Morgunblaðið - 21.08.2004, Page 6
FRÉTTIR
6 LAUGARDAGUR 21. ÁGÚST 2004 MORGUNBLAÐIÐ
FÉLAGIÐ Hrafnabjörg ehf. var
formlega stofnað í gamla skólahús-
inu Kiðagili í Bárðardal í gær. Að fé-
laginu standa Orkuveita Reykjavík-
ur, Þingeyjarsveit, Orkuveita
Húsavíkur og Norðurorka á Akur-
eyri. Tilgangur félagsins er undir-
búningur að nýtingu vatnsafls í
Skjálfandafljóti í S-Þingeyjarsýslu
til raforkuframleiðslu með sérstaka
áherslu á Hrafnabjargavirkjun.
Hugmyndin er að byggja 90 mega-
vatta virkjun við Hrafnabjörg en
áætlaður kostnaður við slíka fram-
kvæmd er um 12–13 milljarðar
króna. Stofnhlutafé Hrafnabjarga er
40 milljónir króna, aðsetur félagsins
verður á Laugum í Þingeyjarsveit
en formaður stjórnar var kjörinn
Ásgeir Margeirsson, aðstoðarfor-
stjóri Orkuveitu Reykjavíkur.
Ásgeir sagði í samtali við Morg-
unblaðið að nú tæki vonandi við leyf-
isveiting en Orkuveita Reykjavíkur
sótti um virkjanaleyfi í Skjálfanda-
fljóti við Hrafnabjörg og mun yfir-
færa þá umsókn yfir á hið nýja félag.
„Þetta félag mun óska eftir leyfi til
rannsókna og virkjunar í Skjálf-
andafljóti og í framhaldi af því vinna
að umhverfismati á þeim virkjunar-
kosti sem helst er uppi á borðinu. Ef
framkvæmdin fer í gegnum um-
hverfismat, kemur til frekari hönn-
unar- og undirbúningsfram-
kvæmda.“
Vinna þarf að markaðssetningu
Ásgeir sagði að samhliða öllu
þessu færi fram vinna við markaðs-
setningu á orkunni, því ekkert yrði
af framkvæmdum ef orkan ekki
selst. „Það verður ekki virkjað á
Norðurlandi í þessum stíl fyrir al-
menna markaðinn, það þarf að koma
til meiri aukning á notkun, stóriðja,
iðnaðaruppbygging eða eitthvað
slíkt. Það verður heldur ekki virkjað
á Norðurlandi til þess að flytja orku
í stóriðju eða iðnað í öðrum lands-
hlutum. Það mun því fara saman
undirbúningur að þessari fram-
kvæmd og vinna að sölu orkunnar.“
Ásgeir sagði mjög erfitt að segja
til um tímasetningar, það taki fáein
ár að fara í gegnum leyfisveitingar,
umhverfismat og hönnun. Fram-
kvæmdir fari þó ekki í gang fyrr en
salan á orkunni sé fyrirséð. „Sá tími
sem líður frá því að sölusamningar
eru gerðir og þar til virkjun fer í
gang gæti verið um 2–3 ár.“
Eins og fram kom í Morgun-
blaðinu í gær hefur Landsvirkjun
einnig lagt inn umsókn í iðnaðar-
ráðuneytið um rannsóknaleyfi vegna
Skjálfandafljóts og því er í gangi
kapphlaup á milli orkufyrirtækj-
anna. Ákvörðun hefur ekki verið
tekin ráðuneytinu hvaða orkufyrir-
tæki fái rannsóknar- og virkjunar-
leyfi í Skjálfandafljóti. Óvissa ríkir
um hvernig úthluta beri leyfunum
eftir nýjum raforkulögum en niður-
stöðu er að vænta á næstu vikum.
Blendnar tilfinningar
Tryggvi Harðarson, bóndi í Svart-
árkoti, hefur töluverðra hagsmuna
að gæta í tengslum við fyrirhugaðar
virkjunarframkvæmdir. Hann sagði
tilfinningar sínar mjög blendnar
gagnvart fyrirhugaðri virkjun. „Að
mörgu leyti er þetta efnilegt en svo
fylgja því náttúrulega ýmsir ókostir,
eins og að tapa Svartá og Suðurá. Og
það er alveg klárt að ég vil alls ekki
missa Suðurá alla,“ sagði Tryggvi en
hugmyndin er að Suðurá sameinist
Skjálfandafljóti sunnan við væntan-
lega stíflu en slík breyting hefði jafn-
framt áhrif á vatnsrennsli í Svartá.
