Morgunblaðið - 01.09.2004, Blaðsíða 6
FRÉTTIR
6 MIÐVIKUDAGUR 1. SEPTEMBER 2004 MORGUNBLAÐIÐ
ÓSNORTIÐ eldfjallalandslag og íslensk tunga
er það sem er sænsku konungshjónunum of-
arlega í huga í aðdraganda komu þeirra til Ís-
lands en þau verða hér í opinberri heimsókn
dagana 7. til 9. september nk. Konungurinn
leggur áherslu á mikilvægi þess að gæta jafn-
vægis þegar nýta á náttúruna þannig að einnig
sé hugað að því að vernda hana fyrir kynslóðir
framtíðarinnar. Þetta er þriðja opinbera heim-
sókn Karls Gústafs Svíakonungs og önnur op-
inbera heimsókn Silvíu drottningar til Íslands
en þar fyrir utan hafa þau sótt landið heim í
einkaerindum. „Okkur hefur fundist landið
heillandi og þess vegna verður gaman að koma
þangað aftur,“ segir konungurinn. „Við sjáum
alltaf eitthvað nýtt í hvert skipti og nú skilst
mér að fjárhagur landsins hafi vænkast mikið
á síðustu 25–30 árum. Það verður spennandi
að kynna sér það.“
Að þessu sinni koma konungshjónin ásamt
dóttur sinni og ríkisarfanum Viktoríu krón-
prinsessu sem verður í sinni fyrstu opinberu
heimsókn á Íslandi en það var forseti Íslands,
Ólafur Ragnar Grímsson, sem bauð þeim heim.
Ekki er þörf á auknum öryggisráðstöfunum þó
að konungurinn og ríkisarfinn séu saman á
ferð að sögn konungs. „Við vonum að þið séuð
friðsöm þjóð,“ segir hann kankvís.
Aðgengi fyrir fatlaða er
einna best á Íslandi
Endanleg dagskrá heimsóknarinnar liggur
ekki fyrir en m.a. stendur til að konungurinn
komi við á loftslagsráðstefnu í Öskju, nýju
náttúrufræðahúsi Háskóla Íslands í Vatnsmýr-
inni, heimsæki höfuðstöðvar Slysavarnafélags-
ins Landsbjargar í Skógarhlíð og hlusti á nið-
urstöður ráðstefnu um viðskipti Íslands og
Svíþjóðar, sem haldin verður í Reykjavík í
tengslum við heimsóknina. Drottningin heim-
sækir m.a. Barnaspítala Hringsins, en hún hef-
ur látið sér annt um velferð barna. „Ég hlakka
mikið til að sjá Barnaspítalann,“ segir hún,
„ekki síst fyrir þær sakir að ég veit að Íslend-
ingar hafa gert mjög mikið til að fatlaðir kom-
ist leiðar sinnar í samfélaginu. Ég var á ráð-
stefnu á dögunum þar sem nokkrar
höfuðborgir voru til umræðu í þessu tilliti og
ég held að Ísland hafi verið einna fremst hvað
þetta varðar. Þannig að það verður mjög
spennandi að sjá hvernig þessu er háttað í spít-
alanum.“ Meðal þeirra hagsmunamála barna
sem drottningin hefur talað fyrir er að koma í
veg fyrir kynferðislegt ofbeldi gegn þeim. Hún
segir einnig mikilvægt að Norðurlöndin beiti
sér í sameiningu gegn mansali kvenna enda
séu meiri líkur á að árangur náist í baráttunni
sé það gert.
Síðasti dagur heimsóknarinnar verður helg-
aður Norðurlandi þar sem konungshjónin og
krónprinsessan hyggjast heimsækja Mývatn
og Akureyri. „Það verður spennandi að koma
við í Háskólanum á Akureyri,“ segir konungur
með áherslu. „Það er mjög athyglisvert og í
raun stórkostlegt að það skuli hafa verið hægt
að byggja upp fullgildan háskóla í svona litlu
samfélagi.“ Hann verður ennþá hrifnari þegar
hann heyrir um fjölda nemenda við skólann en
þeir eru tæplega 1.600 talsins, og það er á hon-
um að heyra að honum finnist það mikið miðað
við íbúafjölda bæjarins.
