Heimilistíminn - 04.07.1974, Síða 40
ERU ÞÆR EINS?
í fljótu bragði virðast myndirnar eins, en þó
hefur teiknarinn breytt sjö atriðum á þeirri
neðri. Lausn i næsta blaði.
H$GIÐ
— Mamma, er það satt, að maður sé
heiðingi, ef maður er ósklrður?
— Já, það er vlst satt.
— Skrýtið að hugsa um, að litla systir
skuli liggja þarna og trúa á Þór og
óðin.
Bankaræninginn stakk miöa aö
stúlkunni viðkassann. A honum stóð:
„Sitjið kyrr og setjið alla peningana í
töskuna”. Hún rétti honum von bráðar
annan miða, sem á stóð „Lagaðu
bindið og brostu. Þaö er verið að taka
mynd af þér”.
Nýgiftu hjónin sátu og höfðu það
huggulegt eitt kvöldið, þegar hún
sagði: — Jæja, nú verðum við bráðum
þrjú.
— En dásamlegt, dúfan min, Ertu
viss?
— Já, mamma og pabbi eru að skilja
og mamma ætlar að búa hjá okkur.
— Það stendur hér i blaðinu, að rlkis-
réttur biði Nixons. Hvað er eiginlega
rikisréttur?
— Æ,kona. Geturðu ekki bara athugað
það i einhverri af öllum þessum mat-
reiðslubókum þinum?
Hvort sem þú ert rlkur eða fátækur, þá
er dásamlegt að eiga peninga.
4
Ef peningar eru undirrót alls ills, hvað
er þá peningaleysi?
4
Þegar kona þjáist i þögn, er siminn hjá
henni biiaður.
4
Sá, sem fær hátt kaup og finnst hann
eiga það skilið, fær áreiðanlega of
mikið.
★
i kokkteilveizlum drekkur fólk oft svo
mikið, að maður gleymir hvað það
heitir.
Ef þú vilt lifa lengi — þá skaltu verða
100 ára.
Vandinn við orðabækur er að maður
þarf að vita hvernig orðið er stafað, til
að geta séöhvernig á aöstafa það.
4
Kona cr huggun mannsins — ef hún
væri það ekki, þyrfti hann enga
huggun.
4
Svefngengill fær hvíld og hreyfiilgu i
ein u.
4
Ef þú ert orðinn skjálfhentur af
áhyggjum, þá lærðu að spila á
inand ólin.
Á
Stúlka, sem giftir sig vcgna þess að
hún cr þreytt á vinnu, vcrður sannar-
lcga fyrir vonbrigðum
40