sebastian Veron, leikmaður Chelsea,
mun leika með Inter Mílanó á næstu
leiktíð. Hann verður í ársláni á Ítalíu.
Veron var keyptur til Chelsea frá
Manchester United síðasta sumar en
Jose Mourinho, nýráðinn knatt-
spyrnustjóri Chelsea, telur að ekki sé
þörf fyrir hann hjá liðinu. „Ég er
mjög ánægður og hlakka til að leika
með Inter næsta vetur,“ sagði Veron.
REAL Sociedad hefur ráðið Jose
Maria Amorrortu sem þjálfara í stað
Raynald Denoueix sem rekinn var
frá félaginu. Amorrortu þjálfaði áður
annarar deildar liðið Eibar.
ÁRNI GAUTUR Arason, landsliðs-
markvörður Íslands, verður á
heimavelli á laugardaginn gegn
Englendingum en hann var á mála
hjá Manchester City eftir áramót
og lék tvo leiki með aðalliðinu í
ensku bikarkeppninni. Árni Gautur
verður ekki áfram hjá City á næstu
leiktíð en hefur verið að þreifa fyrir
sér með önnur lið. Í gær sagði Árni
við Morgunblaðið að ekkert nýtt
væri að frétta af hans málum. „Um-
boðsmaður minn er að vinna í þessu
en ég á ekki von á því að neitt gerist
í þeim málum á allra næstu dögum.
Ég mun koma heim til Íslands eftir
leikinn á laugardag og taka mér
sumarfrí en síðan veit ég ekki hvað
bíður mín,“ sagði Árni og átti von á
góðum leik á laugardag. „Það verð-
ur gaman að kveðja City með þess-
um leik á þeirra heimavelli, og það
er skemmtilegt að David James, fé-
lagi minn frá City, verður í mark-
inu hinum megin á vellinum. Það er
eingöngu tilhlökkun í okkar her-
búðum fyrir leikinn og þetta hefur
verið skemmtilegur tími hjá okkur
fram til þessa,“ sagði Árni Gautur.
Mourinho þykir vera bein-skeyttur á fundum með fjöl-
miðlamönnum og hafa enskir
fréttamenn hrifist
af svörum Mour-
inho sem liggur
ekki á skoðunum
sínum.
Í enska dagblaðinu The Guard-
ian er sagt frá því að Mourinho
ætli sér að losna við 12 af leik-
mönnum liðsins og er Eiður Smári
Guðjohnsen, fyrirliði íslenska
landsliðsins, ekki á þessum lista.
Þeir sem nefndir eru til sögunnar
eru markverðirnir Neil Sullivan og
Marco Ambrosio, varnarmennirnir
Winston Bogarde, Mario Melchiot,
Marcell Desailly, miðjumennirnir
Mario Stanic, Emmanuel Petit,
Juan Sebastian Verón, Jesper
Grönkjær, Bolo Zenden, Hernan
Crespo og Jimmy Floyd Hassel-
baink.
Eiður Smári sagði í samtali við
Sky fréttastofuna í gær að Mour-
inho hefði þegar haft samband við
sig og sagt að hann hlakkaði til að
vinna með Íslendingnum. „Ég
ræddi við hann [Mourinho] stutt-
lega í fyrrakvöld og hann sagðist
hlakka til að vinna með mér sem
leikmanni og sagðist vonast til að
sjá mig 5. júlí þegar æfingar hefj-
ast. Þessi orð nægja mér,“ sagði
Eiður m.a. í viðtali við Sky. „Það
er ekki mitt mál hverjir koma til
félagsins eða fara frá því, en ég
viss um að vera áfram hjá því.“
Mourinho hefur einnig svarað
fyrir sig á síðum ensku blaðanna
en Claudio Ranieri, fyrrverandi
knattspyrnustjóri liðsins, sagði að
auðvelt væri að sigra í portúgölsku
deildinni. Mourinho svaraði því til
að Ranieri hefði aðeins landað ein-
um bikartitli á 20 árum sem knatt-
spyrnustjóri og var greinilega ekki
sáttur við orð ítalska þjálfarans
sem er líklega á förum til Valencia.
Reuters
Chelsea-mennirnir John Terry, Eiður Smári Guðjohnsen og Joe
Cole slá á létta strengi á æfingu félagsins fyrir skömmu. Eiður
Smári verður andstæðingur þeirra þegar Íslendingar og Eng-
lendingar leiða saman hesta sína á laugardaginn í Manchester.
