Morgunblaðið - 21.08.2004, Qupperneq 9
FRÉTTIR
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 21. ÁGÚST 2004 9
Nýtt - haust
Langermabolir, flottir litir
Eddufelli 2 Bæjarlind 6
s. 557 1730 s. 554 7030
Opið mán.—fös. frá kl. 10—18
lau. kl. 10—15
Opið virka daga frá kl. 10-18 laugardaga frá kl. 10-16
• Engjateigi 5
• Sími 581 2141
Nýjar haustvörur
Tweed jakkar, buxur og dragtir
Póstsendum
Laugavegi 4, sími 551 4473
www.lifstykkjabudin.is
Menningar-
nótt
Lagersala
í kjallara
OPIÐ SKIP
Allir velkomnir um borð í Gladan og Falken, sem
liggja við Ægisgarð, í dag kl. 14-16.
Sendiráð Svíþjóðar
ALPER Mehmet, sendiherra Breta
á Íslandi, tók að sér hlutverk að-
stoðarökumanns hjá rallíkapp-
anum Alan Paramore við upphaf
alþjóðlega Pirelli-rallsins í Reykja-
vík sem hófst á fimmtudag. Rall-
inu lýkur á hafnarbakkanum í dag
kl. 16.30, á menningarnótt Reykja-
víkur.
Alan er fyrirliði keppnisliðs
Hinnar konunglegu hátignar sem
er ein átta erlendra sveita sem
taka þátt í rallinu í ár. 29 rallíbílar
hófu keppni á fimmtudag en í gær
höfðu fimm dottið úr keppni af
ýmsum ástæðum.
Pirellirallið fer fram árlega og
er nú haldið í 25. sinn. Kon-
unglega breska sveitin tók fyrst
þátt árið 1995 en liðið er hugsað
sem þjálfun breskra hermanna í
akstri. Bretarnir eru með sex bíla
í keppninni og eru stærsta lið
hennar að þessu sinni. Breski
sendiherrann fékk að vera Alan til
aðstoðar er leiðin lá um Gufunes á
fimmtudag. Að sögn Tryggva M.
Þórðarsonar, sem kemur að skipu-
lagi keppninnar, tók sendiherrann
þátt í keppninni af lífi og sál. Í
gær óku keppendur m.a. um Lyng-
dalsheiði og Dómadal og enduðu í
Klettagörðum. Um miðjan dag í
gær leiddu Rúnar og Baldur Jóns-
synir keppnina en fast á hæla
þeim fylgdu Sigurður B. Guð-
mundsson og Ísak Guðjónsson.
Morgunblaðið/Jim Smart
Alper Mehmet, sendiherra Breta á Íslandi, ásamt rallíkappanum Alan
Paramore við einn keppnisbíla liðs Hinnar konunglegu hátignar.
Sendiherra
Breta tók
þátt í ralli
ÁFENGISSALA hér á landi árið
2003 var rúmar 19 milljónir lítra,
samkvæmt Hagtíðindum Hagstofu
Íslands. Um 14 milljónir felast í
sölu ÁTVR, eins og fram kom í
umfjöllun Tímarits Morgunblaðsins
fyrir skömmu, en þá var ógetið
þeirra 5 milljóna lítra sem leyf-
ishafar selja til hótela, veitinga-
húsa og víðar. Með lögum nr. 94/
1995 var einkaréttur Áfengis- og
tóbaksverslunar ríkisins til inn-
flutnings og sölu áfengis til end-
urseljenda afnuminn, en lögin tóku
gildi 1. desember 1995. Leyfishaf-
ar, sem eru ýmsir innflytjendur,
framleiðendur og heildsalar, skila
ársfjórðungslega skýrslu til Hag-
stofu Íslands.
Tölur Hagstofunnar ná hins veg-
ar ekki til áfengis sem áhafnir
skipa og flugvéla flytja inn í landið,
né þess magns sem ferðamenn
taka með sér frá útlöndum eða
kaupa í fríhöfn. Má því leiða að því
líkur að hér sé nú neytt yfir 20
milljóna lítra áfengis á ársgrund-
velli.
