Morgunblaðið - 05.09.2004, Blaðsíða 20

Morgunblaðið - 05.09.2004, Blaðsíða 20
20 SUNNUDAGUR 5. SEPTEMBER 2004 MORGUNBLAÐIÐ ENSKA ER OKKAR MÁL • Talnámskeið - 7 vikur • Viðskiptanámskeið • Einkatímar • Enskunám erlendis • Kennt á mismunandi stigum • Barnanámskeið (5-15 ára) • Málfræði og skrift • Þjóðfélagsleg umræða • Kvikmyndaumræða • Frítt kunnáttumat og ráðgjöf Enskunámskeið að hefjast Hringdu í síma 588 0303 • FAXAFENI 8 • www.enskuskolinn.is B æjarstjórn Seltjarn- arness hefur sett fram tillögu um breytingu á deili- skipulagi sem mið- ar að því að byggð rísi á Suðurströnd og Hrólfsskálamel. Þar er hugmyndin að rísi fjölbýlis- hús á þremur til fimm hæðum sem rúma eiga 165 íbúðir alls. Ekki eru allir Seltirningar sáttir við þennan ráðahag og telja húsin munu verða í ósamræmi við þá lágreistu byggð einbýlis- og raðhúsa sem einkennir stóran hluta sveitarfélagsins. Þeir fulltrúar ósáttra Nesbúa sem blaðamaður ræddi við óttast skipu- lagsslys og saka bæjaryfirvöld um að stunda hálfgerðar blekkingar og reyna að láta líta út fyrir að byggðin sem rísa mun sé minni en hún verður í raun. Bæjarstjórinn kveðst taka þær ásakanir afar nærri sér og hvetur fólk til að fara dómstólaleiðina sé það sannfært um að bæjaryfirvöld séu að reyna slíkt. Áhugahópur um betri byggð á Seltjarnarnesi afhenti bæjarstjóra á föstudag mótmæli „gegn tillögu að breytingu á útrunnu aðalskipu- lagi og nýju deiliskipulagi“ und- irrituðum af 924 Seltirningum, eða 37,3% af gildum atkvæðum í bæj- arstjórnarkosninum. Bæjarstjórinn segir í samtali að tillit verði tekið til málefnalegra at- hugasemda sem fram koma en furðar sig á því að þær hafi ekki komið fram fyrr, enda hafi Seltirn- ingum átt að vera kunnugt um að til stæði að byggja á þessum reit- um í meira en ár. Andstæðingar framkvæmdanna telja þau rök bæjaryfirvalda að fjölga þurfi fólki í bænum ekki standast og segja Seltirninga sátta við bæjarfélagið eins og það er. Bæjarstjórinn segir það misskiln- ing að með byggðinni sé ætlunin að fjölga íbúum. Markmiðið sé miklu frekar að viðhalda þeim íbúafjölda sem hefur verið undanfarið. Í samtölum við þá sem að málinu koma kemur fram að ekki eru allir á eitt sáttir um það hvers konar byggð eigi að rísa á reitunum og reyndar ekki um það hvort yfirleitt sé ástæða til að reisa hús á þessum stöðum. Raunar er um þrjú byggingar- svæði að ræða: við Suðurströnd þar sem nú er knattspyrnuvöllur eiga að rísa 114 íbúðir sem verða 80–120 fermetrar að stærð, á Hrólfsskálamel þar sem Bónus er núna verður miðsvæði með bland- aðri byggð og á mótum Suður- strandar og Nesvegar verður þjón- ustustarfsemi. Í ágústmánuði var borinn út í hvert hús á Nesinu kynningar- bæklingur þar sem gerð er grein fyrir breytingu á deiliskipulagi. Í bæklingnum kemur fram að und- irbúningur að gerð deiliskipulags fyrir fyrirhugað byggingarsvæði hafi hafist sl. haust. Í öðrum bæk- lingi sem barst Seltirningum í fyrravor var það kynnt að byggja ætti á þessum svæðum. Í lok apríl sl. var svo haldinn opinn fundur fyrir íbúa í Seltjarnarneskirkju til að kynna þá tillögu að deiliskipu- lagi sem nú er komin á lokastig. Til grundvallar deiliskipulaginu liggur lýðfræðigreining ráðgjafar- fyrirtækjanna Alta og John Thom- son, mannfjöldaspá Hagstofu Ís- lands og Svæðisskipulag höfuð- borgarsvæðisins. Í bæklingnum kemur fram að börnum hafi fækkað í sveitarfé- laginu og þjónustustofnanir bæj- arins eins og bókasafn og sundlaug geti tekið við aukinni aðsókn. Þá segir að þar sem sátt hafi verið um að byggja ekki á svokölluðum vest- ursvæðum sé landrými til nýbygg- inga á Nesinu mjög takmarkað. Fram kemur að umferð um Suður- strönd á kaflanum frá Nesvegi og að Steinvör aukist um 20% í kjölfar uppbyggingarinnar en breytingar á hljóðstigi því samfara séu vart merkjanlegar. Endurnýjunar