Morgunblaðið - 10.06.2004, Side 53
FRÉTTIR
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 10. JÚNÍ 2004 53
SANYL
ÞAKRENNUR
• RYÐGA EKKI.
• PASSA Í GÖMLU RENNUJÁRNIN.
• STANDAST ÍSLENSKT VEÐURFAR.
• AUÐVELDAR Í UPPSETNINGU.
• ÓDÝR OG GÓÐUR KOSTUR.
Fást í flestum byggingavöru-
verslunum landsins.
ÓLAFSFIRSKA hljómsveitin Roðlaust og beinlaust,
sem er að mestu skipuð sjómönnum á frystitogaranum
Kleifabergi ÓF-2, hélt tónleika um borð í skólaskipinu
Sæbjörgu á laugardaginn.
Tónleikarnir voru í kjölfar þess að hljómsveitin hefur
styrkt Slysavarnaskóla sjómanna um rúma eina milljón
króna á síðustu mánuðum.
Styrkurinn er afrakstur sölu á geisladiski hljómsveit-
arinnar, Brælublús, sem kom út í nóvember á síðasta
ári. Það er yfirlýst markmið þeirra félaga í Roðlausu og
beinlausu að græða ekki á tónlistarsköpun sinni og því
hafa þeir alltaf haft það að leiðarljósi að ef einhver
ágóði yrði af hljómdiskaútgáfu sveitarinnar, myndi
hann renna til góðra málefna, segir í fréttatilkynningu.
Hljómsveitarmeðlimir Roðlaust og beinlaust ásamt áhöfn skólaskips Slysavarnaskóla sjómanna, Sæbjargar. Hilm-
ar Snorrason, skólastjóri Slysavarnaskólans, fær afhenta sérstaka hátíðarútgáfu af geisladisknum Brælublús.
Styrkja Slysavarnaskóla sjómanna
Skógarganga skógræktarfélag-
anna er í dag, fimmtudaginn 10.
júní, á vegum Skógræktarfélags
Hafnarfjarðar. Lagt verður af stað
frá hesthúsahverfinu í Hlíðarþúfum
við Kaldárselsveg kl. 20 og gengið
um nýskógræktina í hlíðunum.
Áætlað er að gangan taki tæpa tvo
tíma. Að göngunni lokinni verður
boðið upp á veitingar í Selinu.
Námsgagnastofnun verður með
opið hús í dag, fimmtudaginn 10.
júní, kl. 9–16. Kennarar, foreldrar,
krakkar og allir sem áhuga hafa eru
velkomnir að kynna sér nýtt sem
eldra námsefni, fræðast um stofn-
unina, námsefnisgerð o.fl.
Í DAG
Rætt um árásarstríðið gegn Írak.
Á morgun, föstudaginn 11. júní, mun
Milan Rai halda fyrirlestur á vegum
Samtaka herstöðvaandstæðinga.
Milan mun ræða vítt og breitt um
árásarstríðið gegn Írak, hvað hefði
mátt gera betur af hálfu friðarhreyf-
ingarinnar og einnig hvað var vel
gert. Fyrirlesturinn hefst kl. 20 og
verður í húsnæði Reykjavík-
urAkademíunnar að Hringbraut
121. Laugardaginn 12. og sunnudag-
inn 13. júní mun svo Milan Rai
ásamt Emily Johns standa fyrir
námskeiði um borgaralega óhlýðni
og friðsamleg mótmæli.
Milan Rai og Emily Johns eru
breskir friðar- og umhverfisvernd-
arsinnar. Milan Rai hefur starfað
með Noam Chomsky og hefur skrif-
að bækur um efni á borð við stríðs-
reksturinn í Írak og um kenningar
Chomskys. Emily Johns er lista-
maður innan alþjóðlegu friðar- og
umhverfishreyfingarinnar, segir í
fréttatilkynningu.
Á MORGUN
AÐALFUNDUR samtakanna
Landsbyggðin lifi fór fram laugar-
daginn 5. júní sl. á Rimum í Svarf-
aðardal, Dalvíkurbyggð.
Landsbyggðin lifi er hreyfing
fólks, sem vill efla byggð um land
allt. Áhersla er lögð á að tengja fólk
saman, mynda samstarfsvettvang
fyrir einstaklinga og hvers konar
áhugamannafélög, sem hafa það á
stefnu sinni að styrkja heimabyggð-
ina.
Fundinn sóttu 35 fulltrúar og
áheyrnarfulltrúar frá aðildarfélög-
um samtakanna. 15 félög, víðsvegar
um landið, eru nú fullgildir aðilar að
samtökunum. Fundarstjóri var Rafn
Arnbjörnsson.
Í nýrri stjórn samtakanna eru:
Ragnar Stefánsson, Dalvíkurbyggð,
formaður, Sveinn Jónsson, Kálf-
skinni, Árskógsströnd, varaformað-
ur, Þórarinn Lárusson, Egilsstöðum,
ritari, Stefán Á. Jónsson, Kagaðar-
hóli, A-Húnavatnssýslu, gjaldkeri.
