Morgunblaðið - 01.09.2004, Qupperneq 20
ERLENT
20 MIÐVIKUDAGUR 1. SEPTEMBER 2004 MORGUNBLAÐIÐ
Á
rás hryðjuverkamanna á
Bandaríkin 11. sept-
ember 2001 var efst í
huga ræðumanna á
fyrsta degi flokksþings
bandarískra repúblikana á mánudag
en þeir funda nú í New York. Rudy
Giuliani, fyrrverandi borgarstjóri í
New York, flutti aðalræðu kvöldsins
og gerði hann stríðið gegn hryðju-
verkum að umtalsefni við góðar und-
irtektir fulltrúa á þinginu. Ekki
minni ánægju viðstaddra vöktu þó
harðar árásir hans á frambjóðanda
Demókrataflokksins í forsetakosn-
ingunum í nóvember, John Kerry
öldungadeildarþingmann.
Giuliani var um það bil að ljúka
ferli sínum sem borgarstjóri í New
York þegar árásirnar á New York og
Washington áttu sér stað í sept-
ember 2001. Framganga hans þenn-
an örlagaríka dag þótti aðdáun-
arverð og mátti heyra á viðbrögðum
viðstaddra í Madison Square Gard-
en-íþróttahöllinni, þegar Giuliani var
kynntur á svið, að hann er í hávegum
hafður meðal repúblikana, ef ekki
allra Bandaríkjamanna.
Giuliani rifjaði upp að Bush
Bandaríkjaforseti hefði heitið því að
hryðjuverkamenn hvarvetna myndu
fá að finna fyrir Bandaríkjunum eftir
árásirnar 11. september. „Og það er
enginn vafi á að þeir munu halda
áfram að heyra í okkur á meðan
George W. Bush er forseti,“ sagði
hann.
Var ekki að heyra á ávörpum sem
flutt voru á mánudagskvöld að
repúblikanar gerðu neinn greinar-
mun á árásunum 11. september 2001
og innrás Bandaríkjanna í Írak í
fyrra en sem kunnugt er hafa ekki
fundist sannanir fyrir aðild Íraka að
árásunum á Bandaríkin. Var ljóst af
ræðum manna að repúblikanar
styðja þá ákvörðun Bush Banda-
ríkjaforseta heils hugar að ráðast á
Írak. „Bush forseti gerði nákvæm-
lega rétta hlutinn,“ sagði m.a. leik-
arinn Ron Silver í ávarpi sínu. „Við
munum aldrei gleyma [11. septem-
ber]. Við munum aldrei fyrirgefa. Við
munum aldrei sætta okkur við […]
morðin á 2.605 nágrönnum mínum,“
sagði hann og hlaut harður tóninn í
máli hans góðar undirtektir.
Kerry sífellt að skipta
um skoðun
Rudy Giuliani fór háðulegum orð-
um um John Kerry í ávarpi sínu.
„Vissulega skipta kjörnir fulltrúar
almennings stundum um skoðun eða
átta sig á því að þeir hafa rangt fyrir
sér,“ sagði hann. „En John Kerry
hefur gert það að reglu að skipta um
skoðun.“
Aftur á móti hefði Bush forseti
sýnt aðdáunarverða staðfestu og
hana þyrfti leiðtogi að hafa þegar við
hryðjuverkamenn væri að etja.
„Hann mun ekki leyfa hryðjuverka-
mönnunum að ráða ferðinni. Með
Bush sem forseta munu Bandaríkin
stýra ferðinni en ekki aðeins bregð-
ast við aðstæðum.“
Giuliani sagðist bera tilhlýðilega
virðingu fyrir því að Kerry hefði
þjónað ættjörð sinni vel. „En það er
mikilvægt að sjá muninn á fram-
göngu þessara manna. Bush forseti
er leiðtogi sem er reiðubúinn til að
fylgja eftir erfiðum ákvörðunum
jafnvel þó að afstaða almennings
breytist til og frá á meðan ferill
Johns Kerrys gefur til kynna mann
sem skiptir ítrekað um skoðun, jafn-
vel þegar um mikilvægustu málefni
er að ræða.“
Var Giuliani einnig harðorður í
garð þjóða sem ekki sýndu þessa
sömu staðfestu í baráttunni gegn
hryðjuverkamönnum og hann end-
urtók umdeild ummæli sem Bush lét
falla skömmu eftir árásirnar á
Bandaríkin 2001: „Annaðhvort ertu
með okkur í liði eða þú ert með
hryðjuverkamönnunum í liði.“
McCain hófsamur í orðavali
Augljóst var að Giuliani hafði tekið
að sér það hlutverk á mánudagskvöld
að taka keppinaut Bush um forseta-
embættið til bæna. John McCain,
öldungadeildarþingmaður frá Ariz-
ona, nefndi Kerry aftur á móti ekki á
nafn í sinni ræðu en þeir Kerry eru
miklir vinir og hefur McCain mis-
líkað þær persónulegu árásir sem
gerðar hafa verið á demókratann í
kosningabaráttunni. McCain fór hins
vegar lofsamlegum orðum um Bush
forseta, jafnvel þó að alkunna sé að
lengi vel var afar stirt með þeim en
þeir Bush og McCain kepptu um út-
nefningu Repúblikanaflokksins fyrir
fjórum árum.
