Morgunblaðið - 21.08.2004, Qupperneq 35

Morgunblaðið - 21.08.2004, Qupperneq 35
MINNINGAR MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 21. ÁGÚST 2004 35 ✝ Kjartan Hall-dórsson fæddist á Oddastöðum í Hnappadal 5. mars 1917. Hann lést á Landspítalanum við Hringbraut 11. ágúst síðastliðinn. Foreldrar Kjartans voru Halldór Jóns- son, bóndi á Odda- stöðum, f. 24.6. 1872, d. 12.10. 1946 og kona hans Guðríður Jónsdóttir húsfreyja, f. 4.9 1874, d. 15.3. 1954. Systkini Kjart- ans voru: Jón, f. 23.6. 1901, d. 25.9. 1966, Guðríður, f. 16.5. 1902, d. 25.9. 1996, Guðmundur, f. 30.9. 1904, d. 5.8. 1992, Guð- leifur, f. 20.1. 1908, d. 21.1. 1908, Kristinn, f. 20.1. 1908, d. 21.1. 1908, drengur, f. andvana 20.1. 1908, Sæmundur, f. 20.5. 1909, d. 8.5. 1979, Halldóra Guðrún, f. 6.1. 1912, d. 6.2. 1971, gift Óskari Eggertssyni, f. 5.11. 1908, d. 14.3. 1995, þau áttu 3 börn, Sig- urður Valgeir, f. 15.12. 1904, d. 20.3. 1978, og Kristín Salbjörg, f. 12.10. 1918, d. 12.8. 1993. Kjartan kvæntist. 19.3. 1960 Huldu Tryggvadóttur frá Fá- skrúðsfirði, f. 5.2. 1927, d. 26.9. 2001. Foreldrar hennar voru hjónin Sig. Tryggvi Guðmunds- son, f. 5.6 1875, d. 9.9. 1936 og Þórey Jónsdóttir, f. 16.1 1883, d. 3.7. 1956. Kjördóttir þeirra er Þórey Kjartansdótt- ir, f. 2.4. 1960, gift Jóhanni Pétri Guð- jónssyni. Synir þeirra eru Kjartan Már og Jón Bjarni. Fósturdóttir þeirra er Erla Dögg Ár- mannsdóttir, f. 19.7. 1964, í sambúð með Finnboga Leifssyni. Börn þeirra eru Leifur, Tinna Krist- ín og Hulda Rún. Kjartan ólst upp á Oddastöðum í Hnappadal. Hann gekk í farskóla í 3 vetur en lærði annars af aðstæðum bernskunn- ar. Hann varð bóndi á Oddastöð- um ásamt föður sínum og bjó þar til 1947. Þá keypti hann sér jörð- ina Rauðkollsstaði í Eyjahreppi og var bóndi þar til 1998. Hann var símstöðvarstjóri frá 1947– 1984. Hreppstjóri í Eyjahreppi 1955–1991. Í skattanefnd og síð- an umboðsmaður Skattstjóra 1961–1991. Umboðsmaður Brunabótafélags Íslands 1952– 1991. Hann sat í hreppsnefnd Eyjahrepps 1958–1978. Hann var meðlimur í Lionsklúbbi Hnapp- dæla í áraraðir. Hann sat áratugi í stjórn Búnaðarfélagsins og sinnti ótal öðrum trúnaðarstörf- um. Kjartan verður jarðsunginn frá Borgarneskirkju í dag og hefst athöfnin klukkan 13.30. Þá er hann fallinn. Kletturinn í lífi okkar og margra annarra. Hann stóð á meðan stætt var og horfði alltaf til framtíðar. Uppgjöf og bit- urleiki var ekki hans stíll. Hann fæddist á Oddastöðum í Hnappadal og ólst upp í stórum og samheldn- um systkinahópi. Á Oddastöðum var oft þröngt í bæ í litlu baðstof- unni, en aldrei var þröngt í þeim hjörtum sem þar réðu ríkjum. Þar var þyrstum og svöngum veittur beini og umkomulausir fengu húsa- skjól. Pabbi lék sér með systkinum sínum með horn, leggi, kjálka og völur. Seinna áskotnuðust honum kuðungar og skeljar og mundi alla tíð gleði barnshjartans yfir þessum auðævum. Í víðum fjallahring Hnappadalsins átti hann sér ógleymanlegar stundir á hestbaki. Hestar fylgdu honum alla tíð síðan. Þessar aðstæður mótuðu mann- inn Kjartan, pabba okkar sem við kveðjum í dag. Hann keypti jörðina Rauðkollsstaði 1947 og flutti þang- að ásamt móður sinni og 3 systk- inum. 1956 kom til hans ráðskona. Hulda Tryggvadóttir frá Fáskrúðs- firði. Þar var gæfa þeirra ráðin. Þau voru afskaplega ólík en samhent hjón. Þau áttu stóran faðm og auð- ugt hjarta og hjá þeim áttu margir skjól í lengri eða skemmri tíma. Doddi átti hjá þeim skjól frá 12 ára aldri þar til hann flutti í eigin íbúð 1998. Hann hefur nú misst mikið. Mörg