„Það yrði ekki mikill landfræðilegur
skaði að þessari virkjun og ekki mik-
ið gróðurlendi sem færi í kaf en hún
hefði áhrif á Aldeyjarfoss, Suðurá og
Svartá. Ég útiloka hins vegar ekkert
en það þarf að skoða málið mjög
vandlega.“
Þingeyjarsveit á 2,50% í hinu nýja
félagi, Orkuveita Húsavíkur og
Norðurorka 18,75% hvor um sig og
Orkuveita Reykjavíkur 60%.
Félag um undirbúning Hrafnabjargavirkjunar í Skjálfandafljóti stofnað
Stefnt að raforkuframleiðslu
fyrir stóriðju á Norðurlandi
Morgunblaðið/Kristján
Fulltrúar Orkuveitu Reykjavíkur, Orkuveitu Húsavíkur, Norðurorku og
Þingeyjarsveitar fóru inn á Sprengisand í gær og skoðuðu vatnasvæði Skjálf-
andafljóts. Hér kastar Ásgeir Margeirsson, formaður stjórnar Hrafnabjarga,
stórum steini út í fljótið, svona rétt til að kanna rennsli árinnar.
STÆRSTA Bonsai-tré sem flutt hef-
ur verið hingað til lands er frá og
með deginum í dag til sýnis í Blóma-
vali á sérstakri Bonsai-sýningu sem
stendur út mánuðinn. Tréð sem er
1.60 m á hæð, var flutt hingað til
lands frá Kína og tók ferðin yfir haf-
ið nokkra daga. Tréð var sett í gám
við kjörhitastig og flutt til landsins
með skipi. Að sögn Svövu Rafns-
dóttur, garðyrkjufræðings hjá
Blómavali, virtist ferðalag trésins
um hálfan hnöttinn engin áhrif hafa
haft á það. Tréð var vökvað vel og
vandlega er það kom til landsins og
heilsast því vel, ef svo má að orði
komast. Ræktun Bonsai-trjáa krefst
mikillar þolinmæði og nákvæmni,
en trén þarf að vökva mjög oft svo
þau nái réttu vaxtarlagi. Segja má
að trén líti út eins og lítil, gömul tré
en til að ná fram vaxtarlagi gamalla
trjáa í svo smáum trjám er ýmsum
kúnstum beitt. Að sögn Svövu eru
Bonsai-trén í raun þvinguð til að
verða lítil, pottarnir eru litlir og
trén m.a. víruð niður til að ná rétta
vaxtarlaginu.
Morgunblaðið/Árni Sæberg
Steinunn Guðjónsdóttir, starfsstúlka í Blómavali, við 40 ára Bonsai-tréð.
Risastórt dvergvaxið tré
MAÐUR sem ásamt öðrum er
ákærður fyrir innflutning á 325
grömmum af kókaíni til landsins í
desember sl. er væntanlegur til
landsins í byrjun september og
verður honum þá birt ákæra í mál-
inu. Mennirnir voru báðir í íþrótta-
göllum sem voru kirfilega merktir
Íslandi og með íslenskum fána en
mennirnir tengdust báðir hnefa-
leikafélögum. Við skoðun kom í ljós
að þeir höfðu báðir falið smokka
með kókaíni í endaþarmi.
Í gær átti að þingfesta ákæruna
gegn manninum í Héraðsdómi
Reykjaness en málinu var frestað
til 13. september nk.
Ákæran var gefin út 22. júní en
ekki hefur tekist að birta honum
ákæruna. Að sögn Sveins Andra
Sveinssonar hrl., verjanda manns-
ins, flutti maðurinn til Spánar
snemmsumars þar sem hann starf-
ar. Síðastliðið fimmtudagskvöld
hringdi maðurinn í Svein Andra og
tjáði honum að hann væri vænt-
anlegur til landsins í byrjun sept-
ember.
