Morgunblaðið - 21.08.2004, Blaðsíða 33

Morgunblaðið - 21.08.2004, Blaðsíða 33
Elsku amma. Nú ert þú farin og bara minningarnar eftir. Mér þykir sárt að kveðja þig en ég veit að þér líður vel núna. Mér mun alltaf þykja vænt um þig og ég mun sakna þín, en nú ert þú í faðmi Jesú og hann sagði: Komið til mín, allir þér sem erfiði hafið og þungar byrðar, og ég mun veita yð- ur hvíld. (Matteus 11:28.) Þín Birta Mjöll. Legg ég nú bæði líf og önd, ljúfi Jesús, í þína hönd, síðast þegar ég sofna fer sitji Guðs englar yfir mér. (Hallgrímur Pétursson.) Systkinin frá Birkihlíð. Elsku langamma, við viljum minnast þín með þessari bæn og í bænum okkar biðjum við guð að passa þig. Vertu yfir og allt um kring með eilífri blessun þinni, sitji Guðs englar saman í hring sænginni yfir minni. (Sig. Jónsson frá Presthólum.) Sunna og Sara. HINSTA KVEÐJA MINNINGAR MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 21. ÁGÚST 2004 33 ✝ Arnbjörg Jóns-dóttir, ævinlega nefnd Ebba, fæddist að Nesi í Flókadal í Skagafirði 6. janúar 1928. Hún lést á hjartadeild Land- spítala – háskóla- sjúkrahúss 12. ágúst síðastliðinn. For- eldrar hennar voru Jón Stefánsson, f. 1. des. 1894, d. 1. mars 1964 og Sigurbjörg Halldóra Jónsdóttir, f. 5. júní 1884, d. 9. júní 1954. Systkini Ebbu eru Anna, f. 12. jan. 1921, Stefanía, f. 12. mars 1925 og Björn, f. 26 október 1925. Eiginmaður Ebbu er Gunnar Kristín Bergmann, f. 25. okt. 1962, saman eiga þau tvö börn en fyrir átti Þröstur eitt og Kristín þrjú. Pálína Sif Gunnarsdóttir, f. 15. júlí 1968, maki Einar Mar- teinsson, f. 20. okt 1966, þau eiga einn son. Ebba flutti ung að árum frá Nesi í Flókadal að Hvammkoti við Hofsós. Hún útskrifaðist frá Ljós- mæðraskóla Íslands 1949 og vann sem ljósmóðir í Hofsósi og ná- grenni í hartnær 30 ár. Ebba var ein af stofnendum Slysavarna- deildarinnar Hörpu á Hofsósi og formaður til margra ára, einnig var hún virk í hinum ýmsu fé- lagasamtökum á Hofsósi. Ebba og Geiri byggðu sér hús að Kárastíg 15 á Hofsósi og bjuggu þar til árs- ins 1985 en þá fluttu þau suður til Reykjavíkur. Ebba var síðan deildarstjóri á Elliheimilinu Grund til ársins 1996. Útför Ebbu fer fram frá Hofs- óskirkju í dag og hefst athöfnin klukkan 14. Geir Gunnarsson, f. 4. sept 1927. Foreldrar hans voru Gunnar Gunnarsson, f. 18. nóv 1894, d. 17. mars 1979 og Pálína Þorleifs- dóttir, f. 10. apríl 1897, d. 24. mars 1968. Gunnar og Ebba eiga þrjú börn, en fyr- ir átti Ebba eina dótt- ur. Þau eru: Jóna Þórðardóttir, f. 16. jan. 1947, maki Krist- ján Arason, f. 29. maí 1945, þau eiga fjögur börn og tvö barna- börn. Gunnar Geir Gunnarsson, f. 24. jan. 1952, hann á tvö börn og eitt barnabarn. Þröstur Viðar Gunnarsson, f. 19. nóv 1960, maki Kveðja til móður. Þú áttir þrek og hafðir verk að vinna og varst þér sjálfri hlífðarlaus og hörð. Þú vaktir yfir velferð barna þinna. Þú vildir rækta þeirra ættarjörð. Frá æsku varstu gædd þeim góða anda, sem gefur þjóðum ást til sinna landa og eykur þeirra afl og trú. En það er eðli mjúkra móðurhanda að miðla gjöfum – eins og þú. Ég flyt þér móðir þakkir þúsundfaldar, og þjóðin öll má heyra kvæðið mitt, er Íslands mestu mæður verða taldar, þá mun það hljóma fagurt nafnið þitt. Blessuð sé öll þín barátta og vinna. Blessað sé hús þitt, garður feðra minna, sem geymir lengi gömul spor. Haf hjartans þakkir, blessun barna þinna, – og bráðum kemur eilíft vor. (Davíð Stefánsson frá Fagraskógi.) Kveðja, börnin þín, Jóna, Gunnar Þröstur og Pálína. Þá er stundin komin að kveðja yndislega mömmu. Hún er lögð upp í ferðina sem hún var farin að þrá, búin að gera sitt. Ég var kannski búin að búa mig undir þetta en