Morgunblaðið - 05.09.2004, Blaðsíða 25
MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 5. SEPTEMBER 2004 25
hann einmitt leikið á sínum 10.000.
tónleikum.
Gott lag er einfaldlega gott lag
Ekki sat Ray Charles auðum
höndum þó hann væri hættur tón-
leikahaldi, á síðasta ári tók hann upp
gospel-plötu, sem bíður útgáfu, og
lauk við sína síðustu hljóðversplötu,
Genius Loves Company, þar sem
hann syngur með gömlu vinum sín-
um og nýjum, Norah Jones, BB
King, Willie Nelson, Michael
McDonald, Bonnie Raitt, Gladys
Knight, Johnny Mathis og James
Taylor, Natalie Cole, Elton John,
Diana Krall og Van Morrison.
Þó Ray Charles hafi tekið upp
fjölmargar plötur á ferlinum er
Genius Loves Company, fyrsta
dúettaplata hans og um leið fyrsta
plata hans í nokkur ár. Hann sagði í
viðtali sem tekið var á meðan platan
var í smíðum að það hefði vissulega
verið gaman að vinna með sínum
gömlu tónlistarvinum og nýjum
listamönnum einnig, en helst hefði
vakað fyrir honum að gefa út plötu
þar sem allar þær tónlistarstefnur
sem hann kynni að meta fengju að
njóta sín, rytmablús, sálartónlist,
popp, blús og sveitatónlist. „Ég hef
aldrei fellt mig við það að vera skip-
að á ákveðinn bás í tónlistinni, gott
lag er einfaldlega gott lag.“
arnim@mbl.is
’Ray Charles fann sér fróun í tónlist, var sannkallaðundrabarn á því sviði, var með frábæra söngrödd, lék á
fjölda hljóðfæra, samdi lög og útsetti.‘
Sími 594 6000
Dísilvélar
Loftkældar dísilvélar frá Yanmar
3 til 10 Hö m/án rafstarts
- SPENNANDI VALKOSTUR
Stangarhyl 3, 110 Reykjavík, sími 591 9000
www.terranova.is
Akureyri, sími 461 1099
Kýpur
- Jólaferðir
17. og 22. desember
frá kr. 85.233
Kýpur, eyjan fyrir botni Miðjarðarhafsins, þar sem er að finna minjar frá árdögum
evrópskrar hámenningar. Sólríkar strendur ylja fölum frónbúum og furuvaxin fjöllin eru
ævintýri líkust. Afslappað andrúmsloft, góðir veitingastaðir, spennandi skemmtistaðir,
glæsileg hótel, góðar gönguleiðir, íþróttir í úrvali jafnt á sjó sem landi. Kýpverjar eru
heiðarlegt og vingjarnlegt fólk sem dáir börn og fjölskyldan er í fyrirrúmi. Hér geta allir
aldurshópar sameinast í fullkomnu fríi og fyrir þá sem þess óska eru siglingar til
Egyptalands rúsínan í pylsuendanum.
17 des. - 3. jan. 17 dagar
22. des - 3. jan. 12 dagar
Verð kr. 85.233 á mann
Miðað við 2 fullorðna og 2 börn í 12 nætur í
íbúð m/1 svefnh. á Atlantica Balmyra Beach.
Innifalið: flug, flugvallarskattar, gisting og
íslensk fararstjórn.
Verð kr. 89.990 á mann
Miðað við 2 í stúdíó í 12 nætur
á Estella Hotel Apartments. Innifalið: flug,
flugvallarskattar, gisting og íslensk
fararstjórn.
Háskólabíó vi› Hagatorg I Sími 545 2500 I sinfonia@sinfonia.is I www.sinfonia.is
Starfsár Sinfóníuhljómsveitar Íslands hefst fimmtudaginn 9. september með glæsilegum tónleikum þar sem kynnt er
til sögunnar ný íslensk söngstjarna sem er á hraðri uppleið í tónlistarheiminum: Maríus Sverrisson.
Maríus hefur gert garðinn frægan í Þýskalandi undanfarið þar sem hann hefur m.a. verið í lykilhlutverki í verðlauna-
söngleiknum Titanic, sem gekk fyrir fullu húsi í Hamborg í 10 mánuði samfleytt.
Tryggðu þér miða á upphafstónleikana og góða byrjun á menningarvetrinum!
Glæsileg
byrjun
Erich Wolfgang Korngold ::: Robin Hood
Maury Yeston ::: Kyndarasöngurinn úr Titanic
Jón Þórarinsson ::: Þrír mansöngvar
Marlcolm Arnold ::: Tam O´Shanter, op. 51
Jón Leifs ::: Björn að baki Kára úr Sögusinfóníunni
Kurt Weill ::: Mackie Messer úr Túskildingsóperunni
Stephen Sondheim ::: Broadway Baby úr Follies
Richard Strauss ::: Til Eulenspiegels lustige Steiche
Upphafstónleikar
Fimmtudaginn 9. september kl. 19.30
Háskólabíói, miðaverð: 2.800 / 2.400 kr.
Hljómsveitarstjóri ::: Rumon Gamba
Einsöngvari ::: Maríus Sverrisson
M
Á
T
T
U
R
IN
N
&
D
Ý
R
Ð
IN
Fréttir á SMS