Morgunblaðið - 05.09.2004, Page 16
16 SUNNUDAGUR 5. SEPTEMBER 2004 MORGUNBLAÐIÐ
Löng hefð er fyrir því að jafn-aðarmenn haldi um stjórnar-taumana í Svíþjóð og þaðgera þeir nú undir forsæti
Göran Persson. Hann stýrir minni-
hlutastjórn sem nýtur stuðnings
þeirra tveggja flokka sem mynda
vinstriblokkina í sænskum stjórnmál-
um ásamt Jafnaðarmannaflokknum,
Vinstriflokksins og Umhverfisflokks-
ins.
Óvenju samstiga hægriblokk getur
nú velgt jafnaðarmönnunum undir
uggum því formenn borgaralegu
flokkanna fjögurra tilkynntu í vik-
unni það markmið sitt að fella rík-
isstjórnina í kosningunum haustið
2006. Hægriflokkurinn er sigurveg-
ari síðustu skoðanakönnunar og jókst
fylgi hans um 3,9% í 23,2% og er
flokkurinn sá næststærsti á eftir
Jafnaðarmannaflokknum sem hefur
34,6% fylgi og tapar 1,8% skv. skoð-
anakönnuninni.
Hægriblokkina mynda borgara-
legu flokkarnir fjórir, taldir upp eftir
stærð: Hægriflokkurinn, Þjóðar-
flokkurinn, Miðflokkurinn og Kristi-
legir demókratar.
Síðasta könnun á fylgi flokkanna
leiddi í ljós að borgaralegum öflum
vex nú fiskur um hrygg í Svíþjóð og
mældist samanlagt fylgi þeirra 48,9%
en samanlagt fylgi vinstriflokkanna
mældist 49,3%. Munurinn á blokkun-
um hefur aldrei mælst svo lítill og
blæs vindi í seglin fyrir borgaralegu
flokkana.
Fylgi Jafnaðarmannaflokksins var
lengi í kringum 50% og stjórnarsaga
hans er nær órofin. Hægristjórnir
hafa aðeins tvisvar verið við völd í
Svíþjóð, 1976–1982 og 1991–1994
undir forsæti Carl Bildt. Það er metið
svo að sitjandi stjórn þurfi að vara sig
á keppinautunum sem stíga nú fram
saman. En á hitt er einnig bent að
Svíþjóð er að stíga upp úr efnahags-
legri lægð, góðæri er nú spáð á næstu
þremur árum og stjórnarandstaða
kemst sjaldan til valda í góðæri.
Fjölmiðlavænn fundur
Á mánudag og þriðjudag stóð yfir
fundur þeirra Maud Olofsson, for-
manns Miðflokksins, Fredrik Rein-
feldt, formanns Hægriflokksins, Lars
Leijonborg, formanns Þjóðarflokks-
ins, og Göran Hägglund, formanns
Kristilegra demókrata á heimili
þeirrar fyrstnefndu í Högfors, ná-
lægt Umeå á norðausturströnd Sví-
þjóðar.
Fundurinn vakti mikla athygli fjöl-
miðla. Aftonbladet birti heilsíðumynd
af eiginmanni Maud Olofsson að ryk-
suga og undirbúa komu hinna for-
mannanna á heimili þeirra í Högfors.
Virðulegri blöð birta einnig flenni-
stórar myndir, en frekar af formönn-
unum sjálfum, t.d. að gróðursetja tré
á landareign Maud Olofsson. Viðtöl
við formennina eru í öllum fjölmiðlum
og ákvörðun þeirra og áætlun þykir
fréttnæm, sérstaklega í ljósi þess að
munurinn á pólitísku blokkunum
tveimur í Svíþjóð hefur aldrei verið
minni í sögunni.
Formennirnir fjórir kynntu hug-
myndir sínar og niðurstöður af fund-
inum í plaggi sem hlaut yfirskriftina
Bandalag fyrir Svíþjóð – samstarf um
stjórnarskipti 2006. Sitjandi stjórn-
völd eru gagnrýnd fyrir valdþreytu
og aðgerðaleysi og áhersla lögð á
sundrung meðal vinstriblokkarinnar,
þ.e. að ágreiningur um t.d. skatta og
fjárlög sé of mikill til að stjórnarsam-
starfið sé trúverðugt. Fullyrt er að
kjósendur fái betri valkost í kosning-
unum eftir rúm tvö ár, samkomulagið
meðal borgaralegu flokkanna sé gott,
þeir muni hefja undirbúning strax og
verði tilbúnir í ríkisstjórn árið 2006.