sárt er samt að hugsa til þess að fá aldrei að sjá þig aftur en ég reyni að vera sterk eins og ég sagði þér. Þú varst bara orðin svo hress, því var þetta áfall þegar þú veiktist aftur. Það var svo sárt þegar við pabbi fórum út í Hofsós og tókum dótið ykkar saman þið höfðuð ætlað ykkur að vera þar á Kárastígnum í sumar þegar þú veiktist. Tilvera okkar er undarlegt ferðalag eins og segir í ljóðinu eft- ir Tómas Guðmundsson og þú vildir að yrði spilað sem forspil við útförina. Þú vildir enga ræðu en ekki varð hjá því komið mamma mín. Að minnast á hvað þú varst frábær eiginkona, mamma, amma, og síðan og ekki síst ljósmóðir, þau voru ófá börnin sem að þú tókst á móti í 30 ár. Ég var svo stolt að mamma mín skyldi vera ljósmóðir, mér fannst það vera fallegasta starf í heimi. Ég man hvað mér fannst skrýtið að þú hefðir tekið á móti skóla- systkinum mínu og krökkum sem að ég þekkti mjög vel, þegar Maja Runólfs átti sinn son, þá komstu heim og sagðir við mig: Pálína, finndu lyktina, þetta er svona ung- barnalykt, og þegar Erla í Glæsibæ átti Önnu Maríu, en hún fæddist heima í stofu og ég man að þú baðaðir hana í gömlu hrærivélarskálinni. Einnig varstu fengin til að aðstoða í sveitinni. Mér minnistætt þegar þú varst kölluð út í Mannskaðahól til Siggu að hjálpa kind sem var að bera, þá sá ég hvað lífið getur verið hverf- ult. Margar eru minningarnar og geymi ég þær í hjarta mínu mamma mín. Viltu mínar þakkir þiggja þakkir fyrir liðin ár. Ástríkið og umhyggjuna er þú vina þerraðir tár. Autt er sætið, sólin horfin sjónir blinda hryggðar-tár. Elsku mamma, sorgin sára sviftir okkur gleði og ró. Hvar var meiri hjartahlýja hönd er græddi, og hvílu bjó þreyttu barni og bjó um sárin bar á smyrsl, svo verk úr dró. Muna skulum alla ævi, ástargjafir bernskuþrá. Þakka guði gæfudaga glaða, er móður dvöldum hjá. Ein er huggun okkur gefin aftur mætumst himnum á. (Höf. ók.) Elsku mamma, sorg okkar er mikil og vil ég biðja góðan Guð að gefa pabba og okkur öllum styrk. Ég kveð þig með söknuði og virð- ingu. Þín dóttir Pálína. Elsku amma mín, mamma sagði mér að þú værir komin upp til Guðs en ég veit að þú getur komið niður til okkar sem engill. Mér finnst erfitt að skilja þetta en mamma ætlar að búa til myndaal- búm með myndum af þér og okkur sem að við getum alltaf skoðað svo ég mun aldrei gleyma þér. Í kistu- lagningunni klappaði ég þér á kinnina og kvaddi, ég veit að það var rétt ákvörðun hjá pabba og mömmu að leyfa mér að vera við- staddur. Það verður skrýtið að koma á Klapparstíginn og engin amma, enginn poki með hlaupi upp í skáp og engin amma sem situr við gluggann en afi verður þar og ætla ég að vera duglegur að passa hann. Einnig ætla ég að halda áfram að biðja Guð að blessa þig og fara með bænirnar sem mamma kenndi mér og sem þú og afi kennduð henni. Láttu nú ljósið þitt loga við rúmið mitt. Hafðu þar sess og sæti, signaði Jesús mæti. (Höf. ók.) Vertu yfir og allt um kring með eilífri blessun þinni, sitji Guðs englar saman í hring sænginni yfir minni. (Sig. Jónsson frá Presthólum.) Guð blessi þig, elsku amma mín. Þinn ömmustrákur Marteinn Geir. Elskuleg amma okkar, Ebba, er farin, við erum varla búin að átta okkur á því að við eigum ekki eftir að sjá þig aftur í þessu lífi, og ekki í kolaportinu eins og við vorum vön að gera á laugardögum. Setj- ast öll saman og fá okkur kaffi og meðlæti. En okkar bestu minn- ingar eru þegar við vorum börn og komum til þín á Kárastíg 15. Það var alltaf svo gaman að fara á sunnudagsrúntinn og koma til þín í Hofsós og fá kalda mjólk og kleinur, en það kom stórt bros á okkur ef það voru til súkku- laðibollur, þær voru