Morgunblaðið - 21.08.2004, Side 24
MINNSTAÐUR
24 LAUGARDAGUR 21. ÁGÚST 2004 MORGUNBLAÐIÐ
AKUREYRI
LANDIÐ
SJÖ hverastrýtur að minnsta kosti
fundust norður af Arnarnesi nú í vik-
unni og benda allar líkur til að þær
séu virkar.
Fyrir milligöngu Íslenskra orku-
rannsókna á Akureyri fékk Norður-
orka hafrannsóknarskip Landhelgis-
gæslunnar, Mb Baldur, til að
kortleggja botn Eyjafjarðar á milli
Laufásgrunns og Arnarness. Að
sögn Bjarna Gautasonar jarðfræð-
ings hjá stofnuninni var tilgangurinn
tvíþættur. Annars vegar að afla upp-
lýsinga um botngerð og lögun vegna
mögulegrar lagningar hitaveitu yfir
fjörðinn, en á vegum Norðurorku
hefur að undanförnu verið athugað
með hvað hætti sjá mætti Grenivík
fyrir heitu vatni til húshitunar. Einn
þeirra kosta sem nú eru til skoðunar
er að tengja Grenivík við vinnslu-
svæði Norðurorku á Arnarnesi. Hins
vegar var tilgangur kortlagningar-
innar sá að finna ummerki um jarð-
hita á hafsbotninum norður af Arn-
arnesi og Arnarnesvík.
Fjölgeisladýptarmælir sem gefur
mjög nákvæma mynd af lögun hafs-
botnsins var notaður en mælingar
stóðu yfir fyrr í vikunni. Frumúr-
vinnsla gagnanna fer fram jafnóðum
um borð í skipinu en frekari úr-
vinnsla stendur nú yfir. Hverastrýt-
urnar sem fundust eru í það minnsta
sjö talsins og virðast liggja á einni
jarðhitasprungu.
„Okkur þykir þetta af ýmsum
ástæðum mjög merkilegt,“ sagði
Bjarni. „Ég hef mikinn áhuga á þeim
jarðhitakerfum sem eru hér í Eyja-
firði, m.a. til að reyna að skilja þau í
víðu samhengi, hvernig eiginleikar
kerfanna breytast frá norðri til suð-
urs. Það virðist vera að eftir því sem
norðar dregur séu kerfin kaldari, en
vatnsgæfari og öflugri. Það er því
áhugi á að rannsaka þetta nánar og
sjá hvers kyns er og reyna að átta sig
á tengslunum á milli kerfanna ef ein-
hver eru.“ Bjarni nefndi einnig að í
kringum hitauppsprettur af þessu
tagi væri einnig mjög sérstakt
plöntu og lífríki.
Bjarni sagði að enn hefði ekki ver-
ið kafað niður að strýtunum, en það
yrði væntanlega gert í næstu viku.
Rannsóknir á jarðfræði og lífríki
kringum strýturnar verða sam-
starfsverkefni Íslenskra orkurann-
sókna á Akureyri, Norðurorku, Auð-
lindadeildar Háskólans á Akureyri
og Hafrannsóknarstofnunar á Akur-
eyri.
Merki um jarðhita á botni Eyjafjarðar
Fundu sjö hverastrýtur
sem líklega eru virkar
Hverastrýtur norður af Arnarnesi. Horft til vesturs yfir fjörðinn í átt að
Arnarnesi. Athugið að lóðréttur og láréttur mælikvarði er ekki sá sami og
er hæð strýtnanna ýkt.
SKÓLASTARF hófst í öllum grunn-
skólum Akureyrar í gær nema
Brekkuskóla, en þar verður skólinn
settur eftir helgi. Alls verða um
2.630 nemendur við nám í grunn-
skólum bæjarins í vetur og eru þá
tæplega 30 nemendur í Grunnskól-
anum í Hrísey þar með taldir en
sveitarfélögin sameinuðust sem
kunnugt er fyrr í sumar.
Nemendur, kennarar og starfs-
fólk í Síðuskóla mættu hress og kát
til skólasetningar í gærmorgun, en
þar á bæ hafa staðið yfir fram-
kvæmdir í sumar. Fólk mætti til
setningar í nýjum samkomusal sem
eflaust á eftir að koma sér vel í fé-
lagsstarfinu á komandi vetri. Þar
er nú einnig komið nýtt mötuneyti
og síðast en ekki síst hefur íþrótta-
hús risið við skólann sem stórbætir
alla aðstöðu.
Morgunblaðið/Margrét Þóra
Eftirvænting: Nemendur í Síðuskóla mættu til skólasetningar í gærmorgun.