Varði McCain innrásina í Írak og
sagði nauðsynlegt að reka harða ut-
anríkisstefnu nú þegar Bandaríkin
stæðu frammi fyrir þeirri miklu ógn
sem af efna-, sýkla- og kjarn-
orkuvopnum stafaði. Útilokað hefði
verið annað en grípa til aðgerða og
um það mættu Bandaríkjamenn ekki
efast, jafnvel þó að ýmsir héldu öðru
fram.
Sagði McCain að Bush hefði eftir
11. september 2001 heitið óvinum
Bandaríkjanna því að þeir myndu fá
að finna til tevatnsins. „Og það fengu
þeir. Það fengu þeir svo sannarlega.“
McCain mikilvægasti
stuðningsmaður Bush?
Dyggur stuðningur McCains við
Bush forseta nú hefur vakið nokkurt
umtal í bandarískum fjölmiðlum í
ljósi fyrri samskipta þeirra. Segja
fréttaskýrendur að Bush þurfi hins
vegar bráðnauðsynlega á stuðningi
McCains að halda í kosningabarátt-
unni, eigi hann að tryggja sér stuðn-
ing óákveðinna kjósenda. Skoð-
anakannanir sýna að enginn
bandarískur stjórnmálamaður er
eins óumdeildur og McCain, en hann
nýtur mikillar virðingar meðal al-
mennings. Urðu viðstaddir berlega
varir við þetta í Madison Square
Garden á mánudag en McCain var
þar hylltur mjög.
Á móti segja fréttaskýrendur
hugsanlegt að McCain, sem er 68
ára, sé að búa í haginn fyrir forseta-
framboð eftir fjögur ár og því hafi
hann viljað koma sér í mjúkinn hjá
forystumönnum og flokksmönnum
Repúblikanaflokksins. Sama er
reyndar sagt um Giuliani, sem einnig
átti um tíma stormasamt samband
við Bush. Hvorugur þeirra Giuliani
eða McCain hafa þó viljað svara
spurningum um þessi efni síðustu
dagana.
McCain sagði í ræðu sinni að
Bandaríkjamenn hefðu átt „stefnu-
mót við örlögin“ eftir árásirnar 11.
september. Og hann reyndi síðan,
einn fárra fundarmanna á mánudag,
að sýna fram á að demókratar og
repúblikanar væru alls ekki óvinir í
þeirri baráttu sem nú hefði verið efnt
til heldur vinir sem vildu nálgast
málin á ólíkan hátt. Hvorir tveggju
væru Bandaríkjamenn og það skipti
mestu.
Hermenn hylltir
Meðal ræðumanna á mánudag
voru þrjár konur sem misstu ástvini í
árásunum 11. september 2001. Stóðu
orðin „11. september 2001“ á tjaldi
fyrir aftan þær á sviðinu í Madison
Square Garden þegar þær ræddu
þann harmleik sem þær máttu upp-
lifa og þær hetjudáðir sem ástvinir
þeirra frömdu en yfirskrift kvöldsins
var einmitt „hugrökk þjóð“. Mátti sjá
marga þingfulltrúa tárast við að
heyra sögu kvennanna þriggja.
Tara Stackpole var ein kvennanna
sem ræddu um afdrif ástmenna
sinna 11. september en eiginmaður
hennar, Timmy, var meðal slökkvi-
liðsmannanna sem fórust í World
Trade Center. „Ég er stolt af því að
deila honum með ykkur. Rétt eins og
ég er stolt af því að lána Bandaríkj-
unum elsta son minn, Kevin, en hann
heldur til Íraks með herdeild sinni í
desember.“
Stóðu þingfulltrúar á fætur og
klöppuðu lengi er þeir heyrðu þessi
orð.
Engin kvennanna lýsti beinlínis
yfir stuðningi við Bush en sögur
þeirra þóttu þó sterkt mótvægi við
þá gagnrýni sem margir ættingja
fórnarlamba árásanna hafa beint
gegn stjórn Bush forseta. Aðrir telja
hins vegar þá áherslu sem repúblik-
anar leggja á 11. september 2001 á
flokksþingi sínu engan veginn við
hæfi.