bestar. Elsku Ebba amma, þú varst alltaf svo góð og tillitssöm og tilbúin til að hlusta á okkur og hjálpa ef eitthvað bjátaði á hjá okkur systkinunum. Elsku amma, við eigum eftir að sakna þín sárt, við þökkum þér fyrir alla þá blíðu og umhyggju sem þú sýndir okkur. Far þú í friði, friður Guðs þig blessi, hafðu þökk fyrir allt og allt. Gekkst þú með Guði, Guð þér nú fylgi, hans dýrðarhnoss þú hljóta skalt. (Vald. Briem.) Elsku afi, guð gefi þér styrk til að halda ótrauður áfram, við eig- um svo margar góðar minningar um ömmu sem við getum yljað okkur við. Arna, Dögg, Magnús og Víðir. Mig langar að minnast ömmu minnar með örfáum orðum. Hún amma mín var alltaf svo hlý og góð. Þegar ég var barn var ég mikið hjá ömmu og afa á Hofsósi og á ég mjög margar skemmtilegar minn- ingar þaðan, við fórum í bíltúra og ferðalög innanlands. Þegar amma og afi fluttu til Reykjavíkur sá ég þau sjaldnar og þótti mér það leitt en þau voru dugleg að koma norður og ég að fara til þeirra til Reykjavíkur. Nokkrum árum síðar fluttum við til Reykjavíkur sem var alveg frábært því að þá gat ég hitt pabba, ömmu og afa miklu oftar. Það var alltaf svo gott að koma í heimsókn á Klapparstíginn, setj- ast inn í eldhús með ömmu og fá sér mjólk og kleinur eða annað bakkelsi. Eftir að ég eignaðist dóttur mína Ingu Lísu þá komum við mæðgur oft í heimsókn og henni þótti svo gaman að hitta ykkur, langamma tók þá fram fullt af dóti og lék við hana. Elsku amma mín, þín verður sárt saknað, þú varst búin að vera veik í langan tíma og varst tilbúin fyrir hinn eilífa svefn. Hvíldu í friði, elsku amma. Svo lengi sem ég man eftir mér varstu til staðar kenndir mér að elska aðra og að elska sjálfa mig þú varst alltaf tilbúin að hlusta, halda í höndina á mér og faðma mig. Lífsgleði þín og umhyggja höfðu mikil áhrif á líf mitt. Þakka þér fyrir að vera amma mín. (Frieda MC Reynolds.) Elsku afi, megi guð styrkja þig og styðja. Þín Margrét Henný Gunnarsdóttir. Elsku amma, ég var staddur á Akranesi þegar pabbi hringdi í mig og tilkynnti mér að þú værir farinn. Það tók mig nokkra stund að meðtaka þessa frétt, það fór um mig mikil einmana tilfinning, að vera einn á meðan allir í fjöl- skyldunni voru á sjúkrahúsinu að kveðja þig. Þegar ég kom aftur í bæinn og gekk inn í herbergið þitt á sjúkrahúsinu þá létti mér þegar ég sá hversu mikil ró var yfir þér. Þegar ég horfði á eftir þér hellt- ust minningarnar yfir mig. Minn- ingar sem mér þykir svo vænt um. Þegar þið afi fóruð með okkur Þröst Heiðar austur í Vík og við dvöldust í sumarhúsinu. Það var svo gaman að fylgjast með ykkur afa, þið ljómuðuð alveg að fá að snúast í kringum okkur frænd- urna, hvort sem það var í fótbolta, eggjatínslu eða stangaveiði. Ár- legu heimsóknirnar á Þorláks- messu þar sem þú reyndir alltaf að koma skötunni ofan í mig en ég náði alltaf að hopa undan. Ekki má gleyma besta ís í heimi, sem við fengum alltaf eftir matinn á annan í jólum. Aldrei mun ég gleyma deginum þegar ég fékk stúdentshúfuna, þegar þú komst til mín í veislunni og tjáðir mér hvað þú værir ánægð með að ein- hver færi menntaveginn í fjöl- skyldunni og við vorum sammála um að þetta væri bara byrjunin sem og er. Þú starfaðir sem ljósmóðir mestan hluta ævi þinnar og gegndir því starfi með miklum sóma. Ég gleymi sögunum seint sem pabbi sagði mér frá hvernig þetta var í gamladaga, þegar þú lagðir leið þína frá Hofsósi á gönguskíðum út í Fljót að taka á móti börnum og á meðan voru þrjá konur úr sveitinni á Kára- stígnum með nýfædd börn. Þú varst sannkölluð járnkerling. Þeg- ar ég kom í heimsókn á sjúkra- húsið til þín eftir að þú veiktist og sá þig með allar