Í skólann á ný
eftir gott sumar
Hólmavík | Ferðaþjónar á Ströndum
láta vel af ferðamannastraumnum það
sem af er sumri. Hjá ferðaþjónustunni á
Kirkjubóli við Steingrímsfjörð er um
metsumar að ræða og lætur nærri að
herbergjanýtingin í júlí hafi verið 100%.
Þar hefur verið rekið gistihús síðan í
júní 2001 og telur Jón Jónsson, sem rek-
ur gistihúsið ásamt konu sinni Ester
Sigfúsdóttur, að þau þurfi að fara að
huga að fjölgun gistirýma. Taldi hann
að aðrir sem selja gistingu á Ströndum
hlytu að hafa svipaða sögu að segja
varðandi nýtinguna í sumar.
Jón kemur einnig að starfi upplýs-
ingamiðstöðvar og Sauðfjárseturs á
Ströndum. Upplýsingamiðstöðin hefur
umsjón með tjaldsvæðinu á Hólmavík,
en það var stækkað heilmikið í sumar
og til stendur að leggja þar rafmagn og
koma upp losunaraðstöðu fyrir húsbíla.
Breytingar með
tilkomu sundlaugar
Gífurleg aðsókn hefur verið á tjaldstæðið og
merkir starfsfólk upplýsingamiðstöðvarinnar
mikla breytingu með tilkomu nýrrar sundlaug-
ar sem staðsett er við hliðina á tjaldsvæðinu.
Fólk staldri lengur við á tjaldstæðinu og nýti
sundlaugina vel. Þá hefur upplýsingamiðstöðin
boðið upp á þá nýjung að leigja út reiðhjól heil-
an eða hálfan dag og hefur reiðhjólaleigunni
verið vel tekið. Gestafjöldi á Sauðfjársetri í Sæv-
angi er svipaður og áður, en þetta er þriðja
sumarið sem það er starfrækt. Þar eru þó eftir
tveir stórir viðburðir á næstu vikum og ber þar
hæst meistaramót í hrútadómum á sunnudag-
inn. Að sögn Jóns Jónssonar vakti mótið mikla
athygli í fyrra og er þetta sá viðburður á sum-
ardagskrá setursins sem dregur helst að sér
ferðamenn alls staðar af landinu.
Einnig er framundan bændahátíð í sept-
ember og er hún lokapunktur sumarsins hjá
Sauðfjársetrinu og um leið nokkurs konar
uppskeruhátíð bænda á svæðinu. Þangað hafa
alltaf slæðst nokkrir ferðamenn og þeir sem
koma á viðburð hjá sauðfjársetrinu skemmta
sér yfirleitt konunglega og ákveða að koma aft-
ur. Gunnar S. Jónsson forstöðumaður íþrótta-
mannvirkja tók í sama streng og lét vel af að-
sókninni í sundlaugina. Frá opnun hennar um
miðjan júlí hafa alls komið um 3000 gestir, en
fyrsta helgin var sú besta til þessa. Stór hluti
sundlaugargesta eru ferðamenn.
Aðsókn á Galdrasýningu á Ströndum hefur
alltaf aukist ár frá ári og að sögn Sigurðar Atla-
sonar, sem hefur verið þar flestar helgar í sum-
ar og kveðið niður drauga í gervi
galdramanns, er enn eitt metárið orðið
að veruleika. Magnús H. Magnússon
eigandi Café Riis og Braggans á
Hólmavík sagði að þar væri mun betri
traffík en í fyrrasumar. „Það varð bylt-
ing eftir að fótboltinn var búinn, það er
eins og fólk haldi að það sé ekki til sjón-
varp annars staðar en heima í stofu,“
sagði Magnús. Hann kvaðst einnig
verða var við að fólk stoppaði lengur en
áður og taldi að sundlaugin og stækkun
tjaldsvæðisins hefðu gífurleg áhrif á
það. Café Riis er einn af þeim veit-
ingastöðum sem bjóða upp á þjóðlega
rétti sem eru sérmerktir á matseðli og
hefur þeim verið vel tekið, sérstaklega
af útlendingunum. Enn er töluverður
ferðamannastraumur á Café Riis en
Magnús sagði að vanalega færi að
hægjast um þegar vika er liðin af ágúst.
Fjölmenni í Bragganum
Magnús rekur einnig samkomuhúsið Bragg-
ann og þar var stórdansleikur með Hljómum
fyrr í mánuðinum. Auk heimafólks og burt-
fluttra Strandamanna mættu gestir frá Reykja-
vík, Keflavík, Akranesi og víðar að á dansleik-
inn sem var mjög fjölmennur. Café Riis var
nýlega auglýst til sölu en Magnús sem gerði
húsið upp og hefur rekið þar veitinga og
skemmtistað í níu ár, mun halda rekstrinum
áfram þar til tekst að selja.