Að sögn Eyjólfs Kristjánssonar,
fulltrúa sýslumannsins á Keflavík-
urflugvelli, játaði hinn maðurinn
innflutning á fíkniefnunum en neit-
aði því að smyglið hefði átt sér stað
í ágóðaskyni. Þá hefði hann staðið
einn að innflutningnum en ekki
hefði verið um samvinnu milli
þeirra félaga að ræða. Mennirnir
eru einnig ákærðir fyrir að fram-
vísa ekki tollskyldum hnefaleikaút-
búnaði en maðurinn neitaði einnig
sök í þeim þætti málsins.
Verður birt
ákæra við
komu til
landsins
SIGURÐUR I. Skarphéðinsson,
gatnamálastjóri í Reykjavík, sagð-
ist í gær vonast til að malbikun
Hringbrautar yrði lokið í morguns-
árið þannig að umferð á fjórum ak-
reinum gæti hafist á nýjan leik í
dag, laugardag. Hann segir við-
ræður hafa átt sér stað í gærmorg-
un við malbikunarverktakann um
að verkinu myndi ljúka í dag, en
erfiðlega hafi gengið að fá mann-
skap til þess að vinna fram eftir á
föstudögum og í kring um Menn-
ingarnótt. „Það er okkar ósk og við
gerum það sem í okkar valdi stend-
ur til þess að það megi verða,“
sagði Sigurður við Morgunblaðið.
Áhersla sé lögð á það að opna fyrir
umferð fyrir Menningarnótt ekki
síður en fyrir komandi háskólaár.
Hann segir að um 20% umferðar
á þessu svæði hafi farið um Vatns-
mýrarveg sem sé nú lokaður, því
eigi umferð eftir að þyngjast um
þessi 20% á sjálfri Hringbraut.
„Þannig að hún verður erfiðari í
vetur, áður en nýja Hringbrautin
kemur, en hún hefur verið áður.
Tuttugu prósent er þónokkur
aukning á götu sem þegar er
stappfull á annatíma,“ segir Sig-
urður.
Hringbraut malbikuð
Opnað verður
fyrir fjórar
akreinar í dag
FÉLAGSMÁLARÁÐUNEYTIÐ
hefur óskað eftir fundi með
fræðsluyfirvöldum Reykjavíkur-
borgar nk. mánudag kl.16 þar
sem ræða á skóladagvist eldri
nemenda í Öskjuhlíðarskóla.
Þetta staðfesti Þór G. Þórarins-
son, skrifstofustjóri ráðuneytis-
ins, í samtali í gær. Hann sagðist
vonast til að hægt yrði að leysa
málið, en vildi ekkert gefa upp
um hvaða sáttatillögur ráðuneytið
hygðist leggja fram.
Ríki og borg hafa deilt um hvor
stofnunin á að greiða fyrir skóla-
dagvist nemenda 5.-10. bekkjar
Öskjuhlíðarskóla. Hefur formað-
ur Fræðsluráðs, Stefán Jón Haf-
stein, sagt að þetta varði málefni
fatlaðra og sé því á forræði rík-
isvaldsins. Borgin hefur boðist til
að greiða helming kostnaðar
vegna vistunarinnar, sem nemur
alls 18-20 milljónum króna árlega.
Að sögn Gerðar Aagot Árna-
dóttur, formanns Foreldra- og
styrktarfélags Öskjuhlíðarskóla,
sem heyrði af fundarboðinu í gær,
eru það góð tíðindi að þessir að-
ilar ætli að setjast niður og ræða
saman. Hún segir að með því
vakni vonir hjá foreldrum um að
deilan verði leyst. Það sé afar
mikilvægt fyrir börnin sem þurfa
á þjónustunni að halda, foreldra
og starfsfólk skólans að deila rík-
is og borgar leysist fyrir vetur-
inn.
Ríki og borg funda
um skóladagvist
TVEIR erlendir ferðamenn sluppu
ómeiddir þegar bíll þeirra valt út af
veginum við Hraun á Skaga.
Að sögn lögreglunnar á Sauðár-
króki er vegurinn fremur mjór á
þessum slóðum og nokkuð um lausa-
möl. Virðist sem ökumaður hafi ein-
faldlega misst stjórn á bílnum með
fyrrgreindum afleiðingum.
Ómeiddir
eftir bílveltu
♦♦♦
♦♦♦