Meðstjórnendur: Fríða Vala Ás-
björnsdóttir, Reykjavík, Þórunn Eg-
ilsdóttir, Vopnafirði, Guðjón Gunn-
arsson, Reykhólum. Í varastjórn
eru: Sigríður Svavarsdóttir, Blöndu-
ósi, Sigurjón Jónasson, Egilsstöðum,
Árni Gunnarsson, Reykjavík, Eyrún
Júlíusdóttir, Bakkafirði og Jóhannes
Erlendsson, Hvammstanga.
Ný stjórn
í Lands-
byggðin lifi
SAMEINUÐU þjóðirnar hafa til-
einkað 17. júní ár hvert verndun jarð-
vegs, en alþjóðlegi samningurinn um
varnir gegn myndun eyðimarka var
undirritaður þennan dag árið 1994.
Sameinuðu þjóðirnar hafa upplýst
að eyðimerkurvofan ógni nú lífsaf-
komu um 1.200 milljón manns víða
um heim, en verst er ástandið í Afr-
íku, Asíu og þeim löndum sem áður
mynduðu Sovétríkin. Talið er að um
20 milljarðar tonna af jarðvegi glatist
á ári hverju. Í tilefni af alþjóðlega
jarðvegsverndardeginum hafa Land-
græðsla ríkisins og Landvernd for-
göngu um þrjá hádegisfyrirlestra þar
sem þessi mál verða til umfjöllunar.
Fyrirlesarar koma frá Suður-Afríku,
Kína og Íslandi. Fyrirlestrarnir verða
í Norræna húsinu í Reykjavík
fimmtudaginn 10. júní, miðvikudag-
inn 16. júní og þriðjudaginn 22. júní.
Dagskráin er sem hér segir:
Fimmtudagur 10. júní: Afríka
bregst til varnar jarðvegseyðingu.
Noel Oettle, Environmental Monitor-
ing Group, Suður-Afríku. Í erindinu
verður farið yfir þróun gróður- og
jarðvegseyðingar í Afríku og sérstak-
lega í Suður-Afríku.
Miðvikudagur 16. júní: Hin þögla
kreppa heimsins. Andrés Arnalds,
Landgræðslu ríkisins. Andrés mun
fara yfir stöðu mála og greina frá því
hvernig samfélag þjóðanna hefur
brugðist við.
Þriðjudagur 22. júní: Jarðvegseyð-
ing í Kína – markvissar aðgerðir skila
árangri. Fenli Zheng, Institute of Soil
and Water Conservation, Yangling,
Kína. Kína hefur verið að glíma við af-
ar víðtæka jarðvegseyðingu og hefur
brugðist við þeim vanda með víðtæk-
um aðgerðum.
Alþjóðlegi jarð-
vegsverndar-
dagurinn
SALA miða í sumarhappdrætti
Krabbameinsfélagsins er nú hafin og
fá karlmenn heimsenda miða að
þessu sinni. Vinningar eru 152 tals-
ins að verðmæti 18.690.000 kr. Að-
alvinningurinn er Toyota Prius að
verðmæti 2.690.000 kr. Annar aðal-
vinningurinn er bifreið eða greiðsla
upp í íbúð að verðmæti 1.000.000 kr.
150 vinningar eru í formi úttekta hjá
ferðaskrifstofu eða verslun, hver að
verðmæti 100.000 kr. Vinningarnir
eru skattfrjálsir. Dregið verður 17.
júní.
„Happdrætti Krabbameinsfélags-
ins er ein helsta fjáröflunarleið
krabbameinssamtakanna hér á
landi,“ segir m.a. í frétt frá Krabba-
meinsfélaginu. „Einn mikilvægasti
þáttur starfseminnar, fræðsla um
krabbamein og krabbameinsvarnir,
byggist að langmestu leyti á happ-
drættisfé, svo og aðstoð og stuðning-
ur við krabbameinssjúklinga og að-
standendur.
Nú greinast árlega um 1.100 Ís-
lendingar með krabbamein. Hjá
körlum er krabbamein í blöðruháls-
kirtli algengast og brjóstakrabba-
mein hjá konum. Í öðru sæti hjá báð-
um kynjum er krabbamein í lungum.
Um fjórðung dauðsfalla á Íslandi má
rekja til krabbameins.
Miðar eru einnig til sölu á skrif-
stofu Krabbameinsfélagins í Skógar-
hlíð 8 og úr happdrættisbílnum sem
verður í Kringlunni í dag og fram að
drætti. Nánari upplýsingar eru
veittar á skrifstofu krabbameins-
félagsins og hægt er að greiða miða
þar með greiðslukorti.
Happdrætti Krabba-
meinsfélagsins
Dregið verður
17. júní