Morgunblaðið - 05.09.2004, Blaðsíða 46

Morgunblaðið - 05.09.2004, Blaðsíða 46
MINNINGAR 46 SUNNUDAGUR 5. SEPTEMBER 2004 MORGUNBLAÐIÐ ✝ Ýr Viggósdóttirfæddist í Stykkis- hólmi 3. júlí 1934. Hún lést á Landspít- alanum – háskóla- sjúkrahúsi 10. ágúst síðastliðinn. Foreldr- ar hennar voru María Þórðardóttir hús- freyja, f. 15. ágúst 1904, d. 13. júlí 1980 og Viggó Bjarnason sjómaður, f. 26. sept. 1901, d. 15. mars 1977. Þau slitu sam- vistum. Sambýlis- maður Maríu var Páll Helgason, f. 23.11. 1904, d. 28.3. 1987. Ýr var næstyngst sex systkina en hin eru, Erlingur R., f. 28. apríl 1928, Bjarni, f. 5. júlí 1929, d. 27. apríl 1988, Eysteinn J., f. 20. ágúst 1931, Kristján, f. 26. júní 1933, d. 2. sept. 1986 og Kolbrún, f. 20. des. 1935. Ýr giftist 23. desember 1953 unnusta Rebekka Ingadóttir, f. 21.03. 1983. c) Emilía Ólöf, f. 8.11. 1988. 3) Dóttir óskírð, f. 2. ágúst 1963, d. 4. ágúst 1963. 4) Ægir Þór, f. 7.10. 1965, maki Eydís Bergmann Eyþórsdóttir, f. 18.1. 1967. Sonur Ægis er Eyþór, f. 30.1. 1986. Dóttir Eydísar er Björg Guðrún Einars- dóttir, f. 9.2. 1992. Börn Ægis og Eydísar eru Ólafur Þórir, f. 2.8 1997 og Ari Bergmann, f. 23.9. 2003. 5) María Bryndís, f. 12.4. 1967, maki Ásgeir Héðinn Guð- mundsson, f. 3.3. 1968. Dóttir Mar- íu, Herdís Teitsdóttir, f. 2.7. 1985, unnusti Ólafur Ingi Bergsteinsson, f. 5.9 1983. Börn Maríu og Ásgeirs Ólöf Rún, f. 4.8. 1989 og Vignir Þór, f. 28.7. 1994. Uppeldissonur Ýrar og Ólafs er Eggert Bjarni Bjarna- son, f. 18.8. 1953, maki Hafdís Sverrisdóttir, f. 2.5. 1960. Börn þeirra Brynja S., f. 30.3. 1980, maki John Olav Silnes, Ævar, f. 10.2. 1986 og Ýr, f. 28.8 1987. Ýr stundaði lengst af húsmóður- störf, en á yngri árum vann hún á hinum ýmsu stöðum þ.á m. á elli- heimilinu Grund. Ýr var jarðsungin frá Stykkis- hólmskirkju 18. ágúst. Ólafi Þóri Sighvatssyni skipstjóra, f. 30. maí 1929 og bjuggu þau all- an sinn búskap í Stykk- ishólmi að undantöldu tveimur árum er þau áttu heimili í Reykja- vík. Eignuðust þau fimm börn, en þau eru: 1) Sævar Berg, f. 22.2. 1959, maki Hjálm- fríður Guðjónsdóttir, f. 15.3. 1962. Sonur þeirra er Óðinn Örn f 25.10. 1988. Sonur Hjálmfríðar Gunnlaug- ur Már Briem, f. 5.1. 1983. 2) Guð- björg Halldóra, f. 5.2. 1961, maki Þorvarður Einarsson, f. 21.11. 1957. Börn þeirra eru a) Elín María, f. 27.7. 1978, maki Steinar Már Þórisson, f. 9.9 1968, börn þeirra Rósmary Ýr, f. 24.4. 2001 og Þórir Steinn, f. 26.4. 2003, sonur Steinars Ingólfur Örvar, f. 16.3. 1995. b) Einar, f. 12.5. 1982, Elsku amma mín, hvað ég sakna þín sárt, hjarta mitt er brotið og það tekur tíma að byggjast upp aftur. Ég veit ekki hvað ég á að gera án þín. Ég vildi að þú værir hér hjá mér, en þú ert hjá mér, ég finn fyrir þér og ég veit að þú vakir alltaf yfir mér og passar mig þegar mér líður illa. Afhverju þú? Þetta er spurning sem ég spurði en nú veit ég afhverju þú fórst svona fljótt, þú þurftir að fara að passa litla strákinn þinn og ég hef haft þig svo lengi hjá mér en hann hefur aldrei haft þig hjá sér og hann er örugglega búinn að sakna þín sárt. Elsku amma, ég get samt ekki hætt að