Morgunblaðið - 08.07.2004, Side 19
NEYTENDUR
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 8. JÚLÍ 2004 19
Smáralind • sími 553 6622 • www.hjortur.is
OPIÐ HÚS - Ólafsgeisla 33
113 Reykjavík
Sölufulltrúi:
Guðmundur Valtýsson,
gsm 865 3022,
gudmundur@fasteignakaup.is
Ármúla 15 • sími 515 0500
fax 515 0509 • www.fasteignakaup.is
fasteignakaup@fasteignakaup.is
Heimilisfang: Ólafsgeisli 33, 113 Rvk.
Stærð eignar: 209,6 fm.
Staðsetning í húsi: Einbýli.
Bílskúr: Já.
Byggingarár: 2002.
Brunab.mat: 30,3 millj.
Innanhúshönnuður: Guðrún Atladóttir.
Hönnuður húss: Sigurður Sigurðsson.
Innréttingar: Tak innréttingar, Akureyri.
Afhending eignar: Fljótlega.
Verð: 36,7 millj.
Erna Valsdóttir, lögg. fast.-, skipa- og fyrirtækjasali.
GLÆSILEGT Í GRAFARHOLTI, VEL HANNAÐ OG AÐ
MESTU LEYTI VIÐHALDSFRÍTT EINBÝLISHÚS Á FRÁBÆR-
UM STAÐ VIÐ ÓLAFSGEISLA. Húsið sem er á tveimur
hæðum er sérstaklega vel hannað bæði með tilliti til
skipulags og útlits. Húsið er klætt að utan með náttúru-
legum steini (mustang) og lituðu báruáli, sem setur
skemmtilegan svip á húsið. Opnanlegir veltigluggar úr
áli og tré. Á efri hæð hússins er stofa og borðstofa, eld-
hús, baðherbergi, þvottaherbergi, tvö svefnherbergi
og sjónvarpsrými. Á neðri hæð er svefnherbergi, stofa
og baðherbergi. Möguleiki er að nota neðri hæð húss-
ins sem ca 50 fm íbúð með sérinngangi.
Nánari upplýsingar www.fasteignakaup.is
Guðmundur Valtýsson sölufulltrúi Fasteignakaupa tek-
ur á móti gestum milli kl.18-20 í dag.
Borgartúni 34, Reykjavík, s. 511 1515,
outgoing@gjtravel.is
ÓTRÚLEGT VERÐ!
Beint leiguflug frá Keflavík til Zürich 11.07., 18.07. og 08.08.
Beint leiguflug frá Zürich til Keflavíkur 17.07., 24.07., 31.07.,
07.08. og 14.08.
Verð aðeins kr. 11.350 hvora leið, flugvallaskattar og
þjónustugjöld innifalin.
Takmarkarð sætaframboð.
Hafið samband við utanlandsdeild okkar.
Þ
að deila ef til vill margir
þeirri tilfinningu að
sumarið sé rétt að
byrja hinn fyrsta júlí.
Það var þó einmitt sá
dagur sem útsölur hófust í mörg-
um verslunum.
Það vekur athygli að þótt sum-
arvaran fari svo snemma á útsölu
breytir það engu um að næst á
dagskrá er hausttískan, sem kem-
ur í verslanir strax að sum-
arútsölum loknum. Breytingin er
þó líklega ekki svo mikil þegar
öllu er á botninn hvolft því útsöl-
urnar standa yfir í heilan mánuð
og viku betur. Kannski sniðug
lausn til að minnka útsöluálagið
sem rifjaðist vel upp þegar við-
skiptavinkonur Oasis tróðust hver
um aðra þvera á fyrsta degi útsöl-
unnar þar.
Í Smáralind hófst útsalan form-
lega 1. júlí og er byrjuð í flestum
verslunum; s.s. í Zöru, Vero Moda,
Jack and Jones, Vila, Topshop,
Bianco, Bossanova, Skór.is, Herra-
garðinum og Hagkaup.
5.–8. ágúst verða svo útsölulok í
Smáralind með tilheyrandi götu-
markaði.