Þeir virðast allir vera inni í framtíðaráformum hins nýja knatt-
spyrnustjóra Chelsea.
Eiður Smári er ekki
á „svarta listanum“
ENSKIR fjölmiðlar fjalla mikið um enska úrvalsdeildarliðið Chelsea
á íþróttasíðum sínum í gær þar sem Jose Mourinho, nýráðinn
knattspyrnustjóri liðsins, er í sviðsljósinu. Hann hyggst taka til hjá
félaginu og losa sig við marga leikmenn. Eiður Smári Guðjohnsen
er ekki þar á meðal, framtíð hans hjá félaginu virðist vera nokkuð
örugg eins og sakir standa en ljóst virðist að margir félagar hans
koma til með að þurfa að róa á önnur mið á næstu leiktíð.
Sigurður Elvar
Þórólfsson
skrifar
frá Manchester
Óbreytt
staða
hjá Árna
Gauti
EIÐUR Smári Guðjohnsen, fyr-
irliði Íslands, ábyrgist að Íslend-
ingar muni ekki fara í neinar
kjánalegar tæklingar í lands-
leiknum gegn Englendingum á
morgun.
„Það síðasta sem við viljum
gera er að valda því að leik-
menn Englands meiðist í lands-
leiknum gegn okkur. Við erum
líkamlega sterkir en við erum
ekki með gróft lið. Ég held að
allir íslensku leikmennirnir
munu aðeins fara í tæklingar til
þess að vinna boltann,“ er haft
eftir Eiði Smára á soccernet-
.com.
Í landsleik Íslands og Japans
um síðustu helgi gerðust þeir
Jóhannes Karl Guðjónsson og
Brynjar Björn Gunnarsson sekir
um grófar tæklingar. Sven-
Göran Eriksson, landsliðsþjálf-
ari Englands, er mikið í mun um
að enginn í enska landsliðs-
hópnum meiðist í leiknum gegn
Íslandi. „Sumar tæklingarnar
hjá íslensku leikmönnunum voru
hættulegar í leiknum gegn Jap-
an,“ sagði Sven-Göran Eriksson.
Eiður Smári skilur að ensku
leikmennirnir geti verið
áhyggjufullir yfir því að meiðast
svona skömmu fyrir Evr-
ópukeppnina. „Ég ábyrgist að
leikmenn íslenska liðsins munu
ekki fara í neinar kjánalegar
tæklingar,“ sagði Eiður Smári.
Við erum líkamlega
sterkir en ekki grófir
BRYNJAR Björn Gunnarsson yfir-
gaf hótel íslenska liðsins, Marriot
Worsley Park, í fyrrakvöld en hann
var úrskurðaður í leikbann af skipu-
leggjendum þriggja landa mótsins í
Manchester. Brynjar Björn fékk
rautt spjald í leiknum gegn Japan á
82. mínútu eftir að hafa brotið illa á
Suzuki, leikmanni Japans. Brynjar
Björn er samningslaus sem stendur.
Hann var á mála hjá Nottingham
Forest í vetur en var lánaður til Stoke
City eftir áramót. Brynjar Björn lék
með Stoke City áður en hann samdi
við Forest síðastliðið haust. Brynjar
verður í Englandi næstu daga þar
sem hann mun fara yfir stöðuna hjá
sér en danska liðið Aalborg hefur sýnt
íslenska landsliðsmanninum áhuga.
Brynjar Björn mun hinsvegar mæta
til Manchester á ný á laugardag og
fylgjast með leiknum.
Brynjar Björn
í leikbanni
ÍSLENSKU landsliðsstrákarnir og
forsvarsmenn liðsins hafa verið dug-
legir við golfíþróttina eftir æfingar
liðsins. Við hótel liðsins er góður 18
holu golfvöllur sem hefur komið að
góðum notum. Eyjamaðurinn
Tryggvi Guðmundsson lék alls 31
holu í fyrradag en hann lét ekki einn
18 holu hring duga, og lék 13 holur til
viðbótar. Í lauslegri könnun á meðal
íslensku landsliðsmannanna hefur
Tryggvi Guðmundsson náð bestum
árangri í höggleiknum en hann lék
völlinn á 78 höggum.
Tryggvi best-
ur í golfi