Íraki meðal ræðumanna
Meðal annarra hápunkta kvöldsins
var sú stund þegar Dick Cheney
varaforseti og eiginkona hans,
Lynne, gengu í salinn og settust
meðal þingfulltrúa. Þá hlaut George
Bush eldri, fyrrverandi forseti
Bandaríkjanna, góðar viðtökur við-
staddra. Loks vakti athygli ávarp
Zainabs al-Suwaij sem er íraskur
innflytjandi í Bandaríkjunum. Full-
yrti hún að Írak stæði mun betur nú
en fyrir innrás Bandaríkjamanna í
landið í mars í fyrra. „Jú, vissulega
er blóði ennþá úthellt og ástandið er
ótryggt. En Bandaríkin, undir
styrkri forystu Bush forseta, hafa
gefið Írökum þá verðmætustu gjöf
sem nokkur þjóð getur gefið annarri
þjóð: lýðræði og frelsið til að ákveða
sjálf framtíð sína,“ sagði hún.
Bush sagður sá
staðfasti leiðtogi sem
Bandaríkin þurfa
Flokksþing bandarískra repúblikana hófst í New York á mánudaginn. Davíð Logi Sigurðsson var í Madison Square Gard-
en þegar þeir Rudy Giuliani og John McCain, aðalræðumenn á fyrsta degi flokksþingsins, stigu á stokk og ræddu um það
hvers vegna Bandaríkjamenn ættu umfram allt að tryggja George W. Bush endurkjör sem forseta Bandaríkjanna.
Reuters
Rudy Giuliani flytur ávarp sitt undir risastórri tölvumynd af Frelsisstyttunni og fána Bandaríkjanna.
’Með Bush sem forsetamunu Bandaríkin stýra
ferðinni en ekki aðeins
bregðast við aðstæðum.‘
david@mbl.is
KVIKMYNDAGERÐARMAÐURINN Michael Moore stal sen-
unni eitt stundarkorn í Madison Square Garden-íþróttahöll-
inni á mánudagskvöld en hann gekk í salinn um klukkan 21,
skömmu áður en öldungadeildarþingmaðurinn John McCain
flutti ávarp sitt. Er víst óhætt að segja að repúblikanar, sem
nú halda flokksþing sitt í New York, fyrirlíti fáa menn jafn
mikið og Moore – en eins og mynd hans Fahrenheit 911 sýnir
er Moore ekki heldur neinn aðdáandi George W. Bush Banda-
ríkjaforseta.
Blaðamaður Morgunblaðsins gekk í flasið á Moore þar sem
hann var um það bil að koma inn í fundarsalinn í Madison
Square Garden. Mikil rekistefna var þá um það bil að hefjast
en öryggisverðir höfðu þegar þarna var komið áttað sig á því
hver var hér mættur til leiks og umkringdu þeir Moore
skyndilega og ræddu við hann í því skyni að skoða skilríki
hans áður en honum var hleypt alla leið í salinn. Var um-
stangið svo mikið að halda mátti að Moore væri þungvopn-
aður og stórhættulegur.
Ekki var að sjá að þingfulltrúar hefðu veitt Moore athygli
en óhætt er að segja að fjölmiðlafólk hafi gert það hins vegar
– en sjálfur var Moore mættur sem dálkahöfundur fyrir blaðið
USA Today og hafði hann skilríki sem slíkur. Það átti hins
vegar eftir að koma á daginn að menn höfðu sannarlega tekið
eftir kvikmyndagerðarmanninum umdeilda. Þegar John
McCain vísaði til Moore án þess að nefna hann á nafn – og
ekki er ljóst hvort McCain vissi að Moore var staddur í húsinu
því ummælin hafði McCain útbúin fyrirfram – fauk nánast
þakið af Madison Square Garden þegar repúblikanar, allir
sem einn, snéru sér í átt að þeim stað þar sem Moore sat og
púuðu sem mest þeir máttu á hann. Sungu þeir síðan „fjögur
ár í viðbót“ en Moore virtist líka óskipt athyglin og spennan í
andrúmsloftinu og veifaði hann tveimur fingrum að salnum
og gaf þannig til kynna að hann teldi að George W. Bush sæti
aðeins tvo mánuði í viðbót sem forseti. Ekki löngu síðar yfir-
gaf hann samkunduna í fylgd hátt í 20 öryggisvarða og létu
fundarmenn hann þá á ný fá það óþvegið.
Michael Moore stal senunni
Morgunblaðið/Davíð Logi
Michael Moore gengur inn í fundarsalinn í Madison Square
Garden. Öryggisverðir hafa umkringt hann en koma hans
vakti takmarkaða hrifningu viðstaddra.