Morgunblaðið - 21.08.2004, Blaðsíða 60

Morgunblaðið - 21.08.2004, Blaðsíða 60
MORGUNBLAÐIÐ, KRINGLUNNI 1, 103 REYKJAVÍK, SÍMI 569 1100, SÍMBRÉF 569 1181, PÓSTHÓLF 3040, ÁSKRIFT-AFGREIÐSLA 569 1122, NETFANG: RITSTJ@MBL.IS, AKUREYRI: KAUPVANGSSTRÆTI 1 LAUGARDAGUR 21. ÁGÚST 2004 VERÐ Í LAUSASÖLU 220 KR. MEÐ VSK. Af því tilefni bjóðum við nýju landsliðstreyjuna á aðeins kr. 4.990. Við óskum landsliðinu til hamingju með sigurinn á Ítölum. 4.990 ATLANTSOLÍA mun hækka verð á 95 oktana bensíni um 4 krónur og verð á dísilolíu um 6,40 krónur næstkomandi föstudag, 27. ágúst. Eftir hækkunina verður verðið á lítranum 103,9 krónur af 95 oktana bensíni en 49,90 krónur af dísil- olíu. Í tilkynningu frá Atlantsolíu kemur fram að ástæða hækkunar- innar sé hækkað innkaupsverð á undanförnum tveimur mánuðum. Þar segir að haldið hafi verið aftur af hækkunum, en ekki verði við það búið lengur. Atlantsolía gefur tæpan viku fyrirvara á þessari hækkun, en það er nýmæli að olíu- félag geri slíkt þegar til stendur að breyta verði á eldsneyti. Morgunblaðið hafði samband við nokkur af hinum olíufélögunum í gærkvöldi, en ekki fékkst upplýst hvort hækkanir væru fyrirhugaðar á næstu dögum. Eldsneyti hjá Atlantsolíu hækkar á föstudag SAMNINGANEFNDIR grunn- skólakennara og launanefndar sveit- arfélagana hittust á fundi hjá sátta- semjara í gær og er stefnt á að funda óformlega daglega í næstu viku frá mánudegi fram á fimmtudag. Rúmar fjórar vikur eru í verkfall sem boðað hefur verið 20. september. Deilurnar standa einkum um þrennt; kennsluskyldu, launalið og vinnutíma kennara undir verkstjórn skólastjóra. Eiríkur Jónsson, for- maður Kennarasambandsins, segir að undanfarið hafi verið einblínt á vinnutíma undir verkstjórn og eftir sé að ræða kennsluskyldu og launa- lið í samningunum. Í viðræðum deiluaðila í vor bað ríkissáttasemjari báða aðila að setja niður hversu langt þeir gætu teygt sig til móts við viðsemjandann. Ei- ríkur segir kennara þá hafa sagst geta sætt sig við um 30–35% kostn- aðarhækkun fyrir sveitarfélögin, í formi launahækkana og minni kennsluskyldu. Eiríkur segir að til lengri tíma litið sé eðlilegt að jafna kennsluskyldu grunnskólakennara og framhaldsskólakennara, en kennsluskylda grunnskólakennara er nú fjórum klukkustundum lengri á viku. Eiríkur segir það vilja kenn- ara að semja um tveggja tíma stytt- ingu á kennsluskyldu á samnings- tímanum, og miðar við að samið sé til þriggja ára. Mikið ber milli deiluaðila Birgir Björn Sigurjónsson, for- stöðumaður kjaraþróunardeildar Reykjavíkurborgar sem stýrir við- ræðunum við grunnskólakennara fyrir hönd sveitarfélaganna, segir að viðræður næstu daga muni einkum snúast um vinnutíma og stjórnunar- rétt skólastjóra. Hann segir að búið sé að ná samkomulagi um aðferða- fræði við vinnuna, en mikið beri á milli deiluaðila. Birgir Björn segir að síðustu tveir samningar sem gerðir hafa verið við grunnskólakennara hafi falið í sér meiri hækkanir en aðrir starfsmenn sveitarfélaga hafi fengið og það hljóti að orka tvímælis og sé erfitt að ganga langt í þeim efnum í dag. Nokkrar deilur komu upp hjá við- semjendum eftir ummæli Kristjáns Þórs Júlíussonar, bæjarstjóra á Ak- ureyri, um að kröfur kennara myndu leiða af sér rúmlega 100% hækkun á launakostnaði Akureyrabæjar vegna kennara, yrði gengið að ýtrustu