Hefði verið áhugavert að
skoða virkjanasvæðið
„Ég hef heyrt að margar sænskar konur séu
giftar Íslendingum,“ segir drottningin þegar
tengsl landanna ber á góma. Maður hennar
bendir hins vegar á hin norrænu tengsl. „Mér
finnst fyrst og fremst íslenska tungumálið
tengja okkur því ég upplifi það sem hina forn-
norrænu tungu. Þegar Kristján Eldjárn forseti
var hér í heimsókn fyrir mörgum árum heim-
sóttum við Bjarkey þar sem við Stokk-
hólmsbúar segjum að upphaf borgarinnar sé
að finna. Þarna var forsetinn, föðurafi minn og
ég og við heilsuðum upp á gamlan þjóðminja-
vörð sem talaði íslensku. Ég gleymi því aldrei
að þegar Eldjárn talaði við þennan mann þá
fékk ég gæsahúð því ég ímyndaði mér að
svona hefði tungan okkar hljómað á fyrri öld-
um.“ Hann hlær við minningunni. „Nú er ég
enginn sérfræðingur en ég er alveg sann-
færður um þetta. Og þarna eru tengsl sem ég
finn afar sterkt fyrir.“
Drottningin tekur undir þetta og aðspurð
segir hún afsakandi að þótt hún sé mikil mála-
manneskja hafi hún aldrei reynt við íslensk-
una. „Því miður hef ég ekki gert tilraun til
þess.“ Hún vísar til upplestrar Vigdísar Finn-
bogadóttur forseta úr Íslendingasögunum
þegar hún var í heimsókn hjá konungshjón-
unum fyrir nokkrum árum. „Það hljómaði
stórkostlega fallega.“
Þegar hjónin eru spurð hvort þau eigi sér
einhverja uppáhaldsstaði á Íslandi stendur
ekki á svari. „Það myndu vera Þingvellir,“
segir konungurinn og kona hans tekur undir.
„Það er stórkostlegur staður og sterk upplifun
að vera þar,“ segir hún. Konungurinn nefnir
náttúruna og söguna í því sambandi. Reyndar
verður honum tíðrætt um íslenskt landslag,
sem hann segir sérstakt að því leyti hversu
upprunalegt það er. „Þegar þið hafið svona
óspillt landslag eins og er á Íslandi eru margir
sem vilja sjá til þess að það verði ekki eyðilagt
eða því breytt svo hægt sé að nýta sér það við
jarðrannsóknir. Sjálfur hef ég haft mikinn
áhuga á að fylgjast með þróun á Surtsey þótt
ég viti ekki hvað hefur gerst þar að undan-
förnu. Það er einmitt þetta upprunalega lands-
lag með eldfjöllum og jöklum sem er svo sterkt
og ótrúlega spennandi.“
Aðspurður segist Karl Gústaf nýlega hafa
frétt af virkjanaframkvæmdunum við Kára-
hnjúka. „Mér skilst að þær hafi vakið miklar
umræður á Íslandi,“ segir hann. „Því miður
höfum við ekki tækifæri til að fara þangað að
þessu sinni en það hefði verið mjög áhugavert.
