Morgunblaðið - 05.09.2004, Blaðsíða 48
AUÐLESIÐ EFNI
48 SUNNUDAGUR 5. SEPTEMBER 2004 MORGUNBLAÐIÐ
DÍS – ný íslensk kvikmynd –
er komin í bíó hér á landi.
Myndin er byggð á
samnefndri skáldsögu sem
seldist mjög vel þegar hún
kom út árið 2000.
Dís fjallar um sumar í lífi
23 ára stelpu sem býr ein í
miðborg Reykjavíkur ásamt
vinkonu sinni. Hún er í
háskólanum en veit samt
ekki hvað hún vill gera við líf
sitt. Hún er ekki heldur tilbúin
að gifta sig og eignast börn
eins og vinkonur hennar.
Það er Álfrún Örnólfsdóttir
sem leikur Dís en Silja
Hauksdóttir er leikstjóri. Hún
skrifaði bókina um Dís ásamt
Birnu Önnu Björnsdóttur og
Oddnýju Sturludóttur.
Morgunblaðið/Árni Sæberg
Álfrún sem leikur Dís og Silja
sem leikstýrir myndinni.
Íslensk
kvikmynd
frumsýnd
GEORGE W. Bush, forseti
Bandaríkjanna, er hér með
eiginkonu sinni, Lauru, eftir
að hann flutti ræðu á
flokks-þingi repúblikana á
fimmtudag. Bush lofaði að
auka öryggi Bandaríkjanna
yrði hann endur-kjörinn í
kosningunum í nóvember.
Hann gagnrýndi forseta-efni
demókrata og varði stríðið í
Írak.
Bush lofar
auknu
öryggi
ÞJÓÐMINJA-SAFN Íslands var
opnað formlega á ný á
miðvikudags-kvöld. Var
safnið þá opnað eftir miklar
endurbætur sem staðið hafa
frá árinu 1997. Um 700
gestir voru viðstaddir
opnunina. Þeirra á meðal var
forstöðumaður
þjóðminja-safns Dana,
Carsten U. Larsen.
Larsen afhenti safninu
Grundarstól að láni. En
stóllinn er forngripur sem var
áður í eigu sonar Jóns
Arasonar biskups.
Davíð Oddsson
forsætis-ráðherra opnaði
safnið formlega. Var það
hans fyrsta embættis-verk frá
því hann lagðist á sjúkrahús
vegna veikinda þann 21. júlí
síðastliðinn. Ólafur Ragnar
Grímsson forseti Íslands var
viðstaddur athöfnina ásamt
eiginkonu sinni, Dorrit
Moussaieff. Fengu þau
hjónin ásamt
forsætis-ráðherra og konu
hans leiðsögn um safnið
með þjóðminja-verði.
Þorgerður Katrín
Gunnarsdóttir
menntamála-ráðherra segir
að hún voni að lán danska
þjóðminja-safnsins á
Grundarstól sé fyrsta skrefið
í að fá þjóðar-gersemar
Íslendinga heim aftur. Það
verði þó ekki gert nema í
miklu bróðerni við Dani.
Í ræðu sinni við opnun
safnsins sagði Þorgerður að
Íslendingar ættu að vera
stoltir af fortíð sinni og
menningu. Fólk yrði að muna
að hún væri ekki bara
viðfangs-efni
fornleifa-fræðinga og
sagn-fræðinga, heldur hluti
sjálfs-myndar Íslendinga.
Þess vegna væri mikilvægt
að vekja áhuga fullorðinna og
barna á því sem mætti finna í
Þjóðminja-safninu.
Þjóðminjasafnið opnað á ný
Morgunblaðið/Sverrir
Ólafur Ragnar Grímsson, forseti Íslands, og Dorrit Moussaieff, eiginkona hans, nutu leið-
sagnar Margrétar Hallgrímsdóttur þjóðminjavarðar um safnið.
TALIÐ er að minnst 150
manns hafi beðið bana á
föstudag þegar rússneskir
hermenn réðust inn í skóla í
bænum Beslan í
Norður-Ossetíu. Ríkið er
sjálfstjórnar-lýðveldi í
Kákasus-héraði í Rússlandi.
