Morgunblaðið - 21.08.2004, Síða 12
VIÐSKIPTI/ATHAFNALÍF
12 LAUGARDAGUR 21. ÁGÚST 2004 MORGUNBLAÐIÐ
Google
hækkaði
um 18%
VERÐ hlutabréfa í Google hækkaði
um 18% á fyrsta degi viðskipta eftir
hlutafjárútboð félagsins og var loka-
verð þeirra á Nasdaq-hlutabréfa-
markaðnum á fimmtudag 100,34 doll-
arar á hlut. Þykir þetta sigur fyrir
aðstandendur frumútboðs Google
sem sáu sig knúna til að lækka upp-
haflega áætlað verðbil bréfanna um
26% að jafnaði, í 85 til 95 dollara. Áður
hafði verið talið að verð hvers hlutar
yrði á bilinu 108 til 135 dollarar.
Meira en 22 milljónir hluta í Google
skiptu um hendur á markaðinum á
fimmtudag og komust hlutabréf fé-
lagsins þannig strax í hóp tíu veltu-
hæstu bréfa á Nasdaq. Þess má geta
að 19,6 milljón hlutir voru boðnir út í
frumútboðinu og seldir á 85 dollara
hver. Útboðið skilaði því fyrirtækinu
um 1,7 milljörðum dollara, sem svarar
til ríflega 118 milljarða íslenskra
króna.
Í vefútgáfu The Wall Street Journ-
al segir að svo virðist sem verðhækk-
unin réttlæti þá ákvörðun stofnenda
Google að draga úr fjölda þeirra hluta
sem boðnir voru út, en jafnhliða lækk-
un á verðbili í útboði var hlutunum
sem fóru í sölu fækkað um 6,1 milljón.
HAGNAÐUR af rekstri
Síldarvinnslunnar nam
302 milljónum króna á
fyrstu sex mánuðum árs-
ins og er það 23% minni
hagnaður en á sama tíma-
bili árið á undan. Tap á
öðrum ársfjórðungi nam
58 milljónum króna sem er
þó mun minna tap en á
sama fjórðungi í fyrra.
Rekstrartekjur drógust
saman um 2,7% á fyrri
hluta árs miðað við sama tíma í fyrra
og námu 4,7 milljörðum króna.
Rekstrargjöld voru 8,2% lægri og
námu 4,3 milljörðum króna. Rekstr-
arhagnaður var 716 milljónir króna
en það er 46%, eða 226 milljóna
króna, aukning frá fyrra ári. Hagn-
aður fyrir afskriftir og fjármagnsliði,
EBITDA, var 1,3 milljarðar króna
eða 27,6% af rekstrartekjum.
Fjármunaliðir Síldar-
vinnslunnar versna
verulega eða um 270
milljónir, voru nú nei-
kvæðir um 230 milljónir
króna en höfðu verið já-
kvæðir um 47 milljónir á
fyrri hluta árs í fyrra.
Eignir voru í lok júní
18,8 milljarðar króna og
höfðu aukist um tæp 7%
frá áramótum, mest
vegna 914 milljóna
króna aukningar á handbæru fé.
Skuldir jukust um 9% frá áramótum
eða ríflega 1,1 milljarð en þar af er
630 milljóna króna hækkun lang-
tímaskulda og 530 milljóna króna
hækkun skammtímaskulda. Til sam-
stæðunnar teljast Garðar Guð-
mundsson hf., Fóðurverksmiðjan
Laxá, Eignarhaldsfélag Austur-
lands, SR-mjöl og Seley.
Aukinn rekstrarhagn-
aður Síldarvinnslunnar
!
"
$ %
&
'()
*
*&+
! "# $
"%
& '"% ("
) ("
*"% (" & '"%
+!'
+!%
! '#
,#
, " !
-./!
-. ! "#($
0
' ! "# 1'#
. & '"%
'#'!
2. "
2'( 3 4"($
2 5 $ 63 / "
7("
)'%(
)#"
*8 9" 3 ""
:;/!
-&
-8'% "" '" -' 1'# -'"%
-9'
-'. / 5 /$
<"#
<5## "#. "
= "" ' "
6.$ .. >-9(!#
(
!'% ?5
*"% 8. & '"% <9 9
=5## "# 1'# & '"%
-8
$!
>
>
>
>
>
>
>
>
>
>
>
>
>
>
!5 "#
5 $!
