Morgunblaðið - 21.08.2004, Qupperneq 16

Morgunblaðið - 21.08.2004, Qupperneq 16
ERLENT 16 LAUGARDAGUR 21. ÁGÚST 2004 MORGUNBLAÐIÐ BOBBY Fischer, fyrrum heims- meistari í skák, hringdi í gærmorg- un í Útvarp Sögu og ræddi þar við Sigurð G. Tómasson útvarpsmann og vin sinn Sæmund Pálsson en við- talið fór fram fyrir milligöngu hans. Fischer sagði vonir hafa vaknað um að honum myndi takast að af- sala sér bandarískum ríkisborg- ararétti. Kvaðst hann hafa fengið bréf fyrr um morguninn þess efnis að bandarískir embættismenn hefðu fallist á að senda fulltrúa á fund hans. Fischer er í varðhaldi í Tókýó í Japan. Hann er eftirlýstur í Bandaríkjunum fyrir að hafa brotið gegn samskiptabanni sem Samein- uðu þjóðirnar settu gagnvart Júgó- slavíu en þar háði hann einvígi við Borís Spasskíj árið 1992 þegar 20 ár voru liðin frá einvígi þeirra í Reykjavík. Fischer vildi ekki ræða einkamál sín. Aðspurður kvaðst hann ekki hafa hugleitt að setjast að á Íslandi fengi hann frelsið á ný. Hann teldi að loftslag á Íslandi hentaði sér ekki, hér væri of kalt. Þá kvaðst hann ekki geta hugsað sér að búa á Íslandi á meðan hér væri bandarísk herstöð. Hvatti hann Íslendinga til að losa sig við bandarískt varnarlið. Hann sagðist og hafa lesið að í ráði væri að reisa nýtt álver á Íslandi og taldi þær fréttir ekki gleðiefni. Hann kvaðst enn minnast meng- unarinnar úr álverinu í Straumsvík. Fischer nefndi að hann gæti hugsað sér að setjast að í Sviss. Hár á höfuð Berlusconi ÍTALSKUR lýtalæknir, Piero Ros- ati að nafni, greindi frá því í blaða- viðtali sem birtist í gær að hann hefði grætt hár á höfuð Silvios Berlusconis, forsætisráðherra Ítal- íu. Mikla athygli vakti fyrr í vikunni að Berlusconi bar skuplu á höfði þegar hann tók á móti Tony Blair, forsætisráðherra Bretlands, og eig- inkonu hans er þau komu til Sardin- íu. Vangaveltur vöknuðu um að Berlusconi, sem er 67 ára, hefði gengist undir aðgerð til að fjölga hárum á höfðinu. Þetta staðfesti síðan Piero Rosati í viðtali við dag- blaðið Corriere della Sera í gær. Kvaðst hann hafa flutt til hár á höfði Berlusconis til að minnka skallann. Nokkrar vikur myndu líða þar til ljóst yrði hvort aðgerðin hefði borið tilætlaðan árangur. Rice valda- mest kvenna CONDOLEEZZA Rice, þjóðarör- yggisráðgjafi Georges W. Bush, Bandaríkja- forseta, er valda- mesta kona heims, að mati bandaríska við- skiptatímaritsins Forbes. Wu Yi, aðstoðarforsæt- isráðherra Kína, er í öðru sæti og Sonia Gandhi, leiðtogi indverska Kongressflokksins, er í þriðja sæti að mati blaðsins. Í fjórða sæti er Laura Bush, eig- inkona Bandaríkjaforseta, og í næstu sætum koma Hillary Clinton öldungadeildarþingmaður, Sandra Day O’Connor og Ruth Bader Gins- burg sem báðar eru hæstarétt- ardómarar í Bandaríkjunum. Rúmlega helmingur af konunum í 100 efstu sætunum búa í Banda- ríkjunum. Of kalt á Íslandi Condoleezza Rice ALI-moskan í Najaf, sem verið hef- ur miðdepill átakanna þar í borg að undanförnu, er meðal merkustu kennileita íslamskrar listar. Er hún fagurlega skreytt og geymir að sögn mörg forn og ómetanleg hand- rit. Síðast en ekki síst er hún reist yfir silfurslegna gröf Ali bin Abi Talibs, frænda og tengdasonar