Kringlan auglýsir útsölur á ná-
kvæmlega sama tímabili og má
reikna með götumarkaði þar líka á
síðustu dögunum. Þar er útsalan
hafin í til dæmis Spútnik, Sand,
Park, Valmiki, Cosmo, Centrum,
Karen Millen, Oasis, Retro, Polarn
O Pyret, Stasia, Timberland, Marc
ÓPolo, Rollingum og „frönsku
barnafatabúðinni“ Du Pareil au
meme.
Algengasti afslátturinn er lík-
lega á bilinu 30 til 50 prósent en
neðri mörk liggja yfirleitt við 20
og efri við 70 prósentin enn sem
komið er. Metið eiga líklega Hag-
kaup sem bjóða hæst 92% afslátt á
vörum sem kosta sléttar 500 eða
1000 kr. Er þar um að ræða vörur
frá síðustu útsölu en vel má gera
hagstæð kaup á sígildri vöru.
Í miðbæ Reykjavíkur gilda
nokkuð ólík lögmál um útsölurnar
enda mikið um verslanir með
hönnunarvarning í stað fjöldafram-
leiðslu. GK Reykjavík fer reyndar
af stað með útsölu í dag og býður
30–40% afslátt. Nýstofnaða versl-
unin Oni byrjar útsölu einnig í dag
þar sem eitthvað af íslenskri hönn-
un lækkar um 30% auk annarra
tilboða. Gust og Dísjón-hönn-
uðirnir setja einhverja sumarvöru
á 10–40% og Má Mí Mó verður að
líkindum með 30–40% útsölu í
ágúst eins og stundum áður.
Eins og fyrr segir eru útsölur
byrjaðar á mörgum stöðum en í
dag byrja þær í verslunum á borð
við GK Reykjavík, Sautján, Deres,
gs skóm, Focus skóbúðinni, Smash
og Next. Vert er að benda á að í
Steinari Waage skóbúð verður
ekki útsala en 10–40% sumartilboð
stendur yfir til og með sunnudeg-
inum 11. júlí. Útsölur hefjast svo
seinna í mánuðinum í Intersport,
Útilífi og H&M en Brim Lauga-
vegi og Kringlunni verður hugs-
anlega með útsölu í ágúst. Versl-
unin Kultur í Kringlunni hefur
sína útsölu að líkindum ekki fyrr
en eftir 20. þessa mánaðar. Þar er
þó tryggt að ekki verða dregnir
fram gamlir lagerar því verslunin
er aðeins tveggja mánaða gömul.
Í heildina má segja að gera
megi ágæt kaup á sumarútsöl-
unum, sérstaklega með tilliti til
þess að þó nokkuð er eftir af
sumrinu.
Það má þó ef til vill spyrja sig
hvort peysa á kr. 7,000 sé veruleg
kostakaup, jafnvel þótt hún sé á
þrjátíu eða fimmtíu prósent af-
slætti. Fyrir kemur að sú hugsun
leitar á að með þeim afslætti sem
nú býðst sé varan einungis komin
niður í verð sem eðlilegt getur tal-
ist.
Víða má
gera
ágæt
kaup
Sumarvörur fóru
snemma á útsölu í ár.
Anna Pála Sverrisdóttir
tók púlsinn á sumar-
útsölum fataverslana.
Morgunblaðið/Jim Smart
Sumar: Enn er nægur tími til að ganga í sumarfötum sem keypt eru á útsölu.
Morgunblaðið/Jim Smart
Sumarútsölur eru nú hafnar af full-
um krafti: Algengasti afslátturinn
er 30–60 prósent.
Vert er að benda neytendum á að
oft geta verið ljón í veginum fyrir
höndlun með inneignarnótur á út-
sölum. Til dæmis er ekki heimilt að
nota inneignarnótu sem gefin er
út innan við fjórtán dögum fyrir
útsölubyrjun nema með samþykki
seljanda. Verslunareigendum er
heimilt að setja eigin reglur um
skil og skipti en þó hefur við-
skiptaráðuneytið gefið út viðmið-
unarreglur varðandi kaup og skil á
vöru. Neytendasamtökin benda
fólki á að versla við búðir þar sem
þeim reglum er fylgt en nánari
upplýsingar má nálgast hjá sam-
tökunum.
VERSLUN | Sumarútsölur í byrjun sumars?