> >
> >
>
>
>
>
>
>
>
> >
> > >
>
>
>
>
>
>
>
>
>
>
>
>
@ AB
@ >AB
@
AB
@ AB
>
@ AB
@ AB
@ AB
@ >AB
@ AB
@ AB
@ >AB
>
@ AB
>
>
>
@ AB
>
@ AB
>
@ AB
>
@ >AB
>
@ >AB
@ >
AB
>
>
>
>
>
>
>
>
>
>
>
>
>
2! '%
%# "
< '( 8 ' %# C
) -'
$ $
$
$
>
$ $$
$ $ $
$
>
$ $
$ >
$ >
$
$
$ >
>
>
>
$ >
>
>
>
>
>
>
>
>
>
>
>
= 8 D4 $ $
<2$ E /#"' '%
>
>
>
>
>
>
>
>
>
>
>
>
>
HAGNAÐUR Vinnslu-
stöðvarinnar hf. á fyrri
helmingi ársins nam 313
milljónum króna, og dróst
saman um 11,4% frá sama
tímabili í fyrra þegar hann
nam 353 milljónum. Kem-
ur þetta fram í árshluta-
uppgjöri félagsins sem
birt var í gær. Heildar-
tekjur Vinnslustöðvarinn-
ar á tímabilinu námu 2.293
milljónum króna, sem er
7,8% aukning frá því á sama tíma í
fyrra, rekstrargjöld hækkuðu einnig
um 7,8% frá árinu áður, eða úr 1.416
milljónum í 1.527 milljónir króna.
Hagnaður fyrir afskriftir og fjár-
magnsliði (EBITDA) nam tæpum
766 milljónum króna, sem er 7,6%
hækkun frá sama tímabili í fyrra.
Framlegðarhlutfall er 33,4% og
stendur í stað frá árinu áð-
ur.
Veltufé frá rekstri nam
665 milljónum króna og var
29% af rekstrartekjum.
Hagnaður á öðrum árs-
fjórðungi var 100 milljónir
króna, en tekjur félagsins á
tímabilinu námu rétt rúm-
um milljarði króna. Á sama
tímabili í fyrra varð 36
milljóna króna tap á rekstri
félagsins.
Í tilkynningu til Kauphallar Ís-
lands kemur fram að áætlun fyrir
árið 2004 hefur verið endurskoðuð,
og spáir stjórn félagsins því að fram-
legð verði um 1.000 milljónir króna á
árinu, og haldist gengi krónunnar
stöðugt megi gera ráð fyrir 200
milljóna króna hagnaði fyrir árið
2004.
Minni hagnaður
hjá Vinnslustöðinni
"
%++,
%++,
('
&*
*(**+
, #
)
$ %
HAGNAÐUR af rekstri Vátrygg-
ingafélags Íslands hf. (VÍS) á fyrri
hluta ársins nam tæpum 1,4 millj-
örðum króna. Er það 18%, eða 211
milljóna króna, meiri hagnaður en
var á sama tímabili í fyrra.
Eigin iðgjöld félagsins drógust
saman um 3% á milli ára, voru tæp-
ir 3,2 milljarðar, og eigin tjón dróg-
ust saman um rúm 2% í tæpa 2,6
milljarða. Hagnaður af skaðatrygg-
ingum dróst í heild saman um 3,3%
og nam 776 milljónum króna.
Hagnaður af líftryggingarekstri
jókst hins vegar verulega, ríflega
þrefaldaðist miðað við sama tímabil
í fyrra og nam 203 milljónum króna.
Afkoma vátryggingarekstrar fé-
lagsins batnaði því í heildina um
13,4% og var á fyrstu sex mánuðum
ársins 979 milljónir króna.
Fjárfestingartekjur félagsins juk-
ust um tæp 16% frá fyrra ári og
námu rúmum 2 milljörðum króna
en þar af er 1,1 milljarður vegna
söluhagnaðar og 950 milljónir eru
vaxta- og gengismunur. Fjárfest-
ingargjöld námu 106 milljónum.
Fjárfestingartekjur sem færast á
vátryggingarekstur nema ríflega
1,1 milljarði og er það 14,3% hækk-
un frá sama tímabili í fyrra. Hagn-
aður af fjármálarekstri var 790
milljónir króna.
Eignir VÍS-samstæðunnar námu
í lok júní 30,4 milljörðum króna,
sem er 5% aukning frá áramótum.
20,6 milljarðar eignanna liggja í
verðbréfum og veðlánum. Þar af
eru rúmir 10 milljarðar í hlutabréf-
um og hlutdeildarskírteinum. Sam-
kvæmt bókfærðu verði eignanna á
VÍS mest í KB banka, SÍF, Skinn-
ey-Þinganesi og Bakkavör Group.
Hagnaður
VÍS eykst
um 18%
-
%++%
%++%
%++%
(
(.
(
*+.
. ''+
*
)(
-
, -/
0
*1
SEÐLABANKINN hefur lýst því yf-
ir að hann muni horfa framhjá breyt-
ingum á bensínverði þegar ákvarðan-
ir um stýrivexti eru teknar.
„Skammtímabreytingar á bensín-
verði eru utanaðkomandi áhrif á efna-
hagslífið sem Seðlabankinn hefur
enga stjórn yfir, og að því leyti getur
verið réttlætanlegt að horfa framhjá
slíkum breytingum,“ segir Arnór Sig-
hvatsson, aðalhagfræðingur Seðla-
banka Íslands. „Langvarandi hækk-
anir á olíuverði geta hins vegar haft
áhrif á almennt verðlag og verðbólgu-
væntingar, og ef það gerist getur
komið til þess að bankinn þurfi að
bregðast við með einhverjum hætti,“
segir Arnór.