húsnæðis þörf Arkitekt og verkfræðingur sem unnið hafa að tillögunum segja húsin verða „hógvær“ og telja þau alls ekki vera úr takt við þá byggð sem fyrir er. Útsýni segja þeir ekki skerðast að neinu marki nema í örfáum tilvikum og engin dul hafi verið dregin á það í kynningu. „Húsnæði úreldist í öllum bæjar- félögum. Seltjarnarnes er engin undantekning hvað þetta varðar. Jafnvel þótt íbúum myndi ekkert fjölga þá kemur að þeim punkti að endurnýja þarf það húsnæði sem fyrir er. Það gengur úr sér eins og hverjir aðrir hlutir. Það er ákveð- inn misskilningur að halda að menn þurfi ekkert að aðhafast.“ Þetta segir Ögmundur Skarphéð- insson arkitekt hjá Hornsteinum sem ásamt dönsku arkitektastof- unni Schmidt, Hammer og Lassen og verkfræðistofunni VSÓ ráðgjöf hefur unnið að skipulagstillögunum frá því í október í fyrra. Þegar þessum hópi sem unnið hefur að hönnun og útfærslu svæð- isins var falið verkefnið var lagt upp með tvennt, að sögn Ögmund- ar. „Þegar við komum að þessu verkefni þá fáum við býsna frjálsar hendur um hvernig hægt er að móta þetta. Þær forsendur sem lagt var upp með voru að á þessum svæðum skyldu rísa allt að 180 íbúðir og það að fótboltavöllur skyldi staðsettur á Hrólfsskálamel. Alta og Thompson [ráðgjafarfyr- irtæki] voru búin að gera úttekt á því að þetta svæði þyldi 180 íbúðir. En það var aldrei neinn þrýstingur á okkur um að þarna þyrfti að vera nákvæmlega þessi fjöldi íbúða. Það var farið í gegnum margar hug- myndir en staðnæmst við þessa lausn sem talin var sú heppilegasta miðað við forsendur,“ segir Ög- mundur. Skuggahverfið ákveðin fyrirmynd Grímur Már Jónasson verkfræð- ingur hjá VSÓ bætir við að bæði stýrihópur skipulags- og mann- virkjanefndar bæjarins svo og nefndin sjálf hafi verið einhuga um að leggja þessa lausn til grundvall- ar breytingum. Hornsteinar, Schmidt, Hammer og Lassen og VSÓ hafa unnið að skipulagi og hönnun Skuggahverf- isins. „Þeim á Nesinu þótti spenn- andi að fá þetta teymi til að glíma við þetta verkefni, því sú aðferða- fræði sem er notuð í Skuggahverf- inu er talsvert öðruvísi en almenn aðferðafræði í skipulagsmálum vegna þess að þar vorum við að móta sjálfa íbúðakostina um leið og skipulagið.“ Ögmundur og Grímur segja að þeim komi á óvart að gagnrýni á forsendur deiliskipulagsins hafi ekki komið fram fyrr. „Ég held við getum fullyrt það að það skipu- lagsverkefni þekkist vart sem hef- ur verið kynnt jafnrækilega eins og þetta úti á Nesi. Það er til fyr- irmyndar, hvernig svo sem þessu máli lyktar er gaman að hafa tekið þátt í jafnviðamikilli kynningu,“ segir Ögmundur. „Það sem kemur á óvart er að verið sé að gera athugasemdir við sjálft prinsippið, það að byggja eigi á Suðurströnd og Hrólfsskálavör. Þær hafa komið seint fram,“ segir Grímur. Skipulagsmál eru jafnan við- kvæm, enda nátengd tilfinningum íbúa á svæðinu. Þeir sem hafa van- ist því gegnum árin að geta horft út á sundin meðan þeir drekka Þessi mynd er tekin frá Suðurströnd og sýnir hlutföll nýbygginganna miðað við húsin tvö til vinstri, sem standa við Bakkavör. Þessar myndir birtust í bæklingi sem áhugahópurinn bar út í öll hús á Nesinu fyrir helgi. Þannig telur hópurinn eðlilegt að sýna húsin, en í bæklingi bæjaryfir- valda var sjónarhornið víðara. Deilt um deiliskipulag Gerð deiliskipulags fyrir Hrólfsskálamel og Suður- strönd og tilfærsla knattspyrnuvallar Seltjarn- arness á lóð Ísbjarnarins hefur vakið hörð við- brögð. Seltirningarnir Stefán Örn Stefánsson og Þór Whitehead eru ósáttir við skipulagið. Bæj- arstjórinn, Jónmundur Guðmarsson, undrast hversu seint gagnrýni á það kemur fram. Ög- mundur Skarphéðinsson arkitekt og Grímur Már Jónasson verkfræðingur segja nýbyggingar á Nes- inu nauðsyn. Gert er ráð fyrir 165 nýjum íbúðum.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.