Morgunblaðið - 05.09.2004, Blaðsíða 19
MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 5. SEPTEMBER 2004 19
legt álag sem fylgdi erfiðum að-
stæðum. Rætt var við fólk sem hafði
bæði lent í því að missa einhvern ná-
kominn og átt við ófrjósemi að stríða,
og í ljós kom að ófrjósemin olli því
miklu meira álagi, þó hvort tveggja
hafi tekið mikið á,“ segir Þórður.
Mikil og stöðug eftirspurn
Undanfarin ár hafa um eða yfir 300
glasa- og smásjárfrjóvganir verið
framkvæmdar á Íslandi á ári. Gerðar
hafa verið um 300 tæknisæðingar á
ári og um 80 til 90 pör fengið með-
ferðir þar sem settir hafa verið upp
frystir fósturvísar. Alls hafa yfir
1.500 börn komið í heiminn í kjölfar
tæknifrjóvgana á Íslandi.
Guðmundur og Þórður segja að
þegar starfsemi hófst á tæknifrjóvg-
unardeild Landspítalans fyrir þrett-
án árum hafi verið til staðar uppsafn-
aður vandi og biðtíminn eftir meðferð
hafi farið upp í tvö og hálft ár. Árið
1996 hafi orðið mögulegt að fjölga
meðferðum og biðlistarnir styst
nokkuð í kjölfarið, en þó numið um
einu ári. Eftirspurnin hafi verið stöð-
ug, en talsvert umfram það sem unnt
hafi verið að anna.
Útlit er fyrir að allir þeir sem áður
störfuðu á tæknifrjóvgunardeild
Landspítala – háskólasjúkrahúss
komi til með að starfa við nýju tækni-
frjóvgunarstofuna, eða tíu til ellefu
starfsmenn. Guðmundur og Þórður
segja að húsnæðið bjóði upp á útvíkk-
un starfseminnar og því vel mögulegt
að starfsfólki verði fjölgað í framtíð-
inni. Svigrúm sé til að fjölga með-
ferðum, sem ekki hafi verið fyrir
hendi innan Landspítalans. Þar hafi
verið búið að þrengja talsvert að
tæknifrjóvgunardeildinni. Með bygg-
ingu barnaspítalans hafi verið byrgt
fyrir glugga og erfitt hafi verið um
loftræstingu. Húsnæði nýju tækni-
frjóvgunarstofunnar sé hins vegar
hannað frá grunni fyrir þessa starf-
semi, með þarfir sjúklinga og starfs-
fólks í huga. Aðstaðan verði því mun
betri en áður.
Tæknifrjóvgunarstofan mun bera
nafnið ART Medica, og vísa upphafs-
stafirnir til samheitis tæknifrjóvgana
á ensku, assisted reproductive
technologies, enda stefnt að því að
starfa á alþjóðlegum grundvelli. Stof-
an verður til húsa að Bæjarlind 12 í
Kópavogi, og benda þeir Þórður og
Guðmundur á að með þróun Stór-
Reykjavíkursvæðisins sé það hverfi
orðið afar miðsvæðis. Þar sé aðkom-
an einnig greið og næg bílastæði, en
skortur á þeim hafi verið til mikilla
vandræða á Landspítalalóðinni.
Einkarekstur viðeigandi
á þessu sviði
Spurðir hvort þeir telji að æskilegt
væri að taka upp einkarekstur í heil-
brigðiskerfinu í ríkari mæli segja
þeir margt benda til þess. „Ég hygg
að einkarekstur í heilbrigðiskerfinu
eigi tvímælalaust rétt á sér,“ segir
Guðmundur. „Sérstaklega til að
stofna til nýrra markaða og flytja
þekkinguna út, ef svo má segja. Hér
hafa ríkt ákveðnir átthagafjötrar í
þeim efnum. Það hefur líka sýnt sig
að einkarekstur á öðrum sviðum hef-
ur til lengri tíma litið reynst hag-
stæðari. Með einkarekstri hefur tek-
ist betur að halda kostnaði niðri en
veita samt sem áður góða þjónustu.“
Þórður bendir á að innan rík-
isrekna heilbrigðiskerfisins geti verið
erfitt að þróa starfsemi sem ekki er
efst á forgangslistanum. „Bráðaþjón-
ustan hefur auðvitað forgang inni á
sjúkrahúsunum. Þar þarf að sinna
slysum og alvarlegum sjúkdómum,
þar er fólk í lífshættu og börn að
koma í heiminn. Í samkeppni við það
á starfsemi eins og tæknifrjóvganir
mjög erfitt með að þróast, víkka út og
dafna. Því tel ég að einkarekstur eigi
mjög vel við á þessu sviði. Við höfum
miklar væntingar um að nýja tækni-
frjóvgunarstofan muni skapa mögu-
leika til að veita betri þjónustu, ná
biðlistunum niður og minnka þá erf-
iðleika sem það fólk sem leitar til
okkar þarf að klást við,“ segir Þórður
að lokum.