voru börnin sem kusu að gera þau að afa sínum og ömmu. Það var okkar stóra gæfa í lífinu að alast upp hjá þessum yndislegu foreldr- um. Rauðkollsstaðir standa í þjóð- braut undir Hafursfelli. Hreppsbú- ar og aðkomufólk þurftu oft á fyr- irgreiðslu að halda varðandi síma. Gestrisni og greiðasemi þeirra hjóna einkenndi þetta heimili. Þó að pabbi væri orðinn 87 ára gamall átti hann alltaf auðvelt með að skilja börnin og unglingana. Hann kunni nefnilega að hlusta. Hann kunni líka að taka fólki eins og það var á sínum eigin forsend- um. Hann var maður skoðana og skoðanaskipta og studdi Sjálfstæð- isflokkinn alla tíð. Hann var kíminn maður sem horfði umburðarlyndum augum á fortíðina og björtum aug- um á framtíðina. Þótt hann væri bú- inn að vera mikill sjúklingur í meira en 30 ár var aldrei í honum uppgjöf. Hann ætlaði að halda áfram að lifa fram í andlátið. Það hvarflaði aldrei að honum að það væri of seint að byrja á einhverju. En langlífinu fylgir böggull. Hann var búinn að fylgja mörgum til grafar. Öllum sín- um systkinum og fyrir þremur ár- um mátti hann stíga þau þungu spor að fylgja konu sinni til grafar. Þá fannst honum þetta nú orðið ágætt. Hann gafst þó ekki upp. Hann lagði kapp á að búa einn og hugsa um sig sjálfur. Hann eldaði sér heitan mat á hverjum degi, þurrkaði af og skúraði gólf. Það var hans ósk að fá að sjá um sig sjálfur fram í andlátið. Það tókst honum með dyggri aðstoð frá Dodda, sem sýndi þeim hjónum mikla tryggð. Við trúum að hann sé nú kominn á hestbak og ríði greitt inn í ljósið þar sem mamma tekur á móti honum. Elsku pabbi, hafðu hjartans þökk fyrir allt. Við söknum þín sárt, en vitum að tíminn var kominn. Þórey og Erla. Það var af hreinni góðmennsku og greiðasemi við foreldra mína sem Kjartan Halldórsson, þá bóndi á Rauðkollsstöðum, samþykkti að taka undirritaðan í sveit sumarið 1979. Líklega hefur foreldrunum þótt pilturinn heldur baldinn og ekki veita af því að komast í læri hjá slíkum höfðingja sem Kjartan var. Ég var þá fimmtán vetra gam- all og dæmigert borgarbarn sem fram að þeim tíma hafði haft tak- markaðan áhuga á sveitalífi og sveitastörfum. Það átti svo sann- arlega eftir að breytast því Kjartan og Hulda reyndust sérlega góðir húsbændur sem á sinn einstaka hátt kenndu unglingnum að bera virðingu fyrir góðu dagsverki, mönnum og málleysingjum, en ekki síst fyrir sjálfum sér. Svo vel líkaði mér dvölin að ekki vildi ég í bæinn um haustið heldur ákvað ég að ljúka grunnskólanámi þann vetur- inn frá Laugargerðisskóla í næsta nágrenni við Rauðkollsstaði. Raunar fór það svo að ég var með annan fótinn á bæjarhlaði þeirra hjóna næstu árin enda voru þau orðin mér afar kær og leið mér hvergi betur en í félagsskap við þau og það umhverfi sem þau bjuggu til á Rauðkollsstöðum. Að vinnudegi loknum var löngum setið fram eftir kvöldi við eldhúsborðið á bænum og skrafað. Þar var maður manns gaman. Þjóðmálin krufin og í bland við kaffi og ljúffengar sýrópskökur frá Huldu var gjarnan spilaður Rússi þar sem borgarbarnið fór jafnan halloka í fyrstu, þótt heldur hafi leikar jafnast eftir því sem slagirnir urðu fleiri og þekkingin óx. Kjartan var einstakur maður. Þótt hvorki væri hann langskóla- genginn né víðförull hef ég síðan hitt fáa menn jafnfróða, víðsýna og næma á mannleg samskipti og hann. Hann hafði þægilega nær- veru. Lundin var létt og kersknin aldrei langt undan. Hann kunni líka þá list að brúa kynslóðabilið. Með höfðinglegu fasi og stóískri ró tókst honum að fanga huga minn á köfl- um og kveikja hjá mér áhuga á mönnum og málefnum. Þótt áratug- ir skildu okkur að í aldri og bak- grunnur okkar væri ólíkur reyndist Kjartani auðvelt að varpa þannig ljósi á umræðuna að til urðu skemmtileg samtöl sem skildu eftir þekkingu í hugskoti mínu og mót- uðu afstöðu mína til hlutanna. Oftar en ekki var umræðuefnið lífið til sveita í fortíð og nútíð auk þess sem þjóðmálin almennt voru ósjaldan rædd. Skoðanir hans í þeim efnum voru vel mótaðar og ákveðnar en báru á sama tíma vott um næman skilning og fordómaleysi gagnvart skoðunum annarra. Þegar ég horfi til baka er ég ekki í nokkrum vafa um að þau ár sem ég naut veiga úr viskubrunni Kjartans eru mér ómetanleg og betri undirbúning undir lífið gat ég ekki fengið en dvölina hjá heiðurshjónunum á Rauðkollsstöðum. Að lokinni langri ævi hefur Kjart- an nú verið kallaður til annarra verka og endurfunda við Huldu sína. Minningin um einstakan mann mun ávallt lifa í hugskoti mínu. Votta ég dætrum þeirra hjóna, mökum og öðrum aðstandendum samúð mína. Orri Hlöðversson. KJARTAN HALLDÓRSSON Ástkær eiginkona mín, móðir, tengdamóðir, amma og langamma, ANNA PÁLÍNA JÓNSDÓTTIR frá Sauðhúsum, Ögurási 3, Garðabæ, verður jarðsungin frá Vídalínskirkju í Garðabæ þriðjudaginn 24. ágúst kl. 13.30. Egill Jón Benediktsson, Birgir Símonarson, María Kristín Lárusdóttir, Johnny Símonarson, Hugrún Ásta Elíasdóttir, Helen Gunnarsdóttir, Benedikt Egilsson, Sigrún Eyjólfsdóttir, Jón Egilsson, Sigurborg Valdimarsdóttir, Herdís Egilsdóttir, Brynjólfur Garðarsson, ömmu- og langömmubörn. Elskulegur eiginmaður minn, faðir, stjúpfaðir, afi og langafi, FRIÐFINNUR JÚLÍUS GUÐJÓNSSON verkstjóri, Hrafnistu, Hafnarfirði, lést fimmtudaginn 19. ágúst. Lára Hannesdóttir, Garðar Friðfinnsson, Rut Friðfinnsdóttir, Björk Friðfinnsdóttir, Viðar Friðfinnsson, Aðalheiður Halldórsdóttir, Hannes Halldórsson, Gunnar Halldórsson, tengdabörn, barnabörn og barnabarnabörn. Þökkum af alhug öllum þeim, sem auðsýndu okkur samúð, vináttu og hlýhug við andlát og útför hjartkærs eiginmanns míns, pabba okkar, tengdapabba, tengdasonar, bróður, mágs og svila, ÞRASTAR HELGASONAR kennara, Hófgerði 12, Kópavogi. Sérstakar þakkir til starfsfólks krabbameinsdeildar Landspítalans við Hringbraut og heimahlynningar Krabbameinsfélagsins. Hulda Brynjúlfsdóttir, Drífa Kristín Þrastardóttir, Karl Ólafsson, Heiðar Þór Þrastarson, Úlfur Ingi Jónsson, Marta Rúnarsdóttir, Ingiríður Árnadóttir, Brynjúlfur Sigurðsson, Svala Helgadóttir, Erla Helgadóttir, Sverrir Guðmundsson, Valur Helgason, Ásta Gísladóttir, Haukur Helgason, Eyrún Kjartansdóttir, Örn Helgason, Elísabet Hannam, Ragnheiður Brynjúlfsdóttir, Jón Óskarsson, Sigurður Brynjúlfsson, Anna María Karlsdóttir. Elskulegur faðir okkar, tengdafaðir og afi, HÖRÐUR SIGURVINSSON, Safamýri 56, lést miðvikudaginn 19. ágúst. Jarðarförin auglýst síðar. Eyjólfur Harðarson, Sigþrúður Sæmundsdóttir, Hulda Harðardóttir, Anna Sess Harðardóttir, Ólafur Harðarson og barnabörn. Elskuleg dóttir okkar og systir, DÝRLEIF YNGVADÓTTIR, Heiðarlundi 2, Akureyri, lést á Landspítalanum við Hringbraut að kvöldi fimmtudagsins 19. ágúst. Jarðarförin verður auglýst síðar. Svanhvít Þórhallsdóttir, Yngvi Þór Kjartansson, Berglind Yngvadóttir, Kjartan Þór Yngvason, Jóna Yngvadóttir. Eiginmaður minn, faðir okkar, tengdafaðir og afi, JÓHANN HALLDÓRSSON útgerðarmaður, Höfðavegi 34, Vestmannaeyjum, lést að kvöldi miðvikudagsins 18. ágúst. Aðalbjörg Bernódusdóttir, börn, tengdabörn og barnabörn.

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.