Mú- hameðs spámanns, mesta dýrlings sjíta. Þótt það yrði létt verk fyrir íraska og bandaríska hermenn að yfirbuga menn uppreisnarklerksins Moqtada al-Sadr sem þar hafa hald- ið til undanfarnar vikur, gæti árás á moskuna haft alvarlega afleiðingar í för með sér. Verði moskan fyrir skemmdum í átökunum gæti það valdið mikilli reiði með Íraka og múslíma um allan heim, aukið hatrið á her- námsliðinu og bráðabirgðastjórn- inni og hugsanlegt eflt mjög stuðn- ing við uppreisnarklerkinn Moqtada al-Sadr. Í augum 120 millj- óna sjíta er Ali-moskan háheilög og sjálfur miðpunktur alls þeirra trúarlífs. Moskan sjálf er umkringd fer- hyrndri byggingasamstæðu og öll mjög fagurlega skreytt ljóðum og versum úr Kóraninum, gimsteinum og gulli. Talsmenn bráðabirgða- stjórnarinnar hóta allsherjarárás á uppreisnarmennina og segja, að hún muni þá verða öðrum uppreisn- arhópum víti til varnaðar, en bráða- birgðastjórnin hlýtur þó að átta sig á því, að verði helgidóminum spillt, er óvíst, að lífdagar hennar sjálfrar verði öllu lengri. Enginn kostur góður Bandarísku hermennirnir hafa strangar fyrirskipanir um að skjóta ekki á Ali-moskuna en hún hefur samt sem áður orðið fyrir minni- háttar skemmdum og kenna hvorir öðrum um. Margir sjítar eru hins vegar ævareiðir því einu, að erlend- ir villutrúarmenn skuli yfirleitt vera á þessum helga stað. Með það í huga lýsti Hazem Shaalan, varnarmála- ráðherra bráðabirgðastjórnarinnar, því yfir, að aðeins íraskir hermenn myndu taka þátt í hugsanlegri árás. Hlutverk Bandaríkjamanna yrði að styðja þá úr lofti og loka öllum að- liggjandi vegum. Þessi áætlun hefur þó líka ýmsar hættur í för með sér. Írösku hermennirnir eru ekki jafn vel þjálfaðir og þeir bandarísku og því meiri hætta á, að þeir valdi skemmdum á moskunni. Þá er held- ur ekki ólíklegt, að það verði erfitt fyrir írösku hermennina að berjast um stað, sem er jafnháheilagur þeim og öðrum sjítum. Þar fyrir ut- an breytir það litlu þótt aðeins íraskir hermenn gerðu árásina. Á hana yrði hvort sem er litið sem verk Bandaríkjamanna. „Verði gerð árás á moskuna mun það kynda undir meira hatri á Bandaríkjamönnum meðal múslíma en áður hefur þekkst,“ sagði Juan Cole, sérfræðingur í íröskum mál- efnum við Michigan-háskóla, „og gera endanlega út um lögmæti bráðabirgðastjórnarinnar.“ Óþrjótandi uppspretta Cole bendir einnig á, að yfirlýs- ingar yfirvalda um að uppræta Mehdi-herdeild Sadrs með árás á stöðvar þeirra við moskuna séu barnalegar í besta falli. Ástæðan sé fyrst og fremst sú, að liðsmenn henn- ar séu langflestir úr fátækrahverfum sjíta í Najaf og víðar. Þess sé ekki að vænta að sú uppspretta sé að þorna. „Þótt liðsmenn Sadrs verði hraktir úr moskunni þá væri það bara tíma- bundið áfall,“ sagði Cole. Árás á Ali- moskuna gæti kveikt nýja elda Verði henni spillt gæti það gert út af við írösku bráðabirgðastjórnina !"#$%&'!'(#)$***+   ,- % , . /-- 0 1   2 -,  3  * . -  . 3 -  "4 ,  35 , -    -    .1       6 0  -  *  +  ! -  ! -   3 7.!  /!'# %3. 8 8 & # !  5  # '8  9"% # !"#% " +4/.! .""  . '   * .  #%%  . -8 -4""  )4% !       /   ÍRASKUR piltur gengur framhjá mynd af Ahmed Chalabi, fyrrver- andi yfirmanni íraska fram- kvæmdaráðsins, á mótmælagöngu í Bagdad í gær. Um það bil 500 ungmenni tóku þátt í göngunni sem var skipulögð til að mótmæla áformum íraskra yfirvalda um að ákæra Chalabi fyrir pen- ingafölsun. Mörg ungmennanna viðurkenndu þó að þau hefðu að- eins mætt í gönguna til að fá ókeypis boli sem skipuleggjendur hennar hefðu lofað. Þau héldu á myndum af Chalabi en hrópuðu vígorð til stuðnings sjía-klerk- inum Moqtada Sadr og liðs- mönnum hans í Najaf. Reuters Fengu myndir af Chalabi en studdu Sadr BANDARÍSKI öldungadeildarþing- maðurinn Ted Kennedy hefur fimm sinnum verið stöðvaður og færður til yfirheyrslu á flug- völlum í Banda- ríkjunum vegna þess að nafn sem líktist nafni hans var á lista yfir hugsanlega hryðjuverka- menn. Tom Ridge, ráðherra heima- varnarmála í Bandaríkjunum, hefur beðið þing- manninn afsökunar á klúðrinu. Kom þetta fram er fjallað var um farþega- listana í þinginu á fimmtudag. „Ef þingmenn lenda í svona vand- ræðum, hvernig meðferð fá þá óbreyttir amerískir borgarar sem verða fyrir þessu, hvernig í ósköp- unum eiga þeir að hljóta sanngjarna meðferð og hvernig getur verið öruggt að ekki sé troðið á réttindum þeirra?“ spurði Kennedy sem er þingmaður demókrata frá Massachusetts. Kennedy hefur fimm sinnum verið stöðvaður á flugvöllum í Wash- ington og Boston. Starfsmenn flug- félagsins US Airways neituðu að selja honum farmiða vegna þess að nafnið hans væri á lista hjá þeim. Þegar hann spurði hvers vegna svo væri fékk hann svarið: „Við getum ekki sagt þér það.“ Var þingmanninum í öll skiptin hleypt í gegn eftir að eftirlitsmenn báru kennsl á hann en nokkrum sinnum varð þetta næstum því til þess að hann missti af flugi. Eftir að þetta hafði gerst í þrí- gang hafði þingmaðurinn samband við samgöngumálayfirvöld og bað um að listinn yrði endurskoðaður til að koma í veg fyrir rugling af þessu tagi. Hann var samt sem áður stöðv- aður tvisvar eftir það. Þurfti hann að hringja alls þrisvar sinnum í yf- irvöld og biðja um að þetta yrði leið- rétt til að tryggja að hann kæmist óhindrað í flug. Hermt var að þingmaðurinn hefði verið stöðvaður vegna þess að mað- ur sem var á lista yfir meinta hryðjuverkamenn hefði notað dul- nefnið T. Kennedy. Öryggisgæslan á flugvöllum vestra Kennedy stöðvaður hvað eftir annað Washington. AP, The Washington Post. Ted Kennedy TALSMAÐUR bandaríska varnar- málaráðuneytisins sagði í gær að ekki hefðu komið fram vísbendingar um að læknar Bandaríkjahers hefðu aðstoðað við pyntingar á föngum í Abu Ghraib-fangelsinu í Bagdad eða hylmt yfir þær. Í breska læknatímaritinu Lancet eru læknar Bandaríkjahers sakaðir um að hafa aðstoðað við að skipu- leggja pyntingarnar, fylgst með þeim og falsað skýrslur og dánar- vottorð til að hylma yfir þær. Talsmaður varnarmálaráðuneytis- ins sagði að ásakanirnar væru „al- varlegar og víðtækar“ en að í grein Lancet væri dregin upp „ónákvæm mynd af því hvernig læknarnir gegndu skyldum sínum“. Engar vís- bendingar hefðu komið fram um að læknarnir hefðu aðstoðað við pynt- ingarnar eða hylmt yfir þær. Pyntingarnar í Abu Ghraib Segja ekkert benda til samsektar lækna London. AFP.

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.