Edda Hermannsdóttir hjá Hag-
stofu Íslands segir að í alþjóðleg-
um samanburði á áfengisneyslu sé
hreinn vínandi yfirleitt lagður til
grundvallar, í stað lítrafjölda.
Bjór og léttvín í sókn á
kostnað sterkra drykkja
ÁTVR hefur þó þann háttinn á
að birta magn í lítrum talið og
reikna sem hlutfall af heildar-
neyslu. Báðar aðferðir sýna þá
meginþróun að neysla sterkra
drykkja hefur farið minnkandi á
síðustu árum, en sala léttvína eykst
frá ári til árs. Þá hafa vinsældir
bjórs verið í eina átt, vaxandi, síð-
an sala hans var lögleidd hér 1.
mars árið 1989, og er neysla hans
nú yfir helmingur allrar áfengis-
neyslu, mælt í alkóhóllítrum.
Þótt aldurstakmark til áfengis-
kaupa sé víðast 20 ár hefur mynd-
ast sú hefð að miða í alþjóðlegum
samanburði við einstaklinga 15 ára
og eldri, eins og gert var í fyrr-
nefndri grein Tímaritsins. Finnar
neyta manna mest af sterkum
drykkjum á Norðurlöndum, eða
2,38, talið í lítrum alkóhóls á mann,
15 ára og eldri. Næstir koma Danir
með 1,6 alkóhóllítra og Íslendingar
eru þriðju með 1,39. Heildarneysla
áfengra drykkja á Norðurlöndum
er hins vegar á þá leið að árið 2002
neyttu Danir 11,3 lítra af hreinum
vínanda, Finnar 9,2, Svíar 6,9, Ís-
lendingar 6,5 og Norðmenn 5,9
alkóhóllítra á mann.
Í öllum löndum er undanskilið í
opinberum tölum það magn áfengis
sem selt er á millilandaferjum, í
fríhöfnum og handan landamæra –
og mun víða vera hlutfallslega
meira en hérlendis. Til dæmis
sækja margir Finnar áfengi til
Eistlands, Danir aka til Þýska-
lands, Svíar til Danmerkur og
Norðmenn til Svíþjóðar, sökum
lægra verðs og tollfrelsis.
Áfengissalan í fyrra
rúmlega 19 milljónir lítra
TEXTA á heimasíðu fyrirtækisins
Smyril-Line, sem selur ferðir til Ís-
lands, þar sem Ísland er sagt gósen-
land fyrir akstur utan vega, verður
breytt, að sögn Kára Duurhuus, tals-
manns fyrirtækisins í Færeyjum.
Landvernd sendi nýlega bréf til fyr-
irtækisins þar sem farið var fram á að
textanum yrði breytt, en samkvæmt
17. grein náttúruverndarlaga er ut-
anvegaakstur bannaður á Íslandi,
nema á jöklum eða frosinni jörð.
Durhuus segir að hann sjái ekki að
textinn sé vandamál. „Við biðjum fólk
ekki að brjóta íslensk lög. Við segjum
þeim bara frá því að það séu mögu-
leikar fyrir þá sem vilja aka utan veg-
ar [off-roaders] á Íslandi,“ segir hann
og bendir á að leyfilegt sé að aka á
jöklum og utan vegar á óbyggðum
svæðum, þar sem jörðin er þakin snjó
eða frosin. „Það er möguleiki fyrir
ferðamenn á leið til Íslands að gera
þetta og við verðum að segja þeim
það,“ segir Duurhus.
Hann sagðist ætla að breyta text-
anum, svo það verði skýrt hvers kon-
ar utanvegaakstur sé leyfilegur á Ís-
landi. „Ég get ekki sagt að við munum
ekki segja fólki að það megi ekki aka
utan vegar, því það má aka utan veg-
ar, en við ættum kannski að láta far-
þegana vita betur undir hvaða kring-
umstæðum það er leyfilegt.“
Texta Smyril Line verður breytt
„Við biðjum fólk ekki
að brjóta íslensk lög“