Göran Persson forsætisráðherra
hefur tekið fréttunum vel, segist
fagna verðugum keppinautum og
segir að kannski muni nú borgara-
legu flokkarnir koma sér saman um
afstöðu til þingmála. Að hans mati er
borgaralega blokkin nauðsynleg
áskorun fyrir Jafnaðarmenn. „Við
höfum í raun ekki fengið neina sam-
keppni að ráði síðan fyrir 1998 þegar
Carl Bildt var í stjórnmálum,“ segir
Persson í samtali við Dagens Ny-
heter.
Carl Bildt var forsætisráðherra á
árunum 1991–1994. Vonast var eftir
endurkomu Bildts í forsætisráð-
herrastól árið 1998 þegar hann var
aftur í framboði fyrir Hægriflokkinn
eftir mikils metin störf í Bosníu og
skoðanakannanir sýndu verulegt
fylgi Hægriflokksins á kostnað Jafn-
aðarmannaflokksins. Raunveruleg
úrslit urðu þó naumur sigur fyrir
Persson og jafnaðarmenn og ósigur
Hægriflokksins. Fréttaskýrandi DN
segir að borgaralegu flokkarnir séu
kannski nú fyrst að bíða þess bætur
að hafa lagt áherslu á eina persónu –
Carl Bildt. Kannski verði affarasælla
að setja fram fjóra formenn sem virð-
ast meira samstiga en nokkru sinni
fyrr og allir hafa einlægan vilja til að
bjóða kjósendum sameiginlega
stefnuskrá og raunverulegan valkost.
Persson hrósar samstarfsflokkum
Jafnaðarmannaflokksins og segir
samstarfið hafa gengið vel þau sex ár
sem það hefur varað. Hvorki Um-
hverfisflokkurinn né Vinstriflokkur-
inn eiga fulltrúa í ríkisstjórninni en
þeir fyrrnefndu segja að ekki verði
hægt að halda samstarfinu áfram eft-
ir næstu kosningar nema að Um-
hverfisflokkurinn fái fulltrúa í ríkis-
stjórn. Vinstriflokkurinn vill hins
vegar ekki eiga fulltrúa í ríkisstjórn
þar sem mikið ber í milli varðandi af-
stöðuna til öryggis- og varnarmála.
Persson vill ekki svara því strax í
Borgaraleg blokk
fær byr í seglin
Mið- og hægriflokkarnir fjórir í Svíþjóð hafa nú
myndað bandalag fyrir þingkosningarnar 2006 og
eiga möguleika á að fella ríkisstjórn jafnaðarmanna
samkvæmt síðustu skoðanakönnunum þótt enn sé
of snemmt að spá fyrir um framhaldið. Steingerður
Ólafsdóttir setti sig inn í sænsk stjórnmál.
Morgunblaðið/Golli
Formenn mið- og hægriflokkanna fjögurra kynntu hugmyndir sínar nýlega í plaggi sem hlaut yfirskriftina Bandalag fyrir Svíþjóð — samstarf um stjórnarskipti 2006. Eru sitjandi stjórnvöld þar gagnrýnd
fyrir valdþreytu og aðgerðaleysi og áhersla lögð á sundrung meðal vinstriblokkarinnar.
Maud Olofsson, formaður Miðflokksins, er talin potturinn og pannan í samstarfi
borgaraflokkanna fjögurra.
Síðustu inn
ritunardag
ar
ÓPERUTÓNLEIKAR
Í ÞJÓÐLEIKHÚSINU
Glæsileg tónlistarveisla í Þjóðleikhúsinu með helstu aríum
óperubókmenntanna.
JÓHANN FRIÐGEIR VALDIMARSSON tenór
GESTASÖNGVARI: AUÐUR GUNNARSDÓTTIR sópran
og karlakórinn VOCES MASCULORUM
KURT KOPESKY píanó
KYNNIR: ÞÓR JÓNSSON
MIÐVIKUDAGINN 8. september kl. 20.30
Miðasala í ÞJÓÐLEIKHÚSINU og pantanir í síma 893 8638
JÓHANN FRIÐGEIR AUÐUR GUNNARSDÓTTIR