Sautján vopnaðir menn höfðu
þá haldið mörg hundruð
manns í gíslingu í skólanum í
tvo daga.
Hundruð barna voru
frelsuð úr höndum
mann-ræningjanna. Mörg
þeirra særðust þó alvarlega.
Yfir 400 manns voru flutt á
sjúkrahús eftir árás
hermannanna. Voru að
minnsta kosti 150 börn í
þeim hópi. Nokkrir
mann-ræningjanna féllu í
átökum við hermenn þegar
þeir reyndu að flýja. Nokkrir
mann-ræningjanna höfðu þá
vafið sprengju-beltum um sig
og voru sagðir hafa sprengt
sig í loft upp.
Vopnuðu mennirnir réðust
inn í skólann á
miðvikudaginn var. Talið var
að þeir væru úr röðum
aðskilnaðar-sinna í
grann-héraðinu Tétsníu. Þeir
kröfðust þess að Rússar
kölluðu hermenn sína í
Tétsníu heim. Þeir hótuðu að
myrða börnin og sprengja
upp skólann ef ráðist yrði á
þá.
Gíslarnir fengu hvorki vott
né þurrt. Sumir þeirra voru
orðnir svo örmagna að þeir
gátu varla staðið.
Gíslataka endar með blóðs-úthellingum
Reuters
Rússi heldur á særðu barni sem var frelsað úr höndum mann-
ræningja í skóla í Rússlandi.
Miðill. Ég hef hafið aftur störf
sem sjálfstætt starfandi miðill.
Upplýsingar og tímapantanir í
síma 891 9218. Ingibjörg R. Þeng-
ilsdóttir.
6 Labrador-hvolpar. Sérræktaðir
og líklegir til að verða extra stór-
ir. Ekki ættbókarfærðir en forel-
drastaðfesting fylgir. Upplýsingar
í síma 895 0020.
Trjáfellingar, trjáklippingar,
önnur garðverk. Garðyrkjufræð-
ingur, vönduð vinna. S. 843 9058.
40 feta gámur fæst gefins ef
sóttur. Lélegur en nothæfur. Árni,
s. 868 0242.
Ég missti 11 kg á 9 vikum -
www.heilsulif.is Aukakg burt!
Ása 7 kg farin! Anna 10 kg farin!
Frí próteinmæling! Alma, s. 694
9595 - www.heilsulif.is
Viltu léttast hratt og örugglega?
Anna Heiða léttist um 35 kg, ég
um 25 kg, Dóra um 15.
www.diet.is-www.diet.is
Hringdu! Margrét s. 699 1060.
Upledger stofnunin á Íslandi
auglýsir: Byrjendanámskeið í
Upledger höfuðbeina- og spjald-
hryggjarmeðferð verður haldið
3. og 4. nóvember 2004 í Reykja-
vík. Nánari uppl. í síma 466 3090
eða á www:upledger.is .
Hársnyrtimeistarar og sveinar
ath.: Stóll til leigu á stofu mið-
svæðis í Reykjavík.
Áhugasamir hafi samband á
feima@mi.is eða í síma 552 1375.
Nýlegt Yongchang-píanó í fullri
hæð. Lítið notað og vel með farið.
Svart pólerað.
Upplýsingar í síma 863 5351.
Til sölu vegna flutnings: Skatthol
(antik), sófaborð, eldhúsbekkur
og eldhúsborð, vefstóll og rak-
grind, unglingarúm, unglingaskrif-
borð, þrektæki, uppþvottavél,
sumarhjólbarðar o.fl. Upplýsingar
í síma 692 5969 eftir kl. 16.
Til sölu nýlegt rúm 135x200
(Kósý húsgögn), mjög vel með
farið, fataskápur IKEA með skúff-
um frábær hirsla. Uppl. 820 2137.
Þarftu að auglýsa bílinn þinn?
Mundu eftir bílablaðinu á mið-
vikudögum. Auglýsing með mynd
á kr. 1.500. Komdu með bílinn og
við tökum myndina þér að kost-
naðarlausu. Pantanafrestur í bíla-
blaðið er til kl. 12 á þriðjudögum.
Auglýsingadeild Morgunblaðsins,
sími 569 1111. Netfang:
augl@mbl.is