Það er mikilvægt að gæta jafnvægis á milli
þess að nýta sér náttúruna til framþróunar og
að vernda hana fyrir framtíðina – þar verðum
við að reyna að gera okkar besta. Við verðum
að vona og gera ráð fyrir að þarna hafi slíku
jafnvægi verið náð. Vissulega er hægt að ræða
hvort þörf sé á nýju álveri á Íslandi en þetta er
niðurstaða stjórnmálamanna eftir miklar um-
ræður og rannsóknir á því hvað sé gott þegar
litið er til framtíðar.“
Stefna að laxveiði í íslenskri á
Að opinberu heimsókninni lokinni hyggjast
konungshjónin framlengja dvöl sína um einn
dag, m.a. til að fá tækifæri til að renna fyrir
lax í íslenskri á. Þau segja þetta mikið tilhlökk-
unarefni enda íslensk laxveiði fræg um allan
heim. „Það verður ánægjuleg tilbreyting að
glíma við náttúruna á þann hátt,“ segir kon-
ungurinn. „Ég veit svosem ekki nákvæmlega
hvernig maður ber sig að en mér skilst að
þarna standi maður í miðjum fossi og veiði.“
Þetta er í fyrsta sinn sem konungurinn skorar
á íslenska laxinn en hins vegar hefur hann far-
ið á hreindýraveiðar á Íslandi. „Það er svo
langt um liðið að ég man hreinlega ekki hvern-
ig veiðin var,“ segir hann aðspurður um
hvernig gekk.
Tíminn í konungshöllinni líður hins vegar
hratt enda hafa hinir eðalbornu gestgjafar
þétta dagskrá sem þarf að sinna. M.a. er fram-
undan kvöldverðarboð hjá íslensku sendi-
herrahjónunum sem er liður í undirbúningi
fyrir heimsóknina til eyju elds og ísa.
Opinber heimsókn sænsku konungshjónanna og sænska ríkisarfans hefst í næstu viku
Íslensk tunga tengir þjóðirnar
Morgunblaðið/Bergþóra Njála
Karl Gústaf Svíakonungur, Silvía drottning og Viktoría krónprinsessa heimsækja Ísland í
næstu viku og ætla m.a. að renna fyrir laxi en eftirlætisstaður þeirra á Íslandi er Þingvellir.
ben@mbl.is
BJÖRN BJARNASON dómsmála-
ráðherra hefur skipað starfshóp til
að gera tillögur að innleiðingu líf-
kenna í íslensk vegabréf í samræmi
við alþjóðlegar kröfur. Jafnframt er
starfshópnum falið að semja tillögur
um útgáfu kennivottorða fyrir ís-
lenska ríkisborgara, sem jafnframt
gætu nýst sem ferðaskilríki á
Schengen-svæðinu. Þetta kemur
fram í fréttatilkynningu frá dóms-
málaráðuneytinu.
Varðandi vegabréf er starfshópn-
um falið að taka mið af kröfum
Bandaríkjamanna um lífkenni í
vegabréf, tillögu framkvæmda-
stjórnar Evrópusambandsins um
samræmdar kröfur um lífkenni og
fleiri öryggisatriði í vegabréf, gera
tillögur um breytingar á gerð ís-
lenskra vegabréfa, leggja mat á
kostnað vegna breytinganna og
vinna loks að endurnýjun á samningi
við framleiðanda íslenskra vega-
bréfa vegna framangreindra krafna.
Starfshópnum er falið að afla ít-
arlegra upplýsinga um kennivottorð
samstarfsríkja Íslands í Schengen,
gera tillögur um útlit og gerð slíkra
kennivottorða og huga að nauðsyn-
legum laga- og reglugerðabreyting-
um af þessu tilefni.
Í starfshópnum eru Georg Kr.
Lárusson forstjóri Útlendingastofn-
unar, sem jafnframt er formaður,
Elín Vigdís Hallvarðsdóttir lögfræð-
ingur í dómsmálaráðuneyti, Gná
Guðjónsdóttir lögreglufulltrúi hjá
embætti ríkislögreglustjóra, Jóhann
Jóhannsson framkvæmdastjóri Út-
lendingastofnunar og Skúli Guð-
mundsson skrifstofustjóri á Hag-
stofu Íslands. Starfshópnum er falið
að skila tillögum sínum til ráðherra
eigi síðar en 1. febrúar nk.