Ljóst er að ferðaþjónar á Ströndum þurfa
engu að kvíða ef miðað er við þetta sumar. Veð-
urblíðan hefur átt sinn þátt í góðu sumri og
virðist vera að sú uppsveifla sem hefur verið í
uppbyggingu ferðaþjónustu á Ströndum síðasta
áratuginn sé orðin stöðug.
Mikill ferðamannastraumur hefur legið á Strandir í sumar
Huga þarf að fjölgun gistirýma
Morgunblaðið/Kristín Sigurrós
Ferðaþjónustubændurnir Jón Jónsson þjóðfræðingur og Ester
Sigfúsdóttir bókavörður. Í baksýn er bær þeirra, Kirkjuból.
Egilsstaðir | Í tilefni af héraðshátíðinni Orm-
steiti á Fljótsdalshéraði efndu stjórnendur
Ormsteitis og félagið Ormsskrínið til hug-
myndasamkeppni meðal ungs fólks (18-30 ára)
sem búsett er á Austurlandi, um listaverk/
skúlptúr sem hefði Lagarfljótsorminn að við-
fangsefni. Hugmyndirnar skyldu taka mið af
því að listaverkinu yrði komið fyrir utandyra
og að það yrði varanlegt.
Í fréttatilkynningu segir að þátttaka hafi
verið ágæt og fimm hugmyndir nú verið
hengdar upp í Ormsteitistjaldinu á Egils-
stöðum. Þar gefst gestum og gangandi kostur
á að greiða þeirri tillögu atkvæði sem þeim
þykir best. Atkvæði almennings munu síðan
vega 50% á móti niðurstöðum þriggja manna
dómnefndar sem í eiga sæti: Alma J. Árna-
dóttir grafískur hönnuður, Ólöf Björk Braga-
dóttir myndlistarkona og Einar Ólafsson
byggingafræðingur.
Úrslit verða tilkynnt á kvöldvöku í tjaldinu í
kvöld. Hlutskarpasta tillagan hlýtur 100.000
kr. verðlaun auk þess sem höfundur mun njóta
brautargengis við að gera listaverkið að veru-
leika.
Morgunblaðið/Steinunn Ásmundsdóttir
Lagarfljótsormurinn er allsráðandi á Héraði:
Í kvöld verða sýndar vinningstillögur að
skúlptúrum tengdum orminum langa.
Listaverk byggð á
Lagarfljótsorminum
ALLS eru 1.560 nemendur skráðir
til náms við Háskólann á Akureyri
og hafa þeir aldrei verið fleiri, en á
síðastliðinu skólaári voru nemendur
1.430 talsins. Um rúmlega 9% fjölg-
un er því að ræða milli ára.
Kennsla nýnema í grunnnámi
hefst á mánudag, 23. ágúst, með dag-
skrá sem nefnd hefur verið vel-
gengnisvika. Hún er byggð upp á
kynningum sem hafa að markmiði að
undirbúa nýnema fyrir nám og starf
í háskóla. Í boði eru hnitmiðuð og
hagnýt námskeið, tölvuumhverfi og
stoðþjónusta háskólans er kynnt og
fleira gert. Þetta er í fjórða sinn sem
starfsárið hefst með velgengnisviku,
en henni er ætlað að gera aðlögun
nýnema að háskólanámi auðveldari.
Ýmsar nýjungar verða hvað náms-
framboð varðar, einkum í félagsvís-
inda- og lagadeild sem nú er að hefja
sitt annað starfsár. Sálfræði, fjöl-
miðlafræði og samfélags- og hagþró-
unarfræði verða nú kennd í fyrsta
sinn og þá hefur verið bætt við náms-
efni í nútímafræði þannig að mögu-
legt er að ljúka henni með BA-gráðu.
Nýir stúdentagarðar verða teknir
í notkun við Tröllagil og þá bætast 36
íbúðir við þær sem fyrir eru í eigu
Félagsstofnunar stúdenta á Akur-
eyri. Í húsinu er einnig fjögurra
deilda leikskóli. Nýtt rannsóknarhús
verður tekið í notkun í október, en
þar munu auðlindadeild og upplýs-
ingatæknideild hafa aðsetur ásamt
ýmsum stofnunum sem tengjast
starfsemi háskólans.
Skólaárið að hefjast í Háskólanum á Akureyri
Nemendur aldrei verið fleiri en nú