gráta, það getur ekkert þerr- að tárin mín, ég sakna þín svo mikið. Ég á aldrei eftir að gleyma þér og hvernig þú varst við mig og alla í kringum þig, og amma, viltu gera mér einn greiða? Viltu biðja Guð um að taka ekki afa alveg strax, ég vil ekki missa hann strax, og eitt enn, viltu skila kveðju til Alexíu frá mér og Óla, hann saknar hennar svo sárt líka. En elsku amma, hvíldu í friði. Ég elska þig endalaust. Þín Herdís. Elsku Ýra frænka, ekki átti ég von á því að kallið kæmi svo fljótt til þín og ég þyrfti að kveðja þig í hinsta sinn aðeins örfáum vikum eftir að við hitt- umst á Lýsuhóli í sumar á niðjamóti og 70 ára afmæli þínu, og þakka ég fyrir þá stund sem við áttum þá sam- an. Það var svo sjálfsagt að koma við á Skúlagötunni hjá Ýru og Óla. Mörg- um stundum sat ég við eldhúsborðið með systkinunum á Skúlagötunni að spjalla um heima og geima. Alltaf sat Ýra og tók þátt í umræðunni, hlustaði á bullið í okkur þegar við vorum krakkar, og þegar við urðum eldri og þóttumst vera að tala um mikilvægari mál, þá fussaði í henni öðru hvoru og hún sagði, þið eruð nú meiri vitleys- ingarnir, og svo hló hún sínum hlátri. Á heimili Ýru og Óla hefur oft verið mikill gestagangur og þá sérstaklega á Dönsku dögunum. Alltaf lagði Ýra á borð fyrir alla, kynstrin öll af brauði og kökum, svo ekki sé minnst á ómissandi brúntert- una sem ég fékk aldrei nóg af. Stund- um var talið í kvöldmatinn, 21, var einu sinni kallað fram úr stofu, einu læri bætt við í ofninn og ekki tekið annað í mál en að ég og mín fjölskylda settumst við borðið. Ýra var sérstaklega hraðmælt eins og nokkrir aðrir í fjölskyldunni og eigum við það sameiginlegt sem ól- umst upp saman, að vera það líka þegar við hittumst, sérstaklega heima hjá Ýru. Þá var svo hratt talað að Svein- björg mín sagðist ekki hafa náð nema helmingnum af því sem sagt var við eldhúsborðið, fyrstu skiptin sem hún kom með mér. Það er mér líka minnisstætt þegar ég var á skel hjá Óla, þá 17 ára og gisti í kjallaranum hjá þeim, að mér leið eins og ég væri heima hjá mér, svo velkominn var ég á heimilinu. Þó dvölin hefði verið styttri en ætlunin var, og ég á stefnulausu reki um framtíðina, áttum við Ýra oft löng samtöl fram eftir nóttu, þar sem ég kynntist Ýru frænku betur og hennar kynslóð. Ég vil þakka þér fyrir allar sam- verustundirnar og ég mun varðveita minningu þína í hjarta mínu. Elsku Óli, Baddi, Sævar, Dóra, Ægir, María og fjölskyldur, mínar innilegustu samúðarkveðjur. Kveðja, Arnar. ÝR VIGGÓSDÓTTIR Innilegar þakkir til allra þeirra sem sýndu okkur samúð og hlýhug við andlát og útför ástkærrar móður okkar, tengdamóður, ömmu og langömmu, frú FJÓLU VALDÍSAR BJARNADÓTTUR húsmóður. Sérstakar þakkir til starfsfólks hjúkrunar- heimilisins Sunnuhlíðar, Kópavogi. Guð blessi ykkur öll. Freyja Sverrisdóttir, Helgi Eiríksson, Kristín Valdís Sigurðardóttir, Bjarni Þór Guðmundsson, Bjarni Sigurðsson, Kristín Bessa Harðardóttir, Ingibjörg Erna Sigurðardóttir, Sveinbjörn Halldórsson. Okkar innilegustu þakkir til allra sem sýndu okkur hlýhug og samúð við andlát og útför okkar ástkæru móður, tengdamóður, systur, ömmu