Lífkenni í vegabréf
kennivottorð borgara
MERKINGAR við skurð í Eskihlíð
voru ófullnægjandi á mánudagskvöld,
að mati Borgarvaktarinnar, en þá
urðu nokkrar skemmdir á bifreið sem
ekið var ofan í skurðinn. Um hálftíma
fyrr höfðu íbúar kvartað undan merk-
ingum við skurðinn. Það var einnig
gert á laugardag, samkvæmt upplýs-
inum frá Borgarvaktinni.
Grímur Þór Grétarsson verktaki
hafnar því að merkingar hafi verið
ófullnægjandi, svæðið sé merkt sem
vinnusvæði og skurðurinn girtur af.
Þá hafi tæki og tól verið fyrir skurð-
inum. Ökumaðurinn hafi sveigt fram
hjá vinnuvélunum og ekið upp á gang-
stétt áður en hann ók ofan í skurðinn.
„Við teljum að við höfum lokað skurð-
inn af eins og best verði á kosið,“ segir
hann.
Grímur Þór segir talsverð brögð að
því að merkingum sé stolið eða þær
færðar til og varúðarborðar slitnir.
Þetta stundi bæði fullorðnir og börn
og sé erfitt við að eiga. Hann segir
hugsanlegt að á mánudagskvöld hafi
einhverjar merkingar fokið til.
Árni Friðleifsson, varðstjóri hjá
umferðardeild lögreglunnar í Reykja-
vík, segir að yfirleitt séu merkingar
vegna framkvæmda góðar. Stundum
þurfi lögregla að gera athugasemdir
og þá séu verktakar yfirleitt snöggir
að bæta úr. Að öðrum kosti eru borg-
arstarfsmenn kallaðir út til að lag-
færa merkingar og reikningur síðan
sendur á verktakann. Þá sé algengt
að verktakar kvarti undan því að
merkingar séu fjarlægðar sem sé að
sjálfsögðu afleitt.
Hann segir að skýrar reglur gildi
um merkingar á vinnusvæðum og
bendir á að fyrir nokkrum árum hafi
verið gefinn út bæklingur með ítar-
legum leiðbeiningum um hvernig
vinnusvæði skulu merkt.
Samkvæmt upplýsinum frá lög-
reglu kom tilkynning um ófullnægj-
andi merkingar við Eskihlíð klukkan
21.55. Lögreglumenn sem voru send-
ir í Eskihlíð töldu að þó einhverjar
merkingar væru á staðnum yrði að
bæta þær. Því hafi verið hringt í
Borgarvaktina og óskað eftir því að
merkingarnar yrðu lagfærðar. Það
tókst þó ekki í tæka tíð því klukkan
22.26 var bílnum ekið ofan í skurðinn.
Kvörtuðu undan merk-
ingum skömmu fyrir slys
Merkingar við
vinnusvæði oft
fjarlægðar
Bíllinn hafnaði ofan í skurði í Eskihlíð og telur Borgarvaktin ljóst að merk-
ingar hafi verið ófullnægjandi en því hafnar verktakinn sem ber ábyrgðina.
NÝSKRÁNINGAR bíla jukust um
18,4% fyrstu sjö mánuði ársins mið-
að við sömu mánuði árið áður. Síð-
astliðna tólf mánuði hefur nýskrán-
ingum bíla fjölgað um 26,4%
samanborið við tólf mánuði þar á
undan. Þetta kemur fram í Hagvís-
um Hagstofu Íslands.
Fleiri vilja
nýja bíla
FYRSTU sjö mánuði ársins komu
402.879 farþegar til Keflavíkurflug-
vallar en 332.884 höfðu komið sömu
mánuði í fyrra. Þetta er 21,0% aukn-
ing. Þetta kemur fram í Hagvísum
Hagstofu Íslands.
Síðustu tólf mánuði hafa komið
653.827 farþegar til Keflavíkurflug-
vallar, en það er 21,1% aukning frá
næstu 12 mánuðum þar á undan.
Farþegum
fjölgaði um 21%
♦♦♦
♦♦♦