slöngurnar, þá kom upp í huga minn, þetta væri ekki amma eins og ég þekkti hana. Þegar ég kvaddi þig þá sagði ég við þig að þú yrðir að bíta á jaxl- inn, þú svaraðir að bragði: „Ég er ekki með tennurnar, en ég bít samt“. Það var aldrei langt í húm- orinn hjá þér, enda mjög orðhepp- in og eru þeir þó nokkrir frasarnir sem þú komst með sem lifa í minningunni og fá mig til að brosa. Þú varst búin að berjast við sykursýki í áratugi, það hlaut að koma að dómsdegi. Eftir á að hyggja er ég sáttur hvernig þetta endaði því ég veit að þú ert ekki þannig manneskja sem getur legið upp í rúmi og starað upp í loftið. Ég hefði ekki getað horft upp á þig kveljast frá degi til dags. Elsku amma, það er komið að kveðjustund. Ég óska þér alls hins besta í hinum nýja heimi og þakka þér innilega fyrir allar okkar stundir sem við áttum saman. Megi Guð veita afa og okkur öllum styrk á þessum erfiðu tímum. Hvíldu í friði, elsku amma. Gunnar Arnar Gunnarsson. Elsku amma, takk fyrir að vera alltaf svo góð við okkur. Það var alltaf jafn gaman að heimsækja ykkur afa, bæði hér í Reykjavík og á Hofsós. En nú getum við ekki lengur heimsótt þig, nú verðum við bara að hugsa um allt sem við gerðum saman. Það var svo gaman á Þorláks- messu þegar öll fjölskyldan kom til þín og afa í skötuveislu, eða þegar við fengum að gista og fór- um svo í bíltúr og í Kolaportið. Það var líka gaman þegar þið afi buðuð okkur í sunnudagskaffi. Þú komst líka alltaf og færðir okkur ber þegar þið afi komuð að norðan á haustin og mikið fannst okkur spennandi þegar þið komuð með eggin frá Vík. Nú verðum við að vera dugleg að hugsa um afa fyrir þig, við erum öll svo leið af því að nú ert þú dáin, en við vitum að þér líður vel hjá Guði. Við elskum þig, þín barnabörn, Þröstur Heiðar, Birta Mjöll, Viðar Geir og Hekla Sól. Elsku systir mín, loksins ertu búin að fá hvíldina, þú varst búin að berjast við þennan sjúkdóm (sykursýkina) árum saman og stóðst þig eins og hetja uns yfir lauk. Elsku Ebba mín, þetta eiga að vera örfá orð til að þakka þér fyrir allar okkar samverustundir í gegnum liðna ævi. Ein fyrsta minning um okkur saman er þegar foreldrar okkar fluttu frá Nesi í Flókadal að Hvammkoti við Hofsós vorið 1937. Þá fór mamma með okkur stelp- urnar 9 og 12 ára gangandi með þrjár kýr og eina meri. Þá voru hvergi komnar brýr yfir ár. Við höfðum þessa einu meri til þess að fara yfir árnar. Ég man að við gistum á Tjörnum þar sem tekið var óskaplega vel á móti okkur. Þá bjuggu þar foreldrar Sigrúnar, en hún er nú húsfreyja þar. Þessi leið mun vera um 40-50 kílómetrar. Þetta sýnir að nú eru breyttir tímar, svona ferðalag tíðkast sjálf- sagt ekki í dag. Svo liðu æskuárin og alvara lífsins tók við. Þú tókst við ljósmóðurstarfinu í Hofsós og nágrenni, það starf vannstu af mikilli alúð og fórnfýsi. Þú tókst á móti börnunum mín- um. Ég minnist þess sérstakleg hvað ég var örugg þegar þú varst komin og tókst málið í þínar hend- ur með glaðværð og skörungs- skap. Þú varst alltaf boðin og tilbúin að veita aðstoð ef veikindi bar að höndum, bæði hjá mér og öðrum. Elsku Ebba systir. Guð blessi þig og ástarþakkir fyrir samfylgd- ina. Ég veit að þín bíður fjölmenn móttökunefnd hinumegin, pabbi, mamma og fjöldinn allur af Hofs- ósingum og vinum. Elsku Geiri minn, börn, tengda- börn og barnabörn. Ykkar missir er mikill, en öll él birtir upp um síðir. Góði guð styrki ykkur í sorg- inni. Kveðja Stefanía systir. ARNBJÖRG JÓNSDÓTTIR (EBBA) Í PERLUNNI Erfidrykkjur Upplýsingar og pantanir í síma 562 0200 Á fallegum og notalegum stað á 5. hæð Perlunnar. Aðeins 1.250 kr. á mann.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.