Greiningardeild Íslandsbanka ger-
ir þessa ákvörðun Seðlabankans að
umfjöllunarefni í Morgunkorni sínu,
og kemur þar fram að smásöluverð á
bensíni og olíum hafi hækkað um 16%
á síðustu tólf mánuðum. Bein áhrif
þessara hækkana skýri um 0,6 pró-
sentustig af þeirri 3,6% verðbólgu
sem mælist um þessar mundir, en
með beinum áhrifum er þá átt við
áhrif á bensín- og olíureikning heim-
ilanna.
Spá vaxtahækkun
„Við erum í rauninni að taka undir
ákvörðun Seðlabankans,“ segir Ing-
ólfur Bender, forstöðumaður grein-
ingardeildar Íslandsbanka. „Við er-
um að segja að í raun eigi bankinn að
líta framhjá breytingum á bensín- og
olíuverði við ákvörðun á stýrivöxtum
sínum. Þrátt fyrir að hærra bensín-
verð valdi hækkunum á vísitölu
neysluverðs, þá er olíuverð utan
áhrifasvæðis seðlabankans og vaxta-
hækkanir, sem eingöngu væru svar
við hækkandi olíuverði, myndu aðeins
gera illt verra. Slík vaxtahækkun
myndi hækka kostnað heimila og fyr-
irtækja, sem þegar hafa þurft að þola
kostnaðarhækkun vegna hærra olíu-
verðs.“
Ingólfur tekur þó fram að greining-
ardeildin telji að þrátt fyrir að horft
sé framhjá áhrifum olíunnar hvetji
aðrir undirliggjandi áhrifaþættir
verðbólgu Seðlabankann til hækkun-
ar stýrivaxta á næstu vikum.
Ingólfur segist búast við að Seðla-
bankinn hækki stýrivexti um það leyti
sem næsta eintak Peningamála kem-
ur út, eða um miðjan næsta mánuð.
Björn R. Guðmundsson, sérfræð-
ingur á greiningardeild Landsbank-
ans, tekur í sama streng. „Það er ljóst
að olíuverð er þáttur sem Seðlabank-
inn hefur engin áhrif á, og er því ekki
hlutur sem er eðlilegt að miða inn-
lenda hagstjórn við nema að litlu
leyti.“ Björn segir að hins vegar megi
ekki gleymast að hærra olíuverð hef-
ur áhrif til hækkunar verðbólgu,
„einkum þegar til skamms tíma er lit-
ið, og eru þensluáhrif hærra olíuverðs
klárlega meiri en þau samdráttar-
áhrif sem verða vegna minni fram-
leiðslu.“ Björn tekur þó fram að aðrir
þættir hafi meiri áhrif til hækkunar
verðbólgu. „Þættir eins og húsnæð-
isverð hafa mun meiri áhrif á verð-
bólgu en olían.“
Morgunblaðið/Sverrir
Hækkanir Smásöluverð á bensíni og olíum hefur hækkað um 16% á síðustu
tólf mánuðum og skýra bein áhrif þessara hækkana um 0,6 prósentustig af
þeirri 3,6% verðbólgu sem mælist um þessar mundir.
Horft framhjá olíuverði
við vaxtaákvarðanir
ÞETTA HELST …
VIÐSKIPTI
: %F
-GH
!"
!"
A
A
<-?
IJ
#
!"$
%"
A
A
KK ,+J
&
&
%"$
%"
A
A
)J
: !
$
%"
%"
A
A
LK?J IM 7"!
$$
!"
!"
A
A
● NOKKRAR af stærstu verslunar-
miðstöðvum Bandaríkjanna skiptu
um hendur í gær og var, að sögn Fin-
ancial Times, um að ræða stærstu
fasteignaviðskipti í sögu Bandaríkj-
anna.
Eignarhaldsfélagið The Rouse
Company, eigandi verslunarmið-
stöðvanna, var selt General Growth
Properties fyrir um 12,6 milljarða
Bandaríkjadala, eða um 900 millj-
arða íslenskra króna.
Stærstu fasteigna-
viðskiptin
● ÚRVALSVÍSITALA Kauphallar Ís-
lands hækkaði um 0,95% í viðskipt-
um gærdagsins og er nú 3.225,65
stig. Viðskipti voru með hraustleg-
asta móti, en alls námu þau rúmum
8,5 milljörðum króna, og voru við-
skipti með hlutabréf rúmir 3,7 millj-
arðar.
Mest voru viðskipti með bréf KB
banka, eða fyrir tæpa 1,3 milljarða
króna. Hlutabréf bankans hækkuðu
um 1,9% og er gengi þeirra nú 425
krónur á hlut. Bréf hinna bankanna
tveggja, Íslandsbanka og Lands-
banka hækkuðu um 0,5%.
KB banki
hækkar um 1,9%