adalheidur@mbl.is
Morgunblaðið/Kristinn
Þórður Óskarsson og Guðmundur Arason við húsnæði nýju tæknifrjóvgunarstof-
unnar í Bæjarlind 12 í Kópavogi, sem hannað var frá grunni fyrir starfsemina.
VILTU VERÐA JÓGAKENNARI
EÐA DÝPKA JÓGAÁSTUNDUN ÞÍNA?
Jógaskólinn hefst að nýju í október en frá árinu
1997 hefur Ásmundur Gunnlaugsson útskrifað
nemendur, sem ýmist starfa sem jógakennarar í
dag eða hafa tekið þátt til þess að dýpka þekkingu
sína. Námskeiðið er yfirgripsmikið og öflugt sjálfs-
þekkingar- og þroskanámskeið, tækifæri til að
nema af kennara með mikla reynslu og þekkingu.
Það hentar t.d. öllum sem eru í einhvers konar
vinnu með einstaklinga eða hópa og/eða þeim sem
vilja gera breytingar á lífsháttum sínum. Tilhögun þess fer saman með
starfi og öðru námi en kennt er í Síðumúla 15, Reykjavík, eftirfarandi
helgar: 8.–10. október, 29.–31. október, 19.–21. nóvember, 3.–5.
desember, 21.–23. janúar og 4.–6. febrúar. „Ég reyni að fá nemendurna
til þess að skilja hjartað í verkinu, gera sér ljóst hvað jóga er eða öllu
heldur hvaða möguleika það hefur til að verða” segir Ásmundur. Ekki er
krafist mikillar reynslu og ástundunar af jóga, mikilvægast er áhugi og
jákvætt hugarfar. Einhver grundvallarþekking á jóga er þó æskileg.
Þjálfunin er viðurkennd af International Yoga Federation.
Ásmundur heldur kynningarfund laugard. 18. sept. kl. 17.30.
Skráning í símum 544 5560 & 862 5563
og á www.yogastudio.is
Lágmúla 4: 585 4000 • Hlí›asmára: 585 4100
Keflavík: 420 6000 • Akureyri: 460 0600 • Selfossi: 482 1666
og hjá umbo›smönnum um land allt. www.urvalutsyn.is
Úrval-Úts‡n
ÍS
LE
N
SK
A
A
U
G
L†
SI
N
G
A
ST
O
FA
N
/S
IA
.I
S
U
R
V
2
55
27
9
/0
4
Gerðu haustið rómantískt með heillandi borgarferð.
Þú getur valið úr fjölbreyttu úrvali ógleymanlegra
heimsborga. Pantaðu tímanlega því margar af
þessum vinsælu ferðum eru að verða uppseldar.
Kynntu þér málið í bæklingnum Borgarveisla 2004,
á www.urvalutsyn.is og hjá sölumönnum
Úrvals-Útsýnar.
Palermo
4. - 8. nóv. - Laus sæti
18. - 22. nóv. - Uppselt/biðlisti
Róm
4. - 8. nóv. - Uppselt/biðlisti
18. - 22. nóv. - Örfá sæti laus
Madrid
7. - 10. okt. - Laus sæti
31. - 24. okt. - Beint flug frá Akureyri / 11 sæti laus
Barcelona
11. - 14. nóv. - Örfá sæti laus
Búdapest
14. - 18. okt. - Uppselt/biðlisti
28. - 31. okt. - 9 sæti laus
29. okt. - 1. nóv. - 19 sæti laus
Vínarborg
Aðventuferð
25. - 29. nóv. - Laus sæti
Dublin
Helgarferðir frá 30. sept. til 2. des.
Edinborg
Ferðir frá 8. okt. til 2. des.
2ja til 7 daga ferðir.