og langömmu, MAGNÚSÍNU OLSEN. Sérstakar þakkir til starfsfólks öldrunardeildar FSÍ. Guð blessi ykkur öll. Inga Ruth Olsen, Snjólaug Guðmundsdóttir, Lilja Sigurgeirsdóttir, Aðalsteinn Richter, barnabörn, barnabarnabörn og aðrir aðstandendur. Innilegar þakkir til allra er sýndu okkur samúð, hlýhug og elsku við andlát og útför ástkærrar dóttur okkar, systur, mágkonu, móður, barns- móður og barnabarns, ÓLAFAR ALDÍSAR BREIÐFJÖRÐ GUÐJÓNSDÓTTUR. Einnig viljum við koma á framfæri innilegu þakklæti til allra þeirra aðila sem komu að leit hennar. Finnbjörg Skaftadóttir, Guðjón Ólafsson, Erna Rós Ingvarsdóttir, Hörður Óskarsson, Guðrún Karólína Guðjónsdóttir, Birgir Már Guðmundsson, Tinna Breiðfjörð Guðjónsdóttir, Reynir Hilmisson, Víkingur Glói Breiðfjörð Grétarsson, Grétar Már Bjarnarson, Erna Hannesdóttir, Helgi Arnlaugsson, Jóhanna Ingimundardóttir, Skafti Jóhannsson, Susana Níelsen. Innilegar þakkir til allra þeirra fjölmörgu sem sýndu okkur samúð, hlýhug og vináttu við andlát og útför ástkærs eiginmanns míns, föður okkar, tengdaföður og afa, SIGURÐAR GUÐMUNDSSONAR frá Otradal, Hrafnhólum 6, Reykjavík. Sérstakar þakkir til heimaþjónustunnar Karitasar og Sigurðar Böðvarssonar krabbameinslæknis. Ingrid Guðmundsson, Elsa Nína Sigurðardóttir, Jónas Sigurðsson, Svanhvít Sigurðardóttir, Kjartan Eggertsson, Guðmundur Otri Sigurðsson, Lára Grettisdóttir og barnabörn Hjartans þakkir til allra þeirra sem hafa auðsýnt okkur samúð, hlýhug og vinarþel við fráfall okkar ástkæru foreldra, tengdaforeldra, ömmu og afa, HJÖRDÍSAR GUNNARSDÓTTUR og FINNBOGA SIGMARSSONAR, Garðavegi 15, Hafnarfirði. Birgir Finnbogason, Hrafnhildur Blomsterberg, Lilja María Finnbogadóttir, Árni Baldursson, Valgerður Birgisdóttir, Davíð Smári Jóhannsson, Hjördís Birgisdóttir, Elva Árnadóttir, Finnbogi Árnason. Inger Steinsson, útfararstjóri, s. 691 0919 Ólafur Ö. Pétursson, útfararstjóri, s. 896 6544 Bárugötu 4, 101 Reykjavík. S. 551 7080 Vönduð og persónuleg þjónusta. Þökkum innilega öllum þeim, sem sýndu okkur hlýhug og hluttekningu við fráfall elsku eiginkonu minnar, móður, tengdamóður og ömmu okkar, HELGU INGIBJARGAR PÁLSDÓTTUR, Suðurhlíð 38d. Björn Sigurbjörnsson, Unnur Steina Björnsdóttir, Kristinn Haukur Skarphéðinsson, Björn Kristinsson, Kristín Helga Kristinsdóttir. Hjartans þakkir til þeirra fjölmörgu sem sýndu okkur hlýhug og vináttu vegna andláts INGÓLFS VIKTORSSONAR loftskeytamanns frá Flatey á Breiðafirði, Lynghaga 7, Reykjavík. Sérstakar þakkir til hjúkrunarþjónustunnar Karitasar. Unnur Fenger, Ingólfur H. Ingólfsson, Bärbel Schmid, Jens Ingólfsson, Brynhildur Bergþórsdóttir, Viktor Arnar Ingólfsson, Valgerður Geirsdóttir, Guðmundur K.G. Kolka, Kristín Halla Sigurðardóttir, Guðni Ingólfsson, Sigrún Ámundadóttir, barnabörn og barnabarnabörn. Minningarkort 570 4000 Pantanir á netinu: www.redcross.is Rauði kross Íslands bregst við neyð jafnt innanlands sem utan og veitir aðstoð er gerir fólk hæfara til að takast á við erfiðleika og bregðast við áföllum. Þegar á reynir Rauði kross Íslands
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.