kröf- um þeirra. Birgir Björn segir við- semjendur hafa rætt þetta mál, og segir að samkvæmt útreikningum samninganefndar sveitarfélagana sé þessi tala um 50%, ekki rúmlega 100% eins og Kristján hélt fram. Björn segir málið nú útrætt hjá samninganefndunum og hægt að einbeita sér að því að ná samningum fyrir 20. september. Stefnt að fundum daglega í kennaradeilu í næstu viku Eftir að ræða kennslu- skyldu og launalið  „Undirbúum“/4 OSMO Vänskä ber metnaði og vinnusemi Sinfóníuhljómsveitar Íslands góða sögu í viðtali í Lesbók í dag. Osmo var aðal- hljómsveitarstjóri Sinfóníuhljómsveit- arinnar á árunum 1993–1996 og stjórnaði hljómsveitinni í afar vel heppnaðri tón- leikaferð um Bandaríkin árið 1996. Héðan réðst hann til BBC-sinfóníuhljómsveit- arinnar í Skotlandi. „Sumar hljómsveitir nenna ekki að vinna, jafnvel þótt þær spili illa. Það var aldrei viðkvæðið á Íslandi og heldur ekki í Skotlandi. Báðar þær sveitir þráðu að verða betri, og það gerðu þær. Þær voru báðar mjög fúsar að vinna að því markmiði og gerðu vel,“ sagði Osmo Vänskä. / Lesbók Sinfóníuhljóm- sveitin vann af metnaði SEGJA má með vissu að Menningarnótt, sem haldin er hátíðleg í dag, sé orðin að uppskeruhátíð fjölda listamanna. Vestmannaeyingar eru sérlegir heiðursgestir Menningarnætur í ár og bjóða þeir til veislu í Ráðhúsi Reykjavíkur, þar sem boðið verður upp á brot af því besta úr menningu eyjarskeggja hvort sem um er að ræða mat, söng, sögur, leik eða annað sem snertir mannsins bestu hliðar. Af því tilefni hef- ur stærðarinnar lundi tekið sér bólfestu í hólmanum í Tjörninni en þessi til- tekni fugl hefur reyndar einnig sést á teikningum eftir Sigmund. Stefndi í nýtt þátttökumet Bilun í tölvukerfi olli skipuleggjendum Reykjavíkurmaraþons nokkrum vandræðum í gær. Hluta af skráningum í hlaupið varð að færa upp á gamla móðinn, þ.e. með skriffærum, og því tók lengri tíma en ella að fá fram áreiðanlegar tölur. Hjördís Guðmundsdóttir, kynningarfulltrúi hlaupsins, sagði þó að allt stefndi í metþátttöku. Gamla metið var sett árið 1994 þegar þátttakendur voru 3.700. Morgunblaðið/ÞÖK Eyjamenn undirbúa Menningarnótt Morgunblaðið/Jim Smart FEÐGARNIR Arnór Ingi, Ingi Þór og Sigurður Ragnarsson inn- byrtu talsvert af kolvetnum í pastaveislunni sem tilvonandi hlaup- urum var boðið til í gærkvöldi. Arnór og Sigurður ætla að hlaupa 10 km en Ingi Þór ætlar að hvíla. Birgðu sig upp fyrir átökin ♦♦♦ KEMPAN Lou Reed lék fyrir fullri Laugardals- höll í gærkvöldi og upp- skar mikið lófatak og þakklæti gesta. Tók hann á sviði Hall- arinnar mörg af þekkt- ustu lögum sínum í fylgd nýrra og tormelt- ara efnis m.a. af plöt- unni Raven, sem unnin er við ljóð Edgar Allan Poe. Að sögn viðstaddra var Reed „fantagóður“ og kraftmikill og hljóm- sveitin þétt og leikandi. Sýndi Reed að hann hefur engu gleymt frá tímum Velvet Underground. Lou Reed skók Höllina ÖKUMAÐUR jeppa olli miklum gróður- skemmdum við Úlfsvatn á Arnarvatnsheiði þegar hann ók jeppa sínum yfir 300–400 metra breiðan flóa sem er svo blautur að hann er vart manngengur. „Margir hafa dásamað þetta útsýni en nú blasa þessi för við, brún og ljót þarna þvert yfir. Þetta er óbætanlegt tjón,“ segir Snorri H. Jóhann- esson bóndi á Augastöðum. Ljót för